Tíminn - 25.11.1981, Síða 8

Tíminn - 25.11.1981, Síða 8
8 Miðvikudagur 25. nóvember 1981 Útgefandi: Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Johann H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Afgreiðslustjori: Sig- urður Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson. Elias Snæland Jóns- son. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. ólafsson. Fréttastjóri: Páll Magnússon. Umsjónarmaður Helqar-Timans: llluqi Jökulsson. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir. Egill Helgason, Fríðrik Indriðason, Friða Björnsdóttir (Heimilis-Timinn). Halldór Valdimarsson, Heiður Helga- dottir, Jónas Guömundsson, Jónas Guðmundsson, Kristinn Hallgrimsson, Kristin Leifsdóttir, Ragnar Orn Pétursson (iþróttir), Skafti Jónsson. útlits- teiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guð- jón Róbert Agústsson. Elin Elfertsdóttir. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Kristin Þorbjarnardóttir, Maria Anna Þorsteinsdóttir. Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Siðumúla 15. Reykjavik. Simi: 84300. Auglýsingasimi: 18300. Kvöldsimar: 84387, 84392. — Verð i lausasölu 5.00. Askriftargjald á mánuði: kr. 85.00-Prentun: Blaðaprent h.f. Verdur þad stein- ullarverksmidja eda Blönduvirkjun? eftir Rósmund G. Ingvarsson, Hóli iTungusveit Niðurtalning trygg- ir lífskjörin ■ íslendingar munu yfirleitt fagna þvi, að náðst hefur milli hinna svonefndu aðila vinnumarkað- arins, samkomulag, sem er liklegt til að tryggja vinnufrið fram til 15. mai á næsta ári. Að visu eiga nokkrar stéttir enn ósamið, m.a. sjómenn, en þess er að vænta, að þær geti einnig náð sam- komulagi. Ýmsir munu telja það ókost, að ekki hefurverið samið til lengri tima. Vitanlega hefði það verið æskilegra. Þess er hins vegar að gæta, að ástand efnahagsmála og atvinnumála er óráðið hérlend- is um þessar mundir eins og viðast annars staðar. Undir þeim kringumstæðum getur verið gott að fá biðtima og fá þannig gleggri mynd af framtið- arhorfum, þegar samið verður til lengri tima. Þvi er ekki að neita, að horfur eru á margan hátt iskyggilegar. Hagfræðingar eru nú óðum að afskrifa þær spár, að efnahagsástand muni batna i viðskiptalöndum okkar eins fljótt og þeir höfðu gert sér vonir um. Þvert á móti kveður nú við þann tón hjá þeim, að ástandið eigi enn eftir að versna áður en batinn fari að segja til sin. Sumir eru enn svartsýnni. Þannig hljóðar siðasta spá sérfræðinga OECD, að atvinnuleysi muni aukast i nær öllum hinum 24 rikjum, sem eiga aðild að þessari stofnun, en meðal þeirra eru Efnahagsbandalagsrikin, Bandarikin, Japan og Kanada. Atvinnuleysingjar i þessum löndum voru samtals um 24 milljónir á miðju þessu ári, en nú er þvi spáð, að þeir geti komizt upp i 30 milljónir á siðari hluta næsta árs. Þetta er ömurleg spá, sem fylgir i kjölfar spá- dóma um að hagvöxturinn verði minni og þjóðar- tekjurnar lægri en áður hafði verið áætlað. Óhjákvæmilegt er að þetta hafi meiri og minni áhrif á islensk efnahagsmál, eins mikið og Is- lendingar eru háðir viðskiptum við útlönd. Það hefur tryggt afkomu Islendinga á þessu ári, að verulegur árangur hefur náðst af niður- talningu verðbólgunnar, þar sem hún verður ekki nema um 40% i stað 70-80%, sem ellá hefði orðið. Þetta hefur komið i veg fyrir stöðvun atvinnuveg- anna og stórfellt atvinnuleysi. Hins vegar er þetta aðeins bráðabirgðabjörg- un, ef niðurtalningunni verður ekki haldið áfram. Samkvæmt spám Þjóðhagsstofnunar verður verðbólga um eða yfir 50% á næsta ári, ef ekki koma til sögunnar nýjar niðurtalningaraðferðir. Fari verðbólgan upp i 50% að nýju, er alger vá fyrir dyrum. Atvinnufyrirtæki munu stöðvast, at- vinnuleysi mun halda innreið sina i stórum stil og útilokað verður að halda óbreyttum kaupmætti launa. En öllu þessu má afstýra með áframhaldandi niðurtalningu, sem nær til allra kostnaðarliða, m.a. vaxta, landbúnaðarvöruverðs, fiskverðs, verðlagsbóta og skatta. Þá á að vera hægt að gera allt i senn, afstýra atvinnuleysinu, tryggja kaupmáttinn og vinnufriðinn og verulega hjöðnun verðbólgunnar. Þ.Þ. ■ Iðnaðarráðherra okkar mun eiga úr vöndu að ráða þessa dag- ana meðan verið er að taka á- kvörðun um hvar á að virkja næst, hvar á ab byggja stóriðju- ver til að nota raforkuna og hvernig störiðja það á að vera og loks hvort steinullarverksmiðja á að verða á Sauðárkróki eða sunnanlands. Austfirðingar vilja^ fá Fljótsdalsvirkjun og meiri háttar iðnað, Sunnlendingar vilja Sultartangavirkjun, stóriðju og steinullarverksmiðju og Norð- lendingar vilja fá virkjun, stein- ullarverksmiðju og stóriðju (við Eyjafjörö). Talið er liklegt að ráðherrann muni skipta þessu þannig að allir fái eitthvað, þ.e. einn landshlutinn fær virkjun, annar stóriðju og þriðji stein- ullarverksmiðju. Spurningin er þá, hver fær hvað. Nú stendur dæmið þannig á Sauðarkróki að atvinnuleysi er yfirvofandi og jafnvel dunið yfir eins og heyra má daglega i frétt- um útvarpsins. Sauðkræklingar biðja ákaft um steinullarverk- smiðju, þurfa að fá hana og eiga siðferðislegan rétt á henni, þvi að þeir voru fyrri til og hafa lagt i mikinn kostnað við rannsóknir og undirbúning. Þeir virðast lika hafa gert raunhæfar áætlanir um stærðog rekstur verksmiðjunnar. Til hennar þarf aðeins 1.5-2 MW raforku og þarf þvi enga virkjun á Norburlandi hennar vegna (byggðalinan flytur 50 MW). Spurningin er hvort Sauðkrækl- ingar og nágrannar þeirra, eru tilbúnir að láta „óskadrauminn” um að Blönduvirkjun verði næsta stórvirkjun, vikja fyrir stein- ullarverksmiðju. Nú er ljóst, eins og margsinnis hefur komið fram, að þegar lokið er framkvæmdum við Hraun- eyjafossvirkjun og aðrar fram- kvæmdir á Þjórsársvæðinu sem nú er unnið að, þá verður næg raf- orka fyrir almenna notkun lands manna um nokkra framtið. Nýjar stórvirkjanir á næstu árum verða þvi byggðar með stóriðjumarkað erlendra aðila i huga, en ekki fyrir almenning i landinu. Nú er Blanda sögð hagkvæmasti virkj- unarkosturinn og blasir þvi við sá möguleiki, ef hún verður virkjuð næst, að selja erlendum aðilum orkuna fyrir lágt framleiðslu- kostnaðarverð og það er einmitt það sem sóst er eftir. Er raunar hryggilegt að heyra hversu margir af forráðamönnum þjóðarinnar (jafnvel Alþýðu- bandalagsmenn) syngja nú stór- iðjunni lof og dýrð og virðast eng- in bjargráð sjá fyrir þessa þjóð, önnur en að fá erlenda stóriðju- abila til að byggja hér álver og annað slikt og vilja laða þá að með sem ódýrastri raforku. Þvi hefur verið haldið fram sem einu aðalatriðinu i áróðrin- um fyrir Blönduvirkjun að virkj- un á Norðurlandi sé nauðsynleg til að bæta úr orkuskorti og auka öryggi i rafmagnsmálum. Hvað fyrra atriðið varðar hefur verið um blekkingu að ræða. Hinsvegar er augljóst að öryggið i raf- magnsmálum eykst eftir þvi sem virkjanir koma viðar, svo fremi að rafmagnið verði ekki leitt eftir sérlinu til næsta stóriðjuvers. En öryggið eykst með hverju árinu þótt engin virkjun komi þvi bæði er unnið að hringtengingu kerfis- ins og svo munu byggðalinur verða endurbættar þar sem reynsla sýnir að þess gerist þörf. Byggðalinan hefur reyndar stað- ist islensku veðráttuna vonum betur og þó að hún bili smávegis erutil vara-rafstöðvar sem gripið er til. Hinsvegar er verra við að fástþegar dreifilinur bila margar i einu og verða menn að gera greinarmun þar i milli. Er slæmt til þess að vita að menn skuli i- myndasérhlutiiþessu sambandi og taka ofstækisfulla afstöðu og beita áróðri samkvæmt þvi, en þetta hefur þvi miður gerst i Blöndumálinu og haft áhrif. Aukið öryggi i raforku- málum í stefnuræðu forsætisráð- herra (Timinn 23. okt.) kem- ur fram að unnið er að þvi ,,að ljúka hringtengingu byggðalinu og auka flutningsgetu og öryggi raforkukerfisins . Suð- austurlina verður tekin i notkun i nóv. n.k. (þ.e. i þessum mánuði) og stefnt er að þvi að ljúka hringnum með lagningu Suður- linu á næstu árum.” Engar likur eru til að nokkur neyð verði i raf- magnsmálum þótt bygging Blönduvirkjunar frestist um 3-4 ár og hluti Fljótsdalsvirkjunar komi á undan, en það breytir málinú talsvert til bóta eins og siðar verður að vikið. Allir hljóta að sjá að öryggi raf- magns eykst þegar það getur komið úr tveimur áttum enda er hæpið að bilanir verði samtimis bæði austan og vestan Norður- lands. Hagkvæmni Blöndu og Fljótsdals mun vera mjög svipuð og breytir varla neinu hvor fyrr er virkjuð hvað það varðar. Búið er að semja eystra en ósamið er um Blöndu og hafa engar bætur né kostnaður við uppgræðslu verið reiknað inn i dæmið svo kunnugt sé. Nýtt og athyglisvert við- horf Fyrr á þessu ári samþykkti Alþingi heimildarlög fyrir fjórum vatnsaflsvirkjunum sem allar eru taldar hagstæðar. Eru áður- nefndar tvær virkjanir meðal þeirra. Svo er að heyra að á öllum þessum stöðum eigi að virkja á næstu 10 árum eða svo og koma jafnframt orkufrekum iðnaði á fót til að nýta rafmagnið. Laga- frumvarpinu fylgdi sérfræðileg á- litsgerð frá Verkfræðistofu Helga Sigvaldasonar um vatnsmiðlun fyrir landskerfið. Kemur þar fram að „miðlunarstig núverandi kerfis sé 0.16 sem verði að teljast heldur lágt” en það þýðir að vatnsmiðlun raforkukerfisins sé of litil til að duga yfir veturinn i vatnslitlum árum ogkemurfram i álitsgerðinni að miðlunarstigið 0.30 sé hæfilegt. í Morgunblaðsgrein 22. okt. ’81 færir Bergur Sigurbjörnsson rök fyrir þvi að hagkvæmara er að Fljótsdalsvirkjun komi á undan Blönduvirkjun.Hannsegir: „Með tilkomu Hrauneyjarfossvirkjunar og Blönduvirkjunar með stærstu miðlunnæstá eftir mundi miblun landskerfisins aðeins hækka úr 0.161 0.21 eða 0.24 ef Armótastifla og Stórkvislaveita kæmu einnig til. Þetta merkir það að öll land- eyðing við Blöndu vegna stærsta miðlunarlónsins, nægir ekki til að tryggja nauðsynlegt miðlunarstig i landskerfinu. Komi Fljótsdals- virkjun hinsvegar inn i myndina á menningarmál Það er leidréttinga þörf Inga Huld Hákonardóttir: Hélstu að Ilfið væri svona? Viðtöl við verkakonur. Iftjinn. ■ Þetta er fróðleg bók og mun veröa talin gott heimildarrit. Enda þótt við vitum að jafnan er hálfsögð sagan þegar einn segir frá eru lifsreynslusögur eins og þessar heimildir frá fyrstu hendi og þær lýsa viöhorfum sögu- manns eins og þau eru. Frágangur bókarinnar er góður. Prentvillur eru vand- fundnar og stillinn liflegur og áferöargóður. Fari ég að finna að einhverju eða nefna það sem mér kemur spánskt fyrir sjónir, væri það þegar talað er um að „beina út kjöt” eða spurt er: „Finnst þér þá konur eiga að taka þátt i stjórnmálum”. Ég hefði spurt: Finnst þér konur eigi. Kona sem er „fjórða yngst” af sjö systkin- um, telst mér til að sé alveg eins fjórða elst en hitter jafnrétt fyrir þvi. Sleppum þeim smámunum. Enda þótt hér sé meira talað við konur með erfiðar ástæður er fjarri þvi að væl og barlómur sé einkennandi. Vitanlega orka sumar þær skoðanir sem fram koma tvimælis. Þær sem vinna á skrifstofu félags starfsfólks Iveit- ingahúsum vita að það er til að „fólk setji fram klögumál sem ekki eiga sér neina stoð i veru- leikanum”, Og Stella trúnaðar- maður, segist „ekki hafa lent i miklum deilum við stjórn frysti- hússins, en fremur i því að greiða úr flækjum og árekstrum milli starfsfólksins innbyrðis”. Eftirtektarvert finnst mér þeg- ar stúlkan talar um að hún hefði áttréttá tveim veikindadögum á mánuði: Ég held að sumir telji sig eiga rétt á veikindadögum enda þótt ekki sé um veikindi að ræða. Hins vegar skilst mér að ákvæðin um veikindadaga með fullu kaupi sé samtrygging laun- þeganna þeim til hjálpar sem veikir verða. Þá breytir það engu um orlofsrétt að öðru leyti þó að menn hafi verið svo heppnir að sleppa við lasleika. Stúlkan sem aldrei varð lasin, átti þvi ekki rétt á neinum sjúkradegi. Ummælin að 87% þjóðarinnar lifi á afrakstri þeirra 13% sem vinna við fiskveiðar og fisk- vinnslu eru si'giltdæmium þröng- sýni. Bæöi er það að þetta er ekki eina framleiðslan I landinu og eins er hitt að til þess að afla

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.