Tíminn - 25.11.1981, Side 3

Tíminn - 25.11.1981, Side 3
Miðvikudagur 25. nóvember 1981 ■ „Við sem störfum hér I þessu húsi vitum vel að það er auðveld- lega hægt að koma bil hér inn i portið, við vorum búin að fjar- lægja okkar bila svo slökkviliðinu var vel fært að komast að. Þeir komu aldrei inn i portið, en þaðan var eini möguleikinn til að siökkva þennan eld,” sagði Jón Aðalsteinn Jónsson, kaupmaður i Sportvaii, en eins og kunnugt er þá missti Sportval 4-5 mánaða lager i eldsvoðanum sem varð á húseignum Egils Vilhjálmssonar að morgni siðasta fimmtudags. „Slökkvistjóri ber þvi við að sprengihætta hafi verið of mikil til að f orsvaranlegt væri að senda slökkviliðsmennina þarna inn, en að minum dómi var sprengi- hættan jafnmikil hvorum megin sem við vegginn var staðið. Auk þess vil ég benda á að slökkviliðs- mennfá laun með áhættuþóknun, fyrir að slökkva eld en ekki sprauta á veggi. f minum huga er málið einfald- lega það að ef eftirlit með bruna- hönum er ekki betra en raun ber vitni, þá erum við á villigötum hvað varðar eldvarnarmál i borginni. Ef það kviknaði i skóla, ef það kviknaði i sjúkrahúsi, og brunahanar væru óvirkir hvar værum við þá á vegi stödd? „Mér fannst sorglegt að horfa á aðfarir slökkviliðsins i þessum bruna, það þarf mikla snillinga til að gera bál úr þessum neista sem þarna var á ferðinni, og mér finnst verðugt umhugsunarefni hvort ekki sé timabært að skipta um stjórn i slökkviliði Reykja- vikur,” sagði Jón Aðalsteinn. —SJó. „Kom ekki fram ad neitt hafi verið að hananum’% segir Jón G. Tómasson, borgarlögmaður ■ „Ég talaði við þá slökkviliðs- menn sem fengust við þennan brunahana og svo starfsmenn vatnsveitunnar sem komu þarna á staðinn og i þessunt viðtölum kom ekki fram að neitt hefði verið að hananum,” sagði Jón G. Tómasson, borgarlögmaður i samtali við Timann i gær. „Hinsvegar er það staðreynd að slökkviliðsmönnunum tókst ekki að opna hanann með þeim á- höldum sem þeir höfðu tiltæk. Það er ljóst að frostið sem var dagana fyrir brunaiin hefur áhrif á skrúfganginn. Slökkviliðsmenn- irnir tókustrax næstbesta kostinn og fóru i brunahana sem er þarna rétt hjá, og ég get ekki sagt að þeir hafi ekki staðið sig i stykk- inu, en hinsvegar má kannski segja að slökkvilið ætti að hafa betri tæki meðferðis. Þvi starfs- menn vatnsveitunnar komu á staðinn og þeim tókst með sinum verkfærum að opna hanann á skömmum tima,” sagði Jón. -Sjó. Hörd gagnrýni á Slökkvilið Reykjavíkur vegna brunans í Egils-husinu: I Eins og vel sést á myndinni var mikill reykjarmökkur og eldur þegar kviknaði I húseignum Egils Vil- hjálmssonar. A þaki BSRB hússins sem er til vinstri á myndinni sjást starfsmeun BSRB sprauta á þak- skeggið. Timamynd Róbert. Milljónatjón í brunanum ■ Stórbruni varð á húscignum Egils Viihjáimssonar á horni Rauðarárstigs og Grettisgötu að morgni fimmtudagsins 19. nóv. Gifurleg sprenging varð i smurstöð sem er þarna i portinu, Starfsmaður sem var við vinnu sína í smurstöðinni þurfti aðeins aðbregða sér frá rétt i þann mun er sprengingin varð og er það tal- ið hafa bjargað lifi hans. Eftir sprenginguna hrundi veggur sem aðskildi smurstöðina frá næsta húsi og fljótlega náði eldurinn að breiðast út i skúra sem þarna voru. Eldurinn varð mjög magnaður og sprengingar héldu áfram með jöfnu millibili. Eldurinn náði fljótlega að brjóta sér leið i gegnum glugga á bila- sprautunarverkstæði Egils Vil- hjálmssonar, sem snýr að Rauðarárstig eftir það urðu sprengingar tiðari og héldu lengi áfram. Slökkviliðsstjóri tók þá ákvörð- un að enginn slökkviliðsmaður færi inn i eldinn vegna sprenging- anna. Þessvegna sóttu slökkvi- liðsmenn að eldinum á annan hátt en vandi er. Vatni var sprautað utan frá i gegnum glugga og dyr og haft var i huga að slökkviliðsmennirnir væru alltaf i vari fyrir sprengingum. Að sögn Rúnars Bjarnasonar, slökkvistjóra, var ljóst þegar slökkviliöið kom á staðinn að skúrbyggingunum i portinu yrði ekki bjargað, „enda voru þær al- elda,” sagði Rúnar. „Eg lagði áherslu á það strax i byrjun að verja verkstæðisbygg- inguna við Grettisgötu og að ná eldfimum efnum útaf málningar- verkstæðinu og bilunum sem þar voru. En siðan urðum við að fara þaðan út, þegar eldurinn var bú- inn að ná sér upp. Þá snerum við okkur að þvi að verja hús BSRB og Rarik.” — Áður en þið sneruð ykkur að húsinu voru starfsmenn BSRB byrjaðir að verja það. Af hverju byrjuðuð þið ekki strax? „Já, já, þeir gripu þarna inni vegna þess að við vorum tiltölu- lega fáliðaðir, það var strax aug- ljóst að það var full ástæða til að verja þakskeggið og þvi komu þeir með brunaslöngur innúr hús- inu og viö tókum við af þeim þegar við sáum okkur það fært. Ég er ekki tilbúinn að samþykkja að okkur hafi orðið á mistök i þessum bruna. Ég álit þá gagnrýni sem slökkviliðið hefur orðið fyrir svo óréttmæta að ég tel hana ekki svaraverða,” sagði Rúnar. Arnar Guðmundsson, deildar- stjóri hjá Rannsóknarlögreglu rikisins, sagði að enn væri óljóst hvað hafi valdið sprengingunni sem kveikti i. „Það þurfa sérfróð- ir menn aðfá sinn tima til að fara i gegn um þetta áður en endan- lega verður kveðið uppúr með það hvað olli.” Arnar sagði að það væri ljóst að allt sem var i húsunum sem brunnu væri gerónýtt, þ.e. bila- sprautun, glerverkstæði, dekkja- verkstæði, sjálfskiptingarverk- • stæði og svo lager verslunarinnar Sportvals, sem leigði þarna hús- næði af Agli Vilhjálmssyni. —Sjó. ,Á ekki að þurfa ad beita bolabrögðum vidbrunahana’ segir Rúnar Bjarnason ■ Það vakti athygli margra sem horfðu á slökkviliðið kljást við brunann sem varð á húseignum Egils Vilhjálmssonar að það tók slökkviliðið langan tima að fá vatn úr nærtækasta brunahana. Slökkviliðsmenn voru tæpar 15 minútur að fást við að opna hann. Timinn spurði Rúnar Bjarnason, slökkvistjóra hverju þetta sætti. „Vegna mikilla kulda sem riktu siðustu dagana fyrir þennan bruna var miklum erfiðleikum bundið að opna hanann. Þetta eru stórir málmfletir sem standa úti og það er öllum kunnugt að málmur þéttist i kulda. í þessu mikla frosti þá sátu skrúfgangar og stýringar á spindli, sem er i hananum, fastar.” — En þú neitar þvi alfarið að þið hafið ekki haft rétt tæki til að opna hanann? „Við vorum bara með þau* verkfæri sem við erum vanir að hafa meðferðis I útköllum og undir venjulegum kringumstæð- um eiga þauaðduga. Ég er ekki á þvi að það þurfi að beita bolabrögðum við að opna bruna- hana.” — Er þessi brunahani eitthvað frábrugðinn öðrum sem eru i Reykjavik? „Það eru milli 30 og 40 bruna- hanar af þessari gerð i Reykja- vik, þeir eru örlitið stærri en þeir sem eru algengastir, enda ó- hemju afkastamiklir,” sagði Rúnar. —Sjó. Alþýðusamband Vestfjarða: Bíður svars for- sætisráðherra ■ „Það gengur litið hjá okk- ur. Við vorum á sáttafundi á laugardag og sunnudag, en þar kom ekkert fram. Okkur var bara boðið upp á þetta ASI samkomulag og við höfnuðum þvi, ” sagði Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðusambands Vest- fjarða i viðtali við Timann i gær, þegar hann var spurður hvað samningaviðræðum þeirra fyrir vestan miðaði. „Við höfum ekkert svar fengið frá forsætisráðherra, sem hann þó lofaði okkur. Við áttum viðræður við hann fyrir einni viku og hann lofaði að svara okkur fljótlega og ætlaði að leggja þetta fyrir rikis- stjórnarfund daginn eftir, en siðan hefur ekkert svar bor- ist,” sagði Pétur. Pétur sagði að þeir hjá ASV hefðu á sinum tima boðiö upp á 3.25% fram til 1. janúar, en vinnuveitendur hefðu hafnað þvi. Pétur sagði að þeir hjá ASV vildu hafa samningana lausa frá áramótum, því þeir teldu ekkert vit vera i þvi að festa samninga fram á sumar, því hjá þeim yrði engin staða til átaka i sumar. —AB „MRF SNIIilNG TIL AÐ GERA BAL |)R SVONA NEISÍA” — segir Jón Aðalsteinn Jónsson í Sportvali

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.