Tíminn - 29.04.1982, Qupperneq 6

Tíminn - 29.04.1982, Qupperneq 6
Fimmtudagur 29. april 1982 6 stuttar fréttir Með bestu kveðju frá okkur á Grund til fólksins i Grimsey og herra biskupsins sem um langtárabil varprestur þess”. „Islenska kirkjan þakkar þessa myndarlegu gjöf og þann hlýhug sem að baki ligg- ur”, segir i' frétt frá Biskups- stofu. „Stjórn Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar meö Gisla Sigurbjörnsson I fararbroddi hefúr hlynnt að mörgum góðum málum um langt skeið og gefiö þar for- dæmi og vakið marga til með- vitundar um félagsleg og kirkjuleg mál”. —HEI Sókn vill könnun á verðlagsþróun eftir mynt- breytingu REYKJAVIK: Framhalds- aðalfundur Starfsmanna- félagsins Sóknar sem haldinn varnýlega samþykkti áskorun til miðstjórnar ASt um að beita sér fyrir gagngerri könnun á þróun verðlags hér á landi frá þvi að myntbreyting- in tók gildi um áramótin 1980- 81. Jafnframt samþykkti fundurinn einróma að veita félaginu heimild til verkfalls- boðunartil aðýtaáeftir þvi að nýjir kjarasamningar verði gerðir. A fundinum var lýst kjöri stjórnar Sóknar fyrir næsta starfsár og er hún þannig skipuð: Formaður Aöalheiður Bjarnfreðsdóttir og aörar i stjórn: Ester Jónsdóttir, Fjóla Guðmundsdóttir, Dagmar Karlsdóttir og Hjördis Antons- dóttir. t varastjórn: Elin Sigurðardóttir, Gerður Torfa- dóttir og Eyrún Snót Eggerts- dóttir. Þá voru eftirtaldar konur kjömar i trúnaöarmannaráö félagsins: Maria Jóhannes- dóttir, Bjarney Guömunds- dóttir, Halldóra Björnsdóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir. Til vara voru kjörnar: Ey- geröur Bjarnfreösdóttir, Guð- laug Pétursdóttir, Asta Arna- dóttir og Lára Pálmadóttir. —HEI Fundur fyrir húsbyggjend ur og íbúðakaupendur KóPAVOGUR: Framsóknar- félögin i Kópavogi efna i kvöld til opins fundar fyrir hús- byggjendur og kaupendur og aðra þá sem áhuga hafa á þeim málum. A fundi þessum flytja erindi þeir: Tómas Amason, banka- málaráðherra, Skúli Sigur- grimsson sem bæjarfulltrúi i Kópavogi, Vilhjálmur Einars- son fasteignasali, Þráinn Valdimarsson sem fulltrúi I Húsnæðismálastjórn og Þor- steinn Björnsson frá Bygg- ingarsamvinnufélagi Kópa- vogs. öllum Kópavogsbúum sem áhuga hafa á þessum mála- flokki erboðið á þennan fund, sem ætti aö vera kjörið tæki- færi til að afla sér á einum stað viðtækra upplýsinga um flesta þá málaflokka sem hús- byggjendur og kaupendur varðar, m.a. undirbúning bygginga, fjármögnunar- möguleika, byggingaraöferöir og fleira, þar sem fulltrúar flestra þeirra stofnana og stjórna sem húsbyggjendur þurfa að leita til veröa þarna samankomnir á einum staö. Að loknum stuttum erindum þeirra mun fólk geta lagt fyrir þá þær spurningar sem þeim liggur á hjarta varðandi þessi mál. Fundurinn hefst I Hamra- borg 5 kl. 20.30. Fundarstjóri verður Helgi H. Jónsson, fréttamaður. —HEI Opnun frid- ads svæðis stefnir af - komu í voða HÚSAVÍK: „Frekari opnun friðaða svæðisins út af norð- austurlanditil veiða meö botn- vörpu mundu stefna i voða af- komu og atvinnuöryggi verka- fólks, sem byggir lifsaíkomu sina á vinnu við veiðar og vinnslu sjávarafla á noröaust- urlandi”, segir I ályktun stjórnar og trúnaðarmanna- ráðs Verkalýðsfélags Húsa - vikur.sem mótrnælir harðlega tillögum frá Hafrannsóknar- stofnun um- slika opnun. „Verði látib undan þeim þrýstingi sem stjórnvöld liggja undir i þessu máli, mun fótunum verða kippt undan út- gerð smærri og stærri báta á norðausturlandi með ófyrir- sjáaniegum afleiðingum i at- vinnulifi staðanna”, segir i ályktuninni. Skoraði fundurinn á sjávar- útvegsráðherra að láta hvergi úndan þeim þrýstingi sem beitt er til að knýja fram l'rek- i opnun hinna friðuðu svæða orðiðer. —HEI Grund gefur stórfé til Grímseyjar- kirkju GRÍMSEY: Ekki virðist lát á stórgjöfum Glsla Sigurbjörns- sonar forstjóra á Grund til góðra málefna héri landi. Ný- lega afhenti GIsli biskupi ts- lands herra Pétri Sigurgeirs- syni gjöf til Grimseyjarkirkju að upphæð 20.000 kr. Með gjöf- inni fylgdi eftirfarandi bréf: „Á þessu ári eru sextíu ár liöin frá þvi aö Elli- og hjúkrunarheimilið Grund tók til starfa. Séra Sigurbjörn A. Gislason einn stofnenda og formaöur stjórnarnefndar til æviloka lét sér annt um fólkiö I Grimsey og þótti vænt um þaö. Meðfylgjandi ávisun er gjöf til kirkjunnar i Grímsey til minningar um hann og sam- starfsmenn. ■ Strax á fyrsta starfsdegi Þrekmiöstöövarinnar var fulit aö gera. Þessi mynd er úr tækjasalnum oe tU hafþri 11 mvnrlinm m á ció ihi<ÁHnbnnnni<nno ------. «... J ________ . b hægriá myndinni má sjá iþróttakennarana þrjá sem reka stööina. Þeir eru frá vinstri: Páll ólafsson Geir Hallsteinsson og Niels A. Lund. Þrír íþróttakennarar opna líkams ræktarstöð í Hafnarfirði: JfOLL HREYFING ER MflRKMH) OKKAR’ ■ Þrir iþróttakennarar, þeir Geir Hallsteinsson, Nlels A. Lund og Páll ólafsson, hafa nú opnað likamsræktarstöð aö Dalshrauni 4, Hafnarfirði og nefna þeir stöðislna Þrekmiöstöðina. Eins og kunnugt er fjallaði Timinná sinum tíma nokkuð um likamsræktarstöö var hér á Reykjavikursvæöinu og þann ókost sem það hefur i för með sér að ómenntaðir menn sjá um þjálfun þeirra einstaklinga sem þangað sækja. Þvi þótti það ekki úr vegi að gera þeim þremenn- ingunum heimsókn á fyrsta starfsdegi Þrekmiðstöðvarinnar og forvitnast um þaö hvernig þeir hyggjast reka fyrirtækið. Páíl Ólafsson hefur orð fyrir þeim félögum: „Það sem við munum bjóða upp á hérna er leik- fimi, lyftingar, gufuböð, ljósböð, nudd, heitir pottar (úti), auk þess sem hægt verður að leggja stund á svo til hvaða iþróttagrein sem er i Iþróttasalnum hérna. Við rekum þessa stöð með nokkuð öðru sniöi en aðrar stöðvar eru reknar, þvi hérna er sérstakur tækjasalur, þar sem menn geta iðkað hverskonar þrek- og kraftþjálfun, en einnig erum við hér meö góðan iþrótta- sal sem ætti að vera afar hentug- ur, t.d. heilu höpunum frá fyrir- tækjum o.þ.h. A opnunartima verður hér alltaf menntaöur Iþróttakennari til leiðbeiningar en við veröum með stöðina opna frá kl. 7 á morgnana til kl. 23, en um helgar frá kl. 8 til kl. 19”. ,,Holl hreyfing, kjörorð okkar” • — Veröið þið með einhverjar nýjungar sem ekki hafa tiðkast hjá öðrum líkamsræktar- stöðvum? Niels: „Markmið okkar meö þessum rekstri skilst víst einna best i gegnum kjörorö okkar sem er: „Holl hreyfing”. Við viljum stuðla að þvl að sem flestir leggi stund á holla hreyfingu og viljum leiðbeina fólki til þess. Hér i ná- grenninu eru margar skemmti- legar trimmleiöir, þannig að fólk getur nýtt sér aðstöðu þá sem við bjóðum upp á og farið jafnframt út að trimma. Við verðum með sérstaka kvennatima á mánu- dags- miðvikudags- og föstudags- morgnum, frá 9.50 til kl. 12 þvi sumar konur vilja ekki vera að æfa innanum karlmennina. A mánudags- og miðvikudags- kvöldum verða einnig sérstakir kvennatfmar frá 19.40 til kl. 23. og þá hafa konurnar húsið að öllu leyti fyrir sig, ásamt þvi sem kveniþróttakennari verður þeim til leiðsagnar. Það sem ef til vill er einna nýstárlegast hjá okkur, er að morgun hvern, kl. 7.20 og svo aftur kl. 8 verðum við með morguntrimm, sem verður alveg upplagt fyrir fólk að sækja áður en það fer til vinnu”. ,.Væntum þess að Hafnfirðingar nýti sér þessa aðstöðu” — Er þessi likamsræktar- markaður ekki aö verða of- msttaður? Geir: „Siður en svo. Hér i Hafnarfirði er t.d. engin svona stöð þannig að viö væntum þess að Hafnfirðingar muni nýta sér þessa aðstöðu. Ég þekki það af eigin raun héðan úr Hafnarfirði aö fólk, einstaklingar og vinnu- hópar hafa viljað fá tima I Iþróttahúsinu, en hafa ekki kom- ist aö vegna iþróttafélaganna. Hér hafa þessiraðilar tækifæri til þess að komast I iþróttasal, auk þess sem þeir geta nýtt sér allt annaö sem við höfum upp á að bjóða um leið. Við hyggjumst einnig reyna að höfða til eldri borgaranna með þvi að vera með' létt trimm við þeirra hæfi og I þvi markmiði ætl- um við aö ræða við félagsmála- stofnun um það hvort við getum ekki haft einhvers konar sam- starf. Ennein nýjunginhjá okkur, verður sú að á sunnudögum ætlum við að vera með fjöl- skyldutrimm og i sumar verður sú starfsemi jafnvel færð þannig út að farið verður um helgar með rútum héðan og ekið þangað sem einhver góð trimmleið er, t.d. i Heiðmörk og aðstaðan hérna slðan nýtt að útiverunni lokinni. Þetta er enn á mótunarskeiði hjá okkur, þannig að við vildum gjarnan fá sem flestar hug- myndir frá væntanlegum viöskiptavinum okkar”. —AB I A baklóöinni aö Dalshrauni hafa félagarnir þrir látiö setja upp tvo heita potta sem gott er aö slaka á í, aö lokinni áreynsiunni. Hér er hún Hrafnhildur Hjálmarsdóttir á leiö niöur I pottinn og var hún litt hrifin af Þvi aö vera fjölmiðlamönnum til sýnis eins og hún oröaöi þaö. Lái henni hver sem vill. Tímamyndir — Róbert.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.