Tíminn - 08.10.1981, Blaðsíða 20
■ ,,Ég á fá orft til að iýsa þeirri
rausn sem Sambandið sýnir okk-
ur, og um leið allri Iþróttahreyf-
ingunni, mcð veitingu þessa
styrks. Styrkurinn kemur eins og
sólargeisli I myrkviði fjárhags
Handknattleikssambandsins,’’
sagði JúIIus Hafstein, formaður
Handknattleikssambands ts-
lands, þegar hann tók við styrk
sem S.Í.S. veitir áriega til ein-
hverra af sérsamböndum Iþrótta-
hreyfingarinnar.
Styrkurinn er 150.000 kr. og
þetta er annað árið sem hann er
veittur. I fyrra fór hann til Körfu-
knattleikssambandsins.
„Sambandið gengur þarna á
undan mörgum öðrum stórfyrir-
tækjum, i þvi að viðurkenna að
iþróttir flokkist undir menningar-
mál. Það lita margir á iþróttir
sem eitthvað annarsflokks tóm-
stundastarf. En ég held að mér sé
óhætt að fullyrða að það er fátt i
islensku þjóölifi sem veitir jafn
mörgum skemmtun og lifsfyll-
ingu og einmitt iþróttirnar,”
sagði Július.
„Mér er fullljóst að það eru
fleiri sérsambönd innan iþrótta-
hreyfingarinnar sem eru jafnvel
aðstyrknum komin og við. En viö
eigum afmæli á næsta ári og ég
gæti trúað að það hafi ráðið miklu
um styrkveitinguna. Einnig ber
þess aö geta að við höfum náð
mjög langt á alþjóðlegan mæli-
kvaröa á undanförnum árum.
Þess vegna förum við i margar
keppnisferöir til Utlanda og af þvi
leiðir aö rekstur Handknattleiks-
sambandsins er mjög dýr.
„A næsta ári verður margt á
döfinni hjá okkur. Meðal annars
er von á fimm erlendum landslið-
um i heimsókn og þar á meðal eru
bæði heimsmeistararnir og
Ólympiumeistararnir þ.e. Vest-
ur-Þjóöverjar og Austur-Þjóð-
verjar. Auk þeirra koma hingað
Sviar, Danir og Russar sem eins
og kunnugt er eru allar meðal
sterkustu handknattleiksþjóöa
heims.”
„Ennfremur sendum við is-
lenska landsliöið i margar ferðir
til útlanda og þær ferðir eru oft á
tiðum mjög dýrar. Sem dæmi má
nefna að landslið Islands skipað
leikmönnum 21árs og yngri, fer i
■ Július Hafstein, formaöur H.S.l. tekur við styrknum úr hendi Erlends Einarssonar, forstjóra Sam-
bandsins. Fyrir framan þá á myndinnier Sveinn Björnsson, formaöur i.S.Í. Tlmamynd: Ella
12 daga keppnisferð á heims-
meistarakeppnina I Portúgal og
aðeins sú ferð verður talsvert
dýrari en svo aö þessi styrkur
standiundir kostnaðinum. En þar
eigum viðmikinn heiður að verja.
Þvi siðast lentum við i 7. sæti.
„I tilefni afmælisins ætlum viö
að efna til mikillar iþróttahátiðar
i Laugardalshöll i april. Þar verð-
ur mikið um dýröir, bæði
skemmtiatriði og iþróttir. Höllin
veröur öll nýtt, bæði anddyriö og
salurinn.”
— Sjó.
jdropar
Ad ,,detta
út úr um-*»
ræðunni”
■ Menn hafa tekið eftir
þvi, að aidrei birtast
iengri viðtöl við Ólaf
RagnarlÞ jóöviljan um e n
einmitt þegar ólafur er
staddur erlendis á ráð-
stefnum af ýmsum stærð-
um og geröum, sem ger-
ist raunar æði oft.
Kunnugir segja að
þetta sé vegna þess að
ólafur Ragnar sé svo log-
andi hræddur við að
..detta út úr umræðunni”
ef hann bregður sér út
fyrir landssteinanna, að
hann hringi langa pistla
inn á Þjóðviijann næstum
daglega. Lengd simtala
Ólafs við Einar Karl geta
menn svo markað af þvl,
aö oft er hægt að fylla
heiiar fjórar siöur með
„rabbinu”.
Óhófleg
bjartsýni?
■ Eftirfarandi auglýsing
birtist i Dagblaöinu undir
yfirskriftinni „Atvinna i
boöi”:
„Þingmaður óskast til
að fiytja mái á Alþiugi
fyrir hönd aimennings.
Varðar islensk lög. Skil-
yrði að viðkomandi sé
heiðarlegur”.
Eiuhvcr hafði á orði, að
þetta hlyti að vera eins og
að ieita að nál I heystakki.
Siðgæðis-
vörðurinn ‘
Jónas
■ „t Egyptaiandi voru
mannréttindi virt”, segir
Jónas Kristjánsson I Dag-
blaðsleiðara i gær.
Jónas er að taia um
landið þar sem um 1600
manns jafnt biaðamenn
sem aörir voru ýmist
faugelsaðir eða reknir i
Utiegð i siðasta mánuði,
fyrir þær sakir einar að
vera ekki á sama máli og
stjórnvöid.
Jafnframt telur Jónas
þaö egypskum stjórn-
völdum sérstakiega til
tekna að drepa ekki
stjórnarandstæðinga.
Þakka skyldi þeim, en
sjaldan hefur Brésneff
ræfiiiinn fengið hrós hjá
Jónasi fyrir ámóta mann-
gæsku.
Það er þetta tvöfaida
siðgæði....
Krummi...
...sér að Húsnæðisstofun
er með heilsiöuauglýs-
ingu I hinu nýja mánaðar-
riti Reykjavikurkrat-
anna. Okkur dettur ekki i
hug að halda að það sé
vegna þess að forstjóri
Húsnæðisstofnunar er
einn af aðstandendum
blaðsins...
Wlmtom
Fimmtudagur 8. okt 1981
fréttir
Sjö ára telpa beiö
bana í umferðar-
slysi í Keflavik
■ Sjö ára telpa beið
bana eftir að hún varð
undir flutningabil á
Birkiteig i Keflavik,
um áttaleytiö i fyrra-
kvöld.
Að sögn lögreglunn-
ar i Keflavik var telp-
an að leik ásamt fleiri
börnum og mun hún
hafa faliö sig undir
tengivagni sem var
aftan i flutningabiln-
um, meðan hann var
kyrrstæður. Siöan
mun ökumaður flutn-
ingabilsins hafa komið
út i bilinn og ekiö af
staö án þess að verða
stúlkunnar var.
Ekki er unnt að
greina frá nafni telp-
unnar að svo stöddu,
þar sem ekki hefur
náðst til allra aðstand-
enda hennar. —Sjó.
Fljúgandi hálka á
götum isafjarðar
■ Fljúgandi hálka
hefur verið á götum
ísafjarðar undanfarna
daga, þvi hafa smá-
vægileg umferðaró-
höpp verið mjög
mörg.
Að sögn lögreglunn-
ar á ísafirði munu
engin meiðsli hafa
orðið á fólki, en eigna-
tjón er orðið talsvert.
Lögreglan á Isafirði
beinir þeim eindregnu
tilmælum til öku-
manna að þeir búi bif-
reiðar sinar undir vet-
<urinn svo fljótt sem
auðið er. —Sjó.
Tvö innbrot
í fyrrinótt
■ Tvö innbrot voru
framin i Reykjavik i
fyrrinótt. Brotist var
inn i gamla Sjálfstæö-
ishúsið við Austurvöll.
Þar voru unnin ein-
hver spjöll á innan-
stokksmunum, en
engu stolið.
Siðan var brotist inn
I Breiðholtsskóla viö
Arnarbakka, þar voru
skemmdar einhverjar
hurðir, en einskis er
saknað.
Hvorugt innbrotiö er
upplýst, en verið er að
vinna að rannsókn
þeirra.
Gagnkvæmt
tryggingaféJag
Fjórhjóladrifnar dráttarvélar
70 og 90 ha.
Kynnió ykkur verð og kosti
BELARUS
Guðbjörn Guðjónsson
heildverslun
y
VARAHLUTIR
Spndum um land allt
Kaupum nýlega
bíla til niðumfs
Slmi (91) 7 - 75-51, (91) 7 - 80-30.
TTTrTVn TTT71 Skemmuvegi 20
rtiliUl* XlT . Kópavogi
Mikiö úrval
Opið virka daga
9-19 • Laugar-
daga 10-16
HEDD HF.
SÍS styrkir Handknattleikssambandið með 150 þúsund krónum:
„EINS OG SÓLARGEISLI
í MYRKVIÐI FJÁRHAGS”
— segir Júlíus Hafstein, formaöur HSÍ