Tíminn - 22.12.1981, Side 11

Tíminn - 22.12.1981, Side 11
Þriðjudagur 22. desember 1981 11 Rögnvaldur drukkinn.) Tjörnin var svört og þumglamaleg i vorregninu og Rögn- valdur var aö skamma endurnar. Nokkur börn stóöu álengdar og hiuðu. — biö eruð blóðsugur hafði Rögnvaldur kallað til andanna. Blóðsugur. Helvltis snikjudýr, svo hafði Rögnvaldur slagað burt með einhverri stúlkuki>nd sem beið hans. Jón Ármann strauk skeggið og sneri upp á það og hló með sjálfum sér: bessi alls- herjargoði, hugsaði hann. Jón Ármann var kallaður Jesús. Sumir sögðu að það væri vegna þess að Jón Ar- mann var svo fallegur, (hann var hár og grannur, að visu dálitið hokinn en með kol- svört augu sem sátu djúpt Ihöfðinu og mik- ið si'ttljósthárog skegg, i skegginu voru ör- litlar svartar trefjar), en það var ekki rétt. Jón Ármann var kallaður Jesús vegna þess að hann var hjálpsamasti maður á Islandi. Hann þénaði vel á fasteignasölunni en obbinnaf þessum gróða rauk i vini og kunn- ingja og jafnvel fólk sem hann þekkti ekki. Einn þurfti að komast i afvötnun, annar til sólarlanda og sá þriðji var meðfallitt fyrir- tæki. En Jón Armann greiddi lir þessum málum og var i reikning á flestum veitinga- húsum borgarinnar. Oft kýldi fólk vambirnar viðlangborð Jóns Ármanns sem Jón Armann hafði aldrei séð og skálaði i kampavini á hans reikning eftir að hann var löngu farinn heim að sofa. Og það var einmitt i einni slikri veislu sem Galdra- maðurinn sat allt i einu til hægri handar Jóns Armanns við borðsendann. Hann hét að visu MagnUs en var kallaður Galdramaðurinn vegna þess að hann gat lagt spáspil og varsagður kunna lika ýmis- legt annað fyrir sér. Og það hafði gerst i veislunni að Gaidramaðurinn dró upp spá- spilin (Tarot) og drei'fði úr þeim á borðs- endann. Jón Armann hafði verið að hugsa um unga stúlku allt kvöldið. En stúlkan hafði ekki látið sjá sig á Naustinu. — Hvað viltu fá að vita, hafði galdra- maðurinn spurt og litið upp Ur spilunum. — Ég er að hugsa um ákveðna konu, geturðu sagt félaganum hvort hún sýnir sig hér I kvöld. Galdramaðurinn leit á spilin og sagði: Alveg klárt, hún verður hér eftir fimm minútur, innan við fimm minUtur. bað er öruggt, treysta spilnum. Jón Ármann leit á klukkuna og það stóð heima, eftir þrjár minútur, þrjátiu og fimm sekUndur sá hann stúlkuna standa i tröppunum og skima yfir salinn. Jón Armann bað Galdramanninn að heimsækja sig á Fasteignasöluna næsta morgun. beir sátu og drukku kaffi þegar skrifstofustUlkan kom úr skonsunni sinni með póstinn. f póstinum kom i' ljós að ná- ungi nokkur i Vestmannaeyjum sem haföi fengið Jón Armann til þess að skrifa upp á milljóna vixilhafði látið vixilinn falla. Jón Armann tók upp simann og hringdi til Vest- mannaeyja en maöurinn var með hortug- heit. Ameðan á samtalinu stóð var Galdra- máiurinn að pára eitthvað á blað. bað var magnaður galdrastafur. Svo byrjaði hann að leika sér með nál og litla vaxdúkku. Jón Armann varð m jög hissa þegar hann sá að Galdramaðurinn rak allt I einu nálina i hausinn á drUkkunni. Menn i Vestmannaeyjum sögðu siðar að það hlyti að hafa verið á sömu stundu og Galdramaðurinn dró stafinn að vixil- skuldarinn greip um höfuð sitt og rak upp mikið kvalavein. Hann hafði hlaupiö vein- andiUt ileigubilmeð tékkheftið sitt i hönd- unum og leigt sér flugvél,sóru menn i Vest- mannaeyjum. Og það stóð heima, sextiu og sex mínUtum og sex sekUndum eftir að Galdramaðurinn lagði stafinn stóð hann lafmóður við skrifborð Jóns Armanns og rétti honum tékkinn. — betta er örugglega eina fasteignasalan i heiminum sem er rekin með göldrum, hafði Jón Armann sagt stoltur við Galdra- manninn félaga sinn. Með svartagaldri sögðu sumir. En það voru menn sem öfunduðu Jón Armann af velgengninni. Ofunduðu hann af öllu þvi kvenfólki sem kom til Jóns Armanns til þess að fá greitt úr sinum málum. Og Jón Armann seldi þeim hús og sérhæðir, kjallara ogkvistibííiirog sástsvo á kvöldin sitja að snæðingi með þeim i Naustinu. En eftir þetta fór Jón Ármann ekkert án þess að hafa Galdramanninn með sér og Galdramaðurinn byrjaði að koma á hverj- um morgni á fasteignasöluna og leggja spilin sem kostaði það að skrifstofustúlkan varð Mka að hella upp á te. Galdramaðurinn drakk ekki kaffi. Nú sátu þeir saman við skrifborðið Jón Armann og Galdramaðurinn. Simastúlkan var nýbúin að færa þeim sinn hvorn boll- ann. (Tveirhvitir sykurmolar stóðu snyrti- legir á undirskál Jóns Ármanns eins og venj ulega.) — bá er að leggja spilin elsku drengur- inn, sagði Jón Armann. — Gá á spilin fyrir félagann. Gá hvaö þú getur sagt félaganum um daginn sem ihöndfer, ha? Leggja spilin fyrir fasteignasalann. (Jón Armann var ávaltvanuraðtala um sjálfan sig á þennan hátt: san félagann eða fasteignasalann.) Galdramaðurinn stokkaði spilin og breiddi úr þeim á skrifboröið. Kveikti sér i sigarettu og pirði augun i reyknum. Hann var ákaflega dimmraddaður. — Ja, hvað á ég að segja. bað er ekki svo gottað segja neitt ákveðið. bað er nú það. Enpeningamálin eru á hreinu eins og vant er. Bara að taka það rólega. Og kvenfólkiö það er allt i lagi með það. (Jón Armann skrikti.) bað kemur greinilega fram hér. (Galdramaðurinn benti á spil með mynd af sólinni.) Satúrnus er búinn að vera ráðandi hjá þér upp á siökastiö en hann er að fara út. Satúrnus stjórnar föllnum vixlum og harðlifi, eins og þú veist. (Jón Armann minntist þess að hafa einhverntimann lesið að Satúrnus væri 800 sinnum stærri en jörðin.) Hann er að fara út. En þú ættir aö greiða úr sem flestu i dag ef þú mögulega getur. bað kemur til með að borga sig síðar. bó það sé mjög langt undan. bað er eitthvað voðalega undarlegt að gerast. A næstunni. Alveg á næstunni. Og þó. Nei það gæti veriö langt I það. Ég get ekki séö hvað það er. En þú áttmöguleika á þvi að stuðla að stórum atburöum. bað munu gerast miklir atburðir. Treystu spilunum. Já, reiða sig bara á spilin. Spilin ljúga ekki. Jón Armann skrikti og strauk sér um skeggið. Hann opnaði munninn til þess að bjóða Galdramanninum f Naustiðen þá var barið laust á á dyrnar og skrifstofustúlkan (sem var ungmeð ljóst hár skorið stutt og drengslegan vöxt, valin úr hópi umsækj- enda) kom idyrnar og sagði vandræðalega að hann væri kominn einu sinni enn æ hvað heitir hann þarna Blöndal. — Hvað á ég að segja við hann hvislaði hún. — Hleypa félaganum inn sagði fasteigna- salinn. Hleypa honum vitaskuld inn á stundinni. Amaldur kom i dyragættina. Hann brosti stirðlega til þeirra Jóns Armanns og Galdramannsins og Jón Armann bauð hon- um sæti. Jón Armann virti Amald rannsak- andi fyrir sér. Arnaldur teygði sig i siga- rettu titrandi fingrum og ræskti sig ógur- lega ogstrauk hendiigegnum rautt og mik- ið hárið. — Nonni er nokkur leið að slá þig.hvernig stendur i bankanum i dag elskan min, hló Amaldur Blöndal. — bað stendur aldrei vel i bankanum, sagði Jón Armann án þess að stökkva bros. — Láttu migþekkjaþað elskan min, ég er búinn að ganga i gegnum þetta allt, sagði Arnaldur Blöndal, alvarlegur. — Má ekki bjóða þér kaffi til þess að byrja með sagði Jón Armann og fitlaði viö skeggið. — Jú, ha ha hló Arnaldur Blöndal, þaö er nú einmitt það bara að drekka nóg af kaffi þákemur allt hitt á eftir af sjálfu sér. Hann leit á Galdramanninn og Galdramaöurinn brosti dauflega. — bað er nefnilega þannig hélt hann áfram þegar skrifstofustúlkan var búin að færa honum kaffibollann að ég þarf að komast burt af landinu, (hann bar bollann upp að vörum sér svo skjálfhentur aö 1/3 gusaðist útfyrir barmana) og ég var að hugsa um að biðja kunningjana félagana að slá saman fyrir flugferð til Kaupm... Hann þagnaði. Hann sá aö bónin var von- laus. Hann starði þegjandi á likneskið upp á skápnum sem brosti undirfurðulega. Arn- aldi fannst það glotta við sér. Sfinxinn var með hatt Jóns Armanns á hausnum og það geröi útlit hans undarlega fáránlegt. — Fyrir flugferð sagði Arnaldur mátt- laus. Jón Armann var að skoöa i tékkheftið. Svo taldi Arnaldur sig heyra Jón Armann biðja stúlkuna að hringja i flugfélagið. — Heyrðu komdu aðeins með félaganum, sagði Jón Armann og Arnaldur reis á fætur. Jón Armann var að bauka við að opna stóra skápinn. bar tók hann lOOOkr.danskar upp úr litlum kassa og stakk i lófa Amalds (til þess að félaginn eigi fyrir sild og snafs, maður reynir að hjálpa upp á félagana til þesser maður) og rétt i þvi opnaði stúlkan hurðina og sagði hvað miðinn kostaði og stuttu siðar var Arnaldur að klöngrast niður dimma og marrandi stigana (sem voru %yndilega mjög óraunverulegir) hálf sinnis-veikur af æsingi. Hann nam staðar við gluggaboru á annari hæð og las upp- hæðina á tékknum og þreifaði inn á sig og fann fyrir dönsku seðlunum. Svo slagaði hann af hamingju eftir Lækjargötu. Ein- hver náungi kallaði af garðbekk: Farðu á togara helvitið þitt. Upp á kontór fasteignasölunnar stokkaði Galdramaðurinn spilin upp á nýtt. — Kafli úrskáldsögu ismlðum 7/ msi Framleiðslusamvinnufélag iðnaðarmanna Rafafl Stálafl sendir viðskiptavinum sínum og öðrum landsmönnum bestu jóla- og nýársóskir Óskum bændum og búaliði svo og landsmönnum öllum gleðilegra jóla árs og friðar íx 1 sssrm Glob USf LAGMÚLI 5, SiMI 81555

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.