Tíminn - 17.12.1981, Blaðsíða 19

Tíminn - 17.12.1981, Blaðsíða 19
mál aö striöa. Þaö ber saman bækur sinar og læröi af reynslu annarra. Nú, i þriöja lagi þá var þarna um hreina afþreyingu aö ræöa, fyrir þá sem ef til vill eiga tiltölulega erfiöa ævi. Þunga- miöjan var auövitaö fræöslan og verklegu æfingarnar, en þaö má alls ekki gera litiö úr hinum þátt- unum, þvi þeir eru einnig þýöing- armiklir.” „Fólk kom utan af landi” Blm. Sótti fólk af Reykjavikur- svæðinu eingöngu þetta námskeið? ,,Þaö var mest hér af Reykja- vikursvæöinu, en þó komu 4 fjöl- skyldur utan aö landi á þetta námskeið. Ein kom frá Vest- mannaeyjum, önnur frá Isafirði, sú þriðja frá Hellissandi og fjóröa fjölskyldan kom frá Blönduósi þannig að þetta fólk lagði á sig mikil ferðalög til þess að koma á námskeiðiö”. Blm: A hvaöa hátt er helst hægt aö hjálpa astma- og ofnæmisveik- um börnum? „Það er auðvitað hægt aö gera margt. Viö höfum mikinn áhuga á þvi aö hægt veröi aö senda börnin i tveggja vikna æfingabUöir, þar sem þau færu i gegnum þjálf- unarprógramm, sem byggðist upp á íþróttaþjálfun. Þaö er taliö afskaplega mikilvægt aö bömin fái að taka þátt í iþróttum, þvi þau bæði styrkjast þannig og læra aö þekkja takmörk sin. Þaö kom berlega i ljós á nám- skeiðinu aö sum börn sem þjást af þessum sjúkdómum, mæta ekki nægum skilningi í skólunum, hvorki hjá iþröttakennurum, né almennum kennurum. Kennar- arnir þurfa að fá fræðslu um ein- kenni þessara sjúkdöma og hvernig þau börn sem af þeim þjást skuli þjálfuö. Þaö var m.a. i þeim tilgangi, sem við létum gera kynningar- plakat um þessa sjúkdöma, hvernig má þekkja þá, hverjir séu algengustu ofnæmisvaldarnir og hvernig börnin skuli með- höndluö. Þessu plakati dreifðum við i alla skóla á landinu, en þaö veröur þvi miður að segjast eins og er, að það hefur ekki fengiö næga athygliog kynningu i mörg- um skólum. í sumum skdlum er bókstaflega einsog það hafi gleymst.” „Almenn ánægja með námskeiðið” Blm: Var ánægja meö nám- skeiöiö af hálfu þátttakendanna? ,,Já, þaö veröur ekki annaö SÍÍiSii' 19 ■ Undirbóningsnefndin, þegar Timamenn hittu hana og lngibjörg Friöriksdóttir. Frá hægri, Thelma Grimsdóttir, Björn Ólafur Hailgrimsson, Haraid Hoizvik Timamynd —G.E. sagt en ánægjan hafi verið álmenn. Börnin undu sér viö ýmiskonar leiki og föndur á meöan aö eldra fólkiö fræddist. Við urðum vör viö mikla ánægju bæði barnanna og þeirra full- orönu. Fullorðna fólkiö hafði orö á þvi að þaö færi aftur til sins heima, mun fróðara en þaö hafði veriö yið komuna. Þaö sem að okkur i undir- búningsnefndinni snýr, þá erum við að sjálfsögðu ánægð með námskeiðið og þátttakendurna, en einna ánægðust erum viö þó meö þann höfðinglega hlut sem Reykjalundur lagði til, þvi þar var okkur veitt öll aöstaöa, viö nutum rausnarlegra veitinga all- an daginn og Reykjalundur Ut- vegaði okkurbæði iþróttakennara og fóstrur,sem höföu ofan af fyrir börnunum. Ef ekki hefði komið til svona rausnarlegt framlag Reykjalundar, heföi þetta vart heppnast vona vel. í lokin leysti Reykjalundur öll börnin meira að segja út meö gjöfum. Þá verðum viö einnig að geta framlags Guðnýjar Jónsdóttur, sjúkraþjálfara, en hún ásamt Ellu Bjarnason , fræddi þátttak- endurna um lungnabank o.fl. þannig aö það á eflaust eftir aö Þaö gat líka verið gott aðhvilast um stund i fanginu á mömmu, og læra jafnvel eitthvað um leið. Börnin liöfðu nóg aðf öndra við og leika sér á meðan foreldrarnir hlustuðu á fræðsiuerindi koma mörgum aö notum hér eftir.” ..Samtökin stofnuð 1974” Blm: Hvenær voru samtök ykkar stofnuð? „Samtök gegn astma og ofnæmi voru stofnuö 1974, og eru samtökin ein deild innan SÍBS. Viö erum nú ein stærsta deildin innan SIBS með rúmlega 600 félagsmenn. Þaö segir sig þó sjálft að þaö eru mun fleiri sem þjást af astma og ofnæmi, sem ekki eru I félaginu, þvi þaö er hjá mörgum hálfgert vikvæmnismál aö ganga i samtök hjá okkur, þar sem með þvi er maður á vissan hátt að opinbera sjúkdóm sinn. Eins og sést af vaxandi félagatölu hjá okkur, fer þetta sjónarmið þó rénandi. Félagar viö stofnun samtakanna voru ekki nema rúmlega 300 talsins. Blm: Þiö hyggist reyna aögera svona námskeið að árvissum at- burði, auk þess sem ykkur dreymir um þjálfunarbúöir fyrir börnin. Er starfsemi ykkar á ein- hverjum öörum vettvangi einnig? „Já, við erum reglulega meö fraeösluerindi og fundi hér á Suðurgötunni. A þá reynum við aö fá sérfræðinga, ásamt þvi sem við reynum að kynna nýjungar i ýmiskonar hjálpartækjum, sem að gagni mega koma. Viö höfum skrifstofuna opna á mánudögum og fimmtudögum frá þvi kl. 14 til 17 og á þessum tima reynum við eftir föngum aö aöstoöa fólk, veita þvi upplýsingar, taka á móti nýjum félögum o.s.frv. þannig aö það eru næg verkefni framundan á okkar vettvangi.” — AB

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.