Fréttablaðið - 27.04.2008, Page 54
ATVINNA
27. apríl 2008 SUNNUDAGUR2618
Öfl ugur verkstjóri á byggingasviði
Leitum að öfl ugum verkstjóra í fullt starf hjá ört
vaxandi byggingafyrirtæki sem staðsett er á
höfuðborgarsvæðinu.
Hæfniskröfur:
Réttindi sem húsasmíðameistari
Reynsla af verklegum framkvæmdum
Reynsla af mótauppslætti
Skipulögð vinnubrögð
Enskukunnátta
Hæfni í mannlegum samskiptum
Umsóknum skal skilað á box@frett.is merkt “Verkstjóri”
Helicopter Service of Iceland is look-
ing for pilots
Pilots must meet the following minimum requirements:
Valid commercial pilot license and a valid IR rating on multi
engine helicopters. Frozen ATP(H) written and a 1st class
medical. 1000 hours total time on helicopters, 300 hours
turbine time. Be punctual and work well with others.
Experience on twin engine helicopters is preferred.
The application shall include copies of pilot license and
ratings, including medical. Copy of graduation certifi cates;
including test results for theoretical pilot training. A new copy
of criminal record and a copy of the last 100 hours from the
pilot logbook as stated here:
o Total fl ight time
o IFR time (including actual time)
o Total PIC time
o Total multi engine time
o Total fl ight instructor time
HSI has been fl ying helicopters since 1989, both in Iceland
and abroad.
If you are interested in working with us continuing to build a
successful company, please send us your application before
7 May to helicopter@helicopter.is
Applicants need to be prepared to take an admissions test
during the next few weeks, if required.
All applications will be treated as confi dential.
Helicopter Service of Iceland
Fluggardar 23
101 Reykjavik
www.helicopter.is
Þyrluþjónustan leitar að fl ugmönnum
Flugmenn þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
Hafa gilt atvinnufl ugmannsskírteini og blindfl ugsáritun í gildi
fyrir 2ja hreyfl a þyrlur og læknisskoðun I. fl okks. Bóklegt nám
til réttinda atvinnufl ugmanns I. Flokks. 1000 fartíma á þyrlur,
300 tíma á túrbínu þyrlur. Stundvísi, reglusemi og lipurð í
mannlegum samskiptum.
Reynsla á tveggja hreyfl a þyrlur er kostur.
Með umsóknunum skal fylgja afrit af fl ugmannsskírteini
ásamt áritunum og heilbrigðisvottorði. Afrit af prófskírteini
ásamt einkunnum fyrir bóklegt fl ugnám. Nýtt sakavottorð og
afrit af síðustu 100 klst. í fl ugdagbók. Sundurliðun fl ugtíma
skal vera eins og hér segir:
o heildarfl ugtími
o blindfl ugstími (við blindfl ugsskilyrði)
o fl ugtími sem fl ugstjóri
o fl ugtími á fjölhreyfl a þyrlur
o fl ugtími sem fl ugkennari
Þyrluþjónustan hefur verið í þyrlurekstri samfl eytt síðan 1989,
bæði á Íslandi og erlendis.
Ef þú hefur áhuga á að vinna með okkur að áframhaldandi
framgangi,
sendu okkur starfsferilsskrá fyrir 7. maí næstkomandi á
helicopter@helicopter.is
Umsækjendur þurfa að geta gengist undir inntökupróf á
næstu vikum verði þess óskað.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Þyrluþjónustan
Fluggörðum 23
101 Reykjavíkurfl ugvöllur
www.helicopter.is
Auglýsingasími
– Mest lesið
Tómas Hermannsson út-
gáfustjóri hjá Sögum ehf
er með tvíþættan rekstur
þar sem auglýsingavörur
og menning fer saman.
„Fyrirtækið Sögur ehf var
stofnað fyrir þremur árum
síðan. Við erum með bóka-
og tónlistarútgáfu auk þess
sem við þjónustum fyrir-
tæki með auglýsingavör-
ur og köllum það fyrirtæki
Mýs,“ segir Tómas Her-
mannsson, útgáfustjóri,
sem einnig heldur úti síð-
unni www.baekur.is þar
sem bækur og tónlist útgáf-
unnar eru í boði.
Starfsmenn eru fjórir og
eru auk Tómasar Jóhann
Friðrik Ragnarsson fram-
kvæmdastjóri, Hrafn Sabir
Kahn sölustjóri og Hannes
Adam Guðmundsson, sem
sér um lager og dreifingu.
„Ég er titlaður sem út-
gáfustjóri en vinnan mín
snýst um að selja vörur
og hugmyndir. Ég myndi
meira að segja sennilega
selja mömmu fyrir sann-
gjarnt verð,“ segir Tómas
og bætir við að Mýs selji
allt frá sérmerktu M&M
súkkulaði upp í sérmerkta
hoppukastala. Bóka- og tón-
listarútgáfan er einnig fjöl-
breytt að sögn Tómasar
sem í fyrra gaf út metsölu-
bók Óttars Norðfjörð, Hníf
Abrahams.
„Við stefnum á að gefa
út fimmtán bækur í ár. Þar
má nefna nýja bók Óttars
M. Norðfjörð, Á slóð sólk-
rossins. Ég var einmitt að
klára hana og hún er í einu
orði sagt frábær,“ segir
Tómas og heldur áfram:
„Síðan er Þráinn Bertels-
son með nýja bók hjá okkur
sem heitir Bræður og syst-
ur og það er heiður að fá að
vinna með rithöfundi eins
og Þráni. Síðan erum við
að fara í spennandi verk-
efni með Jónu Á. Gísladótt-
ur sem er einn þekktasti
bloggari landsins. Hún fær
3-5.000 lesendur daglega og
við ætlum að gefa út bók
eftir hana sem ég held að
muni vekja athygli.“
Tómas er einnig á kafi í
tónlistinni og er að vinna
með ýmsum landsþekkt-
um tónlistarmönnum. Hann
ætlar að gefa út nokkra
geisladiska á árinu. „Ferð
án fyrirheits er næsti
geisladiskur sem við gefum
út. Nafnið er sótt í eina af
ljóðabókum Steins Stein-
arrs. Samhliða útgáfunni
stöndum við fyrir tónleika-
röð sem hefst í Íslensku
óperunni 29. og 30. maí.
Síðan verður farið víða um
land með þetta listræna af-
kvæmi,“ segir Tómas.
Tónlistarmaðurinn Jón
Ólafsson er hugmynda-
smiðurinn á bakvið verk-
efnið Ferð án fyrirheits.
Hann hefur einnig samið
ný lög ásamt Sigurði Bjólu
við kvæði Steins og verða
þau frumflutt á tónleik-
unum. Einnig verða flutt
gömul og góð lög á borð við
Barn, Ræfilskvæði, Verka-
maður, Það vex eitt blóm
fyrir vestan og Hudson
Bay í flutningi KK, Ellen-
ar Kristjánsdóttur, Helga
Björnssonar, Þorsteins Ein-
arssonar (Hjálmum), Hild-
ar Völu og Svavars Knúts
(Hraun).
„Í ár eru liðin 100 ár frá
fæðingu Steins Steinarrs
og 50 ár síðan hann lést.
Hann er samt ennþá flott-
asti rokkari landsins og
mér finnst það mjög svalt,“
útskýrir Tómas sem finnst
eiginlega alltaf skemmti-
legt í vinnunni.
„Það erfiðasta við starfið
eru kannski stundum mikl-
ar annir og langir vinnudag-
ar. Það besta er hins vegar
fjölbreytnin, að starfa með
skemmtilegu fólki og fást
við mitt helsta áhugamál
daglega í vinnunni,“ segir
Tómas. rh@frettabladid.is
Menning, falar
mæður og mýs
Tómasi finnst nánast alltaf skemmtilegt í vinnunni. Framundan eru
fimmtán bækur sem koma út og tónlist við kvæði Steins Steinarrs.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki