Tíminn - 22.12.1981, Side 15

Tíminn - 22.12.1981, Side 15
Þriöjudagur 22. desember 1981 15 'iLÚJj'iÚ.'í.1. um á örmjóum spóaleggjum meö stóra útstandandi maga og mörg þeirra voru með rauðlitt ullar- kennt hár, hvort tveggja augljós merki vannæringar. Þessi ein- kenni voru hvergi eins áberandi og i þorpi einu, sem við komum i fyrsta daginn. Þar var óvenju mikið af krökkum. Þau sátu i hópum eða ærsluðust i kringum skólahúsið og virtust vera að biða eftir einhverju. Við kiktum inn i húsið. Þar sat lika mikill fjöldi barna og eitthvað af foreldrum, öfum og ömmum með litil börn i fanginu. Innst i húsinu var verið að sjóða súpu i'griöarlega stórum potti. Okkur var sagt að þetta væri ekki skólastofa heldur væri þetta matargjafahús. A hverjum degifá börn undir 7 ára aldri vi'taminbætta súpu, sem tilreidd er úr dufti sem nær- ingastofnun rikisins framleiðir. Rikið sérum dreifingu en algengt er, að hjálparstofnanir sjái um kostnað. Viðbiðum þar til súpan var tilbúin og sáum hvernig krakkarnirnutu hennar,enda var lyktingóð. Eldri börnin reyndu að laumast inn i röðina til að verða sér úti um súpu, en var visað frá með harðri hendi. Ég spurði hvers vegna ddri börnin fengju ekki lika og var svarað aö hætta á vannæringu væri mest meðal yngri barna, sem væru ekki eins dugleg að bera sig eftir björginni og þau eldri og ef foreldrarnir gæta ekki vel að er hætta á að þau veröi út- undan þar sem litið er til skipt- anna. Þessar matargjafir áttu sér stað i öllum þorpunum og alls staðar voru birgðagæslumennim- ir áhyggjufullir um að þeim myndu ekki berast viðbótarbirgö- ir I tæka tið. 1 þessu sama þorpi veitti ég þvi athygli að konurnar voru með bækur undir hendinni. Þær hurfu inn i stórt ferhyrnt hús. Ég var farin að þekkja slik hús sem skóla- eða samkomuhús. tbúðar- húsin em yfirleitt kringlóttir strákofar nema i bæjunum. Ég fylgdi konunum eftir og sá hvers kyns var. Einstóð upp við töflu og þuldi samstöfur, sem skrifaðar voruáhana, ba, ca, ga, o.s.frv.og hinar þuldu á eftir henni. Hér fór fram lestrarkennsla. Ahuginn leyndi sér ekki og smábörnin sem margar höfðu á arminum eða skriðu um gólfið virtust ekki megna aö trufla þær né heldur nábleiki hvitinginn, sem horfði forvitnislega á þær úr gættinni. Þegarkonurnar höfðu lokið sér af komu karlamir, unglingar jafnt sem öldungar. Hér var kominn angi af þeirri miklu lestrarher- ferð sem nú er i gangi um alla Eþiópi'u og virðist ætla aö skila góðum árangri, þótt flest annað gangi á brauðfötum þar i landi um þessar mundir. Mynd úr sjónvarpi Og meðan við göngum um, skoðum, tölum við fólkið, glett- umst við krakkana og reynum að gera okkur grein fyrir ástandinu eru þær Vita og Lisbet önnum kafnar við sjúklingana sina, sem enginn endir virðist á. Lisbet seg- ir að ki'ghóstafaraldur leiki börn- in grátt og aldrei virðist hafa ver- ið jafn mikið af malariutilfellum. „Þessar tvær, til dæmis, eru illa haldnaraf malariu”,segir hún og bendir á unga konu sem situr og hallarsér upp að trjábol og lygnir afturaugunum.Hún ergreinilega sárþjáð og barnið hennar, sem er eins og hún sjálf ekkert nema skinn og bein, er órólegt og kveinkar sér. Konan reynir að vefja teppis- ræksni um sig og barniö, þvi að þau skjálfa bæði f steikjandi sól- arhitanum. Þegar ég stend þarna og horfi á konuna lýstur niöur i mig: „Þetta er mynd sem ég hef séð hvað eftir annað á sjónvarps- skerminum minum. Myndin af eymdinni i' heiminum. Ég hef horft á slíkar myndir með hryll- ingi. Nú sé ég aö þetta er ekki mynd af eymdinni, heldur er þetta kona, einstaklingur, sem á heimaí umhverfi, sem býðurupp á gott og illt og aö hún á þrátt fyrir allt margt annað en eymdina. Þess vegna þarf ég að hjálpa henni ekki af þvi að ég vilji ekki vita af eymdinni heldur vegna þess að húngetur notið þess fagra og góða sem lífiö hefur að bjóða henni ef hún fær að halda þvi.” Guðrún ólafsdóttir. ■ Ekki er ráð nema i tima sé tekiö. t GomGoma hefur bændafélagið reist þetta bókasafn, þótt engin sé bókin, en lestrarnámiö er stundað af fullum krafti, svo aö þaö stendur væntanlega tii bóta meö bókaeignina. ■ Samgöngur eru eitt meginvandamál i Baie. Þaö myndi vera mun aivarlegra ef ekki kæmi til ótrúleg hjálpsemi viö aö koma farartækjum yfir torfærur. höfðu orðið fyrir 111. meðferð á bilum. Fylgdarsveinar þeirra Lisbet og Vitu höfðu komið sér fyrir i húsunum á stöðinni, þ.e.a.s. for- ingjarnir. Hinir óbreyttu lágu i tjöldum eins og reyndar þær sjálfar. Við slógum einnig upp tjöldum og þáðum kvöldverðar- boðþeirra stallsystranna eftir að við höfðum baðað okkur i ánni skammtfrá stöðinni i tunglsljós- inu. Og i tunglsljósinu við suðið i engisprettunum kynntist ég Vitu og Lisbet og störfum þeirra, á meðan við drukkum te, borðuð- um dósamat og nutum þess fá- gæta munaðar, að deila með okk- ursúkkulaðistykki.Vita og Lisbet reka einskonar hjúkrunarstöð á hjólum, ef svomá að orði komast. Með reglulegu millibili, eftir þvi sem regla er möguleg þar i landi, fylla þær Land Roverinn sinn af meðulum og sáraumbúðum og fara um umdæmi sitt, sem liggur beggja megin fjallanna suður af Goba. Um meginhluta þessa svæðis er ekki um neina aðra heilbrigðisþjónustu að ræða. Ferðirnar eru oft langar og strangar og oft óvæntar uppá- komur. Erfiðast fyrir þær er þó hversu skammthjálp þeirra nær og hversu treglega gengur að bæta aðstöðuna almennt. „Þótt við teppumst af þvi að vegimirspillast af rigningum, þá tekur það enda og þótt matar- birgðirgangitilþurrðar, þá gerir það ekkert til þvi að þjóðarréttur- inn I Eþiópiu injera og wood er herramanns matur eins og allir vita”, sagði Lisbet. Vitur og Lisbetur Ég átti eftir að kynnast fleiri Vitum og Lisbetum. Danskar, norskar, kanadiskar, enskar, hressilegar, dugmiklar stúlkur, raunsæjar og úrræðagóðar fara þærum og leysa þann vanda,sem þærráða við og reyna að láta hitt, sem er þeim ofviða ekki hafa á- hrif ásig. Aðbakiþessara stúlkna standa kristniboðsfélög eða mannúðarfélög viðs vegar um heim. Þegar ég horfði á kringlótt glettnislegt andlit Lisbet þegar hún varaðsegjaokkurfrániuára ferli sinum sem hjúkrunarkona, fyrst í Saudi Arabíu og slðan i Eþiópiu, þar sem hún hefur orðið að búa i strákofa um tíma og á hóteli i næstum ár, en hótelin i Eþi'ópiu eru þekkt fyrir margt fremur en fagurt mannh'f, þá hvarflaði að mér, að hér væri að finna hina sönnu mannúð. Ekki i einhverri fórnandi Flor- ence Nightingale helgimynd, heldur i brjóstum fólks, sem hef- ur gaman af þvf að lifa, sem sér það skoplega og skemmtilega i eigin fari og annarra, hvernig sem á stendur,hjá fólki, sem þyk- ir vænt um og hefur gaman af öðru fólki. Næstu daga fengum við að fylgjast með störfum þeirra Vitu og Lisbet, þegar við heimsóttum þorp eftir þorp. A meðan þær komu sér fyrir undir skuggsælu tré imiðjuþorpinu og sinntu þeim sjúklingum sem til þeirra komu, fórum við hin með sveitarstjóran- um og fyrirmönnum bændafé- lagsins i þorpinu að kynna okkur störf og lifskjör I þorpinu. A hverjum morgni, þegar við ókum um þessar viðáttumíklu strjál- býlu sléttur, hugsaði ég: „hvern- ig er hægt að búa við skort i þessu gróðursæla landi?”. Ny þorpin En alls staðar heyrðum við sömu söguna. Lifsgrundvellinum hefur verið kippt undan þessu fólki. í aldaraðir hafa forfeður þeirra stundað hjarðmennsku, en nú hafa hjarðirnar týnt svo töl- unni aðannað hvort er að reyna að útvega þeim nýjar hjarðir, eða að reyna að fá þá til að taka upp nýja lifnaðarhætti. Þessi siðari kostur hefur verið vsdinn.Stofnuð hafa verið svokölluð „settle- ments”sem mættie.t.v. kallaný- þorp með frá 2000-5000 ibúum. Hvert þorp fær landrými til af- nota og aðstoð við að byggja hús og ryðja akra og hefja ræktun á korni, grænmeti og ávöxtum. Vandamálið er bara það, að að- stoðin er of lítil, leiðbeinendurnir of fáir og of óreyndir, flestir ný- skriðnir frá prófborðiog aldir upp allt annarsstaðar I^andinu við allsendis ólik skilyrði og oft tala þeir jafnvel ekki mál heima- manna. Versta vandamálið hérna handan fjallanna I Bale er e.t.v! erfiðleikarnir með aðdrætti þar sem allt verður að flytja yfir fjöll- in og gegnum regnskógana eða með litlum flugvélum sem geta lent á flugvellinum við Mena. Við fengum lika staðfestingu á erfiðleikunum. Skorturinn á ein- földum handverkfærum eins og haka og reku tafði mjög áveitu- framkvæmdir, sem þeir voru mjög áhugasamir um i flestu þorpunum. Maisinn á ökrunum virtist hávajcinn og þroskamikill, en kunnáttumenn sögðu að útsæð- ið hefði komið of seint og kornið myndi varla ná að þroskast i tæka tið, sama máli gegndi um sorg- humið. Okkur voru sýndir grænmetis- reitir, en tómatarnir og kálið var illa ormétíðog gulræturnar höfðu ekki verið grisjaðar og voru svo smáar að ekkert gagn var að þeim. Engin úðunarefni voru til og ekki kunnu menn með slikt að fara né heldur kunnu þeir önnur ráð við ormum, pestum og ann- arri óáran. 6 Fyrir utan raunverulegan og fyrirsjáanlegan matarskort bætt- istsvo við aðfólkiðer óvant korn- meti, kann litt aö meta græn- meti og saknar mjólkurinnar, sem hefur verið þeirra megin fæða. Næring anda og líkama Efi um að matarskortur væri raunverulegur læddist að mér i hvert sinn sem vi komum i nýtt þorp. Alls staðar kom krakka- skari þjótandi á móti okkur æp- andi: „Frengi! Frengi!”. Útlend- ingar! Útlendingar! Og þau voru svo kát og gáskafull og svo falleg að mér þótti með ólikindum að þauþjáðust af næringarskortí. En það leyndi sér ekki, þegar betur var aö gáð. Sum þeirra tipluðu

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.