Fréttablaðið - 04.06.2008, Qupperneq 1
Verðbólga í OECD | Ársverð-
bólga í aðildarríkjum Efnahags- og
framfarastofnunarinnar (OECD)
var 3,4 prósent í apríl, miðað við
3,5 prósent í mars. Í nýbirtum
tölum kemur fram að mest var
verðbólgan hér 11,7 prósent, en
minnst í Japan, 0,8 prósent.
Bankar í Ameríku | Búist er
við að bandaríski bankinn Lehman
Brothers tapi allt að 300 milljón-
um Bandaríkjadala á öðrum fjórð-
ungi þessa árs. Það yrði fyrsta
tapið frá skráningu bankans á
markað. Fjármögnunarþörf bank-
ans er sögð kunna að nema þrem-
ur til fjórum milljörðum dala.
Fasteignir í Hong Kong | Fast-
eignaverð í Hong Kong í Kína féll
um 24,4 prósent milli ára í ný-
liðnum mánuði, að því er Forbes
greinir frá. Þá hefur velta einnig
minnkað, um 7,4 prósent frá fyrra
mánuði og um 22,6 prósent miðað
við maí í fyrra.
Flug í Evrópu | Ryanair, eitt
stærsta lágjaldaflugfélag Evrópu,
segir rekstur geta staðið í járn-
um fari olíuverð ekki yfir 130 dali
á tunnuna. Félagið kynnti í gær
fimmtungs hagnaðaraukningu á
síðasta rekstrarári, sem lauk í
mars.
Aukin vefverslun | Viðskipti á
netinu blómstra í Bretlandi þrátt
fyrir að horfur í efnahagslífinu
þyki dökkar. Breska ríkisútvarpið
vitnar í nýja skýrslu þar sem fram
kemur að í fyrra hafi verið versl-
að á netinu fyrir 14,7 milljarða
punda, 35 prósentum meira en
árið áður.
14
6
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 4. júní 2008 – 23. tölublað – 4. árgangur
8-9
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
H E L S T Í Ú T L Ö N D U M
Ingimar Karl Helgason
skrifar
„Það er aukin eftirspurn eftir lánum,“ segir Þor-
björg Guðnadóttir, deildarstjóri lánadeildar Líf-
eyrissjóðs starfsmanna ríkisins.
Hún bendir á að í apríl hafi útlán sjóðsins numið
um 800 milljónum króna, sem er tvö til þrjú hundr-
uð milljónum króna meira en að jafnaði mánuðina
á undan. Ekki eru komnar tölur fyrir maí. „Þetta
er greinilega stökk upp á við,“ segir Þorbjörg.
„Það hefur orðið einhver aukning í þessum al-
mennu sjóðfélagalánum eftir að bankarnir lokuðu
á lán,“ segir Árni Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Gildis lífeyrissjóðs. Hann segir eitthvað um
að lán séu nú hærri en áður.
Sigurbjörn Sigurbjörnsson, framkvæmdastjóri
Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda, segir að þar á bæ
finni menn fyrir „ágætis eftirspurn“ en segir fátt
meira.
Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Al-
menna lífeyrissjóðsins, segir að mikil eftirspurn
hafi verið eftir lánum sjóðsins. „Þetta byrjaði
raunar í fyrra. Þá lánuðum við ríflega fjóra
milljarða króna, en heildarlánin árið áður námu
um einum og hálfum milljarði.“
Arnaldur Loftsson hjá Frjálsa lífeyrissjóðnum
segir að einhver aukning hafi verið í lánum, en þó
ekki mikil.
Gylfi Magnússon, dósent við viðskipta- og hag-
fræðideild Háskóla Íslands, segir ekki undarlegt
að mikið sé spurt eftir lánum hjá lífeyrissjóðum,
enda hafi bankarnir nánast lokað útlánadeildum
í bili. „Innstreymi í lífeyrissjóðina hefur ekkert
minnkað þannig að þeir þurfa sem fyrr að fjár-
festa jafnt og þétt og gera það ýmist með útlán-
um eða kaupum á verðbréfum. Þeir hafa því svig-
rúm til að lána fé, beint eða óbeint, með kaupum á
skuldabréfum, og það er enn mikilvægara nú en á
undanförnum árum að þeir haldi því áfram.“
Lífeyrissjóðir lána sjóðfélögum gegn veði og
fer veðhlutfallið yfirleitt upp að 65 prósentum af
fasteignamati eða sölumati löggilts fasteignasala.
Venjulega er ekkert hámark á lánum, nema það
takmarkast af veðrými. Veðhlutfall lífeyrissjóð-
anna nú er orðið ekki mikið lægra en hjá bönkun-
um.
Sjá Veðhlutfall … síðu 2
Stórt stökk upp á við
hjá lífeyrissjóðunum
Sjóðfélagalánum lífeyrissjóða hefur fjölgað síðustu vikur og
upphæð þeirra hækkað. Aukin eftirspurn eftir lánum segja
margir. Dósent við Háskólann segir þetta ekki koma á óvart.
Vistvænn
kostur!
Tíma - og verkskráning
Flotastýring og eftirlit
www.trackwell.com
Marel
Framtíð í
kjúklingi
Atvinnuhorfur stúdenta
Þrengingar í
haust
„Truflanir í uppfærslu á við-
skiptakerfi okkar í Svíþjóð ollu
töfum,“ segir Þórður Friðjóns-
son, forstjóri Kauphallarinnar.
Seinkun var á opnun Kaup-
hallar Íslands í gær. Fyrir slétt-
um þremur mánuðum var einnig
bilun á kerfi Kauphallarinn-
ar sem olli klukkutímaseinkun
á opnun hennar. Ástæðuna má
rekja til tæknilegra erfileika í
viðskiptakerfinu Saxess. Kerfið,
sem er samnorrænt, olli einnig
seinkunum á Norðurlöndunum í
fyrradag. Komið var fyrir bil-
unina áður en viðskipti hófust á
hlutabréfamarkaði hér og varð
hennar því ekki vart hér.
Þórður segir viðskiptakerfið
alla jafna mjög stöðugt og muni
hann ekki eftir því að kerfið hafi
brugðist tvo daga í röð síðan
hann kom til starfa í Kauphöll-
inni.
Nokkurrar óánægju gætir
meðal fjárfesta á Norðurlöndun-
um með þá tæknilegu erfiðleika
sem hafa verið undanfarna daga.
Claes Hemberg, hagfræðingur
við Avanza Bank í Stokkhólmi
segir ekki traustvekjandi þegar
nýtt kerfi virki ekki. - bþa
Bilun í
Kauphöllinni
„Menn féllu í bjartsýnisgryfju
eftir uppgjör fyrsta ársfjórð-
ungs,“ segir Kristján Bragason,
sérfræðingur hjá greiningar-
deild Landsbankans. Deildin er
svartsýn á horfur á norrænum
mörkuðum í nýju áliti sem hún
sendi frá sér á mánudag.
Þar kemur fram að mikil verð-
bólga samhliða háu olíuverði
muni koma niður á norrænum
hlutabréfamörkuðum. Gert sé
ráð fyrir nokkrum sveiflum það
sem af er ári. Á heildina litið
verði vöxturinn hins vegar lítill
eða enginn.
Íslensk fyrirtæki koma sér-
staklega illa út úr samanburði við
norræn fyrirtæki. Af fimm fé-
lögum sem hafa lækkað mest frá
í júní í fyrra eru fjögur íslensk.
Það eru Exista, SPRON, Teymi
og Bakkavör. Fimmta fyrir tækið
er svo hið norska Renewable En-
ergy Corp en gengi bréfa í fyrir-
tækinu hefur fallið um 45,1 pró-
sent frá sama tíma í fyrra. „Ís-
land hefur verið í sviðsljósinu
erlendis og gengislækkun krón-
unnar farið illa með flest fyrir-
tæki hér. En það verður spenn-
andi að sjá uppgjör fyrirtækja
hér á öðrum fjórðungi,“ segir
Kristján. - jab
Íslensk fyrirtæki lækka mest
KRISTJÁN
BRAGASON
Landsbankinn er
svartsýnn á horfur
á norrænum hluta-
bréfamörkuðum á
árinu.
MARKAÐURINN/GVA
Frístundin
Hlaup, dans
og skrif