Tíminn - 22.05.1981, Page 24

Tíminn - 22.05.1981, Page 24
> VARAHLUTIR Mikiö úrval Sendum um land allt Kaupum nýlega bíla til niöurrifs Sími (91) 7 - 75- 51, (91) 7-80-30. HEDD HF. Skemmuvegi 20 Kópavogi Opið virka daga 9-19 ■ Laugar- daga 10-16 HEDD HFí Gagnkvæmt tryggingafélag Nútíma búskapur þarfnast: BAUER haugsugu Guðbjörn Guðjónsson heildverslun, Kornagarði Sími 85677 Föstudagur 22. mai 1981 Þessi tveggja ára sjúklingur á Borgarspltalanum, Hafþór Sigur mundsson, bar sig sannarlega vel miðað viö aðstæður. Flest á liklega beturviðlitla fjörkálfa en aðliggja hreyfingarlausa vikum saman. Tlmamynd Ella. Fótleggirnir eru strekktir með lóðum beint upp í loftið: HANN MA EKKI HREYFA FÆTURNA I EINN MANUÐ ■ Að verða fyrir slysi og þurfa þá kannski að liggja hreyfingar- laus vikum saman, jafnvel sár- þjáður, veitist öllum erfitt. Þó má gera ráð fyrir að fáum sé það erf- iðara en litlum fjörkálfum sem venjulega er litið fyrir hreyfinga- og athafnaleysi en vilja helst allt- af vera á fartinni. Þennan litla herramann á myndinni, sem heitir Hafþór Sig- urmundsson, hittum við I gangi dropar Borgarspitalans nýlega ásamt móður sinni, sem einmitt hafði þurft aðfara fram til að skreppa i simann. Slysin geta viða skeð. Að sögn móður hans var Hafþór litli bara að leika sér inni i her- bergi, að hoppa uppi i svefnbekk, sem mönnum á hans aldri þykir einmitt oft svo gaman. Fallið var þvi ekki hátt þegar hann hrasaði fram af bekknum en nóg til þess að annar lærleggur hans brotn- aði. Hafþór hefur siðan þurft að liggja þannig hreyfingarlaus með vafða fótleggi strekkta með lóð- um, beint upp I loftið i tvær vikur og átti eftir aðrar tvær vikur i við- bót, i sömu stellingum, að þvi tal- ið var. Eins og hver og einn getur imyndað sér verða fæturnir fljót- lega dofnir i þessum stellingum, sem veldur Hafþóri talsverðum þjáningum. Að sögn móöurinnar hafa þau foreldrar Hafþórs verið yfir hon- um til skiptis allan sólarhringinn, honum til styrktar og huggunar. Sagði hún alla aðstöðu til sliks á- kaflega góða á Borgarspltalanum og alla þar boðna og búna til að gera dvölina sem þægilegasta. Við hjá Timanum vonum að Hafþór litli geti sem fyrst staðið I heila fætur á ný og komist út I vorbliðuna að leika sér. — HEI Ekkert samráö vid Þráinn ■ Þráinn Eggertsson, hagfræöingur, haföi sam- band við Dropa og afncit- aði þvi staðfastlega að hafa nokkurn tima gengið i nokkurt tafiféiag, en Þráinn var einn I þeim friða hópi sem Dropar upplýstu að hefðu nýlega gengið i Taflfélag Sei- tjarnarness. Þar meö er Þráinn kominn i þann flokk manna sem án vitundar og vilja þeirra sjáifra hafa veriö innritaðir i hin ýmsu taflfélög. Formanna- raunir ■ Dropar birtu nýlega mjög krassandi iýsingu á ferðlagi tveggja verka- lýðsforingja norður til Akureyrar. Frásögnin bar yfirskriftina „Eid- steik og koniak” og var tekin úr Prentaranum, málgagni Félags bóka- gerðarmanna. Vegna nokkuð útbreidds mis- skilnings er rétt að taka fram að þaö voru ekki formaður og varaformað- ur þess félags sem fóru I iystireisuna mikiu, held- ur þeir sem gegndu sömu embættum hjá Grafiska sveinaféiaginu á sinum tima. Skrifari upptekinn ■ Þingmenn hafa ekki átt sjö dagana sæla að undanförnu. ógnarhraði hefur verið á afgreiðslu mála, nefndarálit og breytingatillögur við hin ýmsu mál hafa flætt yfir. Þingmenn hafa þvi mátt hafa sig alla við um að fylgjast með. Hefur það reyndar komið fyrir oftar en einu sinni að mála- rekstur og atkvæða- greiðslur hafa gengiö skrykkjótt fyrir sig. Sverrir Hermannsson, forseti neðri deildar, hef- ur reynt sitt besta til að létta þingmönnum lifið i annrikinu. Hann hefur ó- spart slegiö á Iétta strengi, en fyrir þvi hafa ýmsir orðið, ekki sist skrifari deildarinnar Halldór Blöndal. Á einum kvöldfundinum i neðri deild fengust ekki úrslit I atkv æðagreiðslu við fyrstu tilraun, og Sverrir Síðustu fréttir Björgvin hlaut blessun1 borgar- stjórnar ■ Borgarstjórn Reykjavikur sam- þykkti með niu sam- hljóða atkvæðum á fundi sinum i gær- kveldi að ráða Björg- vin Guðmundsson for- stjöra BtJR, frá og með næsta hausti. - Ráðninguna sam- þykktu fulltrúar meirihlutans auk Al- berts Guðmunds- sonar. Aðrir fulltrúar sjálfstæðismanna sátu hjá. Eru getur að þvi leiddar að með þessu hafi Albert verið að endurgjalda Björgvini stuðning hans við for- setaframboð sitt á sið- asta ári. Kás Varð bráðkvadd- ur undir stýri ■Maður varð bráð- kvaddur undir stýri á bifreið sinni i gær, er hann var á leið niður Fellsmúla. Rann bif- reiðin stjörnlaus niður brekkuna, og hafnaði á HreyfilshUsinu neðst við götuna, en ekki mun hafa orðið mikið tjón á bllnum þrátt fyrir það. Maðurinn var kominn á niræðis- aldur, fæddur 1898. —AM Valgeir fékk Ársel ■ Valgeir Guðjónsson var i gær ráðinn for- stöðumaður félags- miðstöðvarinnar Ársel, með tólf at- kvæðum, á fundi borgarstjórnar i gær- kveldi. Guðmundur E. Pálsson hlaut þrjú at- kvæði. Kás bað menn að reyna aftur með þessum orðum: „Skrifari var upptekinn við að velta fyrir sér um hvað frumvarp þetta fjallaði, og mátti ekki vera að þvi að telja. Má ég biðja um að atkvæöa- greiðsian verði endurtek- in”. Krummi ... ... tók eftir því hvað sumir rikisstarfsmenn ieggja ó- hemjumikið á sig fyrir okkur skattborgarana, þar sem meira en helm- ingur launagreiðsina sumra rikisstofnana eru fyrir yfirvinnu!

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.