Tíminn - 28.11.1981, Qupperneq 5

Tíminn - 28.11.1981, Qupperneq 5
Laugardagur 28. nóvember 1981 5- erlent yfirlit bridge 1- ...; . Brésnjef og Strauss ræddust viö I Bonn. Gagnleg viðtöl þjóðarleiðtoga Schmidt reyndi að draga úr tortryggni ■ EFTIR viðræöur þeirra Bré- snjefs og Helmuts Schmidt i Bonn, sem fóru fram á mánudag og miðvikudag i þessari viku, viröist nokkur ástæöa til aö vera vonbetri um árangur viöræöna risaveldanna, sem eiga að hefjast i Genf 30. þ.m. um takmörkun meöaldrægra eldflauga i Evrópu. Enginn beinn árangur náöist þó i viöræöum þeirra Brésnjefs og Schmidts um eldflaugamálin, enda aldrei til þess ætlazt. Af hálfu Schmidt var skýrt tekið fram, aö hann heföi ekki umboö til samninga um þetta mál, heldur væri það i hendi Banda- rikjaforseta. Tilgangur viðræðna þeirra Brésnjefs væri fyrst og fremst aö auövelda samninga- geröina, sem færi fram i Genf milli fulltrúa risaveldanna. Taliö er aö Schmidt hafi reynt aö fá Brésnjef til aö fallast á til- boð Reagans um aö Nato hætti viö eldflaugaáætlun sina gegn þvi aö Rússar eyöilegöu 600 eldflaugar, sem skjóta má af jöröu. Vafalaust hefur hér þó verið um formsatriöi að ræöa af hálfu Schmidts, þar sem hann vissi fyrirfram aö Bré- snjef myndi hafna tilboðinu. Sennilega mun engum hafa dottið i hug, aö raunverulega væri þannig búið aö ná samkomulagi áöur en viöræðurnar hæfust i Genf. Hins vegar er talið, aö Schmidt hafi orðiö eitthvaö ágengt i þvi aö draga úr tortryggni Brésnjefs i garð Bandarikjastjórnar. Rúss- neskir ráðamenn eru af ástæöum, sem ekki eru aö öllu leyti ástæöu- lausar, tortryggnari á samninga- vilja Reagans en þeirra Carters, Fords og Nixons. Þessari tor- tryggni mun Schmidt hafa reynt aö eyöa og bent á hinn nýja tón i ræðu Reagans, sem hann haföi flutt i vikunni áöur. FRÉTTASKÝRENDUR gizka yfirleitt á, að Schmidt hafi orðið nokkuö ágengt i þessu efni. Alls ræddust þeir Brésnjef og Schmidt við i 10 klukkustundir ýnist einslega, ásamt túlkum sin- um, eöa meö ráðunautum sinum. Taliö er, að niðurstaöan af við- ræöum þeirra hafi verið i höfuð- atriðum þessi: 1. Brésnjef lýsti yfir þvi, aö þaö yrði fyrsta tillaga Rússa, þegar viöræðurnar byrjuöu i Genf, aö leggja til að risaveldin stöövuöu allar framkvæmdir á sviði hvers konar meöaldrægra vopna meöan viöræðurnar stæöu yfir. 2.1 framhaldi af þessu, ef sam- komulag næst um áöurgreinda frystingu, séu Sovétrikin tilbúin aö fækka meðaldrægum eldflaug- um, sem skjóta má frá jöröu, um a.m.k. 100 og veröi þá dregiö til- svarandi úr eldflaugaáætlun Nato frá 1979. 3. Sovétrikin kjósi samninga um takmörkun meöaldrægra eld- flauga af öllum geröum, þ.e. auk eldflauga, sem skjóta má af jöröu, eldflauga, sem skotið er af skipum eða úr flugvélum. Þá veröi tekiö tillit til kjarnorku- vopna Breta og Frakka, og stefnt að jafnvægi á þeim grundvelli, að kjarnvopnastyrkur Sovétrikj- anna veröi svipaöur og þeirra þriggja Natorikja, sem ráöa yfir kjarnorku vopnum. Búast má viö, aö Bandarikin fallist ekki á þessa tilhögun viö- ræðnanna, sem Rússar kjósa helzt, og nokkurt þóf geti þvi oröið i fyrstu um dagskrána. Biliö viröist hins vegar ekki þaö mikiö, aö þaö megi ekki jafna, og viöræður þeirra Brésnjefs og Schmidts viröast hafa oröiö til þess aö minnka þaö. 1 sameiginlegri yfirlýsingu, sem þeir birtu eftir viöræöur sinar lýsa þeir þeim vilja sínum aö vinna aö þvi aö jafnvægi náist milli austurs og vesturs i Evrópu á sviöi kjarnvopna, og frekari af- vopnun geti svo fylgt i kjölfariö. Auk þeirra viöræöna, sem Bré- snjef átti viö Helmut Schmidt ræddi hann viö fulltrúa frá þing - flokkunum, m.a. frá flokki kristi- legra i Bæjaralandi og tók Franz Josef Strauss þátt i þeim viöræö- um. VEL má vera, aö siöar veröi þaö talið merkast i sambandi viö komu Brésnjefs til Bonn aö þessu sinni, aö tveimur dögum áöur var undirritaöur samningur milli rússnesks rikisfyrirtækis og fyrirtækja i Vestur-Þýzkalandi um stórfellda sölu á gasi, sem veröur flutt eftir mikilli leiðslu frá Noröur-Siberiu til Vestur-Evrópu. Fyrirtæki i Vestur-Evrópu munu leggja gas- leiösiuna aö mestu og útvega lánsfé til framkvæmdanna. Þetta veröur mesta fyrirtæki sinnar tegundar i heiminum. Þaö hefur verið álit margra þeirra, sem hafa látið sér mest umhugaö um friö i heiminum, aö aukin viöskipti og samvinna á sviöi tæknimála gætu átt meiri þátt i þvi en nokkuö annaö aö draga úr tortryggni milli rikja. Frá þvi sjónarmiöi er áreiðan- lega tvimælalaust ástæöa til aö fagna umræddu samstarfi milli austurs og vesturs i Evrópu. Areiöanlega mun þaö lika bæta andrúmsloftiö, aö Reagan hefur afnumiö banniö á kornsölu til Sovétrikjanna. Þvi frjálsari sem viöskipti eru milli þjóöa, þvi meiri von er um aukinn gagn- kvæman skilning. Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri, skrifar Stórmót á Akranesi — og peningamót hjá TBK Bridge... ■ Núna um helgina fer fram stórmót á Akranesi og veröur spilaö þar um vegleg peninga- verölaun auk silfurstiga. Þaö er Hótel Akranes og Bridge- klúbbur Akraness, sem standa fyrir mótinu. Miðaö hefur ver- iö við þátttöku 32 para og veröa spiluö 3 spil milli para, barómeterfyrirkomulag. Verðlaun veröa veitt fyrir fyrstu þrjú sætin, 8 þús., 4,5 þús. og 2,5 þús. kr. Peningaverðlaun hjá TBK N.k. fimmtudag hefst þriggja kvölda Butler tvi- menningskeppni hjá félaginu. Vegleg peninga verðlaun veröa i boöi fyrir þá sem lenda i efstu sætunum. Væntanlegir þátttakendur veröa að láta skrá sig i simum 19622 (Auö- unn Guömundsson) eöa 44988 (Sigfús Sigurhjartarson) ekki siðar en þriöjudaginn 1. des. Spilaö er i Domus Medica og hefst spilamennskan kl. 19.30 stundvislega. Sveit Páls sigraði 1 fyrrakvöld lauk hraö- sveitakeppni TBK meö sigri sveitar Páls Valdimarssonar eftir haröa baráttu viö sveit Gests Jónssonar. Sveit Páls hlaut 1947 stig og i henni voru auk Páls fleiri þekktir spilar- ar, þeir Óli Már Guðmunds- son, Guömundur Páll Amar- son, Þórarinn Sigþórsson, Jón Baldursson og Valur Sigurðs- son. Sveit Gests varö i ööru sæti eins og fyrr segir, en svo komu: 3. JúliusGuömundsson 1789 4. Hróðmar Sigurbjömsson 1769 5. AuðunnGuðmundsson 1763 6. SiguröurSteingrimsson 1761 Breiðfirðingar I fyrrakvöld voru 9. og 10. umferð sveitakeppninnar spil- aöar og aö þeim loknum er staöa efstu para þannig: 1. Hans Nielsen 160 2. Ingibjörg Þórðard. 144 3. Kristján Ólafsson 142 4. Kristin Þórðard. 131 5. Erla Eyjólfsd. 129 6. Marinó Kristinss. 120 7. Elis R. Helgason 118 8. Sigriður Pálsd. 103 10. Ólafur Ingimundars. 101 Mótiö er nú rúmlega hálfn- að, þvi spilaöar veröa 19 um- feröir, en 20 sveitir taka þátt i keppninni. Bilstjórar Þremur umferðum er nú lokið i sveitarkeppni bilstjóra frá BSR, Hreyfliog Bæjarleiö- um. Spilaöir eru 32 spila leikir á mánudagskvöldum og taka 12 sveitir þátt i keppninni. Staöa efstu sveita er nú þann- ig: 1. Daniel Halldórss. 54 2. Birgir Siguröss. 52 3. Guölaugur Nielsen 42 4.-5. SkjöldurEyfjörö 40 4.-5. Jón Sigurðss. 40 Sjálfsbjörg Þegar eitt kvöld er eftir i hraðsveitakeppni félagsins er staöa efstu sveita þannig: 1. Jóhann P.Sveinss. 1402 2. Rut Pálsd. 1400 3. Gfsli Gubmundss. 1380 4. Pétur Þorsteinss. 1326 Sjösveitirtaka þáttikeppn- inni og er spilaö á mánudags- kvöldum. Bridgefélag Siglufjarðar Siglufjaröarmóti f tvimenn- ing lauk mánudaginn 23. nóv. meö góöum sigri Asgrims Sig- urbjörnssonar og Jóns Sigur- björnssonar,en þeirhöfðu for- ystuna á hendi allt frá byrjun. Aiis tóku 14 pör þátt i' mótinu og varð röð ef stu para sem hér segir: 1. Asgrimur Sigurbjömsson — JónSigurbjörnss. 620 2. Guöjón Pálsson — Viðar Jónsson 612 3. Gottskálk Rögnvaldss. — JónasStefánss. 595 4. Siguröur Hafliðason — Valtýr Jónass. 593 5. Niels Friöbj.son — Guðm.Arnason 584 Næsta keppni veröur hraö- sveitakeppni og hefst hún mhaudaginn 30. nóv. Spilað er i Sjálfstæöishúsinu og eru nýir félagar velkomnir. Bridgefélag Hafnarfjarðar Mánudaginn 16/11 ’81 lauk sveitakeppni, meö stuttum leikjum. Sigurvegari varö sveit Sævars Magnússonar er auk hans spiluðu i sveitinni Höröur Þórarinsson, Magnús Jóhannsson og Bjarni Jó- hannsson. Annars varö röö efstu sveita þannig: 1. SævarMagnússon 132 2. KristóferMagnússon 128 3. Aöalsteinn Jörgensen 114,5 4. DröfnGuömundsdóttir 113,5 5. SigurðurLárusson 97 6. Kristján Hauksson 71 Slðastliöinn mánudag hófst svo tveggja kvölda Rúbertu- keppni hjá BH Spilað er eftir Monrad-kerfi. Staöan eftir fyrra kvöldið: 1. Jón Sigurðsson — Sævaldur Jónsson 27 2. Arni Már Björnsson — HeimirTryggvason 26 3. Böövar Guömundsson — StigurHerlufssen 26 4. Lárus Hermannsson — Ólafur Valgeirsson 25 Næstkomandi mánudag verður spilamennsku fram- haldiö en hún hefst stundvis- lega klukkan hálf átta i Slysa- varnarhúsinu á Hjallahrauni. Bridgefélag Reykjavikur Tiu umferðum er nú lokiö i sveitakeppni félagsins og er staða efstu sveita þannig: 1. Sævar Þorbjörnsson 139 2. Jakob R. Möller 138 3. Egill Guöjohnsen 131 4. SiguröurB. Þorsteinss 126 5. Aöalsteinn Jörgensen 117 6. öm Arnþórsson 116 7. Kai-1 Sigurhjartarson 115 8. Þórarinn Sigþórsson 108 Tvær efstu sveitirnar spila saman i 11. umferön.k. mánu- dag. N>' bridgebók á islensku Á næstunni er von á nýrri bridgebók á markaöinn og er það bókin ,,A short cut to winning bridge” eftir Shein- wold. Þaö er Sigurjón Tryggvason sem þýöir bókina en hann hefur áöur þýtt og gefiö út bókina ,,A opnu borði”. óhætter aö mæla meö þessari bók, en i henni eru ýmis grundvallaratriði i bridge tekin fyrir meö gdöum dæmum. Magnús Ólafsson / skrifar JbkJJ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.