Fréttablaðið - 06.08.2008, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 06.08.2008, Blaðsíða 4
MARKAÐURINN 6. ÁGÚST 2008 MIÐVIKUDAGUR4 F R É T T I R Breski bankinn Northern Rock tapaði 92 milljörðum íslenskra króna á fyrri helmingi ársins. Tapið er nokkuð stærra en gert hafði verið ráð fyrir og stafaði það m.a. af auknum vanskilum og meiri afskriftum á útlánum. Um 2.000 starfsmönnum hefur verið sagt upp störfum. Í september á síðasta ári þurfti bankinn að biðla til Englands- banka um lán til að komast yfir erfiðasta hjallann. Nú er bankinn byrjaður að borga lánið til baka en eftirstöðvarnar eru 2.707 millj- arðar íslenskra króna. Bankinn var þjóðnýttur í febrúar eftir mis- heppnaða sölutilraun en stjórn- völd hyggjast nú leggja rúmlega 460 milljarða til hlutafjáraukn- ingar. - ghh Northern Rock tapar NORTHERN ROCK Tapið fyrri helming ársins var mun meira en gert hafði verið ráð fyrir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP „Mér finnst réttast að yfirgefa stjórn bankans núna svo hægt sé að skapa ró í kringum sölu- ferli bankans,“ segir Peter Müll- er, fráfarandi stjórnarformaður Roskilde Bank, í samtali við Bör- sen. Stjórnarformaðurinn og einn stjórnarmeðlimur, Peter Holm, tilkynntu stjórn bankans og hlut- höfum að þeir vildu segja stjórn- arsætum sínum lausum. Stjórn bankans fundaði með hluthöfum í gær og í kjölfarið tilkynntu Müll- er og Holm afsögn sína. Hluthaf- ar höfðu gert kröfu um að breyt- ingar yrðu gerðar á stjórn bank- ans. Talsmaður hluthafa, Ole Peter Nielsen, var ánægður með hlut- hafafundinn í gær. „Það mikil- vægasta fyrir okkur er að stjórn- arformaðurinn lætur af störfum þar sem vandræði bankans hvíla þungt á herðum hans.“ Hluthafar munu leggja fram tillögu um nýja stjórnarmeðlimi og formann við hluthafafund sem haldinn verður í lok september. Ekki er búið að ákveða hvort stjórnarmenn verði fimm í stað fjögurra. - ghh Stjórnarmenn Roskilde segja af sér Magnús Sveinn Helgason skrifar Samkvæmt skýrslu samtakanna Hope Now, sem aðstoða bandaríska húsnæðiseigendur sem eiga í vandræðum með afborganir, lenda Bandaríkjamenn með góð veð og „hefðbundin“ húsnæðislán í vax- andi mæli í vandræðum með afborganir. Á öðrum ársfjórðungi aðstoðuðu samtökin 34.000 fleiri með „hefðbundin“ húsnæðislán en „undirmálslán“, en alls aðstoðuðu samtökin nærri 1.800.000 manns á öðrum ársfjórðungi. Þá sýna tölur samtakanna að skjólstæðingar, sem höfðu hefðbundin húsnæðislán, mistókst hlutfalls- lega oftar en þeim sem höfðu undirmálslán að ná tökum á afborgunum, þrátt fyrir skuldbreytingu, og misstu þar með heimili sín. Hingað til hefur verið talið að húsnæðisvandræð- in vestanhafs væru fyrst og fremst bundin við svo- kölluð undirmálslán, en nú telja sérfræðingar hins vegar að merki séu um að hefðbundin lán sem talin voru örugg kunni einnig að tapast í stórum stíl. Þetta er mikið áhyggjuefni því greiningardeildir telja að botninum hafi verið náð í undirmálslánum. Skuldavafningar og verðbréfuð undirmálslán eru nú talin nánast verðlaus, en fjármálastofnanir hafa þurft að afskrifa þessi bréf um allt að 80 prósent. Vonir voru því bundnar við að farið væri að sjá fyrir endann á útlánatöpum fjármálastofnana. Þær vonir munu þó ekki rætast ef afskrifa þarf hefð- bundin húsnæðislán í stórum stíl. Vaxandi áhyggjur eru nú í Bandaríkjunum um að húsnæðiseigendur sem horfa á fallandi húsnæð- isverð og þunga greiðslubyrði lána sem tekin voru þegar húsnæðisverð var í hámarki kjósi í stórum stíl að ganga frá eignum sínu frekar en að borga af lánunum. Þetta þýðir bæði að bankar og fjármála- stofnanir sitja uppi með tap á lánum, því veðin hafa fallið í verði, og að offramboð myndast af eignum á markaði. Í síðustu viku greindu samtök bandarískra fast- eignalánveitenda frá því að þrátt fyrir að vextir á húsnæðislánum í Bandaríkjunum hafi lækkað að undanförnu hafa ekki færri sótt um fasteignalán síðan í desember 2000. Talið er að kaupendur haldi að sér höndum í von um að fasteignaverð eigi enn eftir að lækka. Greiningardeild Lehman Brothers sagði fyrir helgi að markaðurinn væri að ganga í gegn um „sársaukafulla leiðréttingu“. D.R. Horton, sem er stærsta verktakafyrirtæki Bandaríkjanna sem sérhæfir sig í byggingu íbúð- arhúsnæðis tilkynnti á þriðjudag að sala á nýjum íbúðum hefði dregist saman um 36 prósent. Tap fé- lagsins var þriðjungi meira en greiningardeildir höfðu gert ráð fyrir, en taprekstur hefur verið á fé- laginu síðustu fimm ársfjórðunga. Eftirspurn efir húsnæði er mjög lítil í Bandaríkj- unum, en þann 24. síðasta mánaðar tilkynntu sam- tök bandarískra fasteignasala að fjöldi viðskipta hefði ekki verið minni í tíu ár. Á sama tíma hefur flætt inn á markaðinn húsnæði sem bankar og lána- stofnanir hafa leyst til sín, bæði vegna þess að fólk hafi ekki efni á afborgunum eða hafi hreinlega gengið frá skuldum sínum og eignum. Áætlað er að einn af hverjum 171 fasteignaeiganda sé á leið í nauðungaruppboð, og 6,35 prósent allra húsnæðis- lána séu í vanskilum. - msh OFFRAMBOÐ Á FASTEIGNUM Ekki hefur selst minna af fast- eignum í Bandaríkjunum síðan 1998 MARKAÐURINN/AFP Undirmálslánakreppan aðeins toppurinn á ísjakanum Mikill samdráttur í nýbyggingu og fjöldi viðskipta á markaði ekki minni í tíu ár. Lækkandi fasteignaverð og slæmt efna- hagsástand vekur ótta um að „örugg“ lán tapist í stórum stíl. Jan Petter Sissener, sem áður stýrði starfsemi Kaupþings í Noregi, hefur stefnt Kaupþingi fyrir samningsrof vegna bónus- og starfslokagreiðslna fyrir þetta og síðasta ár. Dagens Næringsliv hefur reiknað út kröfur Sissen- ers og segir þær nema 390 millj- ónum íslenskra króna. Að sögn blaðsins hafa Sissener og for- svarsmenn Kaupþings átt í við- ræðum að undanförnu án þess að niðurstaða hafi fengist og því mun málið fara fyrir dóm. - ghh Kaupþingi stefnt Áætlanir um að rétta af rekstur Ábyrgðarsjóðs launa hafa raskast vegna þrenginga í efnahagslífinu. „Þetta er ríkis tryggður sjóður. Það er lögbundið að launþegar eiga rétt á greiðslu launa við gjaldþrot fyrirtækja,“ segir Unnur Sverris- dóttir, forstöðumaður stjórnsýslu- sviðs Vinnumálastofnunar. Eins og greint hefur verið frá hefur sá hluti Mest, sem nýver- ið hlaut nafnið Tæki, tól og bygg- ingavörur ehf., óskað eftir því að félagið verði tekið til gjaldþrota- skipta. Tilkynnti félagið jafnframt að það myndi ekki greiða starfs- mönnum ógreidd laun fyrir júlí- mánuð. Talið er líklegt að Ábyrgð- arsjóður launa greiði á endanum. Unnur segir að á fyrstu sex mánuðunum í fyrra hafi Ábyrgð- arsjóður launa greitt út 283 millj- ónir króna. Á þessu ári hafi hann hins vegar greitt 372 milljónir króna. Aukningin nemur 90 millj- ónum króna. „Gjaldþrot eru hins vegar alls ekki farin að skila sér. Þau koma með haustinu,“ segir Unnur. Sjóðurinn hefur verið rekinn með tapi árið 2005 en hefur rétt úr kútnum síðan. Samkvæmt áætlun frá árinu 2006 var gert ráð fyrir að rekstur sjóðsins myndi hætta að skila tapi árið 2010. „Nú erum við að vonast til þess að það gerist árið 2012,“ segir Unnur. Hún segist hafa fundið fyrir aukningu á beiðnum til sjóðsins í apríl. „Þegar stóru verktakarn- ir fóru að rúlla tókum við að sjá breytingu,“ segir hún. - as Greiðslur aukast um þriðjung Aukin gjaldþrot raska áætlunum Ábyrgðarsjóðs launa. Á fyrri helmingi ársins hafa verið greiddar út 283 milljónir króna. Hlutabréf í finnska fjarskipta- fyrirtækinu Elisa féllu um 14 prósent í kauphöllinni í Helsinki í kjölfar frétta af slæmri afkomu á öðrum ársfjórðungi. Gengið hefur ekki verið lægra í þrjú ár. Tekjur drógust saman um sex prósent milli ára, þar af um 15 prósent af far- símarekstri. Elisa, sem er annað stærsta símafyrirtæki Finnlands er að hluta í eigu Íslendinga, en fjár- festingafélagið Novator er stærsti hluthafinnu í félaginu, með 10,4 prósent hlutafjár. Á mánudag greindi finnska viðskiptablaðið Kauppal- ehti frá því að fjarskipta- fyrirtækið DNA, einn helsti samkeppnisaðili Elisa, hefði aukið hlut sinn í félaginu og væri nú orðið annar stærsti hluthafinn, með 4,9 pró- sent. Forstjóri DNA, Jan-Erik Frostdahl segir um „strategíska“ fjárfestingu að ræða, en hefur ekki átt í viðræðum við Novator um framtíð Elisa. Orri Hauksson, fulltrúi Novator í stjórn Elisa vildi ekkert tjá sig málið. - msh Léleg afkoma Elisa

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.