Tíminn - 22.12.1981, Blaðsíða 14

Tíminn - 22.12.1981, Blaðsíða 14
Þriöjudagur 22. desember 1981 ■ Þessi fyrirsögn hljómar eins og öfugmæli. Þaö ætti aö vera d- þarfi aö leita aö bágstöddu fólki i landi, sem skv. nýlegri skýrslu alþjóöabankans, er meö alfátæk- usturikjum heims, þar sem þjóö- arframleiösla á mann er 80 sinn- um lægrien hérá landi og ástand- iö ihjókrunarmálum slikt, aö þaö eru rómlega 19.000 manns á hverja ljósmóöur og hjúkrunar- konuámóti 164hérá landi.Vissu- lega má finna bágstatt fólk hvar sem er, t.a.m. i höfuðborginni, Addis Abeba, en það er vlðast svo, aö þeim mun fjær sem dreg- ur frá höfuöborginni þeim mun færri ráö veröa til bjargar og þeim mun færri aöilar til hjálpar. Þess vegna var mér boöiö i slika leitarferö siöast liöiö sumar. „Leitarmennirnir” voru bróðir minn, Haraldur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri hjálparstofnunar norsku kirkjunnar i Eþiópiu, sem var aö leita aö nýjum verkefnum fyrir stofnun sina og mannfræð- ingurinn, Susan Gunn, sem hafði veriö gerö út af örkinni af banda- riskum kvekurum, sem, eins og sannirfriöarsinnar, hafa áhuga á að hefja hjálparstarf jafnt hjá Eþiópiumönnum sem hjá erkiö- vinum þeirra Sómölum. Feröinni var heitiö til Bale-hér- aðs í' suö-austurhluta landsins. Bale liggur að Sómah'u og er suö- urhluti þess hluti af Ogadeneyöi- mörkinni, sem hefur veriö heim- kynni hiröingja af Sómalakyni og af Oromostofni. Oromomenn eru flestir múhameðsthiar og heldur ótryggir hinum koptisk-kristnu Amhörum, sem eru rikjandi þjóð- flokkur i Eþiópiu. Bale var litt sinnt á stjórnarárum keisarans og er eitt vanþróaöasta hérað landsins. Eftir fall keisarans 1973 gaus upp ófriöur i' héraöinu, bæði vegna aöskilnaöartilrauna Sóm- ala og vegna skæruhernaðar frelsishreyfingar Oromomanna og hefur sá ófriður staöið allt fram á siðastliöiö ár, svo að meg- inhluti héraðsins hefur verið lok- aöur útlendingum þar til i janúar s.l. Mannlíf á vegum Frá þessu héraði höföu borist fregnir um aö þörf væri á aðstoð til þess aö koma fötunum undir i- búana, sem hafa oröiö illa úti i ó- friönum og þurrkunum, sem gengið hafa yfir á undanförnum árum. Þegar tilskilin leyfi tilfar- arinnar höföu veriö fengin, en öll ferðalög i Eþiópiu utan höfuö- borgarinnar eru háð leyfum frá öryggiseftirlitinu og Land Rov- er hlaöinn vistum og viöleguút- búnaði, tunnu fullri af díseloliu komið fyrir, þvi aö eldsneyti er skammtaö og ill- eða ófáanlegt á stórum svæöum, héldum við af staö. Vegir út frá Addis Abeba eru dágóöir, breiöir meö varanlegu slitlagi, en heldur slælega viö haldiö og vegamerkingar litiö betri en á Islandi. En feröalög eru þó mun skemmtilegri, ekki ein- göngu vegna þess aölandslagið er fagurt og umhverfiö nýstárlegt, heldurvegna þess að bilarnireru ekki búnir aö fæla burt alltmann- lif af vegunum enn. Meöfram vegunum gefur þvi aö lita ótrú- lega litrikt mannlif. Sölumenn af báðum kynjum og á öllum aldri bjóöa fram alls kyns vaming, gulrætur og kál, mangöávexti, kryddjurtir, litrikar tágakörfur, sleifar og haka, skó og nagla- klippur, eldspytur og eldiviö, kiölinga, kúlupenna, kex og hvaö eina. Konur staulast krókbeygöar undir fullum krukkum af vatni, sem þær hafa sött i næsta brunn. Strákar reka asna klyf jaöa körf- um meö lifandi gaggandi hænur. Glæsilegir, skikkjuklæddir höfö- ingjar riöa grannholda hestum til markaöar. Skólafólk meö bækur undir hendinni reynir aö snikja sér far. Þegar nær dregur Bale, fara vegir aö spillast og likjast meira islenskum malarvegum, en ferðin gengur þó greiðlega og á öörum degi erum við komin til Goba, höfuöborgar Balehéraös. Afrískur kjalvegur 1 Goba er hjálparstofnun norsku kirkjunnar aö bora eftir vatni og þurfti Haraldur aö sinna ýmsum erindum þar, svo að viö komumst ekki af staö fyrr en um ■ Vita afgreiöir meðul úr meðalakassanum með abstoö heilsugæslufulltrúa sýslunnar. Guðrún Ólafsdóttir skrifar um ferð í afkima veraldar: í leit að bágstöddu fólki í Eþíópíii þrjúleytiö. Við áttum 110 km ferö fyrir höndum og mér þóttu þaö ó- þarfa áhyggjur hjá Haraldi aö viö kæmust of seint af staö. Litt grun- aöi mig þá aö viö ættum sjö tima ferö fyrir höndum og myndum ekki koma i áfangastaö fyrr en löngu eftir myrkur. Fyrst var á bratta að sækja og jeyröum viö upp snarbratta fjallshlið gegnum hvert gróöurbeltið á fætur ööru frá blómlegum savannagróöri upp i berangurslegan háfjalla- gróöur, uppi um þaö bil 4000 m hæö y.s. Þar yfir var all viöáttu- mikla heiöi aö fara og minnti hún á ekkert fremur en islenskt lands- lag enda vorum við Haraldur far- in aö rifja upp sameiginlegar endurminningar frá Kili. Svo fór aö halla undan fæti og múlinn sem við höfðum veriö aö tala um aö liktist helst Hestfjalli, reyndist vera efsti hluti fjallsrana og lá djúpur dalur á milli hans og okk- ar. Útsýnið var stórfenglegt, en vegurinn, sem hlykkjaðist niöur fjallshlíöina, m jó rudd braut i ótal knöppum ixigðum, olli okkur nokkrum áhyggjum, og ekki bætti úrskák, aö meðfram honum lágu nokkur bilhræ, heldur illa farin. Hægt og bi'tandiskreiö Land Rov- erinn niður hliöina. Þegar við nálguöumst skógarmörk var fyrir okkur varöstöö. Viö vorum stöðv- uö og pappirar okkar skoöaöir, slöan var okkur boöin hressing i sæluhúsi, sem stóð við veginn. Þótt viö værum komin nokkur hundruö metra niöur Ihliöina var enn kalt og hermennimir sátu á bekkjum meðfram veggjunum sveipaöir ullarteppum. Gotthefði veriö að fá eitthvaö heitt i sig, en okkur var borinn svaladrykkur, brrs, gerður úr vatni og hunangi, afar ljúffengur ef hann hefur staöiö mátulega lengi. Viö sötruö- um drykkinn, skjálfandi úr kulda og hálf taugaóstyrk út af bý- flugnasveimi, sem sveimaði suð- andi i' kringum skinnbelgi fulla af hunangi, sem fylltu hálft sælu- húsiö. Okkur var sagt, aö villihunang og villikaffi væru einu útflutn- ingsafuröir sveitanna handan við fjöllin og væru þessir belgirá leið á markaö og biöu flutnings. Við áttum eftir aö sjá býflugnabú hangandi hátt uppi i' trjám viðs- vegar um svæöiö, sem viö fórum um næstu daga, en villikaffirunna sáum viö aðeins i skóginum neðst i f jallshliöinni, sem viö vorum nú að leggja i. Torfært myrkviði Það lá viö að ég væri þvi fegin, að vegurinn niður hliöina skyldi ekki vera betri af þvi aö þaö gaf okkur betra tóm til aö njóta feg- urðarinnar sem blasti við: óend- anlegar sléttur fram undan og hrikaleg fjöll og djúpir dalir að baki og alveg ósnortið af manna- höndum aö þvi er virtist. Gróður- inn tók stakkaskiptum eftir þvi sem við fikruöum okkur niður á viö, varö æ gróskumeiri og fjöl- breyttari. Vegurinn varö að sam a skapi verri sem trén uröu hærri, bæöi þrengri og blautari uns hann var orðinn ein samfelld forar- vilpa og viö vorum komin i sann- kallaöan regnskóg, svo háan að sólin náöi ekki að skina niöur i skógarbotninn sem var rakur og þakinn mosagróöri. Nú fór ég aö skilja áhyggjur Haraldar yfir þvi hversu seint við komumst af staö. Viöast voru hljólfórin of breiö fyrir bilinn okk- ar, þvi aö um þennan veg fara að- aliega stórir her- og vöruflutn- ingabi'lar. Viö ultum þvi milli hjólfaranna. Sumsstaðar voru öll hjólför horfin og billinn gróf sig niður i eöjuna og við uröum aö fara út að tina sprek til aö henda ofan i vilp- una, hvergi var stein aö finna og erfitt aö finna spýtur, sem ekki voru svo fúnar að eitthvert hald væri i þeim. Svo var aö ýta og juða fram og aftur. Verstar voru ræturnar, sem stóöu upp úr hvar sem var á veginum og mikil kúnst aö forðast að festa sig á þeim. Ekki óviöa höföu tré falliö á veg- inn og þá var ekki um annað aö ræða en að sneiöa hjá þeim og finna sér nýja leiö i gegnum myrkviöiö. Forvitnir bavianar fylgdust með okkur úr trjánum og litrikir smáfuglar og fiörildi flögruöu á milli trjánnna, annars sáum viö ekkert kvikt. Myrkriöskall á og ferðin sóttist enn hægar. Viö vorum oröin þreyttog þögul. Mig var fariö að syfja. Billinn vaggaöi reglulega. Þaö var eins og rætur trjánna mynduðu gróftriöiö net i vegbotn- inn og ég var að hugsa um aö ef ekki væri fyrir þetta net myndum við liklegast sökkva i botnlausa for. „Var friður yfir þér í nótt?” Skyndilega hrökk ég upp glaö- vakandi. Billinn stöðvaöist. 1 bjarmanum frá framluktunum stóðu fjórir heldur tötralegir menn meö byssur i' höndunum. „Skæruliðar! ” hugsaði ég og fékk ákafan hjartslátt. Enn meira brá mér, þegar augun vöndust myrkrinu og ég sá fjöldan allan afvopnuðum mönnum inn á milli trjánna. Þeir stóöu og horfðu þög- ulir á okkur. Haraldur varpaöi á þá kveöju á þeirra eigin máli. Kveöjunni var tekiö og hjartað i mér róaðist viö aö heyra þessi löngu hlýlegu oröaskipti, sem ég var farin aö kannast svo vel við. „Varfriöuryfir þéri'nótt?” „Þaö var friður yfir mér. Var friður yf- ir börnum þínum i nótt?” Var friður yfir konu þinni, húsi þinu, bústofni þinum, o.s.frv. „Faija.” „Faija.” Haraldur dró upp leyfisbréfið og ég skildi að hér var önnur varöstöö stjórnarinnar. Nú þegar engin ógn stóö af hermönnunum virtust þeir ósköp umkom ulausir, norpandi i röku kvöldkulinu, og erindi þeirra við okkur var alveg eins mikið þaö að biöja um meðul handa sjúkum félaga eins og að lita á papplrana okkar. Susan dró upp úr pússi sinu stóran poka með meðulum og þeir fengu slatta af kinin töflum i um- slagi. Siöan var kvaðst með handabandi og það glampaði á hvitar tennurnar i dökku andlit- unum, þegar þeir brostu i m yrkr- inu. t rúma fjóra klukkutima höfö- um við verið að keyra þessa 25 km leið i gegnum regnskóginn. En nú tók að birta framundan. Skogurinn varð lægri og gisnari og tunglsljósiö náöi að skina i gegnum laufþykknið. Vegurinn varö haröari. Við jukum ferðina og von bráöar keyrðum við inn á hlaðiö á kristniboösstöðinni, sem liggur rétt utan við höfuöborg sýslunnar, Mena. Á kristniboðsstöð þessari er að finna glæsilegasta húsakost sýsl- unnar og þætti þó varla stórbrot- inn annarsstaðar. Þar er mas. diselrafstöð,semhöfð var i gangi tvo tima á hverju kvöldi. Kristni- boðsstöðin er ekki lengur rekin sem slik. Sænsku hvitasunnu- mennirnir sem reistu og ráku stööina uröu frá að hverfa i bylt- ingunni og virðast ekki eiga aft- urkvæmt i bili, a.m.k. Yfirvöldin nota húsin eftir þörfum. Sjúkra- skýlið er enn rekiö en með tak- markað starfsliö og mjög tak- markaðan meðalakost, sem marka má af þvi aö hjúkrunar- konan kom til okkar i tvigang til þess aö biöja um meðul handa veiku barni si'nu. Hjúkrunarkonur frá Jótlandi A stööinni tóku á móti okkur Lisbet Andreasen og Vita Bæk- gaard, hjúkrunarkonur frá Jót- landi. Þærhöföu komið sömu leið og við á Land Rovernum sinum daginn áður. „Einar?” spurði ég með lotningu. „O nei”, sagöi Lis- bet og hló, ,,viö vorum i samfloti meö heilli herdeild úr eþi'ópiska hernum og þeirýmistlyftu okkur, eða drógu okkur upp úr forinni og það svo hressilega að þeir kipptu af stuðaranum. En við höfum far- ið þetta einar nokkrum sinnum áöur”. Bilarnirokkar stóöu þarna á hlaðinu hliö við hlið og báru þess augsýnileg merki, að þeir

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.