Tíminn - 29.12.1981, Síða 13
,,Fóru að minnsta kosti
3/4 hlutar bryggjunn-
ar.”
„baö fóru minnsta kosti 3/4
hlutar bryggjunnar. ÞaB er aö-
eins smáhorn sem byggt var fyrir
tveimur eöa þremur árum, sem
enn stendur,” sagöi Hermann
Friöriksson, starfsmaöur Oli'ufé-
lagsins f Keflavik, um leiö og
hann sýndi blaöamanni og ljós-
myndara Timans hversu illa oliu-
bryggjan í Keflavik var farin.
Þaö þurfti svo sem engra lýsinga
viö, því spýtnabrakiö sem var á
floti um alla höfnina og uppi i
Trillubátur var fenginn til aö slæöa upp timbrið úr ollubryggjunni sem næstum brotnaöi I spón eins og sjá má.
f jörum sáust greinileg merki þess
sem þarna haföi átt sér staö.
Grjótfjaran Njarövikurmegin viö
aöalhöfnina f Keflavik minnir á
rekafjöru. Þar er spýtnabrak út
um allt sem brimiö hefur skolaö
langt upp á land.
„Þessi bryggja var upphaflega
aöalhöfnin hérna i Keflavik, en
siöustu árin hefur hún eingöngu
veriö notuö sem oliuhöfn. Árið
1955 átti sér staö nákvæmlega
sami hluturinn. bessi sama
bryggja brotnaði I spón I vitlausu
veöri.- Þá fengum viö aöstööu til
aö landa oliunni i aöalhöfninni og
mér þykir trúlegt aö eins veröi
fariö að núna.”
— Er langt siöan bryggjan var
endurbyggð?
„Nei, þaö var fariö yfir hana
alla fyrirtveimur eöa þremur ár-
um, þá var hdn stækkuö og endur-
bætt eins og þurfa þótti.”
— Veröur hún endurbyggö?
„Þaö er ómögulegt aö segja til
um þaö”, sagöiHermann.
,,Allt rafmagnslaust og
brakaði og brast i öllu.”
„Þaö fuku þakplötur ofan af
hálfu þaki verslunarinnar og
vatniö lak hérna inn um ailt”,
sagöi Valgeröur Sigurgi'sladóttir,
verslunarstjóri i versluninni
Póseidon í Keflavik.
„Þaö var um klukkan eitt á aö-
faranótt annars I jólum aö viö
vorum látin vita um aö þakplötur
væru aö fjúka, en þá voru menn
úr björgunarsveit Keflavíkur
mættir á staöinn og byrjaöir aö
negla niöur þær plötur sem eftir
voru. Veöriö var svo rosalegt aö
þeiruröu aö binda sig niður tii aö
fjúka ekki af þakinu. En þeim
tókst nU samt furöanlega að
bjarga þvi sem bjargað varö.”
„Þiö seljiö fötj skemmdust þau
ekkert?
■ Árni B. Kristinsson ásamt Vigni bróöur sínum, en Arni varö fyrir
þeirri óskemmtilegu Hfsreynsiu aö húsiö hans skemmdist mjög i veör-
inu.
■ Þessi timb-
urhrúga var
fyrir óveðriö
h 1 u t i o 11 u -
bryggjunnar i
Keflavik. Unniö
hefur verið aö
þvi slöustu dag-
ana að safna
timbrinu sam-
an.
„Jú, þaö blotnaöi talsvert af
fótum, bæði þeim sem voru hérna
uppi i búöinni og þeim sem voru
niðriá lagemum.En okkur tókst
þó að bjarga ótrúlega miklu,
vegna þess að þaö lak ekki niöur
úr öllu þakinu, og á lagernum
sem er i kjallaranum var eitt
hornið þurrt og okkur tókst aö
koma þorra fatanna þangaö. En
parketiö sem erá gólfi verslunar-
inna r e yöilagði st a ö mik 1 u 1 ey ti og
það má búast við aö enn séu ekki
komnar iljós allar þær skemmdir
sem á þvi uröu, þvi það getur enn
átt eftir aö vinda sig”.
— Var ekki óhugnanlegt að
eyða nóttunni viö þessar aöstæð-
ur?
,,JU, vist var þaö óhugnanlegt.
Hérvar alltrafmagnslaustog þaö
brakaöi og brast i öllu”, sagði
Valgeröur.
„Hefur sloppið furðan-
lega”
„Báturinn fauk um koll ein-
hvern tima á bilinu frá klukkan
5—6 á jóladagsmorgun, ég held að
hann hafi sloppiö furöanlega viö
skemmdir”, sagöi Bergur Vem-
harösson eigandi Andra KE 16, en
háturinn, sem er 6 tonna dekkbát-
ur, lagöist á hliöina utan i stýris-
hússem va-iö er aö byggjaá ann-
an bát i Skipasmiðastöð Njarö-
vikur.
„Þaö eina sem hægt er aö sjá aö
hafi skemmst, svona I fljótu
bragði, er loftnetsstöngin, ég get
ekki séö annaö en aö öll boröin i
bátnum séu heil. Þaö er mesta
furöa hversu velbáturinn slapp,”
sagöi Bergur. _gjó
Grindavík:
„HRINGT OG
SAGT AÐ
ÞAKIÐ VÆRI
AÐ FJÚKA”
■ Valgeröur Sigurgisladóttir verslunarstjóni I Póseidon I Keflavik,
þurrkar bleytuna úr lofti verslunarinnar sem verö mjög illa úti I óveör-
inu.
Unniö aö viögeröum ó þakinu á Keflavik h/f.
■ „Ég var i jóiaboði heima hjá
foreldrum minum þegar hringt
var i m ig og mér sagt aö þakiö af
húsinu okkar væri aö fjúka af”,
sagöi Árni B. Kristjánsson, Dal-
braut 3 I Grindavik, þegar Tima-
menn töföu hann smástund er
hann var aö setja nýtt járn á þak
hiiss sins.
„Þegar viö komum hingaö voru
björgunarsveitarmenn þegar
komnir á staöinn, en þeim var ó-
mögulegt aö aöhafast nokkuö
annað en aö horfa á þakið fjúka,
þvi þaö var engum fært aö fara
upp á þakiö.
Viö konan min fórum strax upp
I ibúöina og þaö lá viö aö húsiö
hristist undan veörinu og þaö
skapaöist rosalegur hávaöi vegna
þakplatna sem voru lausar aö
hálfu og böröust i húsgaflinn.”
— Var það fleira en þakiö sem
eyöilagöist?
„Já, þaö rann náttúrlega tals-
vert af vatni inn I húsiö og þaö
þarf sennilega aö mála suma
veggina, svomá búast viö aö ein-
angrun i þakinu sé ónýt aö miklu
leyti.”
— Hefurðu reynt aö gera þér i
hugarlund hvaö kostar aö bæta
skaöann?
„Þaö má reikna meö aö þaö
fari hátt í tuttugu þúsund”.
— Fáiö þiö skaöann bættan?
„Ég veit þaö ekki, en ég hef
heyrt aö húseigendatrygging
dekki ekki skaöa af völdum veö-
urofsa en ég geri mér smávonir
um aö einhverjar viölagatrygg-
ingar bæti þetta. En annars þá
hef ég ekki hugmynd um þaö”,
sagöi Arni.
Gert viö þakiö á ibúöarhúsinu viö Dalbraut 31 Grindavlk, en allar þakplötur á suöurhliö hússins fuku af.
13
Texti: Skafti Jónsson Myndir: Róbert Ágústsson
UTA
■ Hermann Friöriksson, starfs-
maður Oliufélagsins i Keflavik.
■ Andri KE 16 fór á hliöina i ó-
veörinu en slapp furöanlega viö
skemmdir. Hann var til viögeröar
I Skipasmiöastöö Njarövikur.
■ „Veðurhamurinn var rosaleg-
ur og sem dæmi um vindkraftinn
get ég sagtykkur aö þaö fauk fjöl
úr einu þakinu hérna hjá okkur og
yfir f næsta hús, sem einnig er I
okkar eigu, þar stakkst fjölin niö-
ur úr þakinu, gegnum nýja báru-
járnsplötu niöur úr gólfi háalofts-
ins og þaöan I vegg frystigeymslu
og þar stóö þaö fast þegar viö
komum aö”, sagöi Kristján Pét-
ursson, verkstjóri hjá Keflavik
h/f, frystihúsi og fiskverkunar-
stöö. En hjá þvi fyrirtæki varö
tjóniö mikiö/hálft þakiö fauk af
einu húsi fyrirtækisins, fiskkass-
ar semvoru I stæöum I porti fyrir-
tækisins fuku um alit og brotnuöu
og brutu þaþ sjem fyrir varö, m.a.
rúöur i verbúöum og skrifstofu-
húsnæöi fyrirtækisins.
„Þaö er ekki bara hérna inni i
bænum, sem viöhöfumorðiö fyrir
tjóni, viö eigum skreiöartrönur
úti i Grindavikurhrauni og stór
hluti þeirra fauk um koll, þær
voru eins og hrunin spilaborg yfir
aö lita. Nú er stór vinnuflokkur
frá okkur úti i Grindavikurhraun-
inu aö bjarga þvi sem bjargað
veröur.”
— Hefuröu nokkra hugmynd
um hversu mikiö tjóniö er í pen-
ingum?
„Nei, ég held aö þaösé ómögu-
legt aö gera sér grein fyrir þvi
svona 1 fljótu bragöi, en þaö er
mikið,” sagöi Kristján.