Tíminn - 29.04.1982, Qupperneq 3
Fjölhæfnivagninn er kominn
með Ijósabúnaði.
S.B. vagninn góður er,
um fjölhæfni má velja.
Hesta, kindur, heyið ber,
fleira má upp telja.
Mjög gott verð og greiðslukjör.
S.B. vagnar og kerrur, Klængsseli - Sími 99-6367.
■ Tveir bílar skemmdust talsvert i hörbum árekstri sem varö á
Suöuriandsvegi, viö Rauöavatn, um kvöidmatarleytiö I gær. Grunur
lék á aö ölvun ökumanns annars bilsins heföi átt drjúgan þátt f tildrög-
um árekstrarins. Timamynd Róbert.
■ „Horfurnar í skinnaheiminum
eru vægast sagt dökkar,” sagöi
Jón Siguröarson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Iðnaðardeildar
Sambandsins á Akureyri i viðtali
við Timann, en Jón er nú nýkom-
inn frá Frankfurt, en þar hittast
ár hvert i aprilmánuði menn
hvaðanæva að úr heiminum sem
eru framleiðendur eða kaup-
endur á fatnaði úr loðskinnavöru.
Aðspurður um það hvers hann
hefði helst orðið visari i Frank-
furt sagði Jón: „Það er ljóst að
eftirspurn eftir flikum unnum úr
mokkaskinnum hefur stórkost-
lega dregist saman. Sem dæmi
um það get ég nefnt, að þýski
markaðurinn ræður ákaflega
miklu um þetta, þvi hann er stór
og mikill neytendamarkaður.
Þangað hafa verið seld árlega
u.þ.b. 30 til 35 milljónir ferfeta af
mokka, en markaðsspár núna,
hljóða upp á að þangað verði i ár
aðeins selt innan við helmingur
þess magns.”
— Hvað veldur þessu?
„Eins og ævinlega þegar svona
markaðshrun á sér stað, þá eru
fleiri en einn þáttur að verki.
I fyrsta lagi, þá hefur
markaðnum verið ofboðið með of
háu verðlagi á mokkaskinnum —
flikur úr mokkaskinnum eru
orðnar nærri þvi eins dýrar og
flikur úr meiri eðalskinnum,
þannig að verðmunurinn er of lit-
ill. Annar áhrifavaldur er minnk-
andi kaupmáttur, og þar að auki
er tiskan ákaflega andsnúin okk-
ur núna.
Upp á siðkastið hefur komið til
ákaflega mikil samkeppni frá
nýrri vöru, eins og popplin ytra
byrði sem er fóðrað að innan með
einhverjum loðskinnum, auk þess
sem vatterað leður er nú ákaflega
vinsælt.”
— Hefur þetta markaðshrun i
Þýskalandi bein áhrif á sölu-
möguleika Islendinga?
„Okkar helstu keppinautar i
mokka, eru Spánverjar og
Englendingar. Þeir hafa selt mik-
ið til Þýskalands, en við aftur til-
tölulega litið. Það sem gerist nú
eftir markaðssamdráttinn i
Þýskalandi og annarsstaðar, er
að þeir herja nú á Skandinaviu,
sem hefur verið okkar aðal-
markaðssvæði, með mjög lágu
verði, þannig að þeir undirbjóða
okkur.”
— Hvaða áhrif hefur þetta á
söluhorfur héðan?
„Söluhorfurnar eru mjög
slæmar, en það er of snemmt að
lesa úr þessu hvað endanlega
verður.
Það eru lika fleiri þættir sem
spilainnihér hjáokkur: Nær 30%
af gærum úr siðustu slátrun átti
að selja til Póllands, og ákaflega
hagstæður samningur var gerður
við Pólverja, i fyrrahaust, en mál
hafa skipast þannig i Póllandi, að
vegna skorts á erlendum gjald-
eyri, hafa Pólverjar ekki tekið
nema tæp 10% af þessum
samningi, eða rétt um 20 þúsund
gærur. Vegna þessa hefur orðið
ákafléga mikil birgðasöfnun i öll-
um verksmiðjunum.”
Jón sagði að fregnir af þessu
hefðu vitanlega borist út, og þvi
væri um mikinn þrýsting utan frá
að ræða, á islenska skinnafram-
leiðendur að lækka verð á hálf-
unnum vörum einnig.
Jón sagði jafnframt að mikið
verðfall heföi orðið á svokölluðum
Gotlandsgærum (gráum pelsgær-
um), og reyndar algjör stöðnun i
sölu. Sagði hann málum nú svo
háttað i Sviþjóð, að þar lægju
birgöir sem næmu tveimur þriðju
af ársframleiðslu á þessum gær-
um. Sagði hann að það væri
náttúrlega erfitt að segja til um
markaðsverð á þeim, fyrst
birgðasöfnun væri svona mikil, en
þó væri óhætt að segja að verðið
væri orðið svipað og á hvitum is-
lenskum gærum. Jón benti á að
þött útlitið væri mjög dökkt nú, þá
tryði enginn þvi að þetta yrði
varanlegt ástand. Ljóst væri að
áfram yrði hægt að selja islensk-
ar gærur, sem hingað til, en það
yrði að lækka verðið á þeim.
—AB
haldi!
Sálmabókin
Fást íbókaverslunumog
hjá kristilegu félögunum.
HIÐ ÍSL. BIBLÍUFÉLAG
töu&branttótítofu
Hallgrimskirkja Reykjavfk
simi 17805 opið3-5e.h.
Laus
úr
varð-
■ Manninum, sem grunaður var
um aðild að innbrotinu i Gull og
silfui; var sleppt úr haldi siðdegis
i gær eftir sextán daga gæslu-
varðhaldssetu, Rannsóknarlög-
reglu rikisins þótti ekki næg
ástæða til að fara fram á fram-
lengingu gæsluvarðhaldsúr-
skurðarins.
Innbrotsmáliö er þvi enn óupp-
lýst.
-JSjó.
Fjölmiðla-
fundur
■ Guðbjartur Gunnarsson, fjöl-
miðlafræðingur mun á fundi
Samtaka áhugamanna um fjöl-
miðlarannsóknir fjalla um
reynslu sina af kennslu i fjölmiðl-
un i Fjölbrautaskóla Suðurnesja
og Flensborgarskóla nú i vetur.
Er þetta i fyrsta sinn sem
kennsla fer fram i þeim fræðum á
framhaldsskólastigi hér á landi.
Aukhans munu þeir ömar Valdi-
marsson, form. B.l. og Þorbjörn
Broddason, lektor f jalla um sama
efni. Fundurinn er haldinn i As-
mundarsal við Freyjugötu i kvöld
kl. 20.00 og er þetta jafn ramt
aðalfundur SAF. HEI
anloslar
Sætaaklæði
í flestar gerðir bíla.
Falleg - einföld - ódýr.
Fást á bensínstöðvum Shell
Heidsölubirgöir: Skeljungur hf.
SmáMöoideild-Laugaúegi 180
sími 81722
Bilasala-BilaleigaX
13630
19514
SLEPPIR ÞÚ
j BENSÍNGJÖFINNI
VIÐ MÆTINGAR
Á MALARVEGUM?
■ Varnarliðsþyrla frá Keflavikurflugvclli sótti tuttugu og fjögurra ára gamla konu, sem slasaðist um
borð I finnsku skipi sem statt var 160 sjómflur ASA af Vestmannaeyjum, i gær. Guðjón, ljósmyndari
Timans, smellti þessari mynd viðkomuna til Reykjavikur.
Þyrla af Keflavíkurflugvelli:
FOR 240 SJOMILNA LEIÐ
EFTIR SLASAÐRI KONU
■ Þyrla frá varnarliðinu fór 240
sjómilna leið til að sækja finnska
konu, sem slasaðist um borö i
finnska skipinu Palva er það var.
statt um 160 sjómilur ASA af
Vestmannaey jum.
„Það var laust fyrir klukkan
mu i morgun sem Skipamiðlun
Gunnars Guðjónssonar sneri sér
til okkar með beiðni um aðstoð
frá finnska oliuflutningaskipinu
Palva, vegna tuttugu og fjögurra
ára gamallar konu sem var illa
slösuð eftir að hún datt i stiga um
borð i skipinu,” sagði Hannes
Hafstein, hjá Slysavarnarfélag-
inu i samtali við Timann i gær.
„Eftir að við höfðum leitað um-
sagnar læknis á Borgarsjúkra-
húsinu var ákveðið að senda
þyrlu eftir sjúklingnum og koma
honum á sjúkrahús.
Svo var það um hádegið að
varnarliðsþyrlan fór með lækni
og sjúkraliða um borð. Ég veit
ekki annað en að ferðin hafi
gengiðmjöggreiðlega. Læknirinn
og sjúkraliðinn sigu niður i skipið
til þess að sinna sjúklingnum og
siðan komu þeir honum um borð i
þyrluna sem svo lenti á þyrlupall-
inum við Borgarsjúkrahúsið laust
eftir kl. 5”, sagði Hannes.
Veður á slóðum skipsins var
slæmt, NV sjö vindstig og mikill
sjór. —Sjó.
Fimmtudagur 29. april 1982
f réttir
Markaðshrun á skinnavörum í Þýskalandi:
HORFURNAR ERU
VÆGAST SAGT DÖKKAR”
— segir Jón
hjá Iðnaðardeild Sambandsins
FERMINGARGJAFIR
103 Daviös-sálmur.
Lofa |>ú Drottin, sála min.
og alt. som i nu'-r or. hans heilaga nafn ;
lofa þú Drottin. sála min.
og glrvrn cigi nt'imuu vclgjtiröum haos,
BIBLÍAN