Fréttablaðið - 27.04.2008, Síða 79
SUNNUDAGUR 27. apríl 2008 23
Pete Wentz,
hljómsveitarmeð-
limur Fall Out
Boy og kær-
asti Ashlee
Simpson,
vakti
athygli á
þeim hörm-
ungum sem
námugröft-
ur eftir
demöntum
hefur valdið
í Kongó, þar
sem coltan-
demantar eru
notaðir til að
fjármagna stríðsrekstur, á NME-
verðlaunahátíðinni í vikunni. „Fólk
verður að passa hvað það kaupir,“
sagði Wentz, og ítrekaði að trúlof-
unarhringurinn sem hann keypti
nýlega handa unnustu sinni væri
ekki prýddur slíkum demöntum.
Carmen Electra hefur
tekið bónorði kær-
asta síns, rokkarans
Robs Patterson, en
hann bað fyrirsæt-
unnar um síðustu
helgi, þegar
parið fagnaði
36 ára afmæli
hennar í Las
Vegas. Hjóna-
bandið verður
hið þriðja á
ferli Electra,
sem var áður
gift körfubolta-
kappanum
Dennis Rod-
man og rokk-
aranum Dave
Navarro.
Fyrirsætan ku
einnig hafa
hug á að stofna
fjölskyldu með
Patterson sem
allra fyrst.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Claire Danes
verður nýtt andlit
fyrir skartgripa-
línu Gucci-tísku-
hússins, og
kemur þannig
í stað Drew
Barrymore.
Danes kveðst
stolt af því að
vinna með
Gucci, og
segist dást
að Fridu Giannini, sem er listrænn
stjórnandi tískuhúss-
ins. Þetta er ekki í
fyrsta skipti sem
Danes situr fyrir,
en í fyrra kom hún
fram í sjónvarps-
auglýsingum fyrir
fataverslanirn-
ar GAP.
Tónlistarkon-
an Fergie
kveðst hafa
verið him-
inlifandi að
hafa verið
beðin um
að syngja
titillag
væntan-
legrar Sex
and the
City–kvik-
myndar.
Hún segir
það hafa verið
mikinn heiður, þar
sem hún og móðir
hennar séu miklir
aðdáendur þátt-
anna. Fergie segir
lagið, Labels and
Love, hæfa myndinni
gjörsamlega, þar sem
það sé einhvers konar
ástarþríhyrningur á milli
ástar, vina og tísku.
Stefnt er að því að hefja tökur í vetur á
kvikmynd sem byggir á bók Mikaels Torfa-
sonar, Fölskum fugli. Leikstjóri er Þór
Ómar Jónsson. Fjármögnun er komin vel á
veg.
„Það hittist svo skemmtilega á að Mikki var að
endurútgefa bókina. Handritið er tilbúið og við ætlum
að reyna að fara í tökur í vetur. Sagan gerist einmitt í
kringum jólin,“ segir Jón Atli Jónasson rithöfundur
með meiru.
Til stendur að gera kvikmynd sem byggir á bók
Mikaels Torfasonar, Fölskum fugli, sem kom út fyrir
tíu árum. Þótti hún marka tímamót. Jón Atli, sem
skrifar handritið, segir fjármögnun komna vel á veg
en Þór Ómar Jónsson mun leikstýra myndinni. Þetta
er hans fyrsta mynd í fullri lengd en Þór Ómar er hins
vegar enginn nýgræðingur í kvikmyndagerð. Hann
hefur starfað sem aðstoðarleikstjóri og eftir hann
liggur fjöldi auglýsinga. Jón Atli segir það hafa verið
lengi í deiglunni að ráðast í gerð kvikmyndar sem
byggi á Fölskum fugli.
„Þetta er kröftug bók og handritið heppnaðist vel.
Þegar bókin kom út var það ákveðin bylting. En efni
hennar á alveg jafn vel við núna, ef ekki betur. Hún er
sprottin upp úr veruleika sem enn er. Við höfum séð
dæmi þess að ungt fólk sem á framtíðina fyrir sér,
skortir ekkert, hvorki menntun né góðar fjölskyldu-
ástæður, leiðist út í tóma vitleysu. Íslenskur fjöl-
skylduharmleikur sem verður til í samskiptaleysi og
tómarúmi. Steypan sem er í gangi er svakaleg.
Hvaðan kemur allt þetta ofbeldi? spyr Jón Atli.
Handritshöfundurinn segir ekki búið að skipa í hlut-
verk, segir það geta reynst slungið því bókin
fjallar um unglinga.
Mikael segir bókina ekki hafa verið skrifaða
með það í huga að hún yrði kvikmynduð. Bækur
eru miskvikmyndavænar og það hafi ekki runn-
ið upp ljós fyrr en eftir á að Falskur fugl
væri vel til þess fallin að byggja kvik-
mynd á. „Ég hugsaði reyndar að ég væri
að skrifa bók fyrir mína kynslóð,
kvikmyndakynslóð sem upplifir
veröldina myndrænt. Samúel er til
dæmis þannig að það er nánast ekki hægt
að kvikmynda hana en þessi er spenn-
andi. Hardcore. Hún fjallar um Arnald
Gunnlaugsson, hefndaraðgerðir og
hefndarhug hans í garð kennara sem hann telur bera
ábyrgð á dauða bróður síns.“
Mikael og Jón Atli eru félagar frá fornu fari og
voru meðal annars saman með útvarpsþátt á gamla X-
inu sem hét 5. janúar. Sjálfur hefur Mikael fengist við
kvikmyndagerð og leikstýrði einni bíómynd sem hét
Gemsar og var sýnd í kvikmyndahúsum árið 2002.
„Nei, ég myndi ekki segja að sú mynd sé skyld
Fölskum fugli. Það var meira tilraunakennt
„arthouse“ meðan Falskur fugl verður örugglega
„blockbuster“-spennumynd,“ segir Mikael. Hann
hefur nú stofnað nýtt bókaforlag og fyrsta bókin
sem það gefur út er einmitt Falskur fugl. „Já, ég
er að gefa hana út í tilefni þess að nú eru tíu ár
síðan hún kom út. Bókin hefur verið ófáanleg
árum saman. Þetta er fyrsta bók nýs
forlags sem ég á og tilvalið að gefa hana út
fyrsta bóka því Falskur fugl er fyrsta
bókin sem ég hef skrifað af fjórum.“
jakob@frettabladid.is
Falskur fugl á hvíta tjaldið
MIKAEL TORFASON Falskur fugl verður örugglega „blockbust-
er“-spennumynd að sögn höfundar sem nýverið endurútgaf
bókina undir merkjum nýs forlags. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
JÓN ATLI Við höfum mörg dæmi þess að
unglingar, sem eigi framtíðina fyrir sér og
skorti ekkert, leiðist út í tóma vitleysu.
FRÉTTIR AF FÓLKI