Tíminn - 22.12.1981, Side 37

Tíminn - 22.12.1981, Side 37
■ Markmið skákmannsins er ætið að máta andstæðing sinn, en fer eftir skaplyndi hvers og eins hvernig hann kýs að fara að þvi. Sumum finnst mest um vert að byggja upp trausta og rökræna stöðu ogflana ekki að neinu, aðrir eru meira fyrir ævintýrin og leggja óhræddir út i hvers kyns glannaskap, fórna liði á báða bóga ef þeim býður svo við að horfa. Slikir menn eru jafnan i miklu uppáhaldi með skákunn- endum, enda fátt skemmtilegra en æsileg fórna- og leikfléttuskák þar sem allt gengur upp. Hér verðurfariðá handahlaupum yf ir nokkrar slikar og megi menn vel njóta. Fyrstur skákmanna verður fyrir okkur Victór nokkur Tietz. Sá er litt þekktur nuorðið og komst reyndar aldrei i fremsta flokk skákmanna, eftir hann liggja þó nokkrar perlur sem ekki er vert að glatist. Hann bjó i Carlsbad, sem nú er Karlovy Vary i Tékkóslóvakiu, og gerði mikið af þvf kringum aldamótin að skipuleggja mót en tók sjaldan þátt sjálfur. Alltof sjaldan. Fyrsta skákin sem við li'tum á var tefld i Carlsbad árið 1898 og hefur Tietz hvitt. Andstæðingur hans, maður að nafni Ramisch, virðisthafa byggt traustan varn- armúr um kóng sinn en Tietz á ekki i' neinum erfiðleikum með að brjóta hann niður. Nokkrarglæsi- legar fórnir og kóngur svarts verður að fara á vergang, loks kveður hann saddur lifdaga. Staöan var þessi: 1. HxBc6 KxHc6 2. Dxb5skák KxDb5 5. Bafskák Kc5 Loks sá svartur i hvaöa hættu hann var staddur. Ef 3. ... - KxBa4, þá 4. Rc3+ -Kb3 5. Rd2 + mát. 4. b3skák Kd3 5. Bb5skák Ke4 6. Hg4 skák Kf5 7. Re3 mát! 1 næstu skák hefur Tietz svart og á leik gegn Maader. Viðsjáum á stöðumyndinni hér að neðan að hvitur hótar bæði að drepa bisk- upinn á c5 og peðið á h7. Flestir skákmenn hefðu látið peðið sigla sinn sjó en bjargað biskupnum en Tietz hefur annað i hyggju. Hann skeytir ekkert um hótanir hvits en ræðst gegn drottningu hans og vinnur nokkur mikilvæg „tempó”. Það nægirhonum til að vinna skákina. 2. DxBb5? Þetta mátti ekki eins og Tietz sýnir fram á, en Bxh7+ -Kh8 er enn verra, þvi þá er biskup hvits i hættu staddur auk annarra vand- ræða. 2. ... Einmitt. Nú annað „tempó” árásar. 3. Dd4 4. gxRfS 5. Khl 6. Hgl 7. KxDgl (. Bfl Re5 vinnur svartur 3g er albúinn til RxRf3 skák Dg5 skák Bh3 DxHgl skák Hclskák HxBfl mát! 1 næstu skák má sjá áhrif lepp- unar. 1 fyrsta leiknum veröur leppunin að hálfu leyti sjáanleg en til að nýta hana að fullu fórnar Tietz liði sinum af miklum móð. Tietz hefur hvitt, vesalingurinn sem hvefur svart heitir May, og skákin var tefld i Vin árið 1912. 1. Rxe4 RcxRe4 2. HxRe4 RxHe4 3. HxRe4 DxHe4 4. Rg5! Takið eftir þvi að hvitur hótar nú máti á tvo vegu, Dxh7 og Rf7, og einnig hótar hann einfaldlega að drepa drottninguna. Svartur getur ekki skákað til aö freista þess að bjarga sér. 4. ... Dg6 Sennilega er þetta besti leik- urinn en hann er ekki nándar nærri nógu góður. Hvitur á enn eina fórn i pokahorninu. 5. Dxh7skák DxDh7 6. Rf7 mát! Svarti kóngurinn, umkringdur tveimurhrókum og drottningu, er varnarlaus gegn riddara og bisk- upi! En litum á næstu stöðumynd. 1 fljótu bragði mætti ætla aö svart- ur, Judd nokkur, stæði betur. Hann hefur þremur peðum meira og öll eru þau fripeð, hann hótar að tvöfalda hróka sina á annarri reitarröð, og menn hvits virðast illa samrýmdir. Tietz var auð- vitað ekki á sama máli. Hér þarf aöeins nokkrar fómir til, hefur hann án efa hugsað. 1. HxBb5! Frábær leikur, eins og koma mun i ljós. Svartur verður að drepa þennan hrók, eöa vera manni undir, svo... 1. ... cxHb5 2. Hc8!! Stórkostlegur leikur! Þessi fórn að gefa hvitu drottningunni færi á að komast til al, hdn neyðir svart til að skilja hrókinn á a8 eftir i uppnámi og tak drottning- arinnar á D4 veikist að mun. 2. ... I)d5 Besta vörnin. Ef 2. ... -HxHc8, þá 3. Dal+ -e5 4. Dxe5+ (eða Bxe5) -HxDe5 5. BxHe5+ -Kg8 6. Rh6 mát. Og ef 2. ... -DxHc8, þá 3. Dd4+ -e5 4 Dxe5+ o.s.frv. 3. Dal skák Svartur er glataður. Ef HxDal, þá HxRf8+ -Kg7 og Bh6 mát. 3. ... e5 Besti leikurinn 4. Bxe5 skák DcBe5 Þetta virðist góð •ig yild vörn sem leiðir til uppskipta á drotnn- ingunni en... 5. HxRfSskák Kg7 Ef HxHf8, þá RxDe5. 6. Hf7 skák og svartur gafst upp. Ef 6. ... -KxHf7, þá 7. RxDe5 + . Og ef 6. ... -Kg8, þá 7Rh6+ -Kh8 8. DxHa8+ -De8 9. Hf8+ og svartur er glataður. Loks skulum við lita á enn eitt dæmiö um snilld Tietz og er þaö þannig lagað að Morphy hefði oröiö stoltur af þvi að tefla þannig. Tietz er að vi'su manni yfir en svartur hótar bæði að drepa biskupinn á e5, og leika Hal og vinna drottninguna. Tietz læt- ur hendur standa fram úr erm- um. Allt leikur á reiðiskjálfi. Skák þessi var tefld i Carlsbad áriö 1898. Sá sem stýrir svörtu mönnunum heitir Schwalb. 1. Rg6 skák fxRg6 2. fxg6 fráskák Kg8 3. Hc8!! Ótrúlegur leikur! Hviturkemur i veg fyrir Hal, hótar máti i tveimur leikjum með Hf8, kemur iveg fyrirHxBe5 af sömuástæðu, og eftirþvingað svar svarts, þá... 3. ... HxHc8 4. HxRc2!! Með þessum leik fær hvitur aftur dálitið af þeim liðsafla sem hann hefur fórnað en það skiptir Tietzekki máli. Hann rýmir f-lin- una fyrir drottninguna sem hótar nú máti itveimur leikjum (Df7 + og Dxg8 mát). hótar einnig máti með HxHe8. 4. ... Rf8 Þessi leikur er þvingaður og litur vel út en næsti leikur hvits sýnir að hann er gagnslaus. 5. Hc8! Þessi hrókur er auðvitað frið- helgur, vegna hótana drottning- arinnar. 5. ... De7 Eini leikurinn 6. Dc4skák Kh8 7. Dh4!!! Undursamlegt. Nú hótar hvitur ekki einungis máti heldur og að drepa drottningu svarts. 7. ... Halskák örvænting. 8. Bxllal De6skák 9. Khl Nú getur svartur ekki skákaö framar nema hann vilji missa drottningu sina. 9. ... HxHc8 Hinn deyjandi maður fær sér siðustu kvöldmáltiðina. 10. Dxh5 skák, og svartur gafst upp. Schwalb er mát eftir 10.... -Kg8 11Dh7+ -Kf8 12. Dxg7+ -Kel 13. Df7+ -Kdl 14. Bf6+ -De7 15. DxDd7 mát. Þá litum við á skák sem tefld var i Varsjá árið 1935. Tartakow- er, sem aldrei varð orðs vant, skirði þessa skák „Ódauðlegu skákina frá Póllandi” og á hún þaö nafn fyllilega skilið. Glucks- berg stýrir hvitu mönnunum en Najdorf, alkunnur, þeim svörtu. Hann beitir hollenskri vörn og eftir tiltölulega eðlilega byrjun verða Glucksberg á nokkur mis- tök. Eftir það er skákin ein log- andi snilld i'myndunaraflsins. 1. d4 f5 Hollensk vörn. Morphy beitti þessum leik fyrstur en Alekhine og Botvinnik gerðu hann vinsæl- an. Svartur veikir kóngsstöðu sina en á i staðinn möguleika á kóngssókn. Vörninni var mikiö beitt á timabili en nú ber minna á henni. Hún átti þó sina góðu daga og leiddi oftar en ekki til mikilla sviptinga, eins og eftirfarandi skák ber sannarlega með sér. 2. C4 Rf6 3. Rc3 e6 4. Rf3 d5 5. e3 6. Bd3 7. 0-0 8. Re2 9. Rg5? 8 7 6 5 4 3 2 abcdefgh c6 Bd6 0-0 Rbd7 Hvitur vill þreifa íyrir sér á kónsvæng en eins og Najdorf sýnír og sannar eru slikar þreif- ingar ekki timabærar. 9.... Bxh2 skák 10. Khl Glucksberg list auðvitað ekki á að drepa þennan biskup. Þá kemur Rg4 skák, og riddari hvits fellur og sókn svarts upp kóngs- væng verður illstöðvanleg. 10. ... Rg4 11. f4 De8 12. g:i Hvitur reynir að rýma til, svo kóngurinn eigi flóttaleið undan drottningunni sem boðaði komu sina i siðasta leik. Þessi leikur dugir þó ekki til.. Heita má að framhaldið sé þvingað allt til enda! 12. ... I)li5 13. Kg2 Bgl! Stórfalleg fórn sem ryður drottningunni leið að kónginum. Hvitur verður auðvitað að drepa þvi annars kemur Dhl mát. 14. RxBgl Að sjálfsögðu ekki 14. HxBgl- Dh2+ 15. Kf3-Df2 mát. II. ... Dh2 skák 15. Kf3 e5! Hótar ijsköp einfaldlega máti i næsta leik.Staða svarts er nú svo sterk að hann getur fórnað á báða bóga. 16. dxe5 Rdxe5skák! 17. fxRe5 Rxe5skák 18. Kf4 Rg6 skák Þetta ernæstum ótrúlegt. Menn hvits standa hjá eins og illa gerðir hlutir meðan kóngurinn hrekst fram og aftur undan markvissum og hiklausum atlögum svarts. Næstum allir menn hans og peð taka virkan þátti'árásinni: þegar einum er fórnað kemur annar i staðinn. 19. K13 f4! Smiðshöggið. Svartur hótar máti meö fxg3en opnar jafnframt skáklinuna fyrir biskupinn sem nú vaknar til lifsins. 20. cxf4 Bg4skák 21. KxBg4 Hviti kóngurinn hefði auðvitað getað leitað undan til e3 en þá hefði hann misst drottninguna sina fyrir þr já menn og kóngurinn er enn á köldum klaka og stutt i mát. Textaleikurinn býður uppá falleg tafllok. 21. ... Re5 22. fxReS h5 mát! 8 7 6 5 4 3 2 1 abcdefgh Lokastaðan verðskuldar svo sannarlega stöðumynd. Svartur hefur fórnaðöllum léttu mönnun- um sinum fyrir stórkostlega fléttu — markmiðið eins og áður sagði, að máta andstæöinginn. (stöðumynd — 7) — ij. tók saman.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.