Fréttablaðið - 11.06.2008, Síða 11
MARKAÐURINN 11MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 2008
S K O Ð U N
„Hann var svo áhugasamur að
komast áfram í heimi verðbréfa-
viðskipta að hann hafði engan
tíma til að útskrifast,“ varð
einum viðmælenda Markaðar-
ins að orði um Magnús Jónsson,
forstjóra Atorku Group.
Menn eru sammála um að
Magnús sé lítið gefinn fyrir kast-
ljós fjölmiðlanna, jafnvel hliðri
sér hjá þeim eftir mætti. Magn-
ús er sagður fljótur að átta sig á
tölunum á bak við ársreikning-
ana og fljótur að sjá tækifæri á
mörkuðum þegar þau gefast.
Atorka Group er fjárfestingar-
félag sem skráð er í Kauphöll Ís-
lands en hluthafar eru um 5.000
talsins. Undir fyrirtækjahattin-
um er 79 prósenta hlutur í sam-
stæðunni Promens, sem er með
starfsemi víða um heim; 44 pró-
senta hlutur í Geysi Green En-
ergy og fjörutíu prósenta hlutur
í breska flutningafyrirtækinu
Interbulk. Þá eru ótaldir þriðj-
ungs-, fjórðungs- og fimmtungs-
hlutir í erlendum iðnfyrirtækj-
um víða – raunar allt til Kína.
Magnús er fæddur á Norðfirði
árið 1977 og fagnaði þrítugs-
afmælinu í apríl á síðasta ári –
rétt áður en hlutabréfamarkað-
ir fóru á hliðina.
Magnús mun hafa verið ungur
að árum þegar hann fékk áhuga
á fjárfestingum af ýmsum toga.
Sögur herma jafnvel að á sama
tíma og jafnaldrar hans hafi
varið fermingarpeningunum til
kaupa á hljómflutningstækjum
og öðrum neysluvarningi hafi
hann sett þá í hlutabréfakaup og
aðrar fjárfestingar.
Eins og áður sagði hefur
Magnús aflað sér gríðarlegrar
þekkingar á hlutabréfamörkuð-
um og fjárfestingarverkefnum
hvers konar þrátt fyrir ungan
aldur.
Hann var sjóðsstjóri hjá Kaup-
þingi á árabilinu 1998 til 2001 og
framkvæmdastjóri fjárfestingar-
sjóðsins Uppsprettu ári síðar.
Sama ár tók hann við stjórnar-
taumum í fjárfestingarfélaginu
Ránarborg og tengdum verkefn-
um. Tengt því hefur hann setið í
stjórnum fjölda fyrirtækja, allt
frá MP Verðbréfum til Jarðbor-
ana, sem nú heyra undir Geysi
Green Energy, og Sæplasts á
Dalvík. Síðasttalda fyrirtækið
er nú hluti af Promens.
Magnús og sambýliskona hans
eiga tvær dætur. Hann settist í
forstjórastól Atorku í nóvember
árið 2005.
Forðast kastljós fjölmiðlanna
FRÁBÆRT FERMETRAVERÐ
Afhending í september 2008
Upplýsingar veita:
Þórarinn: 770 0309
Sigurður: 896 2312
Hús og efni frá: ASTRON.
Uppsetning: HASI.
Eftirlit: TVT - Tækniþjónusta.
Umsjón: NJÁLA.
Fyrir: SUÐURSTEINN ehf.
*Allt að 80% fjármögnun
m.v. 65-70% bankalán
m.v. 10-15% lán frá seljanda
Afhent tilbúið til notkunar.
Stærð frá 125,4 fm.
Verð frá 18.900.000 kr.
80% lán*Atvinnubil
Lækjarmelur, 116 Reykjavík
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
Einn
Um daginn hríslaðist einmana-
leikinn um mig. Ég stóð við saman-
brotin fötin í baðstofunni, ný-
kominn í sundskýluna og striga-
skóna þegar tilfinningin helltist
óforvarendis yfir mig. Eins og
þruma úr heiðskíru lofti. Mér
brá. Ég þekkti ekki sálu í bað-
stofunni, gömlu vinirnir horfnir
á braut og fáir ef nokkrir til að
spjalla við nema einstaka humm
og hæ til manna sem ég hef
aldrei séð og þekki lítið – nema
úr blöðunum. Sem er hrikalegt.
Svona hefur þessi hörmung
á hlutabréfamarkaðnum farið
með vinina. Árskortin þeirra í
gimminu runnin út og lítil ef
nokkur von að þeir endurnýi
þau á næstunni. Í besta falli fara
þeir í almenninginn og þá getum
við spjallað á brettinu. Ef það
verður svo fínt.
Gott ef einn okkar seldi ekki
Reinsinn í þarsíðustu viku og
lúsast nú um götur borgarinnar
á Huyndai Coupe. „Jeminn
eini!“ hrópaði ég niður til eins
úr nýbónaða Hummernum
mínum þegar ég viðraði hann
um helgina. Bílinn. Ekki vin-
inn. Sá sem sagði mér slúðr-
ið hafði nýverið látið konuna fá
Bimmann og fjárfest í Volks-
wagen Golf í staðinn... árgerð
2002! Eins og ég trúi því. Vott-
aði honum samúð mína og stefni
að því að senda honum smáræði
með næstu jólakortum. Eitthvað
úr Ostabúðinni, sem ég reikna
ekki með að hann hafi fengið
í háa herrans tíð. Jafnvel ekki
síðan í vor. Já, svona er maður
góður inn við beinið.
Samúðarkveðjur,
Spákaupmaðurinn á horninu
S P Á K A U P M A Ð U R I N N
S A G A N Á B A K V I Ð . . . M A G N Ú S J Ó N S S O N , F O R S T J Ó R A A T O R K U