Fréttablaðið - 04.06.2008, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 04.06.2008, Qupperneq 4
MARKAÐURINN 4. JÚNÍ 2008 MIÐVIKUDAGUR4 F R É T T I R Yfirtöku bandaríska fjár festingar- bankans JP Morgan Chase á Bear Stearns lauk um síðustu helgi. Bankinn rambaði um miðjan mars á barmi gjaldþrots sökum lausafjárþurrðar. Bandaríski seðlabankinn og JP Morgan tóku höndum saman og gripu til að- gerða gegn því að svo færi og keypti JP Morgan bankann með manni og mús fyrir 1,4 milljarða dala, jafnvirði rúmra 100 millj- arða íslenskra króna. Bandaríska dagblaðið New York Post segir Alan Schwartz, frá farandi forstjóra Bear Stearns, hafa lýst því yfir að hann myndi ekki fylgja með í kaupunum en til stóð að hann yrði varaformaður stjórnar JP Morgan. Ástæðan mun vera óánægja hans með að tæpur helmingur starfsmanna flytjist á milli banka. Á meðal þeirra sem ekki fara eru John Ryding og David Malpass, hagfræði- forkólfar bankans. Þetta eru miklir reynsluboltar úr bandarískum fjármálaheimi. Malpass var fjármálaráðgjafi í forsetatíð Reagans og Bush eldri en Ryding hefur starfað sem hagfræðingur hjá seðlabönkum beggja vegna Atlantsála. - jab BÚIÐ SPIL Tæpur helmingur starfsmanna Bear Stearns flyst yfir til nýrra eigenda hjá JP Morgan. MARKAÐURINN/AFP Kaupum á Bear Stearns lokið Líkur eru á að bjórframleiðendur heimsins skoði hugsanlega sam- einingu gangi eftir kaup drykkja- vörurisans Inbev á Anheuser- Busch. Mikil hagræð- ing þykir felast í krafti stærðarinn- ar, að sögn frétta- veitu Bloomberg. Forsvarsmenn fyrirtækjanna hafa ekki staðfest að þau eigi í samrunavið- ræðum og vísað þeim á bug. Yfirtökutilboðið sem rætt er um er sagt hljóða upp á 41 milljarð dala, jafnvirði þrjú þús- und milljarða íslenskra króna. Anheuser-Busch er umsvifa- mesti bjórframleiðandi Banda- ríkjanna. Fyrirtækið keypti fimmtungshlut í Icelandic Water Holdings, sem framleiðir átapp- að vatn í Ölfusinu. Gangi kaup Inbev á Anheuser-Busch eftir mun samein- að fyrirtæki ná gríðarlegri mark- aðshlutdeild, fjórð- ungi á heimsvísu og rúmum helmingshlut í Bandaríkjunum, að sögn Bloomberg. - jab Sameinast í ámunum Hagnaður Greencore Group, um- svifamesta samlokuframleið- anda í heimi, nam 30 milljónum punda, jafnvirði 4,4 milljarða ís- lenskra króna, á síðustu sex mán- uðum sem er fyrri helmingur rekstrar ársins í bókum fyrirtæk- isins. Á sama tíma í fyrra hagn- aðist Greencore um tæpar 34,9 milljónir punda. Þetta er undir væntingum. Rekstrarhagnaður nam 27,9 milljónum punda, sem er 12,5 prósenta samdráttur á milli ára. Sala nam á sama tíma 451 millj- ón punda og er það sex prósent- um minna en fyrir ári. Bakkavör flaggaði tæpum ell- efu prósenta hlut í fyrirtækinu á síðasta uppgjörsfundi sínum. Haft var eftir Patrick Coveney, forstjóra samlokufyrirtækisins, í síðasta mánuði að miklar verð- hækkanir á hráefni muni að lík- indum koma hart niður á afkomu félagsins, jafnvel éta upp hagnað síðasta árs. - jab AF FUNDI BAKKAVARAR Afkoma sam- lokuframleiðanda sem Bakkavör á hlut í var undir væntingum á fyrri hluta árs. MARKAÐURINN/VILHELM Samlokurnar undir væntingum Henry Paulson, fjármálaráð- herra Bandaríkjanna, segir tals- vert þurfa til að lækka verð á hráolíu. Verðið hefur hækkað um rúm hundrað prósent frá í fyrra og stendur nálægt hæstu hæðum. Ráðherrann reiknar ekki með að það lækki á næstunni. Paulson var í Katar um helg- ina og ferðaðist víðar um ná- grannaríkin í vikubyrjun. Verð- bólga í Katar mælist 13,7 prósent og er hvergi meiri innan araba- ríkjanna. Paulson taldi frekari fjárfestingar í öðrum orkugjöf- um geta komið verðinu niður og dregið úr verðbólgu víða um heim. Vefmiðillinn MarketWatch segir að Paulson hafi ekki beint þrýst á að arabar ykju olíufram- leiðslu sína, sem gæti síðan leitt til lækkunar á olíudropanum en það mætti þó greina af orðalagi hans. - jab Paulson vill lægra olíuverð Sala á farsímum dróst saman um sextán prósent í Evrópu á fyrstu þremur mánuðum ársins miðað við sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í nýrri úttekt markaðsrann- sóknarfyrirtækisins Garnter. Þetta er fyrsti sam drátturinn sem fyrirtækið hefur greint í álfunni síðastliðin sjö ár. Þrátt fyrir samdráttinn jókst farsímasala á nýmörkuðum um þrettán prósent. Vöxturinn var mestur á Indlandi og í Kína og hélt meðalsölunni uppi, að sögn Gartners sem spáir því að vöxtur í farsímasölu verði almennt eng- inn á árinu í heild. Fyrirtækið segir lítið fram- boð á nýjum farsímum í Evrópu skýra samdráttinn auk þess sem langtímasamningar farsímafyrir- tækja geri viðskiptavinum hæg- ara um vik að skipta um síma. Þá hafa neytendur haldið þéttar um budduna upp á síðkastið og dregið mjög úr kaupum á dýrari símum. Gartner reiknar með því að far- símasala muni glæðast seinni hluta ársins en þá setja farsímaframleið- endur nýja síma á markað. - jab Fáir kaupa farsíma í Evrópu Ingimar Karl Helgason skrifar „Ég hef grun um að menn stefni heim á leið, hægt og rólega. Við skoðum það að minnsta kosti mjög alvarlega,“ segir Ólafur Ólafsson, kaupsýslumaður og stjórnarformaður Samskipa. Alþingi samþykkti á lokasprettinum nú í vor um- deilt frumvarp um skattfrelsi söluhagnaðar hluta- bréfa. Fram að samþykkt laganna mátti fresta skattlagningu söluhagnaðar með því að endur- fjárfesta söluhagnaðinn innnan tveggja ára. Fjár- magnseigendur fundu ýmislegt hagræði í því að geyma hlutabréfin sín í eignarhaldsfélögum sem stofnuð voru í Hollandi og raunar víðar. Þetta kann nú að breytast. „Eignarhaldsfélögin í Hollandi og víðar heyra brátt sögunni til og flytja til Íslands. Við búum í samkeppnisumhverfi og þegar Ísland býður að- stæður sem eru jafn góðar og annars staðar, þá þarf það ekki að koma á óvart að menn komi heim,“ segir Ólafur. Hann er sjálfur meðal ráðamanna í félögunum Eglu BV, sem á stóran hlut í Kaupþingi, og Kjalari invest BV, sem er stærsti hluthafinn í Alfesca. Fé- lögin eru bæði skráð í Hollandi. Exista BV er stærsti hluthafinn í Kaupþingi og jafnframt stærsti hluthafinn í Bakkavör. Félagið er skráð í Hollandi. Bakkabraedur Holding BV, stærsti hluthafinn í Existu, er jafnframt skráð í Hollandi. Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Existu og annar Bakkavararbræðra, segist ekki vera á heim- leið. „Þetta eru jákvæðar breytingar sem munu hvetja til þess að ný félög verði skráð á Íslandi. Við höfum alllanga reynslu af fyrirtækjaumhverfinu í Hollandi sem hefur reynst bæði traust og stöðugt. Enn sem komið er höfum við ekki hugleitt það að flytja erlend félög okkar til Íslands, hvað sem síðar verður.“ Samkvæmt upplýsingum frá FL Group hefur ekkert verið ákveðið í þessum efnum. Félög FL Group sem skráð eru í Hollandi eru stærstu eig- endur Glitnis, en Baugsfjölskyldan ræður mestu um félagið. Eftir því sem næst verður komist munu nýju lögin ekki hafa áhrif á fyrirkomulag eigna Björ- gólfsfeðga hér á landi. Hluti þeirra er geymdur í félögum erlendis. Hins vegar mun ekkert vera úti- lokað í framtíðinni. Elín Árnadóttir, yfirmaður skattasviðs Price- waterhouseCoopers, segir dæmi um að fjárfestar sem hugðust stofna félög í Hollandi hafi hætt við í kjölfar nýju laganna. Þá hafi hún einnig heyrt um félög sem séu á heimleið. Eignarhaldsfélögin koma frá Hollandi Til stendur að eignarhaldsfélög tengd Ólafi Ólafssyni komi heim frá Hollandi í kjölfar nýrra laga um skattfrelsi söluhagn- aðar af hlutabréfum. Bakkavararbræður eru ekki á heimleið. Björgólfar og Baugsfólk sitja sem fastast í öðrum löndum. Á HEIMLEIÐ Ólafur Ólafsson athafnamaður segist íhuga það mjög alvarlega að flytja eignarhaldsfélög sér tengd, Kjalar og Eglu, heim frá Hollandi í kjölfar nýrra laga.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.