Fréttablaðið - 06.08.2008, Qupperneq 1
14
Lækkun olíuverðs
„Olíublaðran“ kann
að vera sprungin.
6
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 6. ágúst 2008 – 32. tölublað – 4. árgangur
Dögun vetnisaldar
Veruleiki eða
framtíðarsýn?
8-9
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
H E L S T Í Ú T L Ö N D U M
Dýrustu golfvellirnir:
Dýr hringur
hjá Gibson.
Björn Þór Arnarson og Annas Sigmundsson
skrifa
„Miðað við stöðu Sparisjóðs Mýrasýslu um áramót
í samanburði við aðra sparisjóði má ætla að fleiri
sparisjóðir lendi í vandræðum á næstunni,“ segir
Sveinn Þórarinsson, hjá greiningu Glitnis.
Sparisjóður Mýrasýslu (SPM) á hlut í Existu í
gegnum eignarhaldsfélagið Kistu sem er í eigu fjög-
urra sparisjóða (sjá töflu). SPM á um 10,4 prósenta
hlut í Kistu sem á um 7,17 prósent í Existu. Hlutur
Kistu var metinn á um 40 milljarða fyrir ári en er nú
metinn á um 6,7 milljarða. Exista hefur lækkað um
rúmlega 80 prósent á tímabilinu.
Nýverið bárust fréttir af því að stjórn Sparisjóðs
Mýrasýslu (SPM) hyggst auka stofnfé sjóðsins um
2 milljarða króna. Ef það verður samþykkt á fundi
stofnfjáreigenda 15. ágúst næstkomandi mun Kaup-
þing fara með 70 prósenta hlut í bankanum, Borgar-
byggð 20 prósent og aðrir 10 prósent.
Gísli Kjartansson, sparisjóðsstjóri SPM, segir
að ein meginorsökin fyrir erfiðleikum hafi verið að
SPM hafi átt stóran hlut í Existu. „Gengisfall á mörk-
uðum hafði því gríðarleg áhrif,“ segir hann. Gísli
Kjartansson, sparisjóðsstjóri SPM, vonast til þess að
þetta muni tryggja áframhaldandi rekstur. „Kaup-
þing hefur gefið það út að rekstur bankans verði
óbreyttur í bili,“ segir Gísli.
Sveinn Þórarinsson telur horfurnar ekki góðar.
„Staðan verður mjög erfið fyrir marga sparisjóði í
ljósi þess hvað hlutabréfaeign hefur vegið þungt í
hagnaði þeirra,“ segir hann og bendir á að jafnvel
séu dæmi um að grunnrekstur sparisjóðanna skili
ekki arði. „Það er ekki ólíklegt að það séu frekari
sameiningar fram undan þar sem minni sparisjóðir
bera ekki þetta mikla gengisfall á hlutabréfum.“
Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri Spari-
sjóðs Keflavíkur, segir engar samrunaviðræður í
gangi þrátt fyrir gengisfall Existu. „Eiginfjárstaða
okkar er það góð að við þolum gengisfall á hlutabréf-
um okkar í Existu,“ segir hann. „Það er ekki sam-
runi í dag og ekki á morgun,“ segir Friðrik Friðriks-
son, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Svarfdæla, en það
eru vissulega alltaf einhverjar hreyfingar og ekk-
ert óeðlilegt að menn tali saman við núverandi efna-
hagsaðstæður.
Sparisjóðir í vandræðum
vegna gengisfalls Existu
„Það liggur ekkert fyrir um að slíkt takist en það eru
það erfiðar aðstæður á prentmarkaðnum að ef það
ætti einhvern tímann að ganga þá væri það núna,“
segir Ari Edwald, forstjóri 365. Heimildir Markað-
arins herma að samningaviðræður eigi sér stað milli
365 og Árvakurs til að ná fram stærðarhagkvæmni
í rekstri. Á það einkum við rekstrarliði sem lúta að
framleiðslu og dreifingu á dagblöðum.
Viðræður um þessi mál hafa staðið með hléum
undanfarin misseri án niðurstöðu. „Það sverfur mjög
að þessum rekstri. Það hafa orðið miklar kostnaðar-
hækkanir, pappír og kostnaðarliðir í dreifingunni
eins og laun og eldsneyti hafa hækkað,“ segir Ari og
kveður aukinn kostnað meira áberandi í prentmiðl-
um en öðrum miðlum og því sé mikill þrýstingur á
útgefendur að hagræða í rekstri. - ghh
Árvakur og 365 skoða samstarf
Tíma - og verkskráning
Flotastýring og eftirlit
www.trackwell.com
...við
prentum!
Verðbólgudraugur Tólf mán-
aða verðbólga á evrusvæðinu
mælist nú 4,1% og hefur ekki
verið hærri í 16 ár. Helst er hægt
að rekja hækkunina til hækkandi
eldsneytis- og matvælaverðs.
Stýrivextir Seðlabanka Evrópu
standa nú í 4,25 prósentum.
Slæmt ástand Atvinnuleysi í
Bandaríkjunum hefur ekki verið
meira í 4 ár. Það mælist nú 5,7
prósent og hefur hækkað um alls
0,7 prósentustig frá aprílmánuði.
Atvinnuleysi hefur ekki aukist
jafn mikið á þremur mánuðum
síðan 2002.
Í eina sæng Samningaviðræð-
ur milli British Airways og Am-
erican Airlines um aukið sam-
starf eiga sér nú stað. Með samn-
ingnum á að minnka kostnað við
t.a.m. miðasölu og aðra stjórnun.
Næg atvinna Atvinnuleysi í Dan-
mörku heldur áfram að minnka
og er nú komið niður í 1,6 pró-
sent. Þetta er minnsta atvinnu-
leysi sem mælst hefur í land-
inu í 35 ár. Að meðaltali hefur at-
vinnulausum fækkað um 2.300 í
hverjum mánuði á síðustu þrem-
ur mánuðum.
Gengisfelling Seðlabanki Simb-
abve hefur ákveðið að fella 10
núll aftan af gjaldmiðli landsins.
10 milljarðar verð því 1 dalur.
Um 2,2 milljóna prósenta verð-
bólga er í landinu.
Trúverðug langtímastefnumörk-
un er forsenda þess að náð verði
tökum á aðsteðjandi vanda í
efnahagslífinu, að mati Árna
Páls Árnasonar, þingmanns
Samfylkingarinnar.
Hann segir
óvíst með
ávinning af
því kostnaðar-
sama ferli að
búa krónunni
umgjörð sem
dugir til lang-
frama og telur
einsýnt að hér
verði að taka
upp evrópskt
myntsamstarf, hvort sem það
verður með sérsamningum eða
eftir forskrift Evrópusambands-
ins.
Hann segir að þótt sums stað-
ar þar sem stjórnarumgjörð sé
veikari þurfi stjórnmálamenn
að sækja á ný umboð til að taka
á nýjum aðstæðum. Hér sé hefð-
in önnur og hann treysti rík-
isstjórninni til að marka nýja
langtímastefnu með hliðsjón af
nýjum aðstæðum.
- óká / Sjá síðu 13
Stefnumörkun
er forsendan
ÁRNI PÁLL
ÁRNASON
SPRON 48,2%
Sparisjóður Keflavíkur 34,4%
Sparisjóður Mýrarsýslu 10,3%
Sparisjóður Svarfdæla 7,1%
Kista á 7,17 prósent hlut í Existu
Eignarhlutur Kistu í Exista
Markaðsvirði 5.ágúst 2008 6,7 milljarðar
Markaðsvirði 19. júlí 2007 40,887 milljarðar
Mismunur 34,183 milljarðar
Verðmæti hlutar Kistu í Exista 19. júlí 2007
SPRON 19,7 milljarðar króna
Sparisjóður Keflavíkur 14,065 milljarðar kr.
Sparisjóður Mýrarsýslu 4,2 milljarða króna.
Sparisjóður Svarfdæla 2,9 milljarðar kr.
Núverandi verðmæti eignarhlutar Kistu í Exista
SPRON 3,23 milljarðar kr.
Sparisjóður Keflavíkur 2,3 milljarðar kr.
Sparisjóður Mýrarsýslu 0,69 milljarðar kr.
Sparisjóður Svarfdæla 0,476 milljarðar kr.
*Miðað er við óbreyttan eignarhlut Kistu í Existu á tímabilinu
E I G N A R H L U T U R K I S T U