Tíminn - 18.10.1981, Qupperneq 6
6
Sunnudagur 18. október 1981
■ Mörgum er það án efa i fersku minni að fiokkur frá svokailaðri
Peking-óperu gisti tsland 1955 og aftur 1959 og sýndi við griðarmikiar
undirtektir I Þjóðleikhúsinu, menningarlegir sendiboðar frá Kina sem
þá var flestum lokað land. Nú er Peking-ópera aftur væntanieg á fjalir
Þjóðleikhússins, að visu á maður aö skrifa Beijing-ópera I da.g, sam-
kvæmt nýjum reglum um umritun kinversu yfir á evrópsku. Svo er
þetta í raun hvorki ópera né kemur frá Peking. Peking-ópera er runniö
undan rifjum Evrópubúa sem köliuðu þetta forna kinverska listform
svo þegar þeir kynntust þvi um aldamótin. Kinverjar sjáifir kalla þaö
Ching Hsi — sem er leiksýning sem byggist á flóknu samspili iátbragðs,
ieikfimikúnsta, dans, söngs og talaðs texta og mikils búningaskrúðs.
Siikir flokkar Ching Hsi-leikara kváðu nú vera starfandi i velflestum
stórborgum Kina og njóta bæði mikiilar hylli aiþýðu og stjórnvalda,
sem nú líta þá aftur hýru auga eftir ólgu menningarbyitingarinnar.
Hópurinn er heimsækir Island
i næstu viku og sýnir fjórum eöa
fimm sinnum I Þjóðleikhíisinu
kemur frá borginni Wuhan i
hin eiginlega Peking-ópera
verður til. Þá mættust straumar
úr kinverskum leikhúsum i
Peking og runnu saman i þessa
■ Peking-óperan hefur aö leiöarljósi orð Maós formanns: „Leyfiö
hundrað blómum aö spretta.” Myndirnar eru af sýningum óperunnar.
Sheng,dan, jing
og chou
Hlutverkin i Peking-óperu
skiptast i fjórar megindeildir:
sheng, dan, jing og chou:
Sheng eru karlmannshlutverk,
sem greinast aftur i gömlu
mennina með siðu skeggin,
rökuðu unglingana , striðs-
mennina. Valdsmenn syngja og
tala með djúpri og þungri röddu,
en unglingarnir með mezzo -
sópran röddu eða i falsettu.
Jing eru karlmannshlutverk,
sem oft eru kölluð „máluöu and-
litin”. Hlutverkin geta bæði verið
jákvæð og neikvæð. Leikararnir
eru farðaðir i ýmsum litum og
mynstrum og sá sem þekkir til
Peking-óperunnar getur ráðið
Hupeh héraði, drjúga 100 km. frá
Shanghai.
Sýning Peking-óperu, við
skulum halda okkur við það nafn,
er mikil augans listisemd, eins
konar allsherjar-leikhús.
Leikurunum er ætiaö að vera
mjög l'jölhæfir, þeir gera allt i
senn, dansa, syngja, tala, sýna ó-
trúlegustu brögð og sveifla um sig
vopnum. Þannig likist þetta'
engan veginn óperu i okkar vest-
rænu merkingu, tónlistin kemur
óefað mörgum skringilega fyrir
eyru, ekki bara hinn sérstæði kin-
verski söngur, heldur er tónlstin
langt i frá synfónist eða nokkuð
slikt. Hún er flutt á trommur og
flautur, mestanpart til að undir-
strika sönginn og leikinn. Leik-
tjöldin eru lika i lágmarki. Það
eru hinir fjölhæfu leikarar og
búningar þeirra sem segja alla
söguna.
Leikstillinn er ákaflega fast-
mótaður, lýt'.ir sinum eigin lög-
málum of ita laus við allar
skirskota; raunveruleikans.
Allt frá lf. óid og þar til fyrir
fim mti'u áru; var konum meinað
að leika i P g-óperum. Hlut-
verk þeirra karlmenn sem
lögðu sér tii i: enlegt látbragð og
útlit. Nú haía konur aftur tekið
við hlutverkum kynsystra sinna,
en hefðin segir svo fyrir að þær
skuli hegða sér eins og konur sem
eru að leika menn.
Miðlari hins
undursamlega
Óperu-flutningurinn á sér langa
forsögu. Til eru allt að 3000 ára
gamlar kinverskar heimildir sem
lýsa hátiðum þar sem dans,
söngur og hljóð runnu saman i
eitt. En það er á tima Yuan-keis-
aranna, um 1300 e.kr., sem leik-
húsið fór að taka á sig núverandi
mynd, þar sem eru á vixl talað
orð og sungið i bland við dans.
Þá skiptist óperan i tvo skóla,
norður- og suðurdeild, en á 14du
öld varð suðurskólinn hlutskarp-
ari og hlaut nafnbótina „chu ’ an
ch ’i”, sem þyðir „miðlari hins
undursamlega” eða eitthvað i þá
veru. Þessi nafngift var lengi vel
notuð um bróðurpartinn af kin-
versku leikhúsi. Verkin i suður-
leikhúsinu skiptust i mikinn
fjölda þátta, 30 eða fleiri sem
bæði gátu staðið undir sér einir og
sér og voru hluti af heildar-
verkinu. Þvi er i dag hægt að
flytja brot úr mörgum óperum,
likt og Wuhan-hópurinn gerir hér,
án þess aö nauðsynlegt samhengi
fari forgörðum. Peking-óperu
hópar gripa oft til þess ráðs á
ferðalögum erlendis, til að
tryggja að óinnvfgðir geti fylgst
með og þurfi ekki að sitja undir
aríum sem geta tekið allt að
klukkustund i flutningi.
Það er svo um miðja 18du öld að
heild sem við fáum nú nasasjón
af, Peking-óperu eða Ching Hsi.
Það má segja að þetta sé eins
konar þjóðleikhús i Kina, fyrir
1966 voru um 2000 Ching Hsi
hópar i landinu, sem léku einatt
fyrir fullu húsi. 1 menningarbylt-
ingunni snerust margir öndverðir
gegn hinu klassiska kinverska
leikhúsi, en það hefur náð sér á
strik aftur og leikhópar leggja nú
á nýjan leik land undir fót. T.a.m.
fór Peking-óperuhópur mikla
frægðarför um Bandarikin fyrr i
sumar.
ðsýnilegir
þröskuldar
Hin hefðbundna Peking-ópera
notast næstum þvi ekki við neinn
sviðsbúnað. Leikararnir verða að
spjara sig upp á sitt einsdæmi,
með búningum og látbragði gefa
þeir til kynna hvar og hvenær at-
burðirnir eiga sér stað. Þeir stiga
yfir ósýnilega þröskulda, opna
dyr sem eru hvergi sjáanlegar,
róa yfir ár án þess að nokkur sé
báturinn. Ef hvessir skyndilega
kemur einhver hlaupandi með
langa flöktandi borða á stöng. Ef
leikari heldur á pisk sýnir það að
hann situr hest.
En þótt áhorfendum sé látið
eftir að gera sviðsbúnaðinn i’
hugarlund eru leikbúningarnir
þeim mun glæsilegri. Hefð
þessara búninga nær aftur til
tima Ming-keisaranna (1368-1644)
og þeir standa i raun ekki i neinu
sambandi við það timaskeiö sem
leikurinn á að fara fram. En þeir
spegla hlutverkið og þjóðfélags-
stöðu persónunnar. Litirnir á
búningunum gefa til kynna stétt
persónunnar. Gult er litur keisar-
ans og hans hirðmanna. Aðals-
menn eru klæddir i rautt. Blátt er
einkennislitur menntaðs fólks,
hvítt er eingöngu litur ungs fólks
og svart sýnir að persónan er
heiðarleg.
Gamlir menn eru alltaf með
ákaflega sitt skegg, en ungir
menn eru skegglausir. Fólk sem
hneigist til hernaöar gengur um
með vopn og ef karlarnir eru með
fána á bakinu sýnir það að þeir
eru foringjar i fararbroddi herja
sinna.
Hlutverkaskipanin i Peking--
óperunni er yfirleitt mjög fast-
mótuð. Leikararnir eru
menntaöir til að takast á við
ákveðin hlutverk sem þeir rækja
siðan allan leikferil sinn.
Fram til um 1920 voru engir
blandaðir hópar og kvenhlut-
verkin voru leikin af karlmönn-
um. Það var ekki fyrr en 1949 að
hætt var að ala upp drengi til að
leika kvenhlutverk. Einn af
mestu listamönnum Peking-óper-
unnar, Mei Lanfang, lék þannig
eingöngu kvenhlutverk meðan að
dóttir hans lék karlmenn.
skapgerð persónunnar af farð-
anum.
Réttlátar persónur eru litið
farðaðar, en þrjótar og bófar eru
mikið málaöir. Svikarar þekja
andlit sitt hvitu púðri til að undir-
strika að þeir geti ekki sýnt sitt
rétta andlit. Rauð andlit gefa vis-
bendingu um tryggð og hreysti,
svört um að pers'ónan sé stygg i
skapi, blátt er litur illmennanna
og gult litur slægðar eða jafnvel
heimsku. Þegar slær i brýnu milli
máluðu andlitanna er hægða-
leikur að greina þá vondu —
öðlingarnir eru alltaf málaðir á
mjög eðlilegan hátt, en farði ill-
mennanna er ætið mjög yfir-
drifinn.
Chou trúðurinn, getur hvort
tveggja veriö maður og kona.
Konutrúðurinn ef oftast nær
hjónabandsmiðlari, en skaplyndi
karltrúðanna er margvislegra —
hinir góöu eru alltaf kankvislegir
vondu trúðarnir eru aftur á móti
klókirog útsjónarsamir eða stund
um hreinir einfeldningar. Trúð-
arnir eru lika málaöir i framan,
þó ekki meira en sem nemur
hvitum flekkjum i kringum
munninn og nefið eða nefið og
augum. Heimild okkar segir að
trúðarnir séu á tiðum þeir einu
sem tali „skiljanlega” kinversku
i Peking-óperum.
Makalausir
vígamenn
Peking-óperu flokkurinn frá
Wuhan sem hingað kemur var
stofnaður árið 1950. Hann hefur
sýnt viða erlendis og kemur
hingað úr ferðalagi um Evrópu og
Norðurlönd. Flokkurinn hefur
innan raða sinna fjölda af úrvals
listamönnum, þekktra i heima-
landi sinu. Þeirra kunnastir
munu vera Wang Wanhua, leik-
kona sem gerir ýmsum kvengerð-
um innan óperunnar frábær skil
og tveir svokallaðir wusheng leik-
arar eða vigamenn sem sýna
ótrúlega leiki með vopn, þeir Guo
Yukun og Liu Hengbin.
Hópurinn verður hér með tvær
mismunandi dagskrár sem inni-
halda úrval frægra atriða úr
klassiskri Peking-óperu, flest
hver sögulegs eða goðsögulegs
eðlis. Sum þeirra slá á viðkvæma
strengi brennandi ástar likt og
Haustfljótið, önnur fjalla um
hernað og vigaferli likt og hið
fræga hópatriði Orrustan á
Yentangfjalli, þar sem viga-
mennirnir miklu spreyta sig og
allt þar á milli.
Sýningar Peking-óperuflokks-
ins i Þjóðleikhúsinu verða sem
hér segir: Á fimmtudaginn 22.
okt. kl. 20.00, föstudaginn og laug-
ardaginn á sama tima og á
sunnudaginn 25. okt. kl. 15.00
siðdegis. Hugsanlega verður
einnig sýning þriðjudaginn 27. kl.
20.00. Miðasala hefst i Þjóð-
leikhúsinu á laugardag kl. 13-15.
Peking-óperuflokkur
sýnir í Þj óðleikhúsinu