Fréttablaðið - 27.04.2008, Blaðsíða 14
14 27. apríl 2008 SUNNUDAGUR
Ég sá einn
skóla um
daginn í
Mangochi
sem í voru
800 börn,
tvær skóla-
stofur og
tveir kenn-
arar. Börnin
komu aðeins
í skólann til
að borða því
Matvælaað-
stoð Sam-
einuðu þjóð-
anna er með
skólamáltíð
þarna.
Þ
egar sést svart á hvítu að
árangurinn af starfi okkar
er að skila sér getur maður
ekki verið annað en ánægð-
ur,“ segir Stella Samúels-
dóttir, verkefnastjóri Þróunarsam-
vinnustofnunar Íslands í félagslegum
verkefnum í Malaví. Staðfest er í nýrri
skýrslu frá héraðsyfirvöldum í Mang-
ochi að samstarf ÞSSÍ við skólayfirvöld
í héraðinu gefi góða raun. Samstarfið
hefur skilað sér í betri menntun, auk-
inni skólasókn og fleiri kennurum á
Monkey Bay-svæðinu, þar sem ÞSSÍ
hefur látið mest að sér kveða, en á
öðrum svæðum í héraðinu.
„Við höfum reynt að mæta óskum
heimamanna um hvernig skólarnir eru
byggðir. Þeim er skilað fullbúnum með
öllu sem til þarf í þeirra hendur,“ segir
Stella þegar hún er spurð um hvað búi
að baki þessum góða árangri. Hún
útskýrir að fullbúnum skólum fylgi
kennarahúsnæði, sem laði að góða
kennara. Einnig sé leitast við að mæta
þörfum stúlkna við gerð hreinlætisað-
stöðu. „Það er algengt að stúlkur veigri
sér við að sækja skóla þar sem salern-
isaðstaða er ekki sem skyldi. Við höfum
lagt metnað okkar í að yfirvinna þá
hindrun enda hallar talsvert á stúlkur í
skólakerfinu. Það er keppikefli skóla-
yfirvalda að breyta því,2 segir Stella.
Helmingsfjölgun nemenda
Mangochi-héraði við suðurenda
Malavívatns er skipt upp í sautján
svæði og þar eru 241 grunnskóli og 43
framhaldsskólar. Íbúar héraðsins eru
tæplega 800 þúsund. Skýrsla mennta-
yfirvalda í héraðinu felur bæði í sér
mat á núverandi aðstæðum og mark-
mið í menntamálum fram til ársins
2012. Nemendum í grunnskólum Mal-
aví fjölgaði um helming árið 2004 þegar
stjórnvöld þarlendis ákváðu að grunn-
menntun yrði ókeypis. Síðan þá hafa
stjórnvöld í samvinnu við margar þró-
unarsamvinnustofnanir og alþjóðleg
samtök reynt að bregðast við þessari
skyndilegu fjölgun nemenda með því
að bæta við kennslustofum, reisa nýja
skóla, fjölga kennurum og treysta kenn-
aramenntun í landinu.
Þróunarsamvinnustofnun Íslands
hefur stutt héraðsstjórnina í Mangochi
í þessu átaki og byggt nýja skóla og
endurbætt aðra. Alls hafa sjö grunn-
skólar verið byggðir fyrir íslenskt fé á
Monkey Bay-svæðinu.
„Skólasóknin er hvergi betri í hérað-
inu en í Monkey Bay og skýrslan sýnir
að kennarar eru flestir starfandi á
þessu svæði,“ segir Stella. „Kennarar
berjast um að fá að kenna í skólum þar
sem eru kennarabústaðir og krakkarn-
ir sækja skóla þegar vel er staðið að
skólahaldi.“
Er einhver verulegur munur á verklagi
ykkar og annarra sem styðja við skóla-
málin í Malaví?
„Við höfum unnið í Monkey Bay árum
saman og samstarfið við yfirvöld hér-
aðsins er gott og stendur traustum
fótum. Við hlustum á tillögur frá heima-
fólki og þær verða æ metnaðarfyllri,
sem er bara ánægjulegt. Til dæmis
erum við farin að taka tillit til þarfa
fatlaðs fólks og aðgengis þeirra, sem er
nýbreytni. Kannski liggur okkar styrk-
ur umfram ýmsa aðra í því að við þekkj-
um orðið þarfirnar og óskirnar og
hlustum á,“ segir Stella.
Hún bendir á að í þróunarsamvinnu
sé sífellt verið að læra af reynslunni.
Nú sé almennt viðurkennt að lítið stoði
að byggja skóla þar sem allt er skorið
við nögl. Það geri lítið gagn því þegar
þröngt sé um börnin í skólunum og
þegar aðstæður eru lélegar séu kennar-
ar illfáanlegir. Þar sem kennaraskortur
sé viðvarandi fáist enginn til að kenna
við skóla sem hafa ekki upp á neitt að
bjóða, hvorki aðstöðu til kennslu né
kennarahús. Það sem við höfum lært er
að horfa á heildarmyndina. Annars
kemur aðstoðin engum til góða.“
„Ég sá einn skóla um daginn í Mang-
ochi sem í voru 800 börn, tvær skóla-
stofur og tveir kennarar. Börnin komu
aðeins í skólann til að borða því Mat-
vælaaðstoð Sameinuðu þjóðanna er
með skólamáltíðir þarna. Svona úrræði
skilar engu í menntun barnanna og ekki
við miklu að búast við slík skilyrði.
Bætt aðstaða hvetur fleiri til kennara-
náms og ekki veitir af. Í því sambandi
ber að nefna að alnæmi er afar útbreitt
í Malaví og það heggur einmitt stór
skörð í menntastéttir landsins. Í Mang-
ochi-héraði einu falla frá þrír kennarar
á mánuði, flestir á besta aldri.“
Áttundi grunnskólinn í byggingu
Þróunarsamvinnustofnun lét byggja
fyrsta skólann í Monkey Bay árið 1995
en undanfarin ár hefur fjármagn til
málaflokksins aukist mikið. Að sögn
Stellu eru nú hafnar byggingafram-
kvæmdir við áttunda grunnskólann.
„Þetta eru allt fullbúnir skólar, yfirleitt
með átta skólastofum, þ.e. einni stofu
fyrir hvern árgang, stjórnunarbygg-
ingu og bókasafni, salernum, brunni,
kennarahúsum og skólahúsgögnum.
Einnig höfum við látið gera upp tólf
grunnskóla, byggt við þá og keypt
skólahúsgögn. Auk þess hefur verið
byggður einn fullbúinn framhaldsskóli
og annar gerður upp,“ segir Stella.
Stjórn Þróunarsamvinnustofnunar
hefur að sögn Stellu sýnt þessum verk-
efnum mikinn áhuga og hún nefnir að í
undirbúningi sé gerð nýrrar vinnuáætl-
unar fyrir grunnskólana. „Einnig erum
við að vinna að því að leggja fyrir stjórn
ÞSSÍ í fyrsta sinn vinnuskjal um bygg-
ingu framhaldsskóla og uppbyggingu
þeirra, en aðeins 7,7 prósent nemenda
fara í framhaldsskóla. Samkvæmt
báðum þessum skjölum verða miklar
breytingar og nýjar áherslur sem þarf
að taka tillit til ef markmið héraðsins
og Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóð-
anna eiga að nást.“
Fulltrúar Þróunarsamvinnustofnun-
ar í Malaví sjá um útboð á verkum
þegar skólar eru byggðir eða endur-
bættir, þeir ráða verktaka og annast
eftirlit með framkvæmdum. Einnig
er af hálfu ÞSSÍ lögð mikil áhersla á
stuðning við innra starf skólanna.
Íslendingar hafa til dæmis styrkt
þjálfun 300 leiðbeinenda sem kenna
í skólunum og styrkja enn fremur
verkefni á vegum menntamálayfir-
valda í héraðinu, sem hefur það mark-
mið að vekja athygli á mikilvægi
skólagöngu og menntun, ekki síst með
það fyrir augum að draga úr brottfalli
nemenda.
Staðfesting á því að mennta-
stefna okkar skilar árangri
Íslensku skólarnir í Malaví koma vel út í nýrri skýrslu. Gunnar Salvarsson talaði við Stellu Samúelsdóttur, verkefnastjóra Þróun-
arsamvinnustofu Íslands í Malaví um þá sjö grunnskóla sem hafa verið byggðir fyrir íslenskt fé þar úti.
Í MALAVÍ Grunnskólamenntun í Malaví er nú ókeypis.
ÞAÐ ER LEIKUR AÐ LÆRA Í nýrri skýrslu frá skólayfirvöldum í Mangochi hefur skólastarfið skilað sér í betri menntun og
aukinni skólasókn. MYND/STEFÁN KRISTMANNSSON
Í SKÓLANUM Börnin í Monkey Bay eru duglegri að sækja skólann en börn í öðrum héruðum.
STELLA SAMÚELSDÓTTIR Verkefnastjóri
Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í Malaví.
MEÐ BYGGINGAMEISTARANAUM Stella sést hér ásamt Gondwe byggingameistara eins af
skólum ÞSSÍ.