Fréttablaðið - 27.04.2008, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 27.04.2008, Blaðsíða 2
2 27. apríl 2008 SUNNUDAGUR DÓMSMÁL „Það er ekki óvenjulegt að opinberir starfsmenn þurfi að sitja undir rógi og dylgjum en það er fátítt, að slíkt komi frá alþingis- mönnum,“ segir í yfirlýsingu frá Gunnari Gunnarssyni aðstoðar- vegamálastjóra sem vill að Árni Johnsen sæti opinberri ákæru vegna ummæla í Morgunblaðinu í gær. Í Morgunblaðsgrein sinni fjall- ar Árni um samgöngur við Vest- mannaeyjar. Segir hann starf úttektarnefndar sem samgöngu- ráðherra skipaði vegna sam- gangna til Eyja hafa verið „fúsk eitt“ vegna þess að Gunnar hafi stjórnað þar gangi mála. Einn- ig segir Árni að Gunnar hafi verið handbendi Sturlu Böðvarssonar, þáverandi sam- gönguráðherra, sem hafi viljað höfn í Bakkafjöru og fyrirfram verið andsnúinn jarðgöngum. Þá segir Árni það hafa verið „furðu“ að Sturla skipaði Gunnar í embætti. Gunnar segir í samtali við Fréttablaðið að í orðum Árna felist meðal annars aðdróttun um að hann hafi verið vanhæfur í starf aðstoðarvegamálastjóra. Í grein- inni sé vegið að honum sem opin- berum starfsmanni og lögfræð- ingi. Gunnar kveðst munu eftir helgina kæra til lögreglu fyrir brot á 234. og 235. grein almennra hegningarlaga. „Þar kemur fram, að hafi æru- meiðandi móðgun eða aðdróttun verið beint að manni sem er opin- ber starfsmaður og móðgunin eða aðdróttunin varðar að einhverju leyti starf hans, þá skal slíkt brot sæta opinberri ákæru eftir kröfu hans,“ segir í yfirlýsingu Gunnars sem telur Árna Johnsen ekki sam- boðinn þeirri virðingarstöðu sem hann var kjörinn til. „Það er Sjálf- stæðisflokknum og íslensku þjóð- inni til skammar að þessi maður skuli geta skrifað undir greinar í fjölmiðlum sem alþingismaður.“ Árni Johnsen segir allt sem hann segir í grein sinni vera satt og rétt. „Ég ætla ekki vera að skattyrðast við Gunnar Gunnars- son aðstoðarvegamálastjóra sem ugglaust er í sárum vegna þess að hann hlaut ekki embætti vega- málastjóra, en það gengur ekki að maður í hans starfi sé að rugla saman samgöngumálum og lög- fræðileikjum,“ segir Árni og útskýrir að hörð gagnrýni hans snúi að meðferð Vegagerðarinnar á því að gera úttekt á möguleikum nýs átaks í samgöngum milli lands og Eyja. „Vegagerðin slugsaði með ólík- indum í þessu máli. Það segir sög- una að í úttektarnefndinni sjálfri var ekki forstöðumaður þróunar- sviðs Vegagerðarinnar heldur lög- fræðingurinn Gunnar Gunnars- son.“ gar@frettabladid.is Spænskir töfrar í Valencia Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, akstur til og frá flugvelli, gisting á 4* hóteli með morgunverði og íslensk fararstjórn. Nánar á expressferdir.is „Spænskir töfrar í Valencia“ 73.900 kr. Verð á mann í tvíbýli 4.-8. september F í t o n / S Í A Fararstjóri: Þórarinn Sigurbergsson Kærir Árna Johnsen fyrir ærumeiðingar Aðstoðarvegamálastjóri segir Árna Johnsen þjóðinni til skammar og krefst þess að hann sæti ákæru fyrir aðdróttun um opinberan starfsmann í blaðagrein. Allt satt í greinni svarar Árni, sem sakar Vegagerðina um slæleg vinnubrögð. GUNNAR GUNNARSSON Aðstoðarvegamálastjóri vill að lögregla rannsaki hvort Árni Johnsen hafa brotið hegningarlög með meiðandi ummælum um opinberan starfs- mann. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN ÁRNI JOHNSEN LÖGREGLUMÁL Sex ára gamall Bloomberg-ísskápur sprakk með látum í íbúð í Vesturborginni aðfaranótt laugardags. Ragnar Eyþórsson, sem býr ásamt unnustu sinni í íbúðinni, var sofandi þegar atvikið átti sér stað. „Svo bara kom þvílíkur hvellur og það var eins og eitthvað væri að hrynja í næsta herbergi,“ segir Ragnar. „Ég æddi fram og þá hafði hurðin þrykkst af og brotið rúðuna í eldhúsglugganum.“ Innréttingar og veggir skemmdust einnig við sprenginguna. Ragnar segir ekkert óvenjulegt hafa verið í ísskápnum. „Þarna var bara venjulegur matur, allt frá rauðkáli til sinneps.“ - sgj Dularfullt atvik í Vesturbæ: Ísskápur sprakk um miðja nótt HURÐIN SPRAKK AF Aðkoman var óhugnanleg og matarleifar úti um allt eldhús. MYND/EYÞÓR ÓLAFSSON Friðrik, hvenær er von á For- eldrum náttúrunnar? „Þegar við aðstandendur mynd- arinnar erum gengnir í barndóm og unglingavandamálin verða úr sögunni“ Kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar Börn náttúrunnar var kosin besta íslenska kvik- myndin af álitsgjöfum Fréttablaðsins. LÖGREGLUMÁL „Ég er hálf frosin eftir þetta,“ segir Theodóra Björgvinsdóttir, íbúi að Hraunbæ 6. Kveikt var í blaðabunkum fyrir utan stigaganga húsa númer 4 og 6 við Hraunbæ í Árbænum um fimmleytið aðfaranótt laugar- dags. „Það er alveg skelfilegt að kveikja í húsinu svona utan frá,“ segir Theodóra. „Útgangurinn lokaðist og svartur reykurinn fór inn um allt. Þetta var alveg skelfi- leg lífsreynsla.“ Íbúð Theodóru á fyrstu hæð var sú eina sem reykurinn náði að smjúga inn í. „Þegar ég kom fram úr svefnherberginu var allt í þoku, það var svo mikill reyk- ur.“ Eldurinn barst í stigaganginn svo að kviknaði í hurð og gúmmímottu. Stigagangurinn fylltist fljótt af reyk og sót barst upp um alla veggi. Minniháttar tjón varð í húsi númer 4, að sögn lögreglu. „Ég heyrði mannamál og svo eitthvað vélarhljóð,“ segir Sig- ríður Skarphéðinsdóttir, sem býr einnig í íbúð á fyrstu hæð. „Þegar ég opnaði fram mætti ég bara slökkviliðsmanni.“ Engan sakaði, en brennuvargs er leitað. Lögregla veit ekki hvort fleiri en einn voru að verki. - sgj Kveikt var í blaðabunkum fyrir utan hús í Hraunbænum og eldurinn barst inn: Bruninn var skelfileg lífsreynsla REYKURINN SMAUG INN Theodóra segir reykinn hafa smogið inn af stigagangin- um þegar eldurinn var sem mestur. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Fíkniefni fundust við húsleit Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann töluvert af meintum fíkniefn- um við húsleit í borginni aðfaranótt fimmtudagsins. Er talið að um sé að ræða tæplega fimmtíu grömm af kókaíni og lítilræði af maríjúana. Þá var einnig lagt hald á 150 þúsund krónur í peningum, sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefna- sölu. Karlmaður um þrítugt var hand- tekinn vegna rannsóknar málsins. LÖGREGLUFRÉTTIR HEILBRIGÐISMÁL Engin sátt er enn í sjónmáli í deilu geisla- og hjúkrunarfræðinga við Landspít- ala − háskólasjúkrahús. Að öllu óbreyttu láta yfir hundrað hjúkrunarfræðingar og geisla- fræðingar af störfum frá og með fimmtudeginum 1. maí. Neyðaráætlun tekur gildi ef af uppsögnunum verður. Þá má enn sinna öllum bráðaaðgerðum og aðkallandi aðgerðum vegna krabbameins. - sgj Fjöldauppsagnir 1. maí: Uppsagnir vofa enn yfir á LSH KOSNINGAR Ástþór Magnússon mun ekki bjóða sig fram til forseta Íslands í sumar. Þetta kemur fram í auglýsingu sem Ástþór birtir í blaðinu í dag. Í yfirlýsingunni segir Ástþór meðal annars að alvarlega hafi verið vegið að lýðræði á Íslandi að undanförnu. Hann segir ummæli oddvita yfirkjörstjórnar stærsta kjör- dæmis landsins um framboð sitt í fjölmiðlum enn vera til umfjöll- unar hjá lögreglustjóra, og áður en tekið hafi verið á því máli af hálfu stjórnvalda séu forseta- kosningar í raun sviðsett lýðræði. - kg Forsetakosningar í sumar: Ástþór ekki í forsetaframboð SJÓRÁN Áhöfn spænsks túnfisksveiðiskips, 26 manns, sem haldið hefur verið í gíslingu í rúma viku var sleppt í gær úr haldi sómölsku sjóræningjanna. Túnfiskveiðiskipið Playa de Bakio var hertekið af sjóræningjum um 250 mílur undan ströndum Sómalíu fyrir rúmri viku. Áhöfninni, þrettán Spánverjum og þrettán Afríkumönnum, var sleppt í gær og er skipið nú á leið á alþjóðlegt hafsvæði, samkvæmt ráðherra í spænsku ríkisstjórninni. Ráðherrann segir að samningur hafi náðst um lausn áhafnarinnar en tjáði sig ekki um hvort lausnarfé hefði verið greitt. Sómalskur hafnar- starfsmaður sagði í viðtali við BBC að sjóræn- ingjarnir hefðu fengið greiddar um 80 milljónir íslenskra króna í lausnargjald. Spænski ráðherrann sagði einnig að ríkistjórnin hefði þegar hafið aðgerðir til þess að tryggja að eitthvað þessu líkt kæmi ekki fyrir aftur, og að koma þyrfti í veg fyrir öll sjórán hér eftir. Hafsvæðið út af Sómalíu er eitthvað það varhuga- verðasta í heimi vegna tíðra sjórána.Yfir 25 skipum var rænt á þeim slóðum á síðasta ári. - kg Spænskri skipshöfn, sem rænt var undan ströndum Sómalíu, sleppt lausri: Sjóræningjar slepptu gíslum SJÓRÁN Sómalskir sjóræningjar fengu 80 milljónir greiddar í lausnargjald. LÖGREGLUMÁL Ágúst Fylkisson, maðurinn sem réðst á lögreglu- mann við Kirkjusand á fimmtudag, biðst afsökunar á framferði sínu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gær. „Hegðun lögreglumanna á svæðinu fannst mér ögrandi og virðing í samskiptum engin,“ skrifar Ágúst. „Þarna sá ég rautt.“ Hann segist ekki mikill skapmað- ur, en hafi blöskrað atburðir undanfarinna daga. „Ég vil nota þetta tækifæri til að biðja lögregluþjóninn afsökunar, það var ekki ætlun mín að meiða hann og er ég þess fullviss að ef við hefðum hist við aðrar kringum- stæður hefðum við getað sötrað saman bjór og rætt um boltann,“ skrifar Ágúst. - sgj Réðst á lögregluþjón: Biðst afsökunar vegna árásar SNÚINN NIÐUR Fjölda lögreglumanna þurfti til að halda Ágústi eftir árásina. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.