Tíminn - 22.05.1981, Page 7

Tíminn - 22.05.1981, Page 7
Föstudagur 22. raai 1981 erlent yfirlit: ■ Frá viðræðum Reagans og Suzukis I Hvita húsinu Hyggin mús eða öskrandi Ijón Suzuki kýs heldur fyrri kostinn ■ TVEIR jafnaldrar, rétt sjötug- ir að aldri, báru saman bækur sinar i Hvita húsinu 7. þ.m. Það voru þeir Ronald Reagan forseti og Zenko Suzuki forsætisráðherra Japans. Viðræður þeirra stóðu ekki lengi, aðeins 50 minútur. Samkvæmt tilkynningu, sem var gefin út eftir þær, fóru þær mjög vinsamlega fram. Sagan segir, að Reagan hafi rætt við japanska forsætisráð- herrann af mikilli vinsemd og hógværð. I fyrsta lagi hafi Reagan beðið afsökunar á þvi, að bandariskur kafbátur sigldi nýlega niður japanskt kaupfar undan Japans- ströndum og tók ekki þátt i að bjarga áhöfninni. 1 öðru lagi hafi Reagan beðizt afsökunar á þvi, að hann hefði ekki látið stjórn Japans vita með nægum fyrirvara, að kornsölu- bannið á Sovétrikjum yrði af- numið, en Suzuki hafði gagnrýnt þetta opinberlega áður en hann fór að heiman. 1 þriðja lagi lýsti Reagan svo ánægju sinni með þá ákvörðun Japana að takmarka bilainn- flutninginn til Bandarikjanna. Vafasamt er, að Reagan hafi get- ið þess, að ella hefði hann þó sett höft á þennan innflutning. Ekkert af þessu var þó aðalefni viðræðna þeirra Reagans og Su- zukis. Helzta viðræðuefnið var sú ósk Bandarikjanna, að Japanir ykju framlög sin til vigbúnaðar. Nokkru áður en Suzuki hélt aö heiman frá Tokýó, eða 28. april, haföi Weinberger varnarmála- ráðherra Bandarikjanna flutt ræðu i San Francisco, þar sem hann lýsti áhyggjum sinum og Bandarikjastjórnar yfir þvi, að Japanir treystu ekki varnir sinar. Japanir væru allt of sparir á framlög til þeirra. Þvi til sönnunar nefndi Wein- berger þær tölur, að Bandarikja- menn legöu fram sex sinnum meira til varnarmála en Japanir, þegar miðað væri við hundraðs- hluta af þjóðartekjum. SAGT ER, að Reagan hafi rætt þettamál við Suzuki, án þess að bera fram ákveðnar kröfur. Svör Suzukis eru talin hafa ver- iö i samræmi við það, sem hann var búinn að segja á fundi með utanrikisnefnd fulltrúadeildar Bandarikjaþings, og hann var einnig búinn aö lýsa yfir áður en hann fór frá Tokýó. Japanir munu ekki hækka framlög sin til varnarmála aö neinu ráði. 1 fyrsta lagi rökstuddi Suzuki þetta meö þvi, að stjórnarskrá Japans heimilaði ekki öllu meiri framlög en nú. Að kröfu Bandarikjanna var það ákvæði sett I stjórnarskrána, að Japanir mættu aðeins vigbúast i varnarskyni, en ekki til árása. Þetta setti vigbúnaði Japana mjög þröngar skorður. 1 öðru lagi væri japanska þjóðin mjög andvig vigbúnaði. Þið getið verið vissir um, sagði Suzuki, að ef stjórnin eykur vigbúnaðarút- gjöldin, fá sósialistar völdin i Japan. Viljið þið Bandarikja- menn stuðla að þvi? Teljið þið, að það yrði ávinningur fyrir ykkur? Við munum þvi fara okkur hægt i þessum málum og þið megið ekki beita of miklum þrýstingi. ViðJapanir kjósum heldur, sagði Suzuki á fundi utanrikisnefndar- innar, að vera hyggin mús en öskrandi ljón. Jafnhliða þessu lýsti Suzuki fullum stuðningi við varnarsam- komulagið, sem gert var við Japan um leið og sett voru hin þröngu vigbúnaðarákvæði i stjórnarskrána. Samkvæmt þvi tóku Bandarikjamenn að sér varnir Japans að vissu marki og hafa enn samkvæmt þvi nokkurt herlið i Japan. ÞRATT fyrir þessar yfirlýsing- ar Suzukis telja sumir fréttaskýr- endur, að Reagan hafi ekki fengið algert afsvar hjá Suzuki, þótt hann hafi hvergi nærri fullnægt óskum Bandarikjanna um aukin ■ Varnarmálin valda þvl, að Su- zuki hefur Iltinn tima til fiskveiöa um þessar mundir, en þær eru helzta tómstundaiðja hans hernaðarframlög. 1 rússneskum fjölmiðlum er Suzuki likt við mús, sem læðist. Umræddir fréttaskýrendur telja, að Suzuki hafi fallizt á að Japanir greiddu meira en áður af kostnaði þeim, sem hlýzt af dvöl bandariska herliðsins i Japan. Þá hafi hann einnig fallizt á, að Japan taki að sér aukið eftirlit á Kyrrahafi, en Bandarikjamenn hafa dregið úr þvi sökum þess, aö þeir hafa flutt skip og flugvélar, sem voru til eftirlits þar til Ind- landshafs vegna striðshættunnar við Persaflóa. Sumir fréttamenn telja, að Su- zuki hafi fallizt á enn meira, þvi að fyrstu tilkynningu um viðræð- ur Suzukis i Washington hafi mátt skilja á þá leið. Sú tilkynning vakti mikinn úlfaþyt hjá stjórnar- andstæðingum i Tokýó. Ito utan- rikisráðherra fékk fyrir þetta svo mikla ofanigjöf frá forsætisráð- herranum, að hann sagði af sér. Nýr utanrikisráðherra, Sunao Sonoda, hefur verið skipaður i stað hans. Raunir Suzukis áttu þó eftir að aukast. Um siðustu helgi birti japanska dagblaðið Mainichi þá frétt, að Edwin Reischauer, fyrrv. sndiherra Bandarikjanna i Tokýó, hefði skýrt frá þvi, að árið 1960 hefði verið samið um það milli stjórnanna i Washington og Tokýó, að bandarisk skip, sem væru með kjarnorkusprengjur, mættukomaviðihöfnum i Japan. Þetta varð mikið vatn á myllu japanskra sósialista, sem hafa deilt hart á stjórnarflokkinn fyrir þaö að hafa leyft Bandarikja- mönnum að geyma kjarnorku- sprengjur i Japan. Af hálfu stjórnarinnarhefur þvi alltaf ver- iö mótmælt. Reischauer, sem nú er kennari viö Harvardháskóla, nýtur mikils álits i Japan. Þessi mál hafa vakið miklar deilur i Japan og hafa leitt til þess, að ákveðið hefur verið, að Haig utanrikisráðherra heimsæki ekki Tokýó i sambandi við Kina- för sina i næsta mánuði, eins og ráðgert hafði verið. Stjórnin i Tokýó mun hafa óttast miklar æsingar, ef Haig kæmi þangað. Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri, skrifar 7 erlendar fréttir Begin herdir skilmála sínal ■ Menachem Begin, for- sætisráöherra Israel, setti I gær ný skilyrði fyrir þvf að Is- raelar gengju til samninga um friösamlega lausn á deilu þeirra viö Sýrlendinga, vegna loftvarnarflauga hinna siöar- nefndu I Libanon. Begin sagði i gær, i viðtali við sjónvarpsstöðina NBC, að ef friðsamleg lausn ætti að finnast, yrðu Sýrlendingar ekki aðeins að hverfa á brott með þær loftvarnarflaugar sem þeir hafa i Libanon, held- ur einnig að fjarlægja þær loftvarnaeldflaugar, sem þeir hafa staðsett á sinu eigin landi, i nánd við landamæri Sýrlands og Libanon. Auk þess yrðu Sýrlendingar • að gefa fyrirheit um að þeir myndu aldrei beita loftvarnaflaugum sinum gegn israelskum flug- vélum, þeir yrðu að flytja á brott hersveitir sinar frá hluta af Libanon og hætt umsátri um borg-þar. Sagöi Begin i gær, að ef Sýr- lendingar uppfylltu þessa skil- mála, væri hægt að koma ástandinu.i Líbanon og sam- skiptum tsraela og Sýrlend- inga, aftur i sama horf og var, áöur en þaö hættuástand, sem nú rikir I Libanon, komst á. Þessir skilmálar ísraela eru mun harðari en nokkrir þeir sem áður hafa verið gerðir opinberir og þykja ekki líkleg- ir til þess að greiða fyrir samningaumleitunum. Sýrlenskir embættismenn i Damaskus sögðu I gær að þaö væri ekki til neins fyrir Philip Habib, að snúa aftur til Dam- askus, nema hann hafi eitt- hvaö nýtt til málanna aö leggja. Sýrlendingar segja að fram tii þessa hafi Habib ekki gert annaö en að koma kröfum Begins, forsætisráðherra, á framfæri. Begin setti ný skilyröi fyrir samningaviöræöum viö Sýrlend- inga. Minnka vopnasölu- takmarkanir Bandarisk stjórnvö'id hafa tekið þá ákvörðun að siaka mikið á takmörkunum, sem rikistjórn Carters, fyrrum Bandarikjaforseta, setti á heimildir til vopnasölu til ann- arra rikja. Aðstoðar-varnarmálaráð- herra Bandarikjanna sagði i gær, að stjórn Reagans teldi að slökun þessara takmark- ana gæti auðvledað Banda- rikjamönnum viðhald varnar- mála sinna og gæti auk þess reynst þarft tól i rekstri utan- rikisstefnu Bandarikjanna. Aðstoðarráðherrann sagði að þetta þýddi ekki að öllum hömlum væri af létt. Banda- rikjamenn myndu áskilja sér rétt til að úrskurða hvort þau vopn sem selja ætti i hverju tilviki hæfðu rlki þvi sem væri kaupandinn. Hann sagði ennfremur, að þau riki sem sýnt hafa fram á vilja sinn til samvinnu við Bandarikin, myndu fá for- gangsafgreiðslu i vopnasölu- málum. Mitterand tekinn við Francois Mitterrand, ný- kjörinn forseti Frakkland, tók i gær formlega viö embætti. Tekið var til þess i gær að Mitterrand, sem þykir fremur óstundvis, hafi komið aðeins tveim minútum og seint til at- hafnarinnar. BANDARIKINtDagblaðið Washington Post skýrði I gær frá þvl, aö bandarisk stjórnvöld hefðu fyrir skömmu sent sveit málaliða inn I frumskóga Laos, til að kanna það hvort þar væru enn i haldi bandarískir striðsfangar frá þvi I Vietnam-styrjöldinni. Aö- standendur bandariskra hermanna, sem enn er saknaö, höföu skipulagt málaliðasveitina og ætluðu að senda hana til Laos, en urðu að hætta við. Tóku þá stjórnvöld við og héldu áætluninni áfram. Niðurstaða leiðangursins varneikvæð, engin merki fund- ust um bandariska strlösfanga i Laos. ITALIA: í gær var birtur á ítaliu listi meö yfir niu hundruð nöfn- um manna, sem sagðir eru félagar I leynihreyfingu, sem hafi staöiö að ýmiss konar afbrotum og jafnvel skipulagt valdarán á ttaliu. A listanum eru nöfn margra þekktra manna úr viöskipta- heiminum á ítaliu, svo og stjórnmálamanna, meöal annars tveggja ráöherra. N-ÍRLAND: Þriöji IRA-maöurinn er nú látinn af völdum hung- urverkfalls þess sem staöið hefur I Maze-fangeis.inu á N Irlondi undanfariö. Haföi hann svelt sig I sextiu daga. Hinn fjóröi er nú mjög hætt kominn og er búist viö að hann látist innan fárra daga, en hann hefur ekki neytt matar i sextiu og einn dag. Enn einn IRA-maðurinn, sem sveltir sig I fangelsi á N-lrlandi, var i gær fluttur á sjúkrahús, vegna innvortis blæðinga. BRETLAND: Gerð var tilraun til að kveikja I húsi Peter Sut- cliffe I Yorkshire á Bretlandi i fyrradag, en Sutcliffe er nú fyrir rétti vegna morða á þrettán konum og tilrauna til aö myröa fimm i viöbót.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.