Tíminn - 29.04.1982, Side 1
íslendingaþættir fylgja blaðinu í dag
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTT ABLAÐ!
Fimmtudagur 29. apríl 1982
95. tölublað — 66. árg.
Erlent
yfirlit:
Falk-
lands-
/jar
bls. 7
Byggt á
bjargi
- bls. 2
Gómsætir
smáréttir
— bls. 16
Burton
leikur
Wagner
- bls. 23
HÆTT VIÐ AÐ BYGGJA A
RAUÐAVATNSSVÆÐINU?
9t‘
pAnnad kemur ekki til greina ef sýnt er að ekki sé skynsam-
legt að taka svæðið til byggingar’% segir Kristján Benediktsson
■ „Vitanlega erum við að láta
kanna Rauðavatnssvæðið og
gera þessar jarðfræðiathuganir
til þess að taka mark á þeim
niðurstöðum sem út úr þeim
koma. Ef þær leiða til þess að
ekki þyki skynsamlegt að taka
svæðiö næst til byggingar, þá
munum við framsóknarmenn
ekki telja neitt sjálfsagðara en
að Ieita annarra leiða með
næsta byggingarsvæði Reykja-
vfkurborgar. Annað kemur ekki
til greina i hugum okkar.”
Þetta sagði Kristján Bene-
diktsson, borgarfulltrúi, i sam-
tali við Timann, þegar hann var
spurður aö þvi hvaða afleiöing-
ar nýleg skýrsla um sprungur á
Rauðavatnssvæðinu gætu haft á
fyrirhuguð byggingaráform
borgarinnar við Rauðavatn. Gat
hann þessað e.t.v. yrði að fram-
kvæma enn frekari rannsóknir á
svæðinu, þannig að Rauða-
vatnssvæðið dæmdist sjálfkrafa
úr leik um eitthvert skeið, með-
an á þeim stæði.
Jafnframt nefndi Kristján að
samkvæmt nýstaðfestu aðal-
skipulagi Reykjavikur væri gert
ráö fyrir að byggja viðar en við
Rauöavatn á skipulagstimabil-
inu. Einföld samþykkt i borgar-
stjórn nægði til að breyta for-
gangsröö fyrirhugaðra bygg-
ingarsvæða. Kæmi þá Keldna-
svæðið helst til greina, i staö
■ Hollensku dansararnir, sem hér eru i sambandi við Hollands-kynningu Hótel Loftleiða, voru heppnir
að lenda i einni af fáum sólarglennum gærdagsins þegar þeir sýndu listir sinar á Lækjartorgi.
Timamynd: Ella.
Rauðavatnssvæðisins. Borgin
hefði rétt til eignarnáms á þvi
landi eftir að aöalskipulagiö
hefði verið staðfest, ef ekki næð-
ust samningar við rikiö um yfir-
töku þess, og ef þess reyndist
þörf. „Þaö kann þvi að fara svo,
ef samkomulag ekki næst, aö
borgin veröi tilneydd að grlpa til
þess ráðs að fá eignarnám á
þessu landi”, sagði Kristján
Benediktsson. — Kás.
Sjá nánar bls. 10.
Útflutningur
á skinnavöru:
HRUN!
■ „Horfurnar í skinnaheiminum
eru vægast sagt dökkar,” sagði
Jón Siguröarson, aöstoöarfram-
kvæmdastjóri Iðnaðardeildar
Sambandsins i viötali við Tlmann
i gær, en Jón er nú nýkominn frá
árlegri ráðstefnu framleiðenda
og kaupenda á fatnaði úr skinna-
vöru og er þessi ráðstefna ávallt
haldin i Frankfurt i Þýskalandi.
Sagði Jón að markaöshrun i
Þýskalandi væri þess valdandi,
m.a. aö erfiðara yrði nú um sölu á
skinnum héðan frá Islandi, þvi
okkar helstu keppinautar á þessu
sviöi, Englendingar og Spánverj-
ar, sem hefðu mikiö selt á Þýska-
landsmarkað, leituöu nú til
Skandinaviu, sem væri helsti
markaður Islendinga og væru
verðtilboö þeirra svo lág aö um
hrein undirboö væri að ræöa.
„Það er ljóst,” sagði Jón, „aö
eftirspurn eftir flikum úr mokka-
skinnum hefur stórkostlega dreg-
ist saman,” og nefndi Jón sem
skýringar þar á að mokkaflikur
væru nærri jafn dýrar og flikur úr
meiri eðalskinnum, tiskan væri
óhagstæð og kaupmáttur hefði
minnkað.
Þá sagði Jón að birgðasöfnun
sl. ár hefði verið óeðlilega mikil
hér á landi, þvi Pólverjar hefðu
ætlaö að kaupa 30% skinna úr sið-
ustu slátrun, en vegna gjaldeyris-
skorts heföu þeir aðeins tekiö tæp
10% af umræddum samningi, eða
um 20 þúsund skinn. Hann sagði
að vegna þessa væri mikill
þrýstingur á islenska aðila að
lækka nú verö á hálfunnum vör-
um og taldi ljóst að til þess að
sala gæti haldiö áfram á islensk-
um gærum, yrði að lækka á þeim
veröiö. — AB Sjá nánar bls. 3.