Tíminn - 26.07.1981, Blaðsíða 32
V
>
Frank Giese, fyrrverandi
prófessor við rikisháskólann i
Portland, Oregon i Bandarikjun-
um, var dreginn fyrir dómstóla
og ákærður fyrir að vera viðrið-
inn sprengjutilræði. Sprengd
hafði verið sprengja við ráðning-
arskrifstofur hersins i Portland
árið 1973.
Og hvað með það? Jú, mörgum
þóttu sönnunargögnin sem sak-
sóknarinn lagði fram heldur mög-
ur. Það var bók sem hét „Hreyf-
ingin til byltingar" og var saga
„nýju vinstri hreyfingarinnar" i
Bandarikjunum. Saksóknari
benti á að fingraför Gieses hefðu
fundist i þessari bók og sérstak-
lega væru þau mörg á þeim blað-
siðum sem fjalla um ofbeldi i
pólitiskum tilgangi.
Á grundvelli þessa dæmdi kvið-
dómurinn i málinu Giese sekan
um samsæri. Hann áfrýjaði mál-
inu en tveir dómarar við áfrýjun-
arréttinn i San Francisco komust
að þeirri niðurstöðu að bókin væri
sannarlega mikilvægt sönnunar-
gagn og þvi væri Giese sekur.
Verjandi Gieses, Shirley Huf-
stedler, sagði um þessa dómsnið-
urstöðu: „Jafnvel þegar Mc-
Carthy-galdrafárið stóð sem hæst
datt engum i hug að sakíella
menn fyrir svona_ nokkuð...”
Frá og með árinu 1970 og til og
með ársins 1978 skaut lögreglan i
Filadelíiu i Bandarikjunum 299
manneskjur „ólöglega", að þvi er
könnun sem samtök nokkur i
borginni létu gera. Þessar 299
manneskjur voru meira en helm-
ingur af þeim 469 sem lögreglan
skaut alls.
Með orðinu „ólöglega” er átt
við að þeir sem skotnir voru voru
ekki að fremja árásir eða glæpi
þar sem beitt var ofbeldi, nema
þá i mjög litlum mæli. Heldur
ekki var um að ræða menn sem
ógnuðulögreglumönnum við störf
þeirra. 99 voru skotnir án þess að
hafa aðhafst nokkuð glæpsam-
legt, aörir 99 voru að fremja smá-
hnupl eða aðra litilmótlega glæpi.
Þrátt fyrir þessar tölur hefur
'borgarstjórinn i Filadelfiu, Frank
L. Rizzo, en hann var áður lög-
reglustjóri borgarinnar, haldið
þvi fram opinberlega að lögregla
borgarinnar hafi aldrei gert sig
seka um óþarft ofbeldi...
Dennis Soyster var fram-
kvæmdastjóri við lánastofnun i
Bandarikjunum þegar honum var
tjáð af læknum að hann gengi
með mjög sjaldgæfan en alltaf
ólæknandi sjUkdóm. Sögðu lækn-
arnirað hann ætti i hæsta lagi eilt
ár eftir ólifað.
Soyster tók þessum fréttum
furðanlega vel og hann ákvaö að
njóta þessa eina árs eins vel og
kosturværi. Hann var hins vegar
ekki mjög fjáður maður og stai
þvi 29 þUsund dollurum frá fyrir-
tæki sinu til að kosta hið ljUfa lif
siðasta ár sitt. Gekk það vonum
framar en nU liöur og biður og
ekki deyr Soyster. Hann hélt þvi
aftur á fund læknanna.
Eftir að hafa rannsakað hann
nákvæmlega i annað sinn komast
læknarnir að þeirri niðurstöðu að
þeim hafiorðiöá mistök. Það sem
þeim þótti benda til hins hættu-
lega sjukdóms sem þeir álitu að
Soyster væri haldinn var ekki
annað en ofnæmi fyrir gúmmi-
hönskum læknanna er þeir notuðu
þegar Soyster var skorinn upp við
öðrum kvilla. Soyster varpaði
öndinni léttar en nU blasti við
honum annað mál: lögreglan
hafði sem sé komist aö þvi að
hann hefði stolið fénu frá fyrir-
tækinu.
Hann var ákærður íyrir þjófn-
aðinn en i ljósi þess hvernig
Soyster áleit að komið væri fyrir
sér var dómurinn vægur. Hann
var dæmdur i skilorðsbundna
fangelsisvist og skikkaður til að
endurgreiða 500 dollara á hverju
ári.
Hann hefur nU fengiö nýtt starf
og er framkvæmdastjóri hjá
lánafyrirtæki!
■
John McNutt er svinaræktandi i
Iowa City i Iowa og hann á sér
sérstakt áhugamál: Þaö hvernig
svinin bregðast við tónlist.
I mörg ár hefur McNutt spilað
hina fegurstu tónlist fyrir grisina
sina og hefur hann komist að
eftirfarandi niðurstöðum:
Klassisk tónlist: Svinin eru
róleg og þrifast mjög vel.
Rdck: Svínin eru óróleg.
Öpera: Svinin reyna að sleppa
UtUr stiu sinni..
■
Við réttarhöld hefur hingað til
þótt nauðsynlegt að hafa lögfræð-
imenntun. Þó kemur það alltaf
fyrir öðru hverju að þeir sem
ákærðir eru uin einhvern glæp
gera tilraun lil þess að verja sig
sjálfir og gengur stundum bæri-
lega. Það fór þó ekki vel íyrir
Marshall Cummings nokkrum
sem varði sjálfan sig fyrir
ákærum um að hafa stoliö kven-
mannsveski.
Vörn hans fór svo sem nógu vel
af stað en versna fór i þvi þegar
konan sem orðið hafði fyrir árás-
inni steig i vitnastUkuna. Þá
spurði ^Cummings: „Sástu vel
framanf mig þegar ég rændi tösk-
unni þinni”?
Hann var strax dæmdur i tiu
ára fangelsi.
Söguhetjan i þessari klausu er
ónefnd, það er nefnilega ekki
vitað hver hUn var. Þó er talið
vist að um hafi verið að ræða
veðurathugunarmann sem
aðseturhafði i eyöilegri verðurat-
hugunarstöð i hrjóstrugum
héruðum Norður-Kanada. Þar
dveljast menn i tvö ár i einu og
þessum hefur vist leiðst allmjög,
alla vega þar til hann fann sér
áhugamál. Á staðnum var gömul
jarðýta og maðurinn tók til
óspilltra málanna. Á tveimur
árum djöflaðist hann á ýtunni
sinni, ruddi mörgum tonnum af
stórgrýti, jarðvegi og ishellum
fram og aftur. Þegar hann linnti
látunum voru fjórir risastórir
bökstafir orðnir hluti landslags-
ins þarna i héraðinu. Bókstafirnir
voru „F”, „U”, „C” og „K” en
saman mynda þeir orð sem þykir
heldur dónalegti enskri tungu. Og
þetta orð er enn á sinum staö, ein-
hvers staðar fyrir noröan Hudson
Bay. Það sést Ur flugvélum sem
fljUga i allt að 27 þUsund feta hæð
en einhverra hluta vegna benda
flugstjórar farþegum sinum
sjaldan á það...
Sumir halda aö SAAB sé dýr.Útlitið, tækni-
leg fullkomnun, og strangar öryggiskröfur
gera SAABINN að „klassabíl", sem hlýtur
þá að vera dýr. - En er svo í raun?
Vissulega eru 146.500 krónur talsvert fé.
En við hvað er miðað, og hvað færðu fyrir
það? Það skiptir öllu máli.
Berðu saman verð og gæði bíla, komdu í
Bíldshöfða 16 og sjáðu og finndu hvað
þú færð fyrir 146.500 krónur.
Prófaðu SAABINN — og þú verður ekki
samur maður eftir.
TÖGGURHR
UMBOÐIÐ
BÍLDSHÖFÐA 16, SÍMI 81530
900 CLS
á kr.146500.-
Vissir þú um þetta verö?