Fréttablaðið - 06.08.2008, Blaðsíða 9

Fréttablaðið - 06.08.2008, Blaðsíða 9
MARKAÐURINN 9MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 2008 Ú T T E K T kennda frásögn við mörg þeirra at- riða sem koma fyrir seinna í textan- um. Eftir framtíðarferðina er tíminn kominn til baka á núið og að þessu sinni fer ég með lesandann í bíltúr upp í Borgarfjörð. Nota tækifærið og skoða norðurljósin og tengi saman uppruna heimsins og róteindina sem frá og með þessum stað í bókinni verður aðalsöguhetjan!“ segir Þor- steinn. ORKA ER FJÁRSJÓÐUR ÍSLANDS „Í bókinni getur lesandinn kynnst öllum þeim orkugjöfum sem notast er við á jörðinni, jafnt úr jarðefnaelds- neyti sem endurnýjanlegum orku- lindum. Þarna eigum við Íslendingar Í bók sinni Dögun vetnisaldar róteindin tamin setur Þor- steinn fram bréf þar sem vetnisþjóðfélagi á framtíðinni er lýst á lifandi hátt. Bréfið sem er dagsett árið 2048 og á að vera skrifað af börnum höfundar í sumarleyfi á Casa- blanca. Þorsteinn segir bréfið eins konar aðferð til að tengja vísindaskáldsagnakennda frásögn við mörg þeirra atriða sem koma fyrir seinna í textanum. Hluti af bréfinu birtist hér að neðan: Sendibréf frá Casablanca Casablanca, 4. júní 2048 Kæri pabbi! Við vildum óska þess að þú værir hér með okkur. Ferðalagið frá Íslandi gekk vel og flugið með vetn- isþotunni til nýja alþjóðaflugvallarins í Sahara tók aðeins tvær klukkustundir. Við nutum góðs útsýnis á leiðinni; það var nánast heiðskírt yfir Norðursjón- um; bjart yfir Ölpunum; skýjað yfir endilöngum Íberíuskaganum og aðeins einstaka smábólstrar yfir Gíbraltarsundi. Vestur af Noregi gátum við greinilega séð Heimdall II., olíuvinnslusvæðið þar sem miklu magni koldíoxíðs, CO2, er dælt niður í olíulind- irnar til að binda gróðurhúsalofttegundir, sam- hliða því sem meira fæst úr lindunum með því að auka þrýstinginn á dýrmætan vökvann. Olíuborpallarnir í Norðursjó hættu vinnslu fyrir nokkrum áratugum en blómstra nú í sínu nýja hlut- verki; þeir beisla vindaflið með vindhverflum sem aftur nota rafmagnið og rafgreiningu til að vinna vetni sem er leitt eftir leiðslum til ýmissa dreif- ingarstaða á Englandi. Sumir þeirra dæla enn upp jarðgasi, eða því sem eftir er í jarðlögunum, og um- breyta því á staðnum í vetni. Við sáum stórkostlega vindhverfla út um glugga þotunnar. Okkur var sagt að sérhver olíuborpallur framleiði ígildi eins gíga- watts af afli í formi orkuberans vetnis. Þetta jafn- gildir því að hafa kjarnorkuver í höfunum – mun- urinn er aðeins sá, að um fullkomlega endurnýjan- lega orku er að ræða. Það var hins vegar ekki mikið að sjá á landi og að öllum líkindum er hluti vetnisins leiddur eftir rörum gamla gasdreifikerfisins. Þegar við flugum yfir Lundúnir sáum við árósa Temp- sárinnar sem að loknu miklu hopi heimskautaíssins og Grænlandsjökuls þekja nú talsvert land, einkum til norð- urs og suðurs. Á bökkum árinnar, þar sem háir múrsteins- reykháfar kolaorkuveranna vörpuðu löngum skugga yfir um- hverfi sitt, er útblásturinn líklega fangaður og bundinn á staðnum. Dönsk fjölskylda sem sat við hliðina á okkur á leiðinni sagði okkur frá því, að gamli Kastrup-flugvöllurinn stæði nú yfirgefinn eftir flóðin miklu í kjölfar fellibylsins Jensínu árið 2044. Við minntumst á, að þegar þú varst námsmaður í Kaupmannahöfn fyrir um 70 árum hefðu fellibyljir aðeins orðið í Mexíkóflóa og mestu hamfarirnar, sem Danir gátu þá vænst, hefðu verið djúp lægð og einn eða tveir vindasam- ir dagar á eftir. Hækkandi sumarhiti sjávar á Ermarsundi hefur hins vegar leitt til þess að samtvinnuð áhrif fellibyls og lægri loftþrýstings hafa skapað skilyrði fyrir flóð í Dan- mörku. Þau hafa ógnað byggingum flugvallarins og brúnni yfir til Svíþjóðar með tilheyrandi truflun á samgöngum. Þá hefur hitastigið í Ermarsundi, eftir að flæði Golfstraumsins til Íslands og Noregs raskaðist, flökt til og frá á þessum ára- tug, enda hefur hin mikla flæðilína hafstraumanna veikst verulega á þessu tímabili. Það sem kom einna mest á óvart þegar við flugum yfir vesturhluta Alpanna voru snjólausir fjallstindarnir. Við munum að þeim mörkum sem Sameinuðu þjóðirnar höfðu varað við var náð síðasta sumar þegar magn CO2 í and- rúmsloftinu fór í fyrsta sinn í 500 milljónustu hluta á hverja rúmmálseiningu lofts. Nokkrir mildir vetur í Ölpunum hafa ekki aðeins leitt til nær algerrar bráðnunar jöklanna, held- ur hafa þeir einnig að sjálfsögðu skilið hin frægu skíða- svæði eftir snjólaus. Skíðalyfturnar hafa verið fluttar norður á bóginn og á sumum svæðunum hafa nú verið reistir gríð- arstórir koltvíoxíðsfangarar og búnaður til að binda það á staðnum. Snjórinn og olían horfin Margar útgerðir eru að kikna undan háu olíuverði. Þegar olíureikningur út- gerðar er orðinn 300 milljónir á ári, þá er hver prósenta sem sparast í olíu ákaflega verðmæt. Þorsteinn er í samstarfi við Hugin frá Vestmannaeyjum um möguleika á að auka oktantölu brennslunnar með samblandi af súrefni og vetni. MARGT AÐ GERAST Í VETNINU Nýverið ákvað Össur Skarphéðins- son iðnaðarráðherra að vinna að því að stofna til fjölorkustöðva víða um land. Þorsteinn telur það afar skynsamlega leið. „Þá væri hægt að fá rafmagns- hleðslu, metanfyllingu, etanól og vetni. Þetta væri lokahnykkur í því að koma öllum samgöngum um vegi lands- ins yfir á eldsneyti sem unnið væri úr endurnýjanlegum eða vistvænum orkugjöfum,“ segir hann. Útgerðir og fjölorkustöðvar VETNISBÁTUR Hvalaskoðunarbáturinn Elding er að hluta til rekinn með vetnisrafal. MARKAÐURINN/NÝORKA einmitt mikla fjársjóði og á þessu sviði er Ísland líklegt til að verða stórveldi um langan aldur. Orku- hefðin sem tekið hefur við hlut- verki sem einu sinni var alfarið tengt söguhefð okkar lands, mun kveðja sér hljóðs í æ ríkari mæli á næstu árum,“ segir Þorsteinn. „Sjálfar orkulindirnar í framtíð- inni verða að mestu leyti endur- nýjanlegar og er sólin þar í for- grunni. Við ræðum sólina mikið í bókinni. Kjarnorka mun halda áfram að setja sterkan svip á orku- mál jarðar en mun þróast í sam- runaorku sem líklega verður orðin að veruleika í orkuverum um miðja öldina,“ segir hann. „Stephen Hawking sagði að út- gefandi sinn hefði varað sig við því að hafa stærðfræðilegar jöfnur í bókinni um fæðingu alheimsins. Kenning útgefandans var að við fyrstu jöfnuna þá myndi Hawking missa helming lesenda og svo koll af kolli!“ segir Þorsteinn. „Ég reyni að gera það sama, en hef safnað saman efnaformúlum sem ég kem fyrir á netinu á www.tamingofthe- proton.com,, alþjóðlegri heimasíðu bókarinnar,“ segir hann. Íslenska þýðingin er unnin með Baldri Arnarsyni og frábrugð- in upprunalegu bókinni á ensku. „Ég reyni að dýpka sviðið og skýra hvert einasta atriði sem upp kemur,“ segir hann. Að lokum bendir Þorsteinn á að hann hafi fengið mjög góð við- brögð við bókinni um allan heim. Hún hafi verið gefin út á íslensku og ensku og til standi að þýða bók- ina á fleiri tungumál. MIKLIR MÖGULEIKAR Í VETNI Þorsteinn Ingi Sigfússon, prófesor í eðlisfræði við Háskóla Íslands, hlaut Alheimsorkuverðlaunin árið 2007 fyrir rannsóknir sínar á vetni. MARKAÐURINN/ANTON VETNISSTRÆTISVAGNAR Alls eru þrír vetnisstrætis- vagnar í notkun hérlendis. Jafngildir um 5 prósent af strætisvagnaflotanum. MARKAÐURINN/HARI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.