Fréttablaðið - 06.08.2008, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 06.08.2008, Blaðsíða 2
MARKAÐURINN 6. ÁGÚST 2008 MIÐVIKUDAGUR2 F R É T T I R G E N G I S Þ R Ó U N Vika Frá ára mót um Alfesca -1,6% -2,0% Atorka 0,7% -44,4% Bakkavör 2,8,% -56,1% Exista 8,0% -66,6% Glitnir 2,7% +30,8% Eimskipafélagið -1,4% -58,5% Icelandair 1,8% -38,2% Kaupþing -2,8% -19,7% Landsbankinn 2,9% -35,1% Marel -1,5% -18,4% SPRON 1,3% -66,6% Straumur -0,3% -38,9% Teymi 13,2% -71,0% Össur 1,5% -12,5% *Miðað við lokagengi í Kauphöll á föstudag. Björn Þór Arnarson skrifar Netinnlánareikningar eru farnir að gegna veiga- miklu hlutverki í fjármögnun íslensku bank- anna. Þrír stærstu bankar landsins hafa opnað slíka reikninga erlendis og fjölgar innlánum og viðskiptavinum hratt. Landsbankinn starfrækir Icesave-netreikningana í Bretlandi og Hollandi. Glitnir starfrækir Save and Save í Noregi og á Ís- landi og loks Kaupþing Edge sem er starfrækt í tíu löndum í Evrópu. Mikill vöxtur hefur verið í Icesave-reikning- um Landsbankans. Til stendur að opna reikninga í fleiri löndum. Ekki er gefið upp hvar og hvenær af því verður. Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans, segir að hann sé ánægður með þá aukningu sem hefur orðið á viðskiptavinum bank- ans á þessu ári. Um 200 þúsund viðskiptavinir hafi bæst í hópinn á þessu ári. Icesave er með um 350 þúsund viðskiptavini. Sigurjón telur fjölda við- skiptavina sýna styrk Icesave og tryggja ákveð- inn stöðugleika. „Það er miklu verðmætara að hafa 350 þúsund viðskiptavini en 100 þúsund,“ segir hann. Spurður um vægi Icesave í fjármögnun segir um Sigurjón að Icesave vegi nokkuð þungt í fjár- mögnun bankans eða um tuttugu prósent af heild- arfjármögnun. Kaupþing Edge hefur einnig vaxið hratt og er farið að gegna vegamiklu hlutverki í fjármögn- un Kaupþings. Hreiðar Már Sig- urðsson, bankastjóri Kaupþings, segir að Kaupþing Edge sé um sjö til átta prósent af heildar- fjármögnun bankans. Hann segir að hlutfall netinnlána hafi vaxið mjög hratt og gerir ráð fyrir því að hlutfall netinnlána af heildar- fjármögnun haldi áfram að vaxa. „Við erum að fá um 80 til 100 milljarða króna í ný innlán á mán- uði í gegnum Kaupþing Edge,“ segir Hreiðar. „Markmið okkar er að fara inn á fleiri nýja mark- aði seinni hluta þessa árs,“ segir Hreiðar. „Við erum að prófa vöruna á okkar heimamarkaði, hér á Ís- landi og í Noregi, og við gerum ráð fyrir því að fara inn á nýja markaði seinnipart þessa árs eða í byrjun þess næsta,“ segir Lárus Welding, bankastjóri Glitnis. Alls eru um 60 þúsund viðskiptavin- ir nú þegar í Save and Save. „Það hafa bæst við 11 þúsund viðskipta- vinir á þessu ári,“ segir Lárus. Netinnlán aukast Bankarnir fjármagna sjö til tuttugu prósent af starfseminni sinni með netinnlánum. Viðskiptavinirnir um 550 þúsund og fjölgar hratt. „Vegur þungt í fjármögnun,“ segir bankastjóri. Kaupthing Singer & Friedlander, dótturfélag Kaupþings, hefur selt rekstur sinn á sviði tryggingaið- gjaldafjármögnunar til Close Broth- ers á lítils háttar yfirverði miðað við bókfært verð. Þetta kemur fram í tilkynningu Kaupþings til Kauphall- ar Íslands. Með þessu losar Singer og Friedland- er um lausafé sem nemur um hundr- að milljónum punda, eða sem nemur 16 milljörðum króna. Jafnframt hefur félagið nánast hætt rekstri á sviði hrávöruviðskiptafjár- mögnunar og hafa 97 prósent af upphaflegu eigna- safni, sem nam tæplega 350 milljónum punda, jafn- virði um 55 milljarða króna, verið greidd upp. Kaupþing keypti Singer og Fried- lander árið 2005 og hefur síðan unnið að endurskipulagningu á rekstri félagsins. Þessu til viðbótar vinnur Singer og Friedlander að því að hætta starfsemi á sviði eignafjár- mögnunar og hafa margir hugsan- legir kaupendur lýst áhuga á starf- seminni í heild eða að hluta eftir því sem segir í tilkynningunni. Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kaupthing Singer & Friedlander, segir í tilkynningunni að lausafjár- staða félagsins styrkist enn frekar í kjölfar þessara ráðstafana. Auk þess hafi Kaupthing Edge gengið mjög vel. „Við erum því áfram bjartsýn á stöðu rekstrarins í Bretlandi,“ segir Ármann. - as Singer & Friedlander losa eignir Banki Viðskiptavinir Icesave -Landsbankinn 350.000 Save and save-Glitnir 60.000 Kaupþing Edge 140.000* Samtals: 550.000 *Auk þess hafa 80.000 sótt um sem eru í ferli. Banki Andvirði innlána Kaupþing Edge 3,8 milljarðar evra Icesave -Landsbankinn Ekki gefið upp Save and save-Glitnir Ekki gefið upp N E T I N N L Á N NETINNLÁN AUKAST Hreiðar Mar Sigurðsson, bankastjóri Kaupþings segir að Kaupþing Edge sé nú búið að opna 140 þús- und reikninga og fjöldinn vaxi mjög hratt. Innlán Kaupþing Edge skili nú um sjö til átta prósent af fjármögnunarþörf bankans. MARKAÐURINN/GVA ÁRMANN ÞORVALDSSON, forstjóri Kaupthing Singer og Friedlander. Segir þetta styrkja lausafjárstöðu félagsins enn frekar og er bjartsýnn á stöðu rekstrarins í Bretlandi. MARKAÐURINN/ARIMAGG Krónubréf að nafnvirði 20 millj- arðar króna að viðbættum vöxt- um munu falla á gjalddaga í ágúst. Þar af gjaldfellur 10 milljarða út- gáfa þýska þróunarbankans KfW og 5 milljarða útgáfa Rabobank, stærsta útgefanda krónubréfa til þessa, næsta föstudag. Til viðbót- ar gjaldfalla 5 milljarðar þann 11. ágúst þegar útgáfa kanadíska þróunarsjóðsins fellur á gjald- daga. Fleiri stórir gjalddagar eru í nánd en 27,5 milljarðar að við- bættum vöxtum eru á gjalddaga í september, 45 milljarðar í okt- óber og 11 milljarðar í nóvember. Alls eru útistandandi krónubréf fyrir um 336 milljarða. Grein- ing Glitnis bendir á að hingað til hafi þeim krónubréfum sem fall- ið hafa á gjalddaga oftast nær verið mætt með nýrri útgáfu í grennd við gjalddagann. Nú sé aftur á móti ekki útséð með það þar sem væntur ávinningur af útgáfu krónubréfa hefur dreg- ist saman í kjölfar þess að mikill vaxtamunur á gjaldmiðlaskipta- markaði hefur að mestu þurrk- ast út. Seðlabankinn hafi að vísu komið til móts við þennan vanda með útgáfu á stuttum ríkisbréf- um sem ætlað er að bæta aðgengi að háum vöxtum. - ghh Milljarða gjalddagar KRÓNUBRÉF Alls eru útistandandi krónu- bréf fyrir 336 milljarða. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Raunverð íbúðarhúsnæðis á höfuð- borgarsvæðinu hefur lækkað um 10 prósent á árinu. Á sama tíma og verðbólga hefur verið 9 prósent hefur nafnverð íbúða lækkað um 1,1 prósent. Greining Glitnis segir búist við að sú leiðrétting sem er framund- an á íbúðamarkaði komi að mestu fram í raunverðslækkun. Í því mati er litið til reynslu fyrri ára en nafnvirðið hafi næstum staðið í stað á meðan húsnæðisverð lækk- aði um fimm prósent að raunvirði árið 2001. Að þessu sinni er búist við harkalegri niðursveiflu. - ghh Verðlækkun í ár tíu prósent „Ég er búinn að vera forstjóri Act- avis í tíu ár og er kominn með hagsmuni í öðrum fjárfestingum í gegnum Salt Investments. Ég er því að hverfa til annarra starfa til að halda utan um mínar eigin fjár- festingar. Þetta var sameiginleg niðurstaða eftir samtal við stjórnar- formann félagsins, Björg ólf Thor,“ segir Róbert Wessman. Hann hefur ákveðið að segja upp starfi sínu sem forstjóri Act- avis og mun aðstoðarforstjóri fé- lagsins, Sigurður Óli Ólafsson, taka við af honum. Róbert segir að hann muni þó áfram sitja í stjórn Actavis. Róbert segir að uppsögn sín sé gerð í góðri samvinnu við bæði stjórnarmenn og starfsfólk Act- avis. Hann hafi dregið það í tölu- verðan tíma að sinna Salt Invest- ment sem skyldi. „Það eru spennandi tíma fram- undan hjá mér á öðrum vettvangi og má segja að það sé eitthvað sem ég hef horft til í töluverðan tíma,“ segir Róbert. Róbert var ráðinn forstjóri lyfjafyrirtækisins Delta árið 1999 og varð forstjóri Actavis árið 2002 við samruna Delta og Pharmaco. - as Róbert Wessman hættir hjá Actavis RÓBERT WESSMAN lætur nú af störfum sem forstjóri Actavis. Hann hefur verið for- stjóri félagsins frá árinu 1999. MARKAÐURINN/VALLI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.