Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.04.2008, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 27.04.2008, Qupperneq 4
4 27. apríl 2008 SUNNUDAGUR GAZA Fjórtán ára stúlka dó og átta manns særðust í átökum sem brutust út milli hersveita Ísraelsmanna og Palestínumanna í gær. Átökin brutust út í borginni Beit Lahia nokkrum klukkustund- um eftir að Ísraelar höfnuðu boði Hamassamtakanna um vopnahlé. Hersveit Ísraelsmanna réðst inn í borgina fyrir dögun, en talið er að hún hafi ætlað að ráðast á leiðtoga Hamas á svæðinu, Hassan Marouf. Hersveit Hamassamtakanna og sveit heittrúaðra múslima mættu þeim með skothríð og heimagerð- um sprengjum. - rat Átök á Gazasvæðinu: Fjórtán ára stúlka drepin SAMGÖNGUMÁL Félag Vinstri grænna í Stykkishólmi hefur sent Kristjáni Möller samgönguráð- herra áskorun þess efnis að ganga nú þegar til samninga við Sæferðir, vegna ferða Breiða- fjarðarferjunnar Baldurs yfir Breiðafjörð, milli Stykkishólms og Brjánslækjar. Í tilkynningu segir að ferðirnar, sem að óbreyttu muni fækka á næstunni og falla líklega alveg niður árið 2009, séu gríðarlega mikilvæg samgönguleið fyrir vöru- og fólksflutninga milli Vestfjarða og Snæfellsness. Félagið hvetur ráðherra til að grípa strax til aðgerða til að tryggja óbreytta þjónustu. - kg Vinstri græn í Stykkishólmi: Skora á sam- gönguráðherra Sprengt í Kólombó Sprengja sem falin var í farangursneti í strætisvagni í úthverfi höfuðborgar Srí Lanka, Kólombó, varð í gær 24 óbreyttum borgurum að bana og særði fjörutíu aðra. Talsmenn stjórn- arhersins fullyrtu að uppreisnarmenn Tamíla bæru ábyrgð á tilræðinu. SRI LANKA Handtökur Breska rannsóknarlögreglan Scotland Yard upplýsti í gær að hún hefði handtekið þrjá menn í Lundúnum í gærmorgun. Mennirnir væru á aldrin- um 23-25 ára og grunaðir um að vera viðriðnir undirbúning hryðjuverka. BRETLAND Í frétt af samningstilboði ríkisins til BSRB, BHM og Félags framhaldsskóla- kennara í blaðinu í gær var ranglega hermt hver desemberuppbótin ætti að vera. Samkvæmt tilboðinu verður desemberuppbótin 44.100 krónur á þessu ári, 45.600 á því næsta og 46.800 krónur á þarnæsta ári. LEIÐRÉTTING FASTEIGNAMARKAÐUR „Þetta er orðið ófremdarástand fyrir fólk sem hefur minna milli handanna. Það er alvarlegt þegar fjölskyldur geta ekki keypt sér fasteign,“ segir Ingi- björg Þórðardóttir, formaður Félags fasteignasala. 51 kaupsamningi var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í vikunni sem leið, þeirri næstrólegustu á fast- eignamarkaði það sem af er ári. Á sama tímabili í fyrra voru viðskipti tæplega fjórum sinnum meiri. „Frá áramótum hefur verið helm- ings samdráttur eða rösklega það,“ segir Ingibjörg. „Þetta endurspegl- ar lánatregðu bankanna, háa vexti og spá Seðlabankans um þrjátíu prósenta lækkun á húsnæðismark- aðnum, sem er ekki nokkur fótur fyrir. Það er ekki óeðlilegt að í þessu andrúmslofti dragi úr við- skiptum.“ Ingibjörg hvetur til afnáms stimpilgjalda og hækkunar lána Íbúðalánasjóðs. „Lán Íbúðalána- sjóðs hafa staðið í stað í fjögur ár og hafa ekkert hækkað. Lánin mið- ast við brunabótamat sem hefur dregist aftur úr söluverði fast- eigna,“ segir Ingibjörg. „Ég kalla bara eftir einhverjum viðbrögðum frá yfirvöldum.“ - sgj 51 kaupsamningi þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í vikunni sem leið: Alvarlegt mál fyrir fjölskyldur INGIBJÖRG ÞÓRÐARDÓTTIR Hún segir að helmings samdráttur hafi orðið á fasteignamarkaði frá áramótum. VEÐURSPÁ Kaupmannahöfn Billund Ósló Stokkhólmur Gautaborg London París Frankfurt Friedrichshafen Berlín Alicante Mallorca Bassel Eindhoven Las Palmas New York Orlando San Francisco HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 17° 17° 14° 12° 14° 18° 21° 21° 23° 21° 23° 19° 22° 24° 17° 30° 19° 14° Á MORGUN Norðlæg átt ÞRIÐJUDAGUR N-átt, hvassast við vesturströndina -2 -5 0 7 2 4 4 1 8 8 8 7 0 0 5 6 8 6 2 2 5 2 0 17 5 5 5 2 3 3 -1 ÁFRAMHALDANDI NORÐANÁTT á öllu landinu í dag, kóln- ar sunnanlands en hlýnar örlítið fyrir norðan þó hiti fari ekki mjög hátt upp fyrir frostmark. Úrkoma verður að mestu bundin við N- hluta landsins. Éljagangur eða slydda. Elín Björk Jónsdóttir Veður- fræðingur SKIPULAGSMÁL Zimsenshúsið sem stóð í tæp 120 ár við Hafnarstræti 23 fær nýjan samastað um mánaðamót- in júní og júlí. Minjavernd mun ann- ast endurbyggingu þess á lóð Vest- urgötu 2a þar sem lengi hefur verið bílastæði. Minjavernd og Reykjavíkurborg gerðu með sér samkomulag um framtíð hússins og í samvinnu þeirra var nýr samastaður fundinn húsinu. Þorsteinn Bergsson, framkvæmda- stjóri Minjaverndar, segir að að lok- inni endurgerð hússins verði það selt og er ætlast til þess að kostnaður Minjaverndar og borgar skili sér þá til baka. Mikið verði lagt í endurupp- byggingu hússins og séð til þess að saga þess og umhverfis skili sér sem best til þeirra sem það skoða um leið og það uppfylli kröfur samtímans um aðgengi og nýtingu. Burðarvirki hússins verði í höfuð- atriðum óbreytt en það er með hefð- bundnum hætti timburhúsa 19. aldar. Kjallari hússins verði endur- hlaðinn úr sama grágrýti og í svip- aðri mynd og var við Hafnarstræti en lofthæðin nokkuð aukin og því bætt við hleðslusteinum sem komið hafa upp á byggingarsvæðinu þar sem Tónlistar- og ráðstefnuhúsið kemur til með að rísa. Á kjallara- hæðinni verður veitingarými, á fyrstu hæð verður fyrirkomulag sem á að nýtast verslunar- eða þjón- ustufyrirtæki og á efstu hæð verður skrifstofurými. Við vesturhlið húss- ins verður viðbygging með stiga og lyftu. Þorsteinn segir að fyrst hafi verið lagt upp með að viðbyggingin yrði úr timbri en við nánari skoðun hafi þótt réttara að byggja hana úr stálbitum og gleri og fyrirkomulag- ið og hönnun þess svipað því sem Bretar og Bandaríkjamenn hafa not- ast við í uppbyggingu verndaðra húsa. Göngubrú verður að Lista- safni Reykjavíkur sem mun standa á móti Zimsenhúsinu þegar það verður flutt á nýjan samastað. karen@frettabladid.is Zimsenshúsið á nýjan stað Zimsenshús var reist við Hafnarstræti árið fyrir 120 árum og stóð þar til ársins 2006. Síðan þá hefur það staðið autt í Örfirisey. Stefnt er að því að það verði flutt í Grófina eða á horn Vesturgötu og Tryggvagötu. NÝR STAÐUR Húsið verður vestast á lóðinni með lang- hlið að Grófinni. Austast á lóðinni verður gangstígur milli Vesturgötu og Tryggvagötu. Nyrðri hlutinn verður um 45 sentimetrum hærri en gangstígurinn og verður þar komið fyrir tröppum úr tilhöggnu grágrýti sem var við húsið þegar það stóð við Hafnarstræti. Undir þeim hluta lóðarinnar verður eldhúsviðbygging. MYND/MINJAVERND VIÐBYGGING ÚR GLERI OG STÁLI Við vesturhlið hússins verður ný viðbygging með stiga og lyftu. Gengið verður inn í stigahúsið frá gangstétt og fært verður fyrir hjólastóla á allar hæðir. Burðargrind stigahússins verður úr stáli en veggir úr gleri í stálrömmum sem unnir eru á sérstakan hátt í Bretlandi og hafa mikið verið notaðir við enduruppbyggingu verndaðra húsa í Bretlandi og Bandaríkjun- um. MYND/MINJAVERND TENGING VIÐ FORTÍÐ OG FRAMTÍÐ Í syðri hlutanum verður steinsteypt þró sem nær niður að fjöruborðinu eins og það var um og fyrir aldamótin 1900. Opin ráðs verður úr gryfjunni út í sjó þannig að sjávarföll verða í henni. Þróin mun ná að lóðarmörkum að austan en þar kom í ljós gamall hafnarkantur við fornleyfaupp- gröft í fyrra sem hlaðinn er úr grágrýti og verður hann látinn njóta sín við enduruppbyggingu Zimsenshússins. MYND/MYNJAVERND VIÐ HAFNARSTRÆTI Zimsenshúsið hefur staðið autt úti í Örfrisey frá árinu 2006. Nú líður að því að það verði endurbyggt á móti Listasafni Reykjavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI GENGIÐ 25.04.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 147,9984 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 73,53 73,89 146,07 146,79 114,69 115,33 15,366 15,456 14,304 14,388 12,281 12,353 0,7039 0,7081 119,59 120,31 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR Blaðberum Fréttablaðsins fjölgar um 30.000
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.