Tíminn - 25.11.1981, Síða 6
Miövikudagur 25. nóvember 1981
Blóm á bordið
í skammdeginu
■ Gaman er aö leggja á borð á
fallegt borðstofuborð, með saum-
uðum borðserviettum og milli-
sérviettum á diskum. Auðvitað er
mest gaman að sauma þær sjálf-
ur. Iþessu munstri sem hér fylgir
með, er saumað yfir tvo þræði. A
milliservíettunni er saumaður
efstihlutinn af munstrinu, og það
endar eins og sést neðst á
munsturmyndinni. Ef ykkur
finnst of mikil vinna að sauma á
hverja borðserviettu munstur
niöur allan kantinn öðrum megin
eða jafnvel báöum megin, — þá
geturverið fallegt, aðhafa aðeins
munstur i einu horninu eins og er i
litlu serviettunni.
Fráganginn verður svo að hafa
eftir smekk og getu. Auðvitað er
fallegt að sauma húllsaum um
hverja serviettu, en það er mjög
seinlegt. Ekki virtist hægt að fá
vélsaumaðan húllsaum neins
staðar i höfuðborginni nú, en þó
má vera að það séu einhverjar
saumastofur enn, sem taka það
að sér. Væri gaman að frétta um
það, — svo vinsamlegast, ef þið
vitið af einhverri saumastofu sem
tekur að sér að húllsauma fyrir
fólk, þá látið okkur vita i sima
86300.
Annars getur verið fallegt að
„sikksakkka” mjóa blúndu utan
um servietturnar.
Ætlast er til að saumað sé með
DMC bómullargarni og eru litirn-
ir þessir: Ljósgrænt nr. 223
(3348), sterkgrænt nr. 101 (320)",
milligrænt 100 (319), dökkgrænt
210 (890), ljósasta blátt 33 (775),
ljósblátt 21 (793), grárautt 15
(204), Bordauxrautt 4 ( 3685).
■ Það sem þarf aö nota:
1 kilódós af ferskjum
10 blöð af matarlimi (1 pk)
1 dl þurrt vermouth
eina hrúgu i miðjunni. Gott er að
láta frostið ekki fara alveg úr
jarðarberjunum, þvi að þá tolla
þau betur saman i einum hrauk.
Litrikur ávaxtadiskur
Ferskjur og jardarber í hlaupi
1 pk frosin jarðarber
Rjómi til að þeyta.
1) Hellið ferskjunum á sigti svo
safinn geti runnið af þeim. Bleyt-
ið matarlimið i hluta af safanum
og leysið það upp i litlum skaft-
potti. Bætið siðan vermouth út i
og safanum sem eftir er.
2) Hellið öllum safanum gegn-
um sigti með pappfrskaffipoka i
botninum tii að safinn verði tær.
3) Ferskjurnar eru settar á
glerfat og kúpta hliðin látin snúa
niður. Þá eru tekin fallegustu
jarðarberin og sett i miðju
hverrarf erskju. Siðan er það sem
eftir er af jarðarberjunum sett i
Siðan er safanum, sem er orðinn
kaldur og að byrja að stlfna, hellt
smátt og smátt yfir. Einnig er
safanum á diskinum ausið með
skeið yfir ferskjurnar, svo þær
verði glansandi finar.
4) A þessari mynd sést diskur-
inn tilbúinn, með tæru hlaupinu
yfir ávöxtunum. Rjóminn er
þeyttur og hægt er að bera
ávaxtadiskinn fram um leið og
hlaupið er orðið stift. Ef hann
þarf að bi'ða i einhvern tíma,
verður að geyma diskinn á köld-
um stað, t.d. i isskáp, annars vill
safinn úr jarðarberjunum fara að
renna út i tæra hlaupið.