Tíminn - 22.12.1981, Page 5

Tíminn - 22.12.1981, Page 5
Þri&judagur 22. desember 1981 5 anna sem ég fagnaði með ýlfri óvitans þeg- ar ég uppgötvaði hana, en þessi rifa var ekki einu sinni nógu við til að stinga þar út skottinu, og þó ég beitti öllum minum apa- kröftum var engin leiö að víkka hana. Siðar var mér sagt að ég hafi látiö óvenju litiö á mér kræla, sem hafi þótt benda til að annaöhvort myndi ég gefast upp fljótt ellegar að ég yrði mjög auötaminn, ef mér tækist að lifa af þetta fyrsta tvisýna skeið. Ég lifði af. Ég kjökraði eymdarlega, tindi flær i ofboöi, hnusaði mæöulega af kókos- hnetum, barði höföinu i vegginn, rak út úr mér tunguna, þegar einhver nálgaðist — þetta undi ég mér við á fyrsta skeiði nýrrar ævi. Og alltaf var þessi ávæningur ná- lægur: engin undankomuleið. Nú get ég auövitað aðeins lýst þvi á mannamáli sem ég uppliföi þá sem api, og fer þvi óhjá- kvæmilega rangt með. En þótt ég geti ekki teygt mig eftir gamla apasannleikanum, er hann óefað i ætt viö þessa frásögn. Aður átti ég alltaf fjölmargar leiðir til undankomu og nú enga meir. Ég var kom- inn I sjálfheldu. Þeir hefðu getað neglt mig fastan án þess að hefta hreyfingarfrelsi mitt meira en orðið var. Hvers vegna? Klóraðu þig til blóðs á milli tánna, þú finnur ekki ástæðuna. Þrýstu afturendanum upp að rimlunum þar til þeir kljúfa þig næstum I tvennt, þú finnur ekki ástæðuna. Ég átti mér enga undankomu, en varö að finna hana, þvi án hennar gat ég ekki lifað. And- spænis þessum vegg um alla eilifð — ég myndi svo sannarlega geispa golunni. En hjá Hagenbeck eru apar haföir upp viö vegg svo að þá, þá hætti ég að vera api. Þetta er skýr og fagur þankagangur, sem ég hlýt að hafa upphugsað með likamanum, þvi apar hugsa meö likamanum. Ég er hræddur um, að menn skilji ekki til fulls, hvað ég á við með undankomuleiö. Ég nota orðið I þess venjulegustu og fyllstu merkingu. Ég segi vitandi vits ekki frelsi. Ég á ekki við þessa miklu hugmynd um frelsi til allra átta. Hana þekkti ég ef til vill sem api, og ég hef kynnst fólki sem hana þrá. En hvað mig snertir sóttist ég hvorki eftir frelsi þá né nú. Aukinheldur: Menn gera sér alltof oft grillur um frelsiö. Og líkt og frelsið telst til háleitustu tilfinninga, telst einnig blekkingin sem er fylgifiskur þess háleit. Aður en ég kem fram i sýningarhöllum, sé ég oft fjölleikamenn leika listir sinar i rólum uppi viö þakrjáfriö. Þau sveifla sér og slöngva, stökkva og svifa I fang hvort ööru, eða annað heldur hinu uppi á hárinu með tönnunum. „Þetta er lika frelsi mannanna”, hugsa ég, „alfrjáls hreyfing”. Hvilik háðung gagnvart heilagri náttúru! Ekkert mannvirki stæöist hlátur apaættarinnar við þessa sýn. Nei, ég vildi ekki frelsi. Aðeins undan- komuíeið, til hægri, vinstri, hvert sem var: ég geröi ekki aðrar kröfur og jafnvel þótt undankomuleiðin reyndist aöeins tálsýn, var krafan of smávægileg til að vonbrigðin yrðu ekki þeim mun meiri. Afram, áfram! Bara ekki að standa með uppréttar hendur, fastur upp viö vegg. Nú orðið er mér þetta ljóst: án mikillar rósemi hugans hefði ég aldrei komist burt. Og I raun á ég allt þaö sem ég er nú aö þakka róseminni sem færöist yfir mig eftir fyrstu dagana á skipinu. Og rósemina á ég væntanlega skipverjum að þakka. Þrátt fyrir allt eru þetta bestu menn. Mér er enn- þá fró I að rifja upp þungt fótatak þeirra sem slfellt ómaði I svefnmókinu. Oftast voru þeir sérdeilislega lengi aö koma sér aö verki. Ef einhver þeirra ætlaöi aö nudda sér um augun, lyfti hann upp hendinni eins og hún væri lóö. Kimnigáfa þeirra var stór- kallaleg, en hún kom frá hjartanu. Þegar þeir hlógu, breyttist hláturinn stundum I ógnvekjandi hósta, sem þó vissi ekki á neitt illt. Alltaf höfðu þeir eitthvaö I munninum, sem þeir gátu spýtt út úr sér, og stóð á sama hvert þeir spýttu þvi. Þeir voru sifellt að jagast út af þvi aö flærnar stykkju af mér á þá, en samt urðu þeir aldrei reiöir, þvi þeir vissu að það voru flær I feldinum á mér og að flær eru náttúraðar fyrir að stökkva, þeir létu þetta gott heita. A frl- vaktinni settust þeir oft nokkrir saman I hálfhring um mig, töluðu fátt, heldur tautuðu I kór, flatmöguðu á kössum og reyktu pipu, slógu sér á lær hvenær sem ég bæröi á mér, annað veifiö tók svo einhver þeirra- upp prik og kitlaði mig þar sem ég lét mér vel llka. Værimér nú boðiö aö fara i nýja ferð með þessu skipi, hafnaði ég örugglega, en jafnvist er, að það eru ekki bara slæmar minningar, sem ég gæti rifjað upp þarna á milliþiljunum. Rósemin sem ég tileinkaöi mér I félags- skap þessara manna, kom framar öllu i veg fyrir aö ég reyndi að flýja. Þegar ég lit aftur finnst mér eins og mig hafi a.m.k. rennt I grun, aö ég yrði aö finna undan- komuleið vildi ég lifa af en að þessi undan- koma væri ekki fólgin i flótta. Nú er mér ekki lengur ljóst hvort flótti var mögulegur, þó finnst mér þaö llklegt, api ætti alltaf að geta flúið. Núorðið eru tennurnar I mér þannig, að ég verð jafnvel að gæta mln þeg- ar ég brýt ofurvenjulegar hnetur, en þá hefði mér örugglega heppnast smám saman aö bíta sundur lásinn. Þaö gerði ég ekki. Hvað hefði ég svosem unnið með þvi? Undireins og ég hefði rekið hausinn heföi ég veriö fangaður á nýjan leik og lokaöur inni I ennþá ótútlegra búri. Eða kannski hefði ég getaö laumast óséður til hinna dýranna, til dæmis til risaslanganna á móti og gefiö upp öndina i faömlögum þeirra. Eöa mér hefði tekist að laumast út á þilfar og kasta mér fyrir borð. Þá hefði ég velkst stundarkorn I úthafinu og siðan drukknaö. Vissulega út- hugsaði ég þetta ekki mannlega, en I ljósi aðstæönanna hegðaði ég mér llkt og ég hefði hugsað allt til enda. Ég hugsaði ekki heldur horfði ég i kring- um mig með mestu ró. Ég sá þessa menn ganga út og inn, alltaf sömu andlitin, sömu hreyfingarnar, oft fannst mér þeir vera aö- eins einn maður. Þessi maður eða þessir menn fóru semsagt óheftir feröa sinna. Há- leitt markmið rann upp fyrir mér. Enginn lofaöi mér þvl að rimlarnir yröu teknir burt, ef ég aöeins yrði eins og þeir. Slik lof- orð sem tæpast verða efnd, eru ekki gefin. En ef af endum verður, birtast loforöin á eftir, þar sem þeirra var áður leitað án ár- angurs. Nú höfðu þessir menn ekkert við sig, sem freistaði min aö marki. Væri ég fylgjandi téöu frelsi heföi ég áreiðanlega tekið úthafiö fram yfir þá undankomu, sem skein út úr grámyglulegum andlitum þeirra. Að minnsta kosti virti ég þá lengi fyrir mér, áöur en ég fór að hugsa um slíkt, já, það voru þessar athuganir minar eins og þær lögðu sig, sem fyrst beindu mér I rétta átt. Það var svo auðvelt aö apa eftir mann- fólkinu. Strax á fyrstu dögunum kunni ég að spýta. Þá spýttum við I andlit hvor á öðrum: munurinn var bara sá aö á eftir sleikti ég andlitið á mér hreint, þeir ekki. Brátt reykti ég plpu eins og gamalreyndur, ef ég þar a& auki stakk þumalfingrinum I plpuhausinn skellihlógu allir á miödekkinu, lengi áttaði ég mig bara ekki á muninum á tómri og troöinni plpu. Brennivlnsflaskan olli mér mestum hugarkvölum. Mig kllgjaði við lyktinni, ég neytti allra lifs- og sálarkrafta en það liðu vikur áöur en ég vann sigur á sjálfum mér. Merkilegt nokk tóku mennirnir þessa innri baráttu hátlðlegar en nokkuð annað I fari minu. Ég get ekki greint einn frá öðrum I endurminningunni, en það var einn þeirra sem kom æ ofan I æ, jafnt dag sem nótt, einn sér eða meö félögunum, tók sér stööu meö flöskuna fyrir framan mig og leið- beindi mér. Hann skildi mig ekki og vildi ráða lifsgátu mína. Hægt tók hann tappann úr flöskunni og leit siöan á mig til aö sjá hvort ég hefði skilið ég játa þaö, ég horföi alltaf á hann með villtri yfirþyrmandi at- hygli, slikan mannlærling finnur enginn mannfræöari neins staöar. Þegar búið var að aftappa flöskuna hóf hann hana upp aö munninum, ég horfði á eftir alla leiö niöur I kok. Hann kinkar kolli, ánæg&ur meö undir- tektirnar og ber flöskuna aö vörum sér. Ég klóra mér emjandi þvers og kruss frá mér numinn af vaxandi skilningi. Hann er himinlifandi hefur upp flöskuna og hellir I sig. Ég geri mln stykki I búrinu eirðarlaus og iöandi I skinninu eftir að fá að leika sama leikinn, og af þvi veröur hann ennþá glaðari. Og svo heldur hann flöskunni langt frá sér, sveiflar henni enn upp og tæmir hana i einum teyg, um leið og hann hallar sérlangt aftur, til að kennslan verði enn á- áhrifameiri.Ég, Uttaugaður af græðgi, megna ekki lengurað fylgjast með og hangi máttvana á rimlunum, á meðan fræðilegu æfingunni lýkur með þvi að hann strýkur sér um búkinn og glottir. Nú fyrst hefst verklega æfingin. Er ég þá ekki útkeyrður eftir fræðilegaþáttinn? Vlst, alveg útkeyröur. Þaö fylgir örlögum mln- um. Þrátt fyrir það þreifa ég af fremsta megni eftir framréttri flöskunni, aftappa hana skjálfandi. Við þessa frammistöðu vakna smátt og smátt nýir kraftar, ég lyfti flöskunni svo vart sér nokkurn mun á mér og fyrirmyndinni, ber hana að vörum mér og — og fleygi henni burt með viðbjóði, með viðbjóöi, þrátt fyrir að flaskan sé tóm og aðeins eimi eftir af vinanda I henni fleygi ég henni með viðbjóði I gólfið. Kennara mln- um til ama, mér til mæðu. Eftir aö ég hef fleygt burt flöskunni er hvorki honum né mér afbötun I, að ég gleymi ekki aö strjúka mér vendilega um búkinn og glotta um leið. Alltof oft fór kennslustundin á þessa leið. Og kennari minn á heiður skilinn hann varð ekki illur út I mig, aö vlsu hélt hann stund- um logandi plpunni að feldinum á mér, þar til fór að sviðna einhvers sta&ar, þar sem ég náöi illa til, en þá slökkti hann lika sjálfur með stórvaxinni vinarhendi. Hann var ekki illur út I mig, hann skildi aö viö börðumst hliö við hlið gegn apae&linu og að ég átti mér erfiðara hlutskiptið. Hvíllkur sigur var þaö þá ekki eitt kvöld- ið, jafnt fyrir hann sem mig, og þaö fyrir framan stóran hóp áhorfenda — kannski var veisla, það var spilaö á grammófón og yfirmaöur gekk um hópinn — þetta kvöld, þegar enginn sá til, greip ég brennivlns- flösku sem I gáleysi hafði veriö skilin eftir við búrið aftappaði hana kórrétt viö vax- andi athygli hópsins bar hana að vörum mér og drakk, án þess að hika, án þess að gretta mig, meö glenntum augum og þöndu koki, endanlega og sannarlega i botn, kastaði flöskunni burt, ekki lengur I ofboöi, heldur eins og listamaður, gleymdi að visu aö strjúka mér um búkinn en I staðinn, vegna þess aö ég gat ekki annaö, vegna þess aö það knúði á, vegna þess aö mig sundlaöi, hrópa&i ég stutt og laggott „Halló!” með mannsröddu og stökk meö þessu hrópi inn i mannfélagiö og endur- rómurinn: „Heyriði, hann talar!” var eins og koss á allan minn svitastokkna Hkama. Ég endurtek: það freistaði mln engan veginn að apa eftir mönnunum, ég apaði eftir, vegna þess aö ég leitaöi að undan- komu, af engri annarri ástæðu. Auk þess var þessi sigur aöeins lltiö skref. Röddin brást mér undireins aftur, kom ekki að nýju fyrr en mánuöum siöar, andstyggöin á brennivinsflöskunni varð megnari en áður. En hvaö sem þessu leiö var stefnan fast- ákve&in i eitt skipti fyrir öll. Þegar ég kom til Hamborgar og var seldur i hendur fyrsta þjálfaranum, sá ég fljótt aö tvær leiöir stóöu mér til boöa: dýragarðurinn eða fjölleikahúsið. Ég hikaði ekki. Ég sagði við sjálfan mig: neyttu allra krafta til að komast i fjölleika- húsið, það er undankomuleiðin dýragarður- inn er ekkert annað en nýtt rimlabúr, ef þú hafnar þar inni ertu glataður. Og ég læröi, herrar minir. Já, maður lær- ir, þegar maður má til, maöur lærir, þegar maöur ætlar sér undankomu, maöur lærir baki brotnu. Maöur vakir yfir sjálfum sér meö svipu, maður hýðir sjálfan sig við minnsta mótþróa. Apaeðliö flúöi gersigrað úr mér og burt, svo aö fyrsti kennari minn virtist næstum apalegur, varö aö hætta við kennsluna og leggjast á heilsuhæli. Blessunarlega kom hann fljótt þaöan aftur. En ég þurfti marga kennara og meira að segja nokkra I einu. Þaö birti yfir framtið minni um leiö og mér varð betur vitandi um hæfileika mlna og almenningur fór að fylgjast með framförunum, ég réö sjálfur til mln kennara, setti þá I fimm samliggj- andi herbergi, hljóp stö&ugt úr einu her- bergi I annaö og læröi hjá öllum i senn. Hvillkar framfarir! Hvernig geislar viskunnar brutust úr öllum áttum inn I þennan vaknandi heila! Ég neita því ekki: mér fannst þaö undarlegt. En ég verö lika aö játa: ég ofmat það ekki, ekki þá og enn siöur nú. Með á»aki sem til þessa á ekki sinn lika á jöröinni, náöi ég menntunarstigi me&al Evrópumanns. 1 sjálfu sér er það kannski smávægilegt, en samt nokkurs viröi, þar sem þaö kom mér út úr búrinu og færði mér þessa undankomuleið, mannlegu undankomuleiðina. Þaö er til alveg prýði- legur talsmáti: aö stinga af, þaö gerði ég, ég stakk af. Mér var engin önnur leið fær, þvi frá upphafi stóð frelsiö mér ekki til bo&a. Þegar ég lit yfir þroskaferil minn og hvert hann hefur leitt mig, kvarta ég hvorki né er fyllilega ánæg&ur. Ég sit til hálfs, ligg til hálfs I ruggustól, með hendur i vösum, vlnflösku á bor&inu og horfi út um glugg- ann. Ef einhver kemur I heimsókn tek ég á móti honum eins og viö á. Umboösmaöur minn situr i forstofunni, þegar ég kalla kemur hann og hlustar á þaö sem ég hef aö segja. A kvöldin er oftast nær sýning og við- tökurnar gætu varla orðið betri en þær eru nú. Þegar ég kem heim slöla nætur úr veisl- um, af fræöafélagsfundum eöa eftir huggu- leg kvöldboö, biöur mln hálftamin simpansina, sem ég nýt aö hætti apa. A daginn vil ég ekki sjá hana, I augum hennar er nefnilega ruglun og ráöleysi tamdra dýra. Það sér enginn nema ég og ég fæ ekki afborið það. Svona yfirleitt hef ég náö þvl marki sem ég setti mér. Segiö ekki aö þaö hafi ekki veriö ómaksins vert. Annars vil ég ekki að menn felli dóm um mig, ég vil að- eins efla þekkingu ég er bara að segja frá og ykkur llka, æruveröugu herrar I Aka- demlunni, hef ég bara sagt frá.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.