Fréttablaðið - 13.02.2008, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 13.02.2008, Blaðsíða 12
MARKAÐURINN 13. FEBRÚAR 2008 MIÐVIKUDAGUR12 H É Ð A N O G Þ A Ð A N L A N D B Ú N A Ð U R „Á einstaka stöðum eru þau ívið léttari en í hittifyrra,“ segir Jón Viðar Jónmundsson, ráðunaut- ur í sauðfjárrækt hjá Bænda- samtökunum. Samkvæmt skýrsluhaldi sauð- fjárræktarinnar fyrir árið 2007 er kjötmagn eftir hverja kind minna en árið áður. Breyting- arnar eru þó mismunandi eftir landsvæðum, að því er fram kemur á vefsíðu Bændasam- takanna. „Á heildina er kannski ekki að sjá mikinn mun milli ára, en til dæmis í Norður-Þingeyj- arsýslu er töluverður munur,“ segir Jón Viðar. „Þetta skýrist örugglega af miklum þurrkum í sumar. Við höfum séð þetta áður á þessu svæði.“ Fram kemur á heimasíðu Bændasamtakanna að gæði lambakjötsins séu, þrátt fyrir minni fallþunga, metin meiri en nokkru sinni fyrr. - ikh Lömbin ívið léttari ÚR GRÍMSSTAÐARÉTT Þurrkar síðasta sumar virðast vera meginskýringin á því að lömbin norðan heiða eru léttari en oft áður. „Talmálið er framtíðin,“ segir Eric Figueras, spænskættað- ur frumkvöðull, sem með þeim Birki Marteinssyni og Arnari Gestssyni hefur komið á fót upp- lýsingatækni- og farsímafyrir- tækinu AmiVox. Þeir hafa þróað og eru með í prófunum búnað í farsíma sem þeir binda vonir við að geti orðið smáskilaboðaþjón- usta framtíðarinnar. „Fólk losnar við innsláttinn og sendir raddupptökur. Það er fljótlegra, þægilegra og per- sónulegra,“ segir Eric stoltur, en blaðamaður getur vottað um þægindi þjónustunnar sem hann fékk að kynna sér sjálfur. „Svo erum við lausir við vandann sem kenndur hefur verið við fyrsta faxtækið, því með hugbúnaði okkar er hægt að senda skilaboð í síma sem ekki eru með búnað- inn,“ bætir Birkir við. AmiVox-menn kynna nýjan skilaboðaþjón sinn á alþjóðlegu farsímaráðstefnunni Mobile World Congress, sem hófst á mánudag og lýkur á morgun, í Barcelona á Spáni. Virkni búnað- arins verður helst líkt við blöndu SMS og MSN-skilaboðaþjónustu netsins, þar sem áherslan er þó á talmálið. Þá felur tæknin í sér lægri símakostnað þar sem sam- skipti notanda eru við efnisveitu innanlands, sem svo sendir skila- boðin áfram yfir netið. „Við telj- um að í þessu felist hagnaður fyrir alla, notendur jafnt sem símafyrirtæki, því með þessu kemur inn viðbótarþjónusta,“ segir Birkir. AmiVox fékk nýverið styrk frá Tækniþróunarsjóði og segja forsvarsmenn fyrirtækisins það mikla viðurkenningu á gæðum hugmyndarinnar. Í umfjöllun sjóðsins er kerfi AmiVox sagt munu valda bylt- ingu fyrir efnisveitur í að koma efni sínu á framfæri. „Kerfið opnar nýjar dreifileiðir fyrir efni, opnar fyrir sendingar á efni sem ekki hefur verið hægt að senda í farsíma áður, lækkar tækni- þröskuld fyrir allar efnisveitur verulega og getur sparað efn- isveitum verulegar upphæð- ir. Kerfið mun auka verulega möguleika fyrir íslenskar efn- isveitur á að koma sínu efni á framfæri erlendis, og fyrir ís- lensk farsímafyrirtæki að keppa á alþjóðamarkaði um ódýra skil- boðalúkningu.“ Í Barcelona segir Eric fyrst og fremst verið að kynna hug- myndina efnisveitum, en í mars verði opnað fyrir almenna notk- un á kerfinu, sem enn er í próf- unum. Grunnvirkni forrits- ins verður ókeypis, en svo geta notendur skráð sig fyrir fyrir- framgreiddri viðbótarþjónustu kjósi þeir það. Þá geta þeir sem nota búnað AmiVox sent félög- um sínum hlekk í niðurhal á búnaðinum í eigin síma. Ekki er því loku fyrir það skotið að vöxtur verði nokkuð hraður hjá AmiVox nái skilaboðaþjónusta þeirra að slá í gegn. - óká U P P L Ý S I N G A T Æ K N I I Ð N A Ð U R Skilaboðaþjónn framtíðar kynntur STOLTIR FRUMKVÖÐLAR Eric Figueras og Birkir Marteinsson, tveir stofnenda AmiVox, hafa unnið að því hörðum hönd- um að búa til verðugan arftaka sms-skila- boða sem samskiptaleið um farsíma. Á myndina vantar þriðja frumkvöðulinn, en að fyrirtækinu stendur líka Arnar Gestsson. MARKAÐURINN/ANTON

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.