Tíminn - 26.07.1981, Blaðsíða 8

Tíminn - 26.07.1981, Blaðsíða 8
8 Sunnudagur 26. júll 1981 ÍÍMflit® utgefandi Framsbknarf lokkurinn Framkvæmdastjbri: Jóhann H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Stein- grimur Gislason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Af- greiðslustjori: Sigurður Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarins- son, Elias Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. olafsson. Frettastjori: Páll Magnússon. Umsjónarmaöur Helgar-Timans: lllugi Jökulsson. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Atli Magnússon, Bjarghild- ur Stefánsdottir, Egill Helgason, Friðrik Indriðason, Friða Bjbrnsdóttir (Heimilis-Timinn),_Halldór Valdimarsson, Heiður Helgadóttir, Jónas Guðmundsson, Jónás Guðmundsson, Kristinn Hallgrimsson, Kristin Leifsdóttir, Ragnar orn Pétursson (iþróttir). utlitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Agústsson, Elin Ellertsdóttir. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Próf- arkir: Kristin Þorbjarnardóttir, Maria Anna Þorsteinsdóttir. Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Siðumula 15, Reykjavik. Simi: 86300. Auglýsingasimi: 18300. Kvöldsimar: 86387, 86392. — Verð i lausa- sölu 4.00. Askriftargjald á mánuði: kr. 80.00— Prentun: Blaðaprent h.f. Aðskilnaðar stef na i framboðsmálum ■ Svo virðist sem hópur kvenna á Akureyri telji það jaínréttisbaráttunni helst til framdráttar um þessar mundir að bjóða fram sérstakan kvenna- lista, þ.e.a.s. lista sem eingöngu er skipaður kon- um, við næstu bæjarstjórnarkosningar þar. Ein- hverjar umræður hafa orðið um slikt framboð i höfuðborginni lika. Helstu rökin sem fram eru borin fyrir slíkum kvennalista eru þau, að konur hafi ekki áhrif i stjórnmálum i samræmi við fjölda sinn m.a. vegna þess að þær fái ekki sæti nógu ofarlega á framboðslistum stjórnmálaflokkanna. Þess vegna verði þær að fara þessa aðskilnaðarleið til aukins jafnréttis á stjórnmálasviðinu. Sú skoðun, að konur eigi að skera sig úr að þessu leyti og standa sér að framboðsmálum, er andstæð þeim grundvallarsjónarmiðum, sem forystumenn jafnréttisbaráttu hafa jafnan haft að leiðarsjósi. Þeir hafa alltaf lagt áherslu á að einungis sé hægt aö ná árangri i jafnréttisbarátt- unni með samstarfi allra hópa — en ekki með aðskilnaðarstefnu. Það getur hver sem er gert sér i hugarlund, hvernig t.d. jafnréttisbarátta blökkumanna i Bandarikjunum hefði gengið ef forystumenn þeirra hefðu ákveðið að standa sér að fram- boðum. Árangurinn i baráttu þeirra hefur einmitt náðst vegna þeirrar stefnu að fólk af ólikum kynþáttum verði að starfa saman jafnt i stjórn- málastarfi sem á öðrum sviðum þjóðfélagsins. Það dettur engum í hug að neita þvi að þáttur kvenna i islenskum stjórnmálum hefur verið allt- of litill. Það þarf að auka hlut þeirra jafnt i sveitarstjórnum sem á alþingi verulega. En þetta ástand er ekki fyrst og fremst til komið vegna þess að karlmennirnir ýti konum til hliðar i stjórnmálaflokkunum, þótt vafalaust séu dæmi um það. Ástæðan er miklu fremur, hversu tregar margar konur eru til þess að gefa sig að virku stjórnmálastarfi. Þegar konur hafa vilja og að- stæður til að helga sig stjórnmálastarfi hafa þær komist til áhrifa á þvi sviði ekki siður en karlar. Það er einnig grundvallarmisskilningur að hægt sé að fylkja konum saman til þverpólitiskra samtaka um stjórnmál til lengdar. Konur hafa jafn ólikar stjórnmálaskoðanir og karlar. Kvennalisti kemst ekki hjá þvi að taka afstöðu til pólitiskra mála frekar en stjórnmálaflokkarnir — það er einfaldlega afleiðing þess að taka þátt i stjórnmálastarfi. Og aðstandendur kvennalista munu þá komast að raun um, að afstaða til þjóðfélagsmála ræðstekki af kynferði, og að mis- munandi stjórnmálaskoðanir kvenna munu verða viljanum til samstarfs á kyngrundelli yfir- sterkari. Það er hins vegar full ástæða til þess að hvetja konur til að taka meiri þátt i stjórnmálastarfi og hafa þannig aukin áhrif á stjórn þjóðmála, hvort sem það er i sveitarstjórnum eða á þingi. Og hugsanlega hefur þessi umræða einmitt slik áhrif. Það yrði jafnréttisbaráttunni og stjórn- málastarfinu til gagns. En aðskilnaðarstefna kynjanna i framboðsmálum er spor afturábak i jafnréttisbará ttunni. — ESJ. á vettvangi dagsins • „Heyr = mildingur „Þótt kirkjan sé 126 ára gömul og trúlega meðal elstu timbur- kirkna landsins, er hún öllu merkari allra alda” vegna þeirra kirkju- gripa sem hún geymir”. eftir Jóhann Hjaltason ■ Predikunarstóllinn i Staðarkirkju i Steingrlmsfiröi. ■ Frá þvi hefur verið sagt i frétt- um útvarps og blaða sem mjög mun verða til ánægju og menn- ingarauka öldnum og óbornum Staðdæiingum og vonandi einnig öllum ibúum Hrófbergshrepps hins forna, að forseti tslands frú Vigdis Finnbogadóttir og sýslu- maður Strandasýslu frú Hjördis Hákonardóttir hafi á skilnaðar- stund stofnað fésjóð til endurbóta og viðhalds á Staðarkirkju i Steingrimsfiröi. Nú er það svo, að þótt kirkjan sé 126 ára gömul og trúlega meðal elztu timburkirkna landsins er hún öllu merkari vegna þeirra kirkjugripa sem hún geymir, þó að einhverjir gripa hennar muni nú varðveittir i þjóðminjasafninu. Ætla má að landsmönnum yfirleitt séu kirkjugripir þessir litt eða ekki kunnir, skal þvi farið hér um þá nokkrum orðum og presta þá er þar koma helzt við sögu. Arið 1855 var á Stað torfkirkja, sem þá var jöfnuð við jörðu og nú- verandi timburkirkja byggð á rústunum. t moldinni undir fjala- gólfi torfkirkjunnar kom i ljós svonefnt paxspjald úr hvalbeini. A spjaldið var grafið krossmark og starfirnar INRI. Þáverandi Staðarprestur séra Sigurður Gislason sendi spjald þetta fáum árum siðar (1863) Þjóðminja- safninu i Reykjavik, sem þá var i umsjá og vörzlu Sigurðar málara er áleit spjaldið vera frá 14. öld og mun sú aldursákvörðun ekki hafa verið dregin i efa siðan. Paxblöö (bókfell) og spjöld voru oftast með áletruninni „pax vobiscum” þ.e. friður sé meö yður. Gerð i ka- þólskum sið hér á landi fyrir kirkjugesti að kyssa á við guðs- þjónustur. Upphafsstafirnir á paxspjaldinu frá Stað (INRI) eru að likindum skammstöfun fyrir orðin sem Pilatus lét skrifa á þremur tungumálum á kross Krists þ.e. Jesús frá Nasaret kon- ungur Gyöinga. Saga Staöar- presta á 14. öld má heita ókunn með öllu nema hvað vitað er um nöfn á tveimur þeirra undir ald- arlokin, hét annar Andrés hvers föðurnafn er óþekkt en hinn hét Bjarni og var Þórðarson. A hinn bóginn er dálitið vitað um siðasta kaþólska prestinn á Stað, skáldið Hall ögmundsson, enda er þá komiö fram á 16. öld. Skömmu eftir aldamótin 1500 er Hallur þingaprestur hjá Birni Guönasyni sýslumanni I ögri við ísafjarðar- djúp, yrkir hann þá fyrir Björn og tileinkar honum geysilangt helgi- kvæði (III erindi) um Mariu mey og móður hennar heilaga önnu, sem var verndardýrlingur Björns Guðnasonar. Hefst drápan á þessum visuorðum: „Heyr mildingur allra alda Almáttugur sem ritning vottar” o.s.frv. Séra Hallur lét af embætti sum- arið 1539, eitthvað kominn á sjöt- ugsaldur aö þvi helzt má ætla. Þó að hin nýja kirkjuskipun Krist- jáns konungs III. væri eigi leidd i lög á alþingi fyrir Skálholts- biskupsdæmi fyrr en tveimur ár- um siðar (1541), þá verður að telja séra Hall ögmundsson sið- asta fulltrúa kaþólsks siðar á Stað Vegna þeirrar sérstöðu auk skáldgáfunnar er réttmætt að minnast hans, þótt ekki sé hægt að tengja hann við paxspjald 14. aldar. Séra Siguröur Gislason, sem hélt til haga fyrrnefndum ka- þólskum minjagrip unz hann sendi hann nafna sinum Sigurði málara, var prestur á Stað i 30 ár (1838-1868). Hann var búhöldur góður og mikilvirkur fram- kvæmdamaður. Byggði upp allan staðinn stórmannlega að bæjar- og útihúsum, af rekatrjám norð- anfrá Ströndum. Varhann jafnan sjálfur i þeim flutningum með viöardrögurnar suður yfir Tré- kyllisheiði. Sumir fornir munir Staðar- kirkju verða ekki timasettir eins og t.d. altaristaflan, sem vissu- lega er allgömul og mjög farin að láta á sjá undir tfmans tönn. Þetta er svonefnd vængjatafla, en vængirnir brotnir af fyrir löngu siðan og týndir, hef ég heyrt sagt að annar þeirra hafi þó verið við lýði fram um siðustu aldamót (1900) i einhverju lausu rusli. A miðhluta töflunnar er myndflet- inum skipt i þrennt. 1 miðju er mynd af kvöldmáltiöinni, til vinstri handar mynd af skirn Jesú i ánni Jórdan og til hægri handar mynd af himnaför hans eða upp- stigningu til himins. Tveggja stórmerkra gripa Staðarkirkju er enn ógetið, þeir eru altarisklæöi og predikunar- stóll. Svo vel vill til að um aldur þeirra og uppruna er ekki þörf ágizkana, hvort tveggja bera þeir svo augljóslega meö sér að eigi veröur á móti mælt. Altarisklæðið er purpurarautt flos- eða flauels- klæöi. Stendur þar gullnu letri hið alkunna nafnmerki Krists I H S , þ.e. Jesus hominum salvator (Jesús frelsari mannanna). Siðan ártalið 1722 og loks stafirnir IASGED er vera munu upphafs- stafir i nöfnum gefendanna, sem ugglaust eru Jón Arnason Skál- holtsbiskup og kona hans Guðrún Einarsdóttir biskups á Hólum Þorsteinssonar. Um jafn kunnan mann i sögu stéttar sinnar og þjóðar og Jón biskup Arnason (F. 1665, D. 1741) er óþarfi aö fara möreum oröum. Han var kennari og rektor við latinuskólann á Hól- um i 15 ár, prestur á Stað i Stein- grimsfiröi i önnur 15 ár (1707-1722) og biskup i Skálholti til dauðadags i 21 ár (1722-43). Hann var iðjumaður mikill og stjórnsamur, stundum kannski um of einarður og hreinlyndur. Skoðanir manna um Jón biskup Arnason hafa löngum verið tölu- vert skiptar, og skal ekki farið út i þá sálma hér. 1 erfiljóðum sem Eggert lögmaður Ólafsson orti um biskup látinn segir svo: „Eftir lifir mannorð mætt þó maðurinn deyi. Veröld gjarnan vill þó bægja vinum guðs og hrósiö lægja”. Um predikunarstóiinn er þaö að segja, að hann er sjöstrendur með einni málaðri mynd á hverjum fleti. Myndirnar eru af guð- spjallamönnunum fjórum og postulunum Pétri og Páli og Frelsaranum (Salvator). A breið- um dökkbrúnum ramma neðan við myndirnar standa fullum stöfum nöfn gefendanna prests- hjónanna á Stað, séra Halldórs Einarssonar og Sigriðar Jóns- dóttur ásamt ártalinu 1731. Tvær myndanna, Jóhannesar og Lúk- asar, eru að mestu orönar eyði- lagðar af skini sólarinnar úr of nálægum suðurglugga kirkj- unnar. Séra Halldór var vigður til Selvogsþinga árið 1717, en fæð- ingarár hans er óvist þó að gizkað hafi verið á ártalið 1695. Hann er merkisklerkur, vel aö sér og kenndi mörgum piltum undir skóla. Hann var heilsutæp- ur og sagður þunglyndur. Séra Halldór andaðist á Stað úr lands- farsótt haustiö 1738. A meðal tiu barna þeirra hjóna (7 dætra og 3ja sona) var hinn þjóðkunni prestur séra Björn i Sauðlauks- dal, sem einkum hefur veriö minnzt sökum jarðræktaráhuga hansog búnaðarrita en hitt liggur meir i la'ginni að hann var gott skáld þegar hann vildi það við hafa, mjög vel að sér i izlenzkri tungu og hefur ritað mjög fróð- lega orðabók yfir islenzkt mál með latneskum þýöingum. Munn- mæli herma að séra Halldór sé grafinn fram undan kirkjudyrum á Stað.Kvað vera á gröfhans fer- köntuð blágrýtishella, sem sagt er að hann hafi sjálfur ekið heim ofan af Staðarfjalli og mælt svo fyrir að leggja skyldi á leiði sitt. Rannveig ein sjö dætra séra Halldórs og konu hans, giftist séra Guöbrandi Sigurössyni presti á Brjánslæk og áttu þau ekki börn sem lifðu, en sonur séra Guðbrands og Sigriðar Jónsdótt- ur seinni konu hans var Gunn- laugur sýslumaður, sem fyrstur manna kallaöi sig Briem og er þvi Briemsætt frá honum runnin.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.