Tíminn - 18.07.1981, Qupperneq 16
VARAHLUTIR
Sendum um land allt
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
Simi (91) 7-75-51, (91) 7- 80-30.
TTTTTin TTT? Skemmuvegi 20.
tlhjULt iUr . Kdpavoffi
Mikiö úrval
Opið virka daga
9-19 • Laugar-
daga 10-16
HEDD HF,
Gagnkvæmt
tryggingafélag
3z \M\VISSM
Fjórhjóladrifnar dráttarvélar
70 og 90 ha.
Kynnið ykkur verð og kosti
BELARUS
Guðbjörn Guðjónsson
heildverslun
far
■ Ein af myndum þeim, sem fylgja grein Alexanders. tslenskt hestafólk f göngum og á myndinni má þekkja, me&al annarra, séra Emil
Björnsson, fréttastjóra Sjónvarpsins.
EINS OG AÐ ENDUR-
LIFA V KINGADRAUM
„Aö fara á stökki yfir sveitirn-
ar viö Hellu, þegar vindstrekk-
ingurinn þcytir faxi islenska
hestsins þfns upp i blævæng, er
eins og aö endurlifa vikinga-
draum. Ekkert er til annaö en þú
og heiður himinn. og i bakgrunni
jarngrá fjölhn, með snjdkórónu f
sjálfum jiínimánuði. Eitt þeirra
gnæfir yfir önnur — cldfjalliö
Hekla, sem gaus í skyndilegri
reiöi á siöasta sumri, áminning
um aö öll eyjan er vföáttumikiö
eldvirkt svæði, þakiö frussandi
gfgum, leirpollum og heitum
hverum”, segir I grein eftir John
nokkurn Alexander, sem birtist I
breska hestamannatimaritinu
Riding, f janúarmánuöi sföast-
liönum.
Þaö er einkum tvennt, sem ein-
kennir þessa grein og gefur henni
sérstöði meðal bess, sem erlendir
aöilar hafa ritað um Island og is-
lensk málefni. Annað er sú ein-
dregna hrifning, sem landið og
hestarnir hafa vakið hjá þeim er
skrifar hana. Hitt er sú
nákvæmni, sem beitt er i meðferð
uppiysinga, staðreynda og is-
lenskra orða og heita, sem er öllu
sjaldgæfari.
1 greininni segir Alexander, að
kynni ferðamanns og hests á
tslandi komist skjótt á, enda sé
taliðað á landinu séu um fimmtiu
og fimm þUsund hross, meðan
mannlegir landsmenn séu aðeins
liðlega tvö hundruð þUsund.
Umíslenska hestinn segir Alex-
ander, meðal annars:
„Til fyrsta reiötUrs mfns valdi
égKládíus, góðan tölthest. Tölt er
gangur, sem reiðmaðurinn venst
fljótlega, með aðstoð breiðs, allt
að riddaraliðslegs hnakksins.
Reiðstíll, eins og tiðkast á Eng-
landi, gleymist fljótlega. Hvort
heldur farið er á brokki eða tölti,
er það eðlilegt að halla sér aftur,
með fótleggina mun framsettari
en venja ber til á hestbaki.
Valhoppið er talið óásjálegt og
venjulega erfarið beintá stökk og
siðan, rétt til að gera málin enn
meir ruglandi, á skeið. Það er
notað til að fara stuttar vega-
lengdirá miklum hraða og hreyf-
ir hesturinn þá báða fætur á
hvorri hlið samtimis. En, látið Is-
lendingunum þetta eftir — það er
langt frá þvi auðvelt.”
Alexander minnist i grein sinni
á þaö, að sérstakir eiginleikar is-
lenska hestsins, það er smæð
hans.langlifi, nægjusemi i fóðrum
og geta hans til aö starfa við mis-
jöfn birtuskilyrði, hafi ieitt til
þess að hann var seldur i þræl-
dóm i skoskum námum fyrr á
þessari öld.
,,Þau viðskipti eru nU hörmuð
sárlega”, segir Alexander, „og i
dag er bætt fyrir þau með þeirri
umhyggju sem Islendingar sýna
hestum sinum, bæði hvað varðar
umönnup hesta og hreinleik
stofnsins.”
I lok greinarinnar fjallar Alex-
ander svo um kostnað við
íslandsferðir, miðað við „hesta-
frí”, eins og hann orðar það.
Kemst hann að þeirri niðurstöðu
að sleppa megi sæmilega frá
slíkri ferð, þvi þótt bensin og mat-
ur séu dýr, reynist það ekki jafn
hræðilegt og I sumum löndum
öðrum.
tslenski hesturinn og Island
hafa greinilega eignast nýjan vin
og sé vinnsla greinarinnar ein-
hver vísbending, er þaö vinur
sem vert er að eiga að.
Laugardagur 18. júlf 1981
fréttir
Ákvörðun um
styrk tekin
i lok júlí
■ Hugsanlegur
styrkur til Flugleiða,
af hálfu rikisstjórnar-
innar i Luxemborg,
verður ekki tekin til
athugunar á stjórnar-
fundi þar, fyrr en und-
ir lok þessa mánaðar.
Rikisstjórn landsins
fékk i gær i skeyti
upplýsingar -um
ákvörðun islensku
stjdrnarinnar i þeim
efnum.
André Claude,
blaðafulltrúi rikis-
stjórnarinnar i Lux-
emborg, sagði i viðtali
við Timann i gær, að
málefni Flugleiða
hefðu ekki verið rædd
á fundi stjórnarinnar
þar i gærmorgun og
yrðu ekki rædd fyrr en
undir lok mánaðarins.
Sagði Claude, að
ákvörðun yrði þá tek-
in, með hliösjón af þvi
hvernig Atlantshafs-
flugi yrði háttað eftir
októbermánuð i haust,
svo og með hliösjón af
skýrslum, sem sýni
aukna umferð á leið-
inni, með allt að 80%
sætanýtingu flugvéla.
Ennfremur yrði mið
tekið af þvi að styrk-
urinn til Flugleiða,
sem veittur var sið-
asta ár, hefði aldrei
átt að verða árlegt
framlag, heldur ein-
stæður. HV
Stórskemmdir
eftir árekstur
■ Stórskemmdir
urðu á tveimur veg-
legum fólksbifreiðum
við Kringlumýrar-
braut á móts viö Ný-
býlaveg i Kópavogi i
gærmorgun. Báöar
bifreiðarnar, Merce-
des Benz og Chevrolet
Malibu, biðu færis til
að komast inn á
Kringlumýrarbraut-
ina. Sá sem ók
Chevrolet bifreiðinni
mun hafa verið heldur
fljótur á sér, og gefiö
skyndilega hressilega
i, en lent við það á
Benzinum sem var á
undan. Kona sem ók
Benzinum var flutt á
slysadeild Borgar-
sjúkrahússins, en
reyndist ekki alvar-
lega slösuö.
dropar
Rauðsokkur
standa í
ströngu
Fjölmennur hópur
rauðsokka vinnur nú aö
þvi að þýöa bók eina
mikla, úr dönsku eftir þvl
sem viö vitum best, sem
fjallar um þaö stórmerka
fyrirbæri sem er starf-
semi konulfkamans. Ekki
vilja Dropar gera lltiö úr
þörfinni á sliku riti, en
eitthvaö viröist umrædd
starfsemi vefjast fyrir
rauðsokkunum þvi fregn-
ir herma aö þær séu bún-
ar aö vera nærrri. tvö ár
aö þýöa ósköpin.
„Hættir ekki
ad henda
grjóti”
Ekki þurfti aö biöa
lengi eftir svari viö þeirri
áeggjan okkar I gær, aö
hagyröingar legöu út af
fyrirsögninni á leiöara
Vilmundar sem hljóöaöi
svona: „Meö uppiýsingu
— móti einokun (og aöal-
lega á móti hálfvitum)”.
Blaöiö var varla komiö út
i gærmorgun þegar einn
lesandi ringdi inn þessa
vísu:
Einokun hann er á móti
og aðallega hálfvitum
En hættir ekki aö henda
grjóti
þótt hafist viö i glerhús-
um
Og meira um
Vimma
Dropar sögðu frá þvi
fyrir skömmu aö Ævar
Kjartansson, fréttaþulur,
heföi fundið sig knúinn til
'þess aö biðjast afsökunar
á þvi að hafa bent leiö-
arahöfundum dagblaö-
anna á auglýsingatima
útvarpsins. Ekki mun þó
Ævar hafa beint þessu til
leiðarahöfunda almennt,
heldur var tilefnið Vil-
mundarleiöari i Alþýöu-
blaðinu þar sem veriö var
aö auglýsa áskriftarsima
sama blaðs. Enda beit
sök sekan þvi Vilmundur
kvartaði við útvarpiö yfir
hinni vinsamlegu ábend-
ingu Ævars, og sú kvört-
un ieiddi af sér afsökun-
arbeiönina. Viö sem héld-
um aö Vimmi væri svo
„liberal”...
Krummi ...
...hefur tekið eftir þvi,
aö langt er siöan heild-
salablað Sjálfstæðis-
flokksins hefur notaö
gamla slagoröið „Fyrstur
með ffettirnar”. Þetta er
merki uin óvenjulegt
raunsæi I heildsalaher-
búöunum, þar sem „siö-
astir” með fréttirnar”
viröist nýja kjörorðiö!