Fréttablaðið - 27.04.2008, Síða 73

Fréttablaðið - 27.04.2008, Síða 73
SUNNUDAGUR 27. apríl 2008 17 og héraðsstjórn á móti sér og – þangað til nýlega að minnsta kosti – ríkisstjórnina líka, segir Pereira að með hverjum deginum vinni málstaður þeirra ný lönd. „Og nú er borgarstjórnin farin að nötra út af þessu. Nýlega sagði meira að segja einn fulltrúi komm- únista, sem stjórna borginni með jafnaðarmönnum, að taka yrði mark á niðurstöðu kosninganna! Það er því borgarstjórinn einn sem lætur eins og flugvöllurinn fari, burtséð frá kosningunum [sem eru ekki bindandi]. Enda eru rökin okkar megin. Við höfum reiknað út að það sé vel hægt að reka þennan flugvöll með hagkvæmum hætti eins og City- flugvöllinn í London,“ segir Per- eira. Andstæðingarnir hafi hins vegar ekki hugsað lengra en svo að þeir vilji völlinn burt og almenningsgarð í staðinn. Þeir hafi engan fjárfesti til að hrinda þeim áætlununum í framkvæmd. „Og svo er einungis hægt að selja hluta landsins undir hús- næði. Það má ekki gleyma því að þetta hefur verið flugvöllur í átta- tíu ár [síðan 1923] og þarna hefur verið athafnasvæði hersins. Jarð- vegurinn er því án efa mengaður. Það er ekki ókeypis að hreinsa hann upp.“ Spurningin er því hvað hinn vin- sæli borgarstjóri Berlínar geri, takist kosningavél flugvallarsinna að fá Berlínarbúa til að ganga gegn vilja hans. Ákvæði um slíkar borgarakosn- ingar eru nýmæli í lögum Berlín- ar og því lítil reynsla af þeim. Þær voru bannaðar samkvæmt stjórnarskrá Þýskalands eftir seinna stríðið. Spurningin er hvort lýðurinn fái að ráða, til góðs og ills. TÓMLEG FLUGSTÖÐ HITLERS Farþegum fækkar stöðugt á Tempelhof-velli og fer nú lítið brot flugumferðar borgarinnar um hann. FRÉTTABLAÐIÐ/KLEMENS Snyrtivörurisinn Estée Lauder bauðst til þess árið 2006 að breyta Tempelhof-flugstöðinni í einkarek- ið sjúkrahús. Halda átti eftir einni flugbraut þar sem auðugir sjúklingar gætu lent og komist snögglega undir læknishendur. Þetta var hugmynd Ronalds S. Lauder, erfingja að Lauder-veldinu, en hann er einnig þekktur fyrir að vera forseti heimsþings gyðinga. Maðurinn sem þannig reyndi að kaupa flugvöll Hitlers er frægur fyrir að hafa kostað meðal annars endurbætur á Auschwitz-útrýming- arbúðunum og að styrkja háskóla gyðinga. Ef til vill var hugsunin sú að breyta þessu tákni þriðja ríkisins og eyðileggingarinnar sem því fylgdi í huggulegt hjúkrunar- og uppbygg- ingarrými fyrir gyðinga. HEFND GYÐINGSINS RONALD GEFUR PÁFANUM GJÖF Hugsanlega ætlaði Ronald S. Lauder að stríða nasistunum með því að gera mikilmennskubrjálæðislegan flugvöll Hitlers að sjúkrahúsi. NORDICPHOTOS/AFP LANDSVÆÐI TEMPELHOF FLUGVALLARINS Eins og sjá má á myndinni er mikið landsvæði sem fer undir flugvöllinn, en í dag er kosið um framtíð hans í Berlín. NORDICPHOTOS/AFP IÐJUÞJÁLFUN H E I L B R I G Ð I S D E I L D Háskólinn á Akureyri er eina íslenska menntastofnunin sem býður upp á nám í iðjuþjálfun. Áherslur og námsefni eru sótt til iðjuvísinda, heilbrigðis- vísinda, raunvísinda og félagsvísinda. Nýtt – Fjarnám haustið 2008 Frá og með haustinu 2008 verður boðið upp á fjarnám í iðjuþjálfun. Með þessu móti verður hægt að stunda námið hvar sem er á landinu. Allt námsefni verður aðgengilegt á vefnum, auk þess sem fjarnemar koma í kennslulotur á Akureyri. Í lotunum sækja fjarnemar kennslustundir með staðarnemum þar sem megináhersla verður lögð á verklega þjálfun og umræður. Ólafur Örn Torfason, Forstöðumaður áfangaheimila fyrir geðfatlaða á Akureyri Ég var mjög ánægður með námsdvöl mína í HA, bæði hvað varðar námið og félagslífið. Námið var fjölbreytt og skemmtilegt og býður upp á fjölbreytta starfsmöguleika eftir útskrift. Kynntu þér nám í iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri á www.haskolanam.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.