Tíminn - 26.07.1981, Side 3

Tíminn - 26.07.1981, Side 3
 • • TOYOM' varahluta Póstsendum UMBOÐIÐ H/F. o1-700 ÁRMÚLA 23 ■ REYKJAVÍK ■ SÍMI- O I /OO Ein úr • • • • M ■ i IVv arangur. Sunnudagur 26. júli 1981 efni í síbylju inn á íslensk heim- ili. Um þetta held ég aö valið standi. Svo þætti mér sjálfri gaman að geta séð islenskar fréttir i Finnlandi og öfugt.” Opnað fyrir impúlsum Hvað er i uppsiglingu i Norræna húsinu? — „Haustprógrammið hangir ennþá i lausu lofti. Ég er að fara út nú i lok vikunnar, bæði I fri og vinnureisu, til að fá ýmis mál á hreint. Það er ljóst að hér verður Alensk listsýning i haust, hingað koma tveir sænskir rithöfundar, svo er von á Mörtu Tikkanen, höf- undi „Astarsögu aldarinnar”, sem er nýbúið að þýöa á islensku. Jafnframt er i deiglunni að setja upp leikrit sem er unnið uppúr sögunni i Þjóðleikhúsinu. Annars eru engar stórar sveiflur á döf- inni. Ég vildi gjarnan hafa húsið meira opið fyrir impúlsum og hugdettum, fyrir öllum sem vilja hafa frumkvæöi um að leggja eitthvað sniðugt af mörkum.” Norræna húsið hefur fyrir löngu sannað tilverurétt sinn hér. En hvað finnst Ann Sandelin um norrænt hús i sem flestum stór- borgum á Norðurlöndum? Norræn hús alls staðar? — „Nei, ekki endilega, a.m.k. ekki með sama sniöi. Það kæmi t.d. til greina að tvö lönd tækju sig saman um að reka hús á borð við þetta. Eða þá aö reka þau i tengslum við ákveðin málefni, sem reyndar er gert t.d. i Norrænu listamiðstööinni i Helsingfors og „Nordisk folklig akademi” i Sviþjóð, sem sér aðal- lega um fullorðinsfræðslu. Mai Britt Innander veitir henni for- stöðu. Það kemur vel til greina að reka stofnanir sem þessa sem rækja mismunandi hlutverk. Norræna húsið hérna má svo heldur ekki festast of mikið i sin- um farvegi, það verður að komast út fyrir sinn fasta ramma. Það er mikilvægt að það einangrist ekki i þröngu hlutverki. Það er bæði is- lenskt hús og norrænt hús. Hér á lika að vera miðstöð fyrir þjóð- lega menningu.” Hvað finnst þér um húsið sjálft? — „Húsið er fallegt og gott til sinna nota. Kannski helst að mér finnist það of litið. Bókasafnið er að sprengja utan af sér húsnæðið og salurinn er lika helst til litill fyrir meiri háttar viðburöi. Hann er oft yfirfullur á tónleikum og fundum. Svo væri gaman að hafa ráð yfir senu fyrir minni háttar gestaleiki. Hvað varðar tækni- legu hliðina mætti húsið vera meira „up to date”. En andinn hér inni er góður.” Stjörnur eru nauðsynlegar Svo væri gaman aö geta sýnt hér norrænar kvikmyndir. Kvik- myndin er miðill sem vekur alltaf athygli og trekkir mikið fólk, ein- hver besta útflutningsvara sem um getur, Mér þætti gaman að geta sýnt hér kvikmyndir, segj- um á sunnudagseftirmiðdögum.” Blm. bendir á hversu lítið hefur sést hér af norrænum myndum uppá siðkastið, hvað hafi t.d. orð- ið af sænsku kvikmyndavikunni sem var árlegur viðburður hér um hrið? Ann samsinnir og segir að eitthvað standi þetta til bóta, hugmyndum um kvikmyndaviku hafi verið kastaö á loft, svo sé Fjalakötturinn með eitthvað á prjónunum. — „Ennfremur væri ánægulegt að geta stuðlað aö þvi að islensk- ar kvikmyndir veröi sýndar i auknum mæli á Norðurlöndum. Nú þegar þær eru loks að koma upp fyrir alvöru vekja þær mikla athygli erlendis, enda standard- inn hár.” I framhaldi af þessu er gráupp- lagt að spyrja um Listahátiö, þátttöku og þátttökuleysi Norræna hússins i henni. — „Það er rétt, Norræna húsið var ekki með á siðustu Listahátiö. Ætli það hafi ekki verið fyrir ein- hvern misskilning, menn hafa ekki náð almennilegu sambandi sin i milli. Norræna húsiö á skil- yrðislaust að vera með, þó sé ekki nema til að tryggja aö norræn menning sé með I spilinu. A Norðurlöndum bera menn mikla virðingu fyrir listahátiöinni hér og lita á hana i bland sem norræna hátið. Standardinn er lika mjög hár, hingað kemur mikið af stórum nöfnum. Það er mikilvægt til að geta haldið hátið- inni á háu plani, það er hægt að benda á stjörnurnar og segja: „Þessi hefur verið hérna og þessi lika, svo þú getur eins vel komið.” Stjörnurnar eru nauð- synlegar til að halda svona hátið lifandi. Norræna húsið veröur með i næstu hátið, ég á að heita i framkvæmdastjórn hátiðarinnar, við verðum með sérprógramm eins og áður var. Mér dettur i hug barnafestival, svo væri gaman aö hafa útisýningu, annars er þetta allt óklárt ennþá.” Innblásnir steinar Blm. spyr hvernig mál standi á bókasafni Norræna hússins, hvort þar sé allt i eyði og ekkert fólk. Ann segir það af og frá, bóka- safnið sé firna mikið notað og sé i stöðugum vexti. Allir geti fengiö bækur aö láni þar, það er bara að koma og taka bækur! I anddyrinu streyma feröa- mennirnir enn inn og út úr kaffi- stofunni. Hvað finnst Ann Sandel- in um þennan umgang? — „Mér sýnist vera óvenju mikið af Norðurlandabúum hér i sumar. Og þeir koma i massavis hingað i húsið, sem mér finnst mjög liflegt. A sumrin höfum við svo til eingöngu prógröm um ís- land, hvort tveggja fyrir ferða- menn og innfædda. A fimmtu- dagskvöldum höfum viö opið hús með þjóðlegu efni, fyrirlestrum, kvikmyndum um Island og tón- list. Næsta fimmtudag spila t.d. Helga Ingólfsdóttir og Manuela Wiesler verk eftir islensk tón- skáld. Niðri er sýning á verkum Þorvaldar Skúlasonar og hér i ánddyrinu sérðu alla þessa litriku steina frá Náttúrugripastofnun.” Það slær bjarma i augu blm. af öllum þessum glóandi bergteg- undum sem hann kann ekki að nefna með nafni. — „Það er bara að vona að túristarnir verði ekki svo inn- blásnir að þeir fari að taka með sér steinana”, segir Ann Sandelin, forstjóri Norræna húss- ins. Svo kveðjast þau, hún og blm. eh. Hið eftirspurða Módel ROKOKO 9300 18/8 stál pólerað meó harðgljáa. Framtíðar eign!°* 30 stk. í gjafakassa Verð kr. 1.140.- Sérstaklega gott verð. Hinn heimsþekkti þýski stálborðbúnaður, margar gerðir, fagurlega hannaöur og unninn, er sannkölluð framtíðareign. 18/8 stál pólerað með harðgljáa. Sendum í póstkröfu um allt land PAMMAGERÐIN HAFNARSTRÆTI 19 — SÍMAR 17910 & 12001 Vmrpnii>nlTr,í ■iii. jiiii 11 ■ iii i ^Œ!>j

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.