Fréttablaðið - 28.07.2008, Blaðsíða 54
30 28. júlí 2008 MÁNUDAGUR
Tökur á þáttaröðinni Ástríði hefjast í næstu viku. Ilmur
Kristjánsdóttir er þar í aðalhlutverki sem hin unga Ástríður,
sem hefur störf hjá fjármálafyrirtæki hér á landi. Ráðið
hefur verið í helstu aukahlutverk líka, en þau Þórir
Sæmundsson, Þóra Karítas Árnadóttir, Friðrik Friðriksson,
Kjartan Guðjónsson og Rúnar Freyr Gíslason munu öll koma
fyrir í stærri hlutverkum í þáttaröðinni, að sögn leikstjór-
ans, Silju Hauksdóttur. „Þau vinna flest hjá sama fjármála-
fyrirtæki og í sömu deild og Ástríður,“ útskýrir hún.
„Hilmir Snær Guðnason og Margrét Vilhjálmsdóttir munu
líka koma fyrir í skemmtilegum hlutverkum,“ bætir Silja
við, en hún segir áhorfendur ekki eiga að vænta þess að sjá
þekktum andlitum úr fjármálageiranum bregða fyrir á
skjánum. „Ég myndi nú samt segja að það verði spennandi
andlit innan um, þó þau verði ekki úr þeim geira,“ segir Silja
dularfull.
Áætlað er að tökum ljúki í byrjun september, en Ástríður
verður í formi tólf framhaldsþátta, sem Stöð 2 mun að öllum
líkindum taka til sýninga eftir áramót. - sun
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. jurt, 6. kúgun, 8. ról, 9. eldsneyti,
11. í röð, 12. súla, 14. planta, 16. í
röð, 17. nagdýr, 18. galdrastafur, 20.
999, 21. lofttegund.
LÓÐRÉTT
1. á endanum, 3. guð, 4. mergð, 5.
skjön, 7. kotbær, 10. hjör, 13. lær-
dómur, 15. stefna, 16. æxlunarkorn,
19. nafnorð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gras, 6. ok, 8. ark, 9. kol,
11. aá, 12. stöng, 14. smári, 16. gh,
17. mús, 18. rún, 20. im, 21. óson.
LÓÐRÉTT: 1. loks, 3. ra, 4. aragrúi, 5.
ská, 7. kotshús, 10. löm, 13. nám, 15.
ismi, 16. gró, 19. no.
„Maður hlustar mikið á það
sama. Ég er með mikið af gömlu
íslensku í tölvunni, Ingimar
Eydal, Ellý og Brunaliðið til
dæmis, og svo hlustar maður á
FM957 í bland.“
Inger Birta Pétursdóttir bifvélavirki.
„Enn þá að æfa? Heldur betur,“ segir
Margrét Sigurðardóttir - Magga massi.
Magga er einhver frægasta vaxtarræktar-
drottning sem Ísland hefur alið af sér en
nú er hún í pásu frá keppnum. Vökul augu
sem stunda líkamsrækt í World Class sjá
þar Möggu taka á því svo um munar. „Ég er
rosalega köttuð núna,“ segir Magga sem
hefur stundað vaxtarrækt í rúm 23 ár
eða frá því hún var nítján ára gömul. Í
dag er hún 42 ára og í fantaformi,
jafnvel sínu besta formi. Enda hefur
hún aldrei hlaupið í spik. „Nei, ég hef
aldrei hætt að æfa. Svo vill maður
alltaf gera meira en maður er að
gera hverju sinni þannig að ég held
mér vel við efnið. Ég verð bara betri
með árunum eins og maður segir.“
Magga byrjaði í lyftingunum
samhliða knattspyrnu, en hún æfði
fótbolta með Leikni á sínum tíma. „Ég var alltaf að
skoða vaxtarræktarblöð og fann að mig langaði
meira út í þetta,“ segir Magga sem lagði skóna á
hilluna í kjölfarið.
Magga starfar hjá Öryggismiðstöðinni og hefur
gert það í um það bil eitt ár. „Ég er á útkallinu
þar. Það er mjög gott djobb,“ segir Magga en
aðspurð hvort hún hafi komist í hann
krappan vill hún ekkert segja, enda bundin
trúnaði.
Að öðru leyti nýtur Magga sumarsins
til hins ýtrasta og er sátt við lífið. „Ég er
sátt við lífið og mína fjölskyldu. Ég á
yndislega konu og yndislegan son,“ segir
Magga massi - rúmlega fertug, í
fantaformi og yfir sig ástfangin.
- shs
Ástfangin og í fantaformi
NÓG AF
SPENNANDI
ANDLITUM
Silja Hauksdóttir
segir að nóg verði
af spennandi and-
litum í þáttaröðinni
Ástríði, þó að þekkt-
um fjármálamógúl-
um muni tæplega
bregða fyrir.
MAGGA MASSI Er í fantaformi 42 ára.
FRÉTTABLAÐIÐ/HILMAR
Spennandi andlit í Ástríði
Vinirnir Jarl Stefánsson og Carl
Brynjar Dieterson hafa staðið í
skútusmíðum undanfarin ár, með
frekar óhefðbundnum aðferðum.
„Ég fékk þá hugmynd þegar ég
bjó úti í Kanada fyrir um sex, sjö
árum síðan að það væri gaman að
smíða sér skútu, taka sér frí frá
vinnu í nokkur ár og sigla um
heiminn. Ég tók upp símann og
spurði besta vin minn, sem þá bjó
á Íslandi, hvort hann langaði ekki
að smíða eitt stykki skútu. Hann
tók nokkuð vel í það og ég flutti
aftur heim til að ráðast í málið,“
útskýrir Jarl.
Þeir kynntu sér í kjölfarið skútu-
smíði með lestri ítarlegra hand-
bóka. „Við erum báðir tiltölulega
laghentir en höfðum svo sem
aldrei smíðað neitt sem átti að
fljóta. Sem betur fer eru til nokkr-
ir doðrantar um þetta,“ segir Jarl
kíminn. Jarli og Carli fundust þó
aðferðirnar sem bækurnar útlist-
uðu nokkuð frumstæðar. „Ég vinn
við tölvur og var sannfærður um
að það að sveigja efnið sjálfur á
milli nagla til að fá útlínur í bátinn
væri ekki besta leiðin. Við réð-
umst þess vegna í það að búa bát-
inn til í þrívídd í tölvu, alveg niður
í síðasta boltagat og skrúfu. Það
fóru allnokkrir mánuðir í það,“
útskýrir Jarl.
„Næsta skref var að skera efnið
niður, og við hugsuðum með okkur
að það yrði nú dálítið vesen að
gera það alltsaman í höndunum.
Okkur fannst að það hlyti að vera
stórgóð hugmynd að smíða vél til
þess að skera þetta allt út,“ segir
Jarl kíminn. „Það tók tvö og hálft
ár,“ bætir hann svo við. Þar að
auki þurfti að búa til hugbúnað til
að stýra vélinni, en enginn slíkur
búnaður var fáanlegur.
Vélin var hins vegar, eins og við
má búast, nokkuð snarari í því að
skera til stálið í skútuna en hendur
þeirra félaga hefðu orðið. „Það tók
þrjá daga að skera allt, sem hefði
tekið miklu lengri tíma í höndun-
um. Manni finnst þetta samt svo-
lítið öfugsnúið, að eyða tveimur og
hálfu ári í vélina og svo þremur
dögum í skurðinn,“ segir Jarl.
„Það er samt gaman að geta gert
hlutina eftir eigin höfði,“ segir
Jarl, sem vonast til að skrokkur-
inn verði að mestu leyti tilbúinn
með vorinu.
Jarl kveðst lítil viðbrögð við
þessum vinnuaðferðum hafa feng-
ið frá öðrum skútusmiðum, enda
viti fáir af framtakinu. Það má
hins vegar kynna sér betur á
heimasíðunni rugludallur.com,
sem, mikið rétt, er nafn skútunn-
ar. „Okkur fannst það hæfa ágæt-
lega,“ segir Jarl og hlær við.
sunna@frettabladid.is
JARL STEFÁNSSON OG CARL BRYNJAR DIETERSON: SMÍÐA RUGLUDALL
Stunda skútusmíði með
óhefðbundnum aðferðum
SKÚTUSMIÐIR Jarl Stefánsson og Carl Brynjar Dieterson standa nú í skútusmíðum með óhefðbundnum aðferðum, en þeir smíð-
uðu vél og gerðu hugbúnað til að létta sér lífið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Í fjármálageirann
Þóra Karítas Árnadóttir og Kjartan
Guðjónsson hafa tekið að sér hlutverk í
þáttaröðinni, sem fjallar um unga stúlku
sem kemur til starfa í fjármálafyrirtæki.
Gestir 101 hótels ráku
upp stór augu þegar
fríður hópur karla
fékk sér sæti
síðla kvölds á
fimmtudag. Þar
fór fremstur í
flokki Jón Ásgeir
Jóhannesson
en auk þess voru
með í för Pálmi
Haraldsson, Þor-
steinn M. Jónsson
og Ari Edwald. Þeir félagar dreyptu
á rauðvíni og skeggræddu málin.
Ekki fylgdi sögunni hvort þeir hefðu
komist að því hver á heiðurinn af
umdeildu FL-Group myndbandi
sem gengur um netheima.
Tenórinn Garðar Thor Cortes steig
á svið í fyrsta sinn á bandarískri
grundu fyrir stuttu þegar hann kom
fram á hinni virtu Newport tónlist-
arhátíð á Rhode Island. Tónleikar
Garðars voru hápunktur hátíðar-
innar og var þeirra beðið með eftir-
væntingu. Tónleikarnir fóru þó ekki
vel í alla og skrifar gagnrýnandi
vefritsins Projo.com að þessir fyrstu
tónleikar Garðars í Bandaríkjunum
hefðu ollið vonbrigðum. „Hann hóf
tónleikana á lögum af plötu sinni
Cortes en söngurinn var hvorki eins
dramatískur né ástríðufullur og á
geisladisknum, sem fékk mig til
að halda að Cortes væri ekki jafn
sannfærandi á sviði og í upptöku-
veri eða að hann hefði verið illa
fyrirkallaður þetta kvöld,“ skrifar
gagnrýnandi Projo.com.
Garðar Cortes hefur vakið
verðskuldaða athygli úti í heimi
undanfarið og því koma svona
skrif nokkuð á óvart. Skipuleggj-
endur tónleikanna sögðu enda að
Garðar hefði verið að jafna sig eftir
veikindi og því ekki verið upp á sitt
besta. „Á heildina litið var lítið um
magnaðan söng sem
hreyfði við áhorf-
andanum né heldur
fengum við að kynn-
ast þeim Cortes sem
hefur tekið Evrópu
með stormsveip.
Þetta voru von-
brigði,“ skrifar
gagnrýnandinn
að lokum.
- fgg/sm
FRÉTTIR AF FÓLKI
VEISTU SVARIÐ, SVÖR
Svör við spurningum á bls. 8
1. Sögu Borgarættarinnar frá 1921.
2. FH bar sigur úr býtum við ÍR.
3. Risahvönn.