Tíminn - 08.10.1981, Qupperneq 12

Tíminn - 08.10.1981, Qupperneq 12
Fimmtudagur 8. október 1981 12____________ heimilistíminn I>Rj(')NAHIAÐ Lopi og band nýtt tímarit hefur göngu sína ■ Lopi og band heitir timarit, sem komiö er Ut i fyrsta skipti, en ætlunin er að komi út tvisvar á ári i framtiöinni. Ritstjóri blaðsins er Erla Eggertsdóttir og útgefandi er fyrirtækiö Islenska ullin. Blaö- ið leggur áherslu á uppskriftir af fatnaði gerðum úr islensku ullinni og notar eingöngu lopa- og band- framleiöslu Alafoss og Gefjunar, sem hráefni i fatnaðinn. Fengnir verða til liðs við blaðið hönnuðir og prjónakonur, sem geta miðlað af reynslu og prjónatækni og bryddað verður á nýjungum i meöferð lopa og bands. Við hringdum i Erlu Eggerts- dóttur ritstjóra prjónablaðsins og spurðum hana, hvert væri hlut- verk tslensku ullarinnar, fyrir- tækisins, sem gefur pjrónablaðið út. Hún sagði, að þetta væri nýtt fyrirtæki, en hún hefði hugsaö sér, að með þessu fyrirtæki gæfist henni kostur á aö vinna að ýms- um öðrum verkefnum en blaðaút- gáfunni, sem þó tengdust á ein- hvern hátt islensku ullinni. Hún sagðist t.d. vera með auglýsingu i næsta hefti af Icelandic Review þar sem fólki væri boöiö upp á að kaupa pakka með efni og upp- skrift aö islenskri peysu. Gæti fólk skrifað eftir þessum pökkum, sem hún siöan sendi hvert á land sem væri. Erla hefur áður unnið við út- gáfustarfsemi, þar sem hún vann m.a. viö útgafu prjónabókarinnar Elinar, og sömuleiöis hefur hún unniö viö uppskriftagerð hjá Gefjuni-Iöunni. Ekki sagðist hún vera faglærð á sviði prjóna- mennskunnar né heldur vera handavinnukennari, en hún hefði kynnst uppskriftagerð og prjóna- skap. Prjónablaðið Lopi og band verður þó ekki ætlað fyrir þá, sem prjóná á prjónavélar heldur fyrir handprjónafólk. Erla sagði, að mikil breyting væri nú að verða á ullarframleiöslunni. Farið væri aðframleiða lopa og band i mörg- um litum, tiskulitum, þannig að fólk gæti valið sér efni eftir smekk. Uppskriftirnar i blaðinu bera lika með sér, að úr mörgum litum er að velja, þvi flestar flik- urnar eru úr lituðu efni, að hluta til eða i heild. Ætlunin er að fá hönnuði og prjónakonur til liðs við blaðið varöandi hönnun verkefna, og að þessu sinni eiga Jóhanna Hjalta- dóttir og Sunneva Hafsteins- dóttir, 3 og 4 uppskriftir hvor i blaðinu. Vilji fólk fá keypt efnið i flikurnar, sem uppskriftir eru að getur þaö skrifað eftir þeim og fengiðsent þaðefni, sem þörf er á og jafnvel prjóna og annað, sem tilgreint er i uppskriftinni. Fimmtán uppskriftir eru i fyrsta blaðinu af Lopa og bandi. Það kostar 39 krónur út úr búð, og á aö koma út tvisvar á ári. Sagði Erla aö vel gæti verið, að blaðið yrði sent i áskrift, en hún myndi huga að þvi þegar annað blaðiö kæmi á markaðinn. fb Valkostur veitingamannsins: ■ Ragnar heldur hér á gratineraða fiskinum með rjómasveppa- sósu, bearnaissósu og bræddum osti, grænmeti og kartöflum. - ■ —Fiskur er hvergi betri i heiminum en hér á landi, og sama er að segja um lamba- kjötið. Hér h já okkur i Lauga-ás erum við alltaf með griilað lambalæri á matseðiinum I há- deginuogá kvöldin, og „gratin- eraður" fiskur er einnig alltaf fastur liður, sagði Ragnar Guð- mundsson annar tveggja eig- enda Lauga-áss, þegar blaða- maðurinn leit inn á veitinga- staðinn I þeim tilgangi að fá Ragnar til þess að velja rétt vik- unnar á veitingahúsi, sem ætl- unin er að verði fastur liður hér á siðunni á næstunni. Ragnar sagðist ætla að segja okkur frá „gratineraða" fisk- inum, en i hann nota þeir ævin- lega nýjasta og bezta hráefnið, sem völ er á h verju sinni, en það er að sjálfsögðu nokkuð breyti- legt eftir árstiöum. Heilsteikt rauðspretta hafði verið á hádegismatseðlinum þennan daginn, en um kvöldið átti að vera hvitvinssoðin smálúða. — Við erum með karfa, þegar hann er fáanlegur, og svo ýmsan annan fisk sagði Ragnar. Gratineraði fiskurinn er alltaf á matseðlinum segirRagnar Guðmundsson í Lauga-ási — Þið vöktuð athygli fyrir skömmu með að vera lægstir I verðkönnun veitingahúsa, sem verðla gsskrifstofan fram- kvæmdi. Hvernig farið þið að? — Af hverju ættum við ekki að vera lægstir, spyr Ragnar að bragöi. — Við eigum og rekum þennan stað tveir meistarar, Gunnlaugur Hreiöarsson og ég. Við vinnum hér sjálfir, og önn- umst innkaup sjálfir, auk þess sem viö vinnum hráefnið hér á staðnum. Það er allt annað að reka veitingahús og vinna þar sjálfur og hafa viöeigandi fag- þekkingu. Ekki gæti ég t.d. sett upp bifreiöaverkstæði, til þess kann ég ekkert. — Hvað hefur staðurinn verifl lengi opinn? — Við opnuöum fyrir rúmum tveimur árum, og margir spáðu þvi þá, að við myndum lifa af sumariö, og ekki meira. Sem betur fer fór það á annan veg. Viö byggjum reksturinn engan veginn á ferðamönnunum, sem gista tjaldstæöið hér fyrir neðan á sumrin. Hingað kemur mikið af fjölskyIdufólki auk annarra gesta, og viðskiptin eru nokkuð jöfn yfir árið. — Hvað vinnur margt fólk hjá ykkur? — Við erum tuttugu talsins, en vorum aðeins fjögur i byrjun. Hjá okkur eru tveir matreiðslu- meistarar auk okkar sjálfra. Við vinnum meö fólkinu og höfum stöðugt samband við við- skiptavinina með þvi að vinna við afgreiðsluna lika. Þvi fylgir sá kostur, aö viö sjáum, ef eitt- hvaö fer úrskeiöis, og getum auðveldlega leiðrétt þaö strax og lærum af sambandinu við viöskiptavinina. Annars er um að gera aö hafa nóg starfsfólk. Ef starfsfólkið er þreytt kemur það niður á viöskiptavinunum. Afgreiðslufólkið þarf aö geta verið kátt og hresst, vegna þess að það er ekki nóg að fá góðan mat, ef hann er framréiddur af þreyttu og úrillu fólki. Og þá er það maturinn, sem þú ætlar að velja fyrir okkur. — Ég ætla aö velja fiskinn. Sé fiskur „Réttur dagsins” kostar hann 44 til 48 krónur. Grillað lambalæri kostar 69 krónur, og er einnig mjög vinsælt. Fiskrétt eins og þennan getur svo sem hver og einn búið til heima hjá sér, en svona förum viðað: Viö skerum fiskinn niður i bita, og leggjum þá i blöndu, sem I er karrý uppleyst i vatni. blandað hveiti, salti og pipar. Svo er fiskstykkjunum velt upp úr raspi, en við búum allt okkar rasp til sjálfir. Fiskstykkin djúpsteikjum við, en þau má lika steikja á pönnu, ef vill. Stykkjunum er komið fyrir á eldföstum diski og þau skreytt með kræklingi og rækjum og yfir þau hellt rjómasveppasósu, og einnig bernaissósu og ofan á er settur ostur. Þetta er sett i grillofn i eina eða tvær minútur, á meðan osturinn er að bráðna. Sfðan er hrásalati, grænmeti og kartöflum bætt á diskinn, og rétturinn er tilbúinn fyrir gest- ina. — Hvað fær fólk fyrir börnin sin? — Margir, sem fá sér fisk fá svolitið fiskstykki fyrir litlu krakkana og franskar kartöflur með. Aðrir fá aukadisk, og gefa þeim af þvi, sem þeir fá sjálfir. Við erum ekki með sérstakan barnamatseðil, vegna þess að okkur hefur virzt börnin helzt vilja fá það sama og fullorðna fólkið. Þvi er bezt að hafa þetta svona. Svo höfum við frá upp- hafi haft þann sið, að gefa börn- unum ispinna á eftir matnum. Lambalærið iLauga-ási hefur fengið mikið lof, og spurðum við Ragnar, hvort hann gæti kennt okkur ráð til þess að okkar eigið sunnudagslæri smakkaðist betur. — Það sem mestu máli skiptir er að láta sér ekki detta i hug að taka lærið upp úr frysti- kistunni á laugardagskvöldi, og ætla að steikja það fyrir hádegi á sunnudag, sagði Ragnar. — Takið lærið t.d. á þriðjudegi og látið það þiðna. Geymiö það i kæliskáp i plastpoka, sem gat hefur verið gert á, svo kjötið getiandað. Kjötiðverður mýkra og betra, ef það fær að biða svona nokkurn tima áður en það er steikt, eftir að frostið fer úr þvi. fb ■ Abur en sósan er sett yfir fiskinn eru settar ofan á stykkin rækjur og kræklingar. (Timamyndir GE) Matreiðsla fyrir ör- bylgjuofna ■ Húsmæðrafélag Reykjavikur hefur nú hafið vetrarstarf sitt að nýju, eftir hvild sumarsins. Opið húseralla mánudaga aö Baldurs- götu ), kl. 13.30—17.30. Allar kon- ur velkomnar. Eins og undanfar- in ár er sýnikennsla á dagskrá vetrarins og sú fyrsta verður i dag, fimmtudag i meðferð og matreiðslu fyrir örbylgjuofna. Basarfélagsins verður að Hall- veigarstöðum að vanda, 31. okt. 1 növ. verður sýnikennsla i jóla- fóndri. Sýnikennsla i matreiðslu verður i april. Bandarfkin: Borðsiðir á stundá- töflu í skólum vestra ■ Nemendur nú á dögum læra ekki borðsiðiheima hjá sér.segja menn i Bandarikjunum. Þar af leiðandi hefur verið tekin upp kennsla i mannasiðum i Oakam CenterSchool iMassachusetts, og fleiri skólar eru sagöir ætla sér að feta i' fótspor skólayfirvaldanna i Oakam. Kennslan i mannasiðum og borðsiðum fer fram i áður- nefndum grunnskóla og með þeim hætti, að skólanemendur fá ekki lengurað troðast og ryðjast fram fyrir aðra i röðinni á kaffiteriu skólans. Nú er þeim fyrirskipað að setjast niður við smáborö I matarhléinu, og eldri nemendur skólans þjóna þeim yngri til borðs. Allir verða að koma kurteislega fram. Arangurinn er sagður stórkost- legur. Nú sitja þeir rólegir við borð, sem áður tróðust fram fyrir aðra, og það sem einnig skiptir miklu máli er, að ekki er kastað nærri eins miklum mat og áður var gert. Fólk fær sér minna á diskana og gengur betur að mat sinum. Matarsparnaðurinn er talinn nema um 30%, sem er alls ekki svo litið. Kannski væri athugandi, hvort ekki mættifara að kenna Islend- ingum betri borðsiði og matar- venjur, og byrja þá strax I grunn- skólunum, þvi margt bendir til þess að sjoppumenningin og kaffiteriumenning hafi hertekið okkur, ekki siður en Bandarij- am enn. fb Húsmædrafélag Reykjavfkur: Óhagræði að misstórum kartöflum ■ Húsmæörafélag Reykjavikur lýsir yfir stuðningi viö reglugerð frá 17. sept. ’81 varöandi flokkun- arstærð kartaflna. Húsmæðrafélag Reykjavikur vekur athygli á þeirri óhagræð- ingu seiy þvf fylgir að fá i sama poka storar kartöflur, sem þurfa 30 min. suðu og smáar, sem ekki þurfa nema 10—15 min. suðu. Það er hins vegar æskilegt að neyt- endur, þeir sem það vilja, geti keypt smáar kartöflur. Smáar kartöflur eða svo kallað „smælki” getur tæplega flokkast undir fyrsta flokks vöru og á þvi ekki að vera á sama verði og fyrsti flokkur. Neytendur hljóta aö gera þá kröfu til kartöflu- bænda að þeir fari eftir nýrri reglugerð varðandi flokkunar- stærð og gæðamat. Frá Húsmæðrafélagi Reykjavi'kur.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.