Fréttablaðið - 27.04.2008, Blaðsíða 20
ÞAÐ NÝJASTA Í ...
HÓTELUM, VEITINGASTÖÐUM, GRÆJUM, BÚÐUM, MÖRKUÐUM OG FERÐANÝJUNGUMMIÐBAUGUR
H
in nýja Evrópa er
skemmtilegur og
áhugaverður kostur til
ferðalaga, og það er
sannkallað ævintýri að uppgötva
sjarma Eystrasaltslandanna sem
virtust svo fjarri fyrir áratug.
Hostel Celica er frægt gistiheimili
í höfuðborg Slóveníu en það er
fyrrverandi fangelsi sem breytt
var í hippakommúnu á síðasta ára-
tug. Fyrir örfáum árum var ákveð-
ið að breyta byggingunni í gisti-
heimili, listamenn fengu allir einn
klefa til þess að hanna eða skreyta
eftir smekk og er því útkoman
harla óvenjuleg. Sum herbergin
eru enn eins og fangaklefar og
önnur skarta skærum litum og
málverkum. Nótt á gistiheimilinu
veitir líka innsýn inn í hvernig það
er að vera í raunverulegum fanga-
klefa því það eru enn rimlar fyrir
gluggunum. Herbergin, eða klef-
arnir, eru fyrir tvo til fimm og
eins og á farfuglaheimilum er
sameiginlegt baðherbergi, eldhús
og sjónvarpsherbergi. Hostel
Celica er miðsvæðis í borginni og
auðvelt að ganga þaðan í miðborg-
ina eða á næstu lestarstöð. - amb
HVAÐ? HOSTEL CELICA, METELKOVA 8 SÍMI: +386 (1) 2309700
4 FERÐALÖG
UPPÁHALDS VERSLUNAR-
GATA/ HVERFIÐ? Mér finnst rosa
gaman að rölta um Soho! Fullt af
skemmtilegum búðum þar. Svo
finnst mér oft gaman að versla i
Williamsburg/ Brooklyn þar sem
ég bý núna.
SKEMMTILEGASTA KAFFIHÚSIÐ
TIL AÐ STOPPA Á? Gimme Coffee
er sætur staður í Nolita! Hann er
á Mott Street og selur bara kaffi,
ekkert annað!
SVALASTI BARINN? Beatric er
skemmtilegur. Hann er í West
Village. Svo mæli ég líka með
stað sem heitir Rose Bar en hann
er í Gramercy Park Hotel.
HVERJU MÁ MAÐUR EKKI MISSA
AF? Á sumrin er sko mikið um að
vera í New York! en Ps1/Warm Up
stendur alveg upp úr. Þetta eru
viðburðir í samstarfi við MOMA-
listasafnið sem er í Long Island
City. Þarna spila hljómsveitir
og plötusnúðar úti í garðinum
frá kl 15-21 alla laugardaga og
svo er auðvitað hægt að skoða
skemmtileg listaverk innandyra.
BESTU VEITINGASTAÐIRNIR Í
BORGINNI? Það eru að sjálf-
sögðu margir frábærir veitinga-
staðir hér en í uppáhaldi hjá
mér eru Cafe Mogador, sem er
fransk-marókkóskur veitingastur
þar sem allt er lífrænt og gott.
Hann er líka verulega kósý. Hinn
staðurinn heitir Casamire en þar
er mjög góður matur og hægt að
sitja úti í garði á sumrin. Þessir
staðir eru báðir í East Village þar
sem ég bjó í nokkurn tíma.
NÝJASTA UPPGÖTVUNIN ÞÍN?
Ég er nýbúin að uppgötva
skemmtilegan stað til að fá
sér kokteil á! The Metropolitan
Museum of Art, betur þekkt sem
MET, er með skemmtilegan þak-
garð og þaðan er magnað útsýni
yfir Central Park.
BESTI STAÐURINN FYRIR BÖRN?
Hayden Planetarium er alltaf
spennandi fyrir börn en þar er
hægt að fræðast um himingeim-
inn. Svo er oft gaman að taka
krakkana í Central Park, hann
hefur upp á svo margt að bjóða,
dýragarð og margt fleira.
HVAÐ HEFUR KOMIÐ ÞÉR MEST
Á ÓVART VIÐ NEW YORK? New
York er alltaf að koma mér á
óvart. Ég fæ aldrei nóg af því að
búa hérna og samt er ég búin að
vera hérna í fimm ár.
SKEMMTILEGASTA DAGSFERÐ-
IN? Mér finnst rosa gaman að
leigja mér bíl um helgar og skella
mér á ströndina. Jones Beach er
góð. Annars er gaman að rölta
um bæinn, skella sér á listasöfn
og flóamarkaði og svo framvegis.
HEIMAMAÐURINN
New York
EDDA PÉTURSDÓTTIR, FYRIRSÆTA
NÓTT Í FANGELSI
Hostel Celica í Ljubljana er ódýr og listræn reynsla
Í maí er sólin komin hátt á loft í London og borgarbúar
þyrpast að bökkum Thames-ár þar sem hægt er að njóta
gönguferða, setjast á krá, skoða söfn eða slappa af í sólinni.
Enn sniðugra er að skreppa í bátsferð og skoða sögufrægar
byggingar, allt frá þinghúsinu upp í London Eye séð frá ánni.
Fyrirtækið Get Afloat býður upp á allar bátsferðir á hálfvirði
í maímánuði og hægt er að hoppa upp í hvar sem er á þeim
346 kílómetrum sem Thames-á spannar. Til dæmis er rakið
að sigla upp til Windsor-kastala og sjá ögn af breskri sveita-
sælu í leiðinni.
SIGLDU UPP ÁNA THAMES
Kynntu þér nýjustu straumana í dönskum og alþjóðlegum
arkitektúr og hönnun – og njóttu danska vorsins!
Arkitektúr- og hönnunardagar
í Kaupmannahöfn
www.icelandexpress.is
með ánægju
Wonderful Copenhagen stendur fyrir arkitektúr- og hönnunardögum
í Kaupmannahöfn, dagana 16.–18. maí. Í boði eru um 50 viðburðir,
m.a. innlit á frægar arkitektastofur, partý í metró-hjólageymslunni,
kynning á götumenningarhúsinu StreetMekka og kynnisferð um nýja
Konunglega leikhúsið í Kaupmannahöfn. Ókeypis er inn á viðburðina.
Dagskrá er að finna á www.cphadd.com
Bókaðu
núna!