Tíminn - 29.12.1981, Qupperneq 22
Þriöjudagur 29. desember 1981.
Kvikmyndir og leikhús
kvikmyndahornid
i , 7
■ Calo borgarstjóri (Devane) fagnar opnun afleggjara til
bæjar sins.
Ameríka
á hjólum
Eegnboginn
Honky Tonk Freeway/örtröö
a hringveginum
Leikstjóri' John Schlesinger
Aöalhlutverk: Beau Bridges,
Hume Cronyn, Beverly
Diangelo og William Devane.
Segja má að bandariskt
þjóöfélag sé aö miklu leyti
byggt upp i kring um bila og
steypubönd þjóövega landsins
mikilvægustu lifæöarþess. En
hvernigfólk erað finna á þjóö-
vegum þessa lands? Schlesing-
er er ööru fremur aö gera út-
tekt á þvf i mynd sinni Honky
Tonk Freeway og er myndin
nokkurs konar þverskuröur af
þessu fólki um leiö og hún
reynir aö gef okkur innsjín i
þjóðarskapgerö bandarisks
þjdðfélags.
Ibúar lftils bæjar i Flórida,
Ticlaw, eru sáróánægðir þvi
nýbúiö er að leggja viöamikla
hraöbraut i gegnum fylkiö án
þess aö bærinn hafi fengið af-
leggjara af brautinni og þvi
fer öll umferð framhjá bænum
með þeim afleiöingum aö
hætta er á aö hann leggist i
eyði. Bæjarbúum tekst ekki að
fá afleggjarann með mútum
og þvi gripur fólkiö til sinna
eiginráöa til aö fá umferöina i
gegnum bæinn.
Margs konar fólk er á leið til
Flórida eftir hraöbrautinni,
fjölskylda á leið i sumarfri,
melludólgur ásamt starfsliöi,
tveir bankaræningjar, tvær
nunnur, höfundur „snúinna”
barnasagna ásamt léttlyndri
framreiðslustúlku, eiturlyfja-
saliá leiöá Super Bowlleikinn
i þeim tilgangi aö selja þar
kókain o.fl. ofl.
1 myndinni er stööugt skipt
um sjónhorn og reynt að fylgja
sem flestu af þessu fólki eftir,
gjöröum þess og hegðan, á
milli þess við fylgjumst meö
starfi bæjarbúa Ticlaw við aö
fá sinn afleggjara, en allt
þetta fóik hittistfyrr eða siöar
i Ticlaw.
Eins og söguþráöur gefur til
kynna þá er þetta ágætis efni i
gamanmynd enda eru mörg
meinfyndin atriöi i myndinni.
Sérstaklega má geta banka-
ræningjanna Eugene og
Osvaldi (Dzundza og Grifasi)
en þeir eyða tima sinum á
þjóöveginum i aö heimsækja
sem flest hóruhús.
Schlesinger hefur tekist vel
til viö að gefa þverskurö, að
visu nokkuö ófullkominn, af
þvi fólki sem byggir Banda-
rikin, eöa þann hluta þess sem
ferðast um á bihim.
Umfjöllun hans á bæjar-
bragnum I Ticlaw kemur ekki
eins sterkt út enda er ætlunin
að sá bær sé nokkurs konar
samnefnari viö alla bæi af
þessu tagi, bæisemeiga liTsitt
undir umferðinni, og veröur
umf jöllunin oft á tiöum farsa-
kennd og úr skoröum.
A heildina litiö er myndin
nokkuö góö gamanmynd meö
kaldhæönum undirtón.
—FRI
Friðrik
Indriða-
son skrifar.
★ Jón Oddur og Jón Bjarni
★ ★ Ortröö á hringveginum
★ ★ Flótti til sigurs
★ ★ ★ Útlaginn
★ ★ ★ Blóðhefnd
Stjörnugjöf Tímans
* * * * frábær ■ * * * mjög góö • * ★ göð ■ * sæmlleg • O léleg