Fréttablaðið - 04.06.2008, Page 16
20% 3.800 33,4er boðuð hækkun Eastman Kodak á ljós-myndavélum, prenturum, pappír og fleiru á næstu mánuðum vegna hrávöruverðs-
hækkana.
reikningar voru opnaðir á fyrsta degi
eftir að Landsbankinn hleypti af stokk-
unum Icesave-netinnlánsreikningum
sínum í Hollandi.
milljarðar króna segir Hagstofan að
hafi verið verðmæti útflutnings í
aprílmánuði. Innflutningur nam 40,7
milljörðum og vöruskipti því óhag-
stæð um 7,3 milljarða króna.
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
Alltaf er fengur að bókum á
íslensku um viðskipti og athafna-
fólk. Warren Buffet-aðferðin ætti
því að vera kærkomin lesning,
ekki síst fyrir íslenska fjárfesta
sem brennt hafa sig illa á hluta-
bréfaviðskiptum síðustu misser-
in. Það er Mikael Torfason, rithöf-
undur og fv. ritstjóri, sem gefur
bókina út, en Gylfi Magnússon,
dósent við HÍ, ritar inngang og
formálinn er eftir Má Wolfgang
Mixa, sérfræðing hjá Icebank.
Buffet er, eins og kunnugt er,
ríkasti maður heims, gegnum
fjár festingar félagið Berkshire
Hathaway og í bókinni er kafað
ofan í fjárfestingarspeki hans,
kenndar aðferðir til að meta
fyrirtæki og fjárfestingar kosti og
beitt til þess auðskildum aðferð-
um, en Buffet hefur
sjálfur ávallt sagt
að hver sem er
geti beitt þeim
aðferðum sem
hann hefur
sjálfur beitt
með góðum
árangri gegnum
tíðina …
Ekki beint
íslenska aðferðin
Inngangur Gylfa Magnússonar
að bókinni er hnýsilegur, ekki
síst þessi setning: „Íslenskir
fjárfestar virðast undanfarin ár
flestir hafa hugsað á allt öðrum
nótum en Buffet. Áhersla margra
íslenskra fjárfesta á að reyna að
ná skjótfengnum gróða með því
að veðja á verðhækkun á mörkuð-
um og magna uppsveifluna með
því að nota lítið eigið fé en mikið
lánsfé er eins fjarri hugmynd-
um Warrens Buffets og hugsast
getur.“ Kannski hér sé komin ein
skýringin á því að Buffet
nýtur stöðugrar
velgengni, ár eftir
ár, en íslenskir
fjárfestar berj-
ast nú við timbur-
menn eftir veislu-
höld síðustu ára og
sjá sumir hverjir
ekki til sólar …
Hverjir eiga
lausafé?
„Cash is king“ er fræg setning
á ensku úr heimi viðskiptanna
og vísar til þess að á krepputím-
um sé lausafé töfraorðið, þegar
margir eiga öll sín verðmæti
bundin í nær óseljanlegum fast-
eignum eða hlutabréfum, sem
enginn vill heldur selja á bruna-
útsölu. Við slíkar aðstæður skap-
ast oft góð kauptækifæri fyrir
þá sem hafa verið útsjónarsamir
og ekki sett öll sín egg í sömu
körfuna. Alþekkt er að mikil
eignatilfærsla verður í niður-
sveiflu áður en hagur markaðar-
ins fer að vænkast á nýjan leik
og hér á landi er nú mjög horft
til þeirra sem eiga þó eitthvað
eigið fé til þess að koma inn
í fjárþurfi félög, eða taka þau
hreinlega yfir.
Buffet-aðferðin
Hvers vegna PwC?
Þekkingarfyrirtæki í fremstu röð á Íslandi og leiðandi á alþjóðavettvangi.
Endurskoðun Fyrirtækjaráðgjöf Skatta- og lögfræðiráðgjöf
Reykjavík - Akureyri - Húsavík - Selfoss - Reykjanesbær www.pwc.com/is
*connectedthinking