Tíminn - 29.12.1981, Blaðsíða 23
Þriöjudagur 29. desember 1981.
23
kvikmyndahornið
JON ODDUR OG JON BJARNI
JÓN ODDUR OG JÓN BJARNI
Sýningarstaöur: Iiáskólabió
Leikstjórn og handrit: Þráinn
Bcrtelsson. Byggt á sögum eftir
Guörúnu Helgadóttur.
Aöalhlutverk: Páll og Wilhelm
Jósefs Sævarssynir (Jón Oddur
og Jón Bjarni), Steinunn Jó-
hannesdóttir (Katrin, móöir tvi-
buranna), Egill Ólafsson (Hjálm-
ar, faöir þeirra), Herdis Þor-
valdsdóttir (Amma dreki), Sól-
rún Yngvadóttir (Soffia) og Gisli
Halldórsson (Kormákur afi).
Myndataka: Baldur Hrafnkell
Jónsson.
Tónlist: Egill Ólafsson.
Framkvæmdastjóri: Helgi Gests-
son fyrir Noröan 8 h.f.
Kvikmyndagerðarmönnum er
ávallt vandi á höndum, þegar þeir
taka til meðferðar persónur, sem
náð hafa miklum vinsældum á
öðrum vettvangi til að mynda i
barnasögum eins og hér á við. Að
sjálfsögðu er hægt að gera ágætar
kvikmyndir um slikar söguper-
sónur eins og dæmin sanna en
væntingar áhorfenda og þar með
kröfur eru yfirleitt mun fastmót-
aðrien ella. Þannig erþetta vafa-
laust með aðdáendur þeirra
bræðra Jóns Odds og Jóns
Bjarna. Lesendur bókanna hafa
gertsérákveðna hugmynd um þá
kumpána og vilja eðlilega sjá
sina eigin imynd af þeim bræðr-
um og daglegri veröld þeirra,
birtast á hvita tjaldinu.
En þótt margir áhorfendur
komi með slikar meira og minna
fastmótaðar hugmyndir um, hvað
þeir vilja sjá, inn i sal Háskóla-
biós, þá verður að sjálfsögðu að
lita á kvikmyndina sem sjálfstætt
verk án tillits til fyrirfram
myndaöra skoðana.
Persónurnar
Kvikmyndin segir frá tviburun-
um Jóni Oddiog Jóni Bjarna, fjöl-
skýldu þeirra og nokkrum vinum
sumarstund. Móðir þeirra,
Katrin, er hjúkrunarkona, en
faðirinn, Hjálmar, kennari. Þar
sem þau vinna bæði út sér vinnu-
kona, Soffia, að mestu um
heimilishaldið. Strákarnir eiga
hálfsystur á unglingsárum —
Onnu Jónu sem er skotin i strák
þar i nágrenninu, Simba — og
litla systur, Möggu. Af vinum
Jón Oddur og Jón Bjarni aöalpersónurnar i samnefndri kvikmynd, sem frumsýnd var á annan dag
jóla i Háskólabíó.
þeirra bræðra kemur Óli mest við
sögu en hann er sonur frænku
þeirra bræðra, söngkonunnar
Lovisu. Þá er sagt frá vini, sem
þeir bræður kynnast i Vatnaskógi
og vangefinni systur hans. Loks
er ónefnd amma piltanna, sem
þeir nefna ömmu dreka og svo
Kormákur afi, sem hélt i
siglingar þegar mamma strák-
anna var eins árs eða svo, en
kemur nú „heim” eftir öll þessi
ár, þar sem hann þarf að leggjast
inn á sjúkrahús.
Að sjálfsögðu eru mun fleiri
persónur i myndinni en þessar
koma helst við sögu.
Snubbótt atriði
Ég get ekki leynt þvi að ég varð
að ýmsu leyti fyrir vonbrigöum
með þessa mynd, þar sem ég
hafði vænst þess aö hún yrði eins
létt og skemmtileg og bækur Guð-
rúnar. Þótt tviburarnir séu að
sjálfsögðu það sem myndin snýst
öðru fremur um og þeir bræöur
Páll og Wilhelm komi þeim mjög
vel til skila — þeir lifa sig inn i
hlutverkin — fá þeir oft og tiðum
ekki að njóta sin sem skyldi fyrir
flokksstarfið
Orðsending frá happdrætti
Fr a msóknar f lokksins
Meðal vinninga i happdrættinu er Nordmende
myndsegulbandstæki af nýjustu og fullkomn-
ustu gerð. Apple tölva og listaverk eftir valinkunna
myndlistamenn. Einnig rafmagns-handverkfæri og tölvuúr
frá Þýsk-íslenska verslunarfélaginu.
Alls 14 vinningar fyrir samtals kr. 84.000. Verð miða kr. 25
Pantaðir miðar sendir i giró.
Tekiö viö miöapöntunum i sima 24480
aukaatriöum og stundum
þyngslalegum frásögnum af
ýmsum öðrum persónum. Þá
veröur minna úr fjölmörgum at-
riðum en efni standa til. Alltof oft
er það svo að atvik sem eru mjög
fyndin i bókum Guðrúnar, eru
ekkert sniöug i myndinni vegna
þess hvernig þau eru útfærð. Ein-
kennandi dæmi um slik snubbótt
atriði er Þingvallaferð fjölskyld-
unnar, sem er mjög skemmtileg I
fyrstu bókinni um Jón Odd og Jón
Bjarna. 1 kvikmyndinni er ferðin
rétt hafin þegar henni er lokið og
sögupersónurnar komnar i sund-
laug Vesturbæjar að spjalla við
Guðmund Jónsson og fleiri
þekkta tslendinga um pólitik!
Þvi miður enda mörg atriöi
myndarinnar þannig I lausu lofti
og oft eru ekki nýtt þau tækifæri
sem efnið gefur til myndrænnar
úrvinnslu. Sem dæmi má nefna
þegar veislan er haldin á heimili
þeirra bræöra og þeir laumast
fram i eldhús að skoða dýrindis
tertu, sem mamma þeirra ætlaði
að bera fyrir gestina. Þessu atriöi
lýkur þegar þeir eru að byrja aö
tina ber af tertunni. Or sögunni
sjálfri vitum við hins vegar aö
mesta grinið fylgdi i kjölfarið,
þegar þeir höfðu hámað i sig
mestan hluta tertunnar. Slikt er
ekki einu sinni gefið i skyn i
myndinni, hvað þá að lýst sé hin-
um fyndna eftirmála tertuátsins.
Þetta er dæmi um hvernig farist
hefur fyrir aö vinna úr atriðum,
sem hvað skemmtilegust eru i
sögunum.
Gisli afbragðsgóður
Að sjálfsögðu eru ýmis atriði i
myndinni, sem ekki er fjallað um
i bókunum, og takast sum þeirra
vel. Samskipti Hjálmars og sund-
laugarvaröarins eru til aö mynda
bráðfyndin og einnig ýmis uppá-
minnmg
Sigursveinn Karlsson
F. 27. mars 1954
D. 17. des. 1981
Sigursveinn Karlsson bróöur-
sonur minn lést þann 17. desem-
ber, 27 ára að aldri.
Sigursveinn var næstyngstur af
6 systkinum, en þessi stóri syst-
kinahópur óx úr giasi i Hófgerði
14 I Kópavogi, þó að eldri systkin-
in væru fædd annarsstaðar.
Ég hafði mikil samskipti við
þessa fjölskyldu en það má segja
að tveir frændur, Sæmundur
Andersen og ég, tækju út hluta af
uppeldi okkar þarna i Hófgerðinu.
Við Sæmundur vorum þó ein-
staklingar nokkuð utan kerfisins
og Katrin Gamalielsdóttir, mág-
kona min brauðfæddi okkur lang-
timum saman og það var alltaf
pláss i Hófgeröinu til aö sofa þrátt
fyrir þá átta manna fjölskyldu
sem þarna bjó.
í Hófgerðinu var gott að vera á
þessum árum. Menn trúðu á
framtiðina og rökræður voru
endalausar um mjög marga þætti
mannlifsins. Sumir fjölskyldu-
meðlimir gripu i að mála, aðrir
skrifuðu og svo var sungið en
Karl bróðir minn er vel liðtækur á
ýmis hljóðfæri.
1 þessu góða andrúmslofti óx
Sigursveinn upp. Hann var
gáfaður unglingur, listfengur og
næmur og er mörg merki þess að
finna i verkum hans.
Nú eru tímamót. 1 huganum eru
þakkir fyrir samveruna og óskir
um betri byr. Sigursveinn lætur
eftir sig fjögur mannvænleg börn.
Hrafn Sæmundsson
tæki Kormáks afa sem Gisli Hall-
dórsson leikur afbragösvel.
Skyndileg endurkoma afans er
einnig notuö til aö koma á fram-
færi þenkingum um gamalt fólk
og stofnanir en það leysist svo allt
saman meö nokkuð ævintýraleg-
um hætti.
Eins og áöur segir tekst þeim
bræðrum Páli og Wilhelm ein-
staklega vel upp I hlutverkum tvi-
buranna og Sólrún Yngvarsdóttir
fer einnig vel með hlutverk
Soffiu, þótt óneitanlega hefði
veriö gaman að heyra hana flytja
eitthvaö af öllum þessum mörgu
predikunum, sem sagt er frá i
bókunum, aö hún hafi þulið yfir
drengjunum og öðrum þeim sem
heyra vildu. Osköp litiö fer fyrir
drekaskap hjá Ommu dreka og
foreldrarnir eru ekki beinlinis lit-
rikir.
ógreinilegt tal
Rétt er að geta þess að myndina
hrjá nokkuð tveir af barnasjúk-
dómum islenskrar kvikmynda-
gerðar. Annars vegar er tal
leikaranna stundum svo ógreini-
legt að engin leiö er að heyra hvað
sagt er. Hins vegar blómstrar hér
um of sú árátta að skella inn i
kvikmyndir stuttum skotum af
ýmsum þekktum tslendingum.
Slikt truflar einungis og leiðir at-
hyglina frá þvi sem myndin fjall-
ar i raun og veru um.
Jón Oddur og Jón Bjarni mun
vera sjötta islenska biómyndin
sem gerö hefur verið á fáeinum
Jólahappdrætti
S.U.F,
Vinningsnúmer
jólahappdrættis
S.U.F.
1. des. nr. 4498
2. " nr. 1983
3. " nr. 1647
4. " // 3933
5. " // 4346
6. " // 2118
7. " // 4964
8. " // 2122
9. " // 4379
10. " // 4133
11. " // 3067
12. " // 3066
13. " // 3927
14. " // 4656
15. " // 3241
16. " // 3409
17. " // 4189
18. " // 3424
19. " // 1030
20. " // 3842
21. " // 4634
22. " // 2858
23. " // 4825
24. " // 2794
árum. Hinar eru Land og synir,
Óðal feðranna, Veiðiferðin,
Punktur punktur komma strik og
Otlaginn. Séu þessar myndir
bornar saman fer ekki hjá þvi aö
þessi nýjasta mynd hljóti að telj-
ast þeirra slökust. —ESJ
Elias Snætand
Jónsson skrif-
ar um kvik-
myndir.
Lestunar-
áætlun
GOOLE:
Arnarfell..........11/1
Arnarfell..........25/1
Arnarfell.......... 8/2
Arnarfell..........22/2
ROTTERDAM:
Arnarfell..........13/1
Arnarfell..........27/1
Arnarfell..........10/2
Arnarfell..........24/2
ANTWERPEN:
Arnarfell..........14/1
Arnarfell..........28/1
Arnarfell..........11/2
Arnarfell..........25/2
HAMBORG:
Hvassafell......... 4/1
Helgafell..........15/1
Helgafell.......... 3/2
HELSINKI:
Disarfell.......... 3/2
GLOUCESTER Mass:
Skaftafell ........ 8/1
Skaftafell ........ 8/2
LARVIK:
Hvassafell......... 8/1
Hvassafell.........18/1
Hvassafell......... 1/2
Hvassafell.........15/2
GAUTABORG:
Hvassafell......... 7/1
Hvassafell.........19/1
Hvassafell......... 2/2
Hvassafell.........16/2
KAUPMANNAHÖFN:
Hvassafell......... 6/1
Hvassafell.........20/1
Hvassafell......... 3/2
Hvassafell.........17/2
SVENDBORG:
Hvassafell......... 5/1
Helgafell..........17/1
Hvassafell.........21/1
Hvassafell......... 4/2
Helgafell.......... 5/2
Hvassafell.........18/2
HALIFAX, Canada:
Skaftafell ........ll/l
Skaftafell ........10/2
1SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101