Tíminn - 22.12.1981, Síða 24

Tíminn - 22.12.1981, Síða 24
24 Þriöjudagur 22. desember 1981 ■ Arnar Jónsson býr við óðinsgötu ásamt konu sinni, Þórhildi Þorleifsdóttur, leikstjóra með meiru. „Það hefur veitt mér mikið aðhald í vinn- unni að vera giftur leikstjóra", segir hann. „Hún hefur tekið mér ærlegt tak öðru hverju, en ég býst við að allir leikarar þurfi á því að halda með reglu- legu millibili. Þá hefur samveran með börnunum ekki síður verið mér mikils virði: við vinnum bæði i miklum skorpum og höf um þvi á víxl tekið að okkur störfin hér á heimilinu. Ég held að það haf i hjálpað mér gífurlega — dýpkun á tilfinningasviðinu, skil- urðu. Þetta hefur oft verið svaka basl en uppskeran er ríkuleg." ■ Hann er afar hlýlegur maöur. Handtakiö þéttog brosiö einlægt. Viö komum okkur saman aö af- farasælast sé aö byrja á byrjun- inni. „Ég er fæddur á Akureyri og var þar allar götur þar til undir tvitugt. Faðir minn ættaöur úr Eyjafiröi, mamma frá Þórshöfn. Það var að mörgu leyti ákaflega skemmtilegt aö alast upp á Akur- eyri á þessum tima: ég náði til dæmis rétt i skottiö á timabili strákaflokkanna sem voru alls- ráðandii'bænum i mörgár. Þetta voru flokkar eins og Bóbóliðið, Tigrisklóin, Svarta höndin — skiptingin milli þeirra fór náttúr- lega fyrst og fremst eftir bæjar- hlutum, Innbæingar voru út af fyrir sig, Eyarpúkar sömuleiðis og Þorparar. Milli flokkanna rikti hatrömm barátta og steinabog- arnir voru ekki sparaöir i þeim slag! Ég man eftir þvi að einu sinni var ég að koma frá ömmu minni sem bjó á Eyrinni — en ég átti heima uppi á Brekku — og þá lenti ég óvart i skotli'nu tveggja flokka sem skutu hvor á annan með steinabogum . Steinarnir flugu umhverfis mig en ég stóö ráðvilltur og vissi ekki i hvora áttina til neins flokks. Einu sinni átti að visu að vigja mig i Bóbó- liðiö — með mjög harkalegum að- ferðum! — en þá varð það mér til frelsunar að ég var í bekk meö: yngri bróður Bóbós og hann. bjargaði mér.” „Punduðum á hann úr steinabogum ...” — Vigsluathafnirnar hafa ekki verið neitt grin? „Nei — þaö er mér óhætt að segja. Bóbóliðiö hafði til dæmis aðgang aðhlöðu nálægt Mennta- skólanum og i heyið höfðu þeir grafið mikla rangala og gegnum þessi göng urðu fómarlömbin að skriða. Þá kom það fyrir að i göngunum „gleymdust” odd- hvassar heynálar og stundum komuþeir niður á móti manni svo maður komst hvorki aftur á bak né áfram. Ég var einu sinni látinn skriða eftir þessum göngum, rak mig ijárnið og lokaðist inni: þetta var skeflileg reynsla! En gullöld þessara flokka var sem sagt liðin á minum sokka- bandsárum. Er ég var i barna- skþla lékum við jafnaldrar minir okkur hins vegar mikiö i riddara- leikjum: hver veit nema það hafi verið fyrir áhrif frá riddarasög- um fornaldar, en ég að minnsta kosti las þær af mikilli áfergju og hafði gaman af. Þetta voru mjög háþróaðir riddaraleikir: við bár- um öll viðeigandi vopn, sverð, spjót, boga ogörvar, lensur— og steinaboga auðvitað — en leikirn- irfóru ekki sist fram inýbygging- unum sem þá var mikið af á Ak- ureyri. Ein nýbyggingin var ekk- ert nema steypukassi en stillansarnir höfðu verið skildir eftir að innan — þetta varð okkur öflugt br jóstvirki, þvi eina leiðin inn var upp eftir steyptum veggjunum. Eitt sinn var ég i setuliði virkisins og þá komust nokkrir óvinanna inn fyrir en hvort tveggja var að þeir voru fáliðaðir og skorti skot- færi i steinabogana, svo einn þeirra var sendur út aftur eftir liðsauka. Hann var i næstum heilli brynju úr blikki og þvi þungur á sér, það var yfir tún að fara. Foringi virkisins sendi mig og annan strák á eftir honum — af algeru miskunnarleysi eltum við vesalinginn uppi, komum okkur fyrir I hæf ilegri f jarlægð og pund- uðum á hann úr steinabogunum. Okkur tókst að gata blikkið! Svo riddaramennskunni var ekki fyrir að fara, þó þetta ættu að heita riddaraleikir...” Hans var skotinn í Grétu — Hvað tók við, er bernsku- leikjum sleppti? „Ég fór i Menntaskólann úr landsprófi en hætti þar i fimmta bekk, hafði þá þegar ákveðið að helga lif mitt leiklistinni. Pabbi stússaði mikið i leikhúsmálum á Akureyri, var meðal annars for- maður leikfélagsins um tima, svo égkynntist þessu snemma: ég lék töluvert meðan ég var strákur og unglingur — lék meðal annars Hans I Hans og Grétu — og það var greinilega eitthvað sem orkaði mjög sterkt á mig i' leikhús- inu. Og að sjálfsögðu fannst mér ég hafa þetta gjörsamlega á valdi mi'nu — þær stundir hafa hins vegar komið síðarað ég hef efast! Reyndar hætti ég eicki i menntaskóla bara vegna leikhússins, ég varmeð blóðsjúkdóm og þurfti að liggja á spitala hér fyrir sunnan þó nokkurn tima svo ég missti mikið úr, en hugurinn stóð alla vega til leikhússins, og ég hafði hugsað mér aö fá mér vinnu einn vetur og leika með- fram hjá leikfélaginu. Þá brá svo við að ég var sendur suður til að ná I handrit — það var einhver þriller sem átti að hefja leikárið með — og ég ætlaði bara að stoppa nokkra daga I bænum. Þá frétti ég að það stæði fyrir dyrum inntökupróf I leiklistarskóla Þjóð- leikhússins. Ég fór ekki aftur norður. ’ ’ — Þú minntist á að þú heíöir leikið sem barn. Manstu hvernig tílfinning það var að standa á leiksviði I fyrsta sinn? Arnar hugsar sig um, hann seg- ir fátt óyfirvegað. Svo segir hann blátt áfram: „Nei, ég man það Eitt hænu fet ekki. Veistu, ég held að krakkar geri sérekki svo mikla grein fyrir þessum hlutum. Þau standa i undirbúningi með fjölda fólks, þetta er mikið vesin, margar æf- ingar og margt að gera — ég veit ekki hvort þau skilja muninn þó það séu komin ljós, búningar og áhorfendur. Þegar ég lék i Hans og Grétu var ég pinulitið skotinn i Grétu og það held ég hafi skipt mig eins miklu máli og sýningin sjálf. Ég var ellefu eða tólf og fannst ég vera mjög fullorðinn.” „Ég verð að halda mér vakandi ...” — Þegar þú siðan útskrifast úr leiklistarskóla... „Þá fór ég bara á kaf í vinnu. — Samtal við Arnar Jónsson, leikara Fyrsta árið var ég lausráðinn hér og hvar, siðan var ég nokkur ár fastráðinn i Iðnó”. Hann þagnar andartak. „Þetta fyrsta ár mitt var engu lagi tíkt, það sá ég eftir á. Ætli ég hafi ekki leikið á 230 sýningum, af svona 270 mögulegum, oft tók ég þátti átta tilniu sýningum á viku. Einhvem sunnudaginn átti ég að leika rakarann i Kardimommu- bænum i Þjóðleikhúsinu, þá var farið að siga á seinni hluta vetrar, og ég að verða dauðuppgefinn. Ég átti ekki að koma strax inn á svið- ið og beið þvi i búningsherberg- inu. Ég man að ég sat stjarfur við spegilinn, starðiá sjálfan mig, og tautaði: Nú verður þú að halda þér vakandi nú talar þú bara við sjálfan þig og þá heldurðu þér vakandi..Svoman ég ekki meira. Undireinsvar ég kominn af stað i hinum villtustu draumum en þá kemur sviðsstjórinn æðandi inn i klefann og hrópar: Drengur! Hvað ertu að hugsa? Þú átt að vera kominn inn á svið fyrir löngu! Og ég þýt af stað og inn á svið, snarruglaður i kollinum, og áhorfendur skellihlæja. Ég fór að lita i kringum mig og tók þá eftir að ég hafði gleymt öllum mínum munum — greíðu, sápufroðu og svo framvegis. Ég stökk aftur út af sviðinu, náði i það sem mig vantaði, og enn hlógu áhorfendur. Siðan rúllaði sýningin einhvern veginn í gegn en eftir á er mér sagt hvað hefði kætt áhorfendur svona. Þetta voru tvær eða þrjár. minútur sem var beðið eftír mér, ræningjarnir þrir voru þá á svið- inu og þeir þurftu að spinna upp úrsértexta til að brúa bilið. Þeir. reyndust hafa af nógu að taka meðan þeir biðu eftir rakaran-' um: það stóð nefnilega yfir rak- araverkfall i Reykjavik!” Stórhættulegt álag ,Meðan Arnar sagði þessa sögu hefur hann, eins og ósjálfrátt, leikið öll hlutverkin af stakri snilld. Nú verður hann alvarlegur aftur. „Þetta var svona dæmi af álaginu þennan vetur. Eftir i er ég sannfærður um að þetta var góð reynsla, en jafnframt stór- hættuleg. Við að- stæður eins og þessar ermikil hætta á að leikari fari að fúska, endurtaka sig: að hann ”,,0nu'" finnst h • Sl Þetta sn„ Pennan-i. Þaö erfr fj°ríÞessu.. „Loftur er bara skólastrákur á Hólum...” (Timamynd: Ella) glatí möguleikanum á að komast að kjarnanum I sér. Er ég nú of hátiðlegur? Ég á við þá nekt sem leikara er nauðsynleg ef hlut- verkið á að vera satt. Eftír nokkur ár á galeiðunni — og þá á ég ekki við leik- húslifið almennt heldur svona vinnuálag — þá fannst mér ég vera kominn út i hreina vitleysu. Það er þá, 1968, sem ég, og ýmsir fleiri, byrjum með Leiksmiðjuna. Hugmyndin með Leiksmiðjunni /ar a ð mynda samstfgan hóp sem gætí unnið saman að þvi að þróa nýja hluti, mynda einskonar en- semble. Sjáðu til. Ef þú vinnur I stafnun, þá eru þar góðir leikar- ar, góð aðstaða og þar fram eftir götunum og þar eru oft gerðir góðir hlutir. Það vill hins vegar vanta einbeitínguna, markvissa þróunaðákveðnu marki, og þetta hlýtur að leiða til þess að listrænt gildi minnkar. Maður verður leið- ur. Og hvað gerist þá? Maður brýstút, fer annað, myndar hópa af fólki sem vill það sama og get- ur unnið saman að listrænum markmiðum hópsins — hver sem þau eru. Þarna eru sem sé öll skilyrði fyrir hendi til að gera

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.