Tíminn - 22.12.1981, Blaðsíða 17
Þriöjudagur 22. desember 1981
Nína Björk
Árnadóttir:
Næturliljan
og
ljósið
Næturliljan var þá til
var til í Ijóði mínu
og ástnótt sem lukti nekt mína
mildu Ijósi
næturliljan og Ijósið
ekkert annað var
svona var Ijóð mitt
og gleði mín
sem hafði sofið lengi
Víst er það böl
Já, blessaður vertu
hún var farin að fela vínið allsstaðar
i stígvélunum meira að segja
til að skella í sig einum á leiðinni út
óhreinatauskarfan hálf af hálftómum fiöskum
allar sortir, já-já, víðsvegar um húsið
svo dó hún vanalega ofan í grautarpottana
þegar hún var að elda kvöldmatinn
ég þurfti alltaf að koma krökkunum niður og ganga f rá
en verst var næturröltið á henni
hún æddi um
sjáandi pöddur og púka í hverju horni
böl, víst er það böl
en hún vildi ekkert reyna
ekki að tala um að fara í meðferð
nei, ég fór ekki frá henni
ég elskaði hana og hún var sjúk
blessaður vertu
hún fór frá mér, frá okkur
við vorum stærstu pöddurnar þegar á leið
það sagði hún
og aðrar eins klær og hún sá á okkur
ja — þær lýsingar
nei, ég veit ekkert hvar hún er
það eru nógir staðir
alltaf nógir staðir virðist vera
ef henni liði nú vel með þessu
nei,
hvílík angist
Johann Wolfgang von Goethe: Ástmær í öllum
Liebhaber in allen Gestalten (Lag eftir Franz Schubert) myndum Handa Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur og Erik Werba
lch wollt' ich wár ein Fisch, so hurtig und frisch; und kámst du zu angeln, ich wurde nicht mangeln. Ich wollt' ich war' ein Fisch, so hurtig und frisch. Ég vildi ég væri lax, þú veiddir mig strax! Ég stikla á steinum, bít á hjá þér einum. Ég vildi ég væri lax, þú veiddir mig strax!
Ich wollt' ich ware Gold, dir impier im Soldý und^thát' st du was kaufen, so ka"m' ich gelayfen. Ich wollt' ich ware Gold, dir immer im Sold. Ég vildi ég væri gull, og varzla þín full! Ég fer aldrei frá þér, þú ert með mig á þér. Ég vildi eg væri gull, og varzla þín full.
Doch bin ich, wie ich bin, und nimm mich nur hin! Willst bess're besitzen, so lass dir sie schnitzen. Ich bin nun wie ich bin^ so nimm mich nur hin! En ég er bara ég, og lífsnauðsynleg! En ef þú vilt aðra er ein þarna að daðra. En ég er bara ég, og lífsnauðsynleg!
Þorsteinn Gylfason íslenskaði
Liebhaber in allen Gestalten.
0»rU».