Tíminn - 18.07.1981, Page 3
Laugardagur 18. júli 1981
3
fréttir
„Framkvæmd á ýmsum atriðum álsamninganna í meira lagi vafasöm”
segir Steingrímur Hermannsson:
SUORNARMENN ISALS LEYNDIR
ÝMSUM MIKILVÆGUM ATRIÐUM
% „Auövitað cr það aðalatriðið i
þessu súrálsmáli að við náum
fram okkar rétti og Alusuisse
haldi gerða samninga. Ég efast
hins vegar um að skattar af þess-
um umræddu 16.2 milljónum doll-
ara nægðu til þess að þurrka út
skattainneigu ISAL hjá rikissjóði.
En rannsóknin á aðföngum raf-
skauta gæti breytt þeirri mynd
talsvert”, sagði Steingrimur Her-
mannsson, sjávarútvegsráðherra»
i viðtali við Timann i gær.
„ISAL á nú um 4 mill-
jónir dollara i skattainn-
eign”
„ISAL greiðir framleiðslu-
gjald, sem er einskonar aðstöðu-
gjald. Lágmarksgreiðsla er 20
dollarar á tonn af áli, og hækkar
svo gjaldið i hlutfalli viö hækkun
á áli eftir ákveðnum reglum.
Nú greiðir ISAL rúma 30 doll-
ara á tonnið. Það var ákveðið að
framleiðslugjaldið yrði aldrei
hærra en 55% af hagnaði ISAL og
aldrei lægra en 35%.
begar reikningar fyrirtækisins
liggja fyrir eftir áramót, þá er
framleiðslugjaldið endurskoðað,
og ef það reynist meira en 55% af
hagnaði, þá safnar fyrirtækið upp
skattainneign hjá rikinu, sem
greiðist svo smám saman niður
með þvi að ISAL greiðir aðeins
lágmarksframleiðslugjald, 20
dollara. Á siðasta ári greiddi
fyrirtækið t.d. aðeins lágmarks-
framieiðslugjald og lækkaði
þannig skattainneign sina um 2
milljónir dollara, þannig að nú
eiga þeir um 4 milljónir dollara i
skattainneign”, sagði Steingrim-
ur.
„Eigum skilyrðislaust
að eiga meirihluta i
stóriðjufyrirtækjum hér
á landi”
— Nú reynist oft erfitt að fylgj-
ast með þvi aö fjölþjóðafyrirtæki,
eins og Alusuisse, framfylgi
samningum sinum. Hvað er til
ráða I þvi efni?
■ Steingrimur Hermannsson
„Við eigum skilyrðislaust að
eiga meirihluta i stóriðjufyrir-
tækjum hér á landi. Að minnsta
kosti eigum við að vinna að þvi
smám saman að við eignumst
meirihluta, þvi þá er jú hægara
um vik að fylgjast með og vera
hlutaðeigendur að ákvaröana-
töku. Mér dettur i hug að það
mættinota þetta íramleiðslugjald
hjá ISAL sem hiutafjárgreiöslu.
Annars tel ég að framkvæmd á
ýmsum atriðum álsamninganna
sé i meira lagi vafasöm. Fulltrú-
ar rikisins i stjórn ISAL eru þang-
að komnir til þess að fylgjast með
og fylgja eftir að samningarnir
séu haldnir, en ég fæ ekki betur
séð en þeir hafi verið leyndir
ýmsum mikilvægum atriðum, s.s
yfirliti og skýrslum um aðföng
fyrirtækisins.
Mér er iafnframt tjáð, að á 1.
eða 2. stjórnarfundi fyrirtækisins
1969 hafi stjórn ISAL samþykkt
að setja á fót framkvæmdastjórn
sem hafi gifurlegt vald. Hana
skipa þrir menn, 2 Svisslending-
ar og einn lslendingur, þ.e. Ragn-
ar Halldórsson forstjóri. Ég fæ
ekki betur séð en að þessi stjórn
taki allar veigamestu ákvarðan-
irnar, en i samningunum er ekk-
ert ákvæði um slika fram-
kvæmdastjórn.”
— Hvaða leið telur þú aö við
eigum að fara i viðræöum okkar
við Alusuisse nú?
„Okkar besta sókn i þessu máli
er að leggja fram öll þau gögn,
sem við getum, á drengilegan og
hlutlausan hátt. Það er mjög
mikilvægt að við leitum eftir
samkomulagi og samningum við
Alusuisse, þar sem við fáum leið-
réttingu á framleiðslugjaldinu og
hækkun á raforkuverðinu.
„Málaferli gætu orðið
okkur dýrkeypt”
Ég teldi það mjög slæmt ef
málaferli hlytust af' þessu, þvi
bæði myndu þau laka mjög lang-
an tima, jafnvel nokkur ár og eins
verða báðum aðilum gifurlega
kostnaðarsöm. Slik málaferli
myndu að öllum likindum kosta
okkur geysilegar upphæðir og
yrðiég ekki hissa þótt kostnaður-
inn við alþjóðlegan gerðardóm
færi upp i éina milljón dollara.
Aðalatriðið er að við náum fram
okkar rétti, þvi hann gefum við
aldrei eftir, en engu að siður
verðum við að haga okkur skyn-
samlega.”
—AB
Helge Seip ræðir um Sjálfstæðis-
flokkinn í norsku dagbladi:
Tekur
Albert við
flokksfor-
mennsku?
Hann á TTgóöa möguleika” ef Geir
og Gunnar fást til að gefa
formennskustarfið frá sér
■ Þær voru ekki ýkja margar sólskinsstundirnar sem gáfust I gær, en þeir sem voru séðir nýttu þær þó
til þess að skreppa i laugina. Timamynd: Ella.
Sovétmenn fúsir til að sleppa fjölskyldu Kortsnojs
ef Friðrik dregur frestun einvígisins til baka:
„Viðbrögð okkar
yrðu mjög jákvæð”
— segir Alban Brodbeck fulltrúi Kortsnojs
■ „Hvað tekur við af merki-
legustu s a m steypustjórn
Evrópu?” spvr Helge Seip,
þekktur norskur stjórnmála- og
blaðamaður, I grein sem hann
ritar i Norges Handels- og Sjö-
fartstidende um islensk stjórn-
mál.
1 greininni lýsir Helge Seip nú-
verandi samsteypustjórn hér á
landi, en fjallar fyrst og fremst
um framtiðarhorfurnar i Sjálf-
stæðisflokknum og alþingis-
kosningar, sem hann segir að
vænta megi þegar á næsta ári,
1982.
Hann segir, að úrslit þeirra
kosninga, og það, sem taki við
eftir þær, fari mjög eftir þvi hvað
gerist innan Sjálfstæðisflokksins.
Um átökin i Sjálfstæðisflokknum
segir hann:
„Konungsefnin þrjú i Sjálf-
stæðisflokknum eru núverandi
flokksformaður, Geir Hallgrims-
son, núverandi forsætisráðherra,
Gunnar Thoroddsen, og svo
„dark horse” — Albert Guð-
mundsson — fyrrverandi alþjóð-
leg knattspyrnustjarna og núver-
andi fjármálamaður og mill-
jóneri. Albert hefur fengið
vaxandi stuðning bæði innan og
utan flokks sins, þótt hann til-
heyri fjögurramannahópnum i
stjórnarliðinu á Alþingi. Margir
telja han’n væntanlegan borgar-
stjóra i Reykjavik.
Spurningin mikla er sú, hvort
Geir Hallgrimssyni tekst að hafa
hemil á biturð sinni vegna „svika’
Gunnars Thoroddsens og dregur
sig til baka sem formaður, eða
hvort hann nýtir sér þann meiri-
hluta, sem hann er talinn eiga i
flokknum, til að halda áfram.
...Það er ekki vafi á þvi, að
þróun islenskra sljórnmála á
næstunni ræðst mikið af þvi,
hvernig Sjálfstæðisflokknum
tekst að leysa vandamál sin. 1 þvi
efni er samkomulagsmöguleikinn
sá, að báðir þeir, sem i dag eru
fremstir i viglinunni, gefi frá sér
formannsembættið i flokknum.
Ef svo fer, þá hefur Albert góða
möguleika á að taka við for-
mennskunni.... Þar með kæmi
hann jafnframt fram persónuleg-
um hefndum á Geir Hallgrims-
syni, sem lét það vera siðast
þegar hann myndaði rikisstjórn
að veita Albert ráðherraem-
bætti”.
Helge Seip telur sennilegt, að
Gunnar Thoroddsen verði aftur i
kjöri til alþingis — annað hvort á
sameinuðum lista sjálfstæðis-
manna eða á sérlista —, en hins
vegar sé óliklegt, að núverandi
stjórnarsamstarf haldi áfram
eftir þær kosningar.
Hann segir einnig, að ef ekki
verði sættir i Sjálfstæðis-
flokknum, sé þróun islenskra
stjórnmála enn óljósari, en
væntanlega muni Alþýðuflokkur-
inn og Framsóknarflokkurinn
græða á sliku i kosningum.
—ESJ.
■ „Ég get ekki talað fyrir hönd
Kortsnoj sjálfs um það efni, en
okkar viðbrögð myndu verða
mjög jákvæð og ég myndi vissu-
lega ráðleggja honum að sam-
þykkja að einviginu yrði aftur
flýtt, ef kona hans og sonur yrðu
látin laus áður. Ég held lika að
Kortsnoj sjálfur myndi bregðast
við á sama hátt, það er, ef eigin-
kona hans og sonur fengju að fara
úr landi i Sovétrikjunum nægi-
lega löngu fyrir 19. september til
þess að framkvæmanlegt yrði að
hefja einvigið þá, myndi hann
umyrðalaust samþykkja það”.
Þetta sagði Alban Brodbeck,
fulltrúi Viktor Kortsnoj, i viðtali
við Timann i gær þegar bornar
voru undir hann fregnir af þvi að
Sovétmenn væru hugsanlega fús-
ir að veita fjölskyldu Kortsnoj
fararheimild frá Sovétrikjunum,
ef heimsmeistaraeinvigið hæfist
á upphaflega áætluðum tima.
„Við höfum ekki verið að leika
okkur að sannleikanum”, sagði
Brodbeck ennfremur, „og höfum
ekki veriö að krefjast þess allan
■ A lban Brodbeck
þennan tima að fjölskylda hans
yrði látin laus, til þess eins að
draga i land þegar við höfum náð
marki okkar. Ég vil hins vegar
leggja áherslu á, að vegna skipu-
lagsmála, yrðu þau að vera laus
töluvert fyrir upphafsdag ein-
vigisins, til þess að unnt væri að
hefja það. Það dugir ekki að hafa
rétt fáeina daga til þess.
Hitt er svo annað mál, að þótt
ýmsir aðilar málsins hafi skilið
orð eins ■ úr sovésku sendi-
nefndinniá þann veg,aðþað sé að
vænta yfirlýsingar um þetta efni
frá sovéskum stjórnvöldum, þá
höfum við enga yfirlýsingu i
höndunum enn sem komið er.
Hins vegar hef ég i höndunum
kröfu, sem Kortsnoj lét mig fá i
gær og ég mun senda Brésnef nú
um helgina. Það er krafa um að
fjölskylda Kortsnoj verði látin
laus nú þegar.”
HV