Tíminn - 26.07.1981, Síða 25
Sunnudagur 26. júli 1981
mMmmskM
LOYflMA
COLDCLIHflTf
Mow « Tbom*» Msvitkm S#rioJ
Af kJttln a alnvjlo volume,
Th«*ur*ui»oUov#
ond tov* in o Co!d CHmoln
Thc
Perst
Other
non
r»Et)OHOUiXUAt. TÍJf.Mi,
MARCH, RROUST M tORSTO
**na.vrre hau. ». tt, uw ex«!
ItiItlM KM'f.KNi R OERTXCDE STEIN
f.Mf.S i’f'RDV OORi'. YID.M
JNHl'ffC
Byrjendui
frá 9 ára
fiolskyldu
20” kr. 975.-
16” kr. 1025.
24” kr. 1105
26” kr. 1324
20” kr. 1350
24” kr. 1497
Postsendum
Reykjavikurvegi 60
Sími 54487
Irt Sími 52887
Musik & Sport
Mancy Mitford: Love
in a Cold Climate.
Penguin 1980.
® Hvað hétu þeir aftur á is-
lensku sjdnvarpsþættimir? —
..Sveitaaðall..” Af hverju ekki
„Ast i kuldanum?” Þaö
heitir jú bókin sem þættirnir
byggja á. Og svo „The Pursuit
of Love” — tvær skáldsögur
um sveitavarga og stúlkur
sem langar heilósköp að
giftast og vera elskaðar, um
mislukkuð hjönabönd Lindu,
fallegu heimasætunnar,
sagöar af ljóta andarunganum
Fanni — um hinn haröneskju-
lega Mathew með stórt hjarta,
hinn imyndunarveika Davey,
Lafði Montdore og vin hennar
Cedric með gullið hár. Fá-
breytt líf enskrar yfirstéttar i
sveitinni, utan við daglegt
strit, kryddaðar leiðindum,
hnignun i smáum stil, heims-
málum sem þröngva sér uppá
þennan lokaðaheim. Samtölin
eru fyndin, fólkið afundið og
skemmtilegt, sagan fáránleg
með öllu. Hér eru sögurnar
um „Sveitaaðalinn” i fyrsta
sinn i einu bindi, þær voru
skrifaðar á 5ta áratugnum af
N.M. sem dó 1973. Þær kváðu
vera sjálfsævisaga i bland,
höfundurinn ólst upp á sliku
sveitasetri — vitaskuld sem
Fanni'...
MAffTIN ESSUN
AN ANATOMYOF
DRAMA
Martin Esslin: An
Anatomv of Drama.
Abacus 1980.
■ Esslin er ein af fáum gagn-
rýnendum sem geta baðað sig
i frægðarljóma, yfirleitt er
heldur lágt risið á þeirri stétt.
Hann er höfundur læsilegra
bóka um leikhús á borð viö
„Brecht: A Choice of Evils”
og „The Theatre of the
Absurd” sem hafa notið ó-
venju mikillar alþýðuhylli.
Hér tekur hann fyrir leikhúsiö
i sjálfu sér, eðli þess og hlut-
verk i samfélaginu, „Hvað
það er sem leikhUsið getur
tjáð betur en önnur form
mannlegra samskipta?” Ess-
lin sækir bæöi i reynslu sina
sem kriktiker og kenninga-
smiður og praktiska reynslu
sina sem leiklistarstjóri BBC.
Útkoman er stutt, stimú-
lerandi og aðgengileg bók
fyrir alla sem velta fyrir sér
leikhUsi. „Leikhúsið tekur á
sig jafn margar myndir, jafn
skringilegar merkingar og
heimurinn sem það speglar.
Það er meginstyrkur þess,
einkenni þess sem tjáningar-
máta — og mikilleiki þess.”
Segir Martin Esslin.
The Other
Persuasion: útg.
Sevmour Kleinberg.
Picador 1978.
■ Samansafn smásagna og
kafla Ur skáldsögum um kyn-
villu — kvenna eða karla—
eftir ýmsa víðfræga höfunda,
ekki endilega kynvillta, þótt
sumir hverjir séu þekktir og
úthrópaðir fyrir slikt. Elsta
sagan er eftir Marcel Proust,
og siöan eru sögur eftir yngri
höfunda, flesta ensku-
skrifandi — D.H.Lawrence,
Faulkner, Hemingway, Isher-
wood, Graham Greene. Og svo
enn yngri — Gore Vidal og
Tennessee Williams, svo fá-
einirséu nefndir. Kynvillingar
hafa komið uppá yfirborðið
hin siðustu ár, þó hefur alltaf
verið fjallað um þá á einn veg
eða annan i bókmenntum,
oftast undir rós, en uppá sið-
kastið afvaxandi hispursleysi.
Þetta sést berlega i bókinni.
Höfundarnir eru flestir sitt
gamla sjálf — Proust til-
finninganæmur, Greene
iróniskur og vinalegur,
Williams heitur og þrunginn,
vaðall á Faulkner, Heming-
way stuttur i' spuna. A köflum
skemmtilegt safn — gefur
innsýn i lif kynvilltra i heimi
sem á bágt með að viöurkenna
þá.
*A Aplendid.be aatiful and hcartbreakixvy Atory*
Howaxd n»st
CREEK MARY’8
BLOOD
DEE BROWN
Dee Brown: Creek
Mary's Blood. Arrow
1981.
■ Við minnumst Dee Brown
einkum fyrir bók sem á is-
lensku hét óhemju klossuöu
nafni — „Heygðu mitt hjarta
viö undað hné”, „Bury My
Heart at Wounded Knee” —
um endalok veldis indiána á
viðáttum Ameriku. HUn var
skrifuð af þá fáheyrðum
skilningi og var framlag til
breyttrar og bættrar afstöðu
til indi’ána. M.a.s. Hollywood
gat ekki annað en breytt um
kúrs. Enn er Brown viö sama
heygarðshornið — indiánana.
Þessi nýjasta bók hans er
skáldsaga, ekki laust við að
manni finnist að kröftunum
hafi verið betur varið i alþýðu-
legu sagnfræðinni. Þetta er
örlagasaga af stærri geröinni
sem spannar heilar fjórar
kynslóðir hvitra manna og
indiána á sibustu öld. Ekki er
laust við að stærðin á bókinni
og upphafinn episkur tónn
hennar minni á Michener,
annan höfund sem skrifar eftir
vigt. En það er skilningur
Browns á indiánum sem gerir
hana öðruvisi.
I Bækurnar hér að ofan eru fengnar hjá Bóka-
verslun Máls og menningar.
TIL HAGRÆÐINGAR I IÐNAÐI
Getum við nú boðið
fráTELLUZ
í Svíþjóð
Lyftiborð,
:} gerðir, með lyftigetu frá
200 kg. upp í 10.000 kg.
Lyftihæð frá 63 cm upp i 5
metra.
Pallstærð 1000 m/m X 500
m/m til 4000 m/m X 2000
m/m.
Einnig bjóðum við
fráTELLUZ
Gaffaflyftivagna
Handvagna,
margar gerðir og stærðir.
Hjólaborð,
úr rústfriu stáli.
Rúllubrautir,
margar gerðir.
Hjól
af öllum hugsanlegum
stærðum og gerðum.
Box 118 — 121 Reykjavik
Simi 91-26155. 91-78120. Telex: 2074
OKKAR MERKI — TRYGGIR GÆÐIN
Húsgögn og
. , ÆJ.. Suðurlandsbraut 18
mnrettmgar simi 86-900
Postsendum
HVlLDARSTÓLAR