Tíminn - 29.04.1982, Qupperneq 11

Tíminn - 29.04.1982, Qupperneq 11
Fimmtudagur 29. april 1982 15 menningarmál Sýning á verk- um Höskuldar Björnssonar ■ Gunnar Dal Öld sagt til syndanna HÖSKULDUR BJÖRNSSON Úr fórum fjölskyldunnar Kjarvalsstaöir 17. april — 2. mai 1982 139 myndir unnar með margvis- legum efnum. Opið á venjulegum timum. Höskuldur Björnsson ■ Það er dálitið um það núna, að efnt er til sýningar á verkum lát- inna listamanna og er það vel. Og reyndar bráðnauðsynlegt til þess að sérhverri kynslóð gefist kostur að sjá hvað unnið var i landinu áður. Þegar myndlistarmenn ■ Höskuldur Björnsson, listmálari (1907-1963) falla frá, vill oft fara svo að myndir þeirra sjást sjaldan á sýningum, ef frá eru talin mynd- verk i opinberum söfnum. Þó er þetta vitanlega misjafnt og fer eftir ýmsu. Og það var svo timabært að fá nú stóra sýningu með verkum Höskuldar Björns- sonar, Höskuldur var fæddur árið 1907 i Dilksnesi i A-Skaftafellsýslu og hann lést árið 1963, eða fyrir tæp- um tveim áratugum. Höskuldur lærði teikningu hjá Rikharði Jónssyni myndhöggv- ara innan við tvitugt, og hann naut einnig tilsagnar Jóns Stefánssonar, listmálara. Hann var búsettur á Dilksnesi og á Höfn i Hornafirði til ársins 1946, er hann fluttist i Hveragerði, en um þær mundir voru þar búsettir all- margir listamenn, skáid, ljóð- skáld og málarar. Höskuldur Björnsson fór þvi nokkuð óvenjulega leið. Að visu hafa myndlistarmenn reynt að setjast að úti á landi samanber þegar Gunnlaugur Scheving setti sig niður á Seyðisfirði. Og ekki veit ég hvers vegna Höskuldur Björnsson kaus Hornafjörð og Hveragerði til fastrar búsetu. En það er kannske einmitt þess vegna sem svo augljós vinátta við náttúruna og útilif kemur fram i myndum hans. Hann málar fugla. Liklega þekktastur fyrir þær myndir, sveitabæi og fjöll. Hann fór þvi sinar eigin leiðir i mörgu tilliti. Höskuldur lifði að verða þjóðkunnur myndlistarmaður og hann sýndi i Reykjavik, Kaup- mannahöfn, Osló, Bergen, Sel- fossi og i Hveragerði. Myndir hans prýða nú opinber söfn og eru til viða á heimilum, og þykja þar kjörgripir. Sýningin Sýningin á Kjarvalsstöðum ber heitið Úrfórum f jölskyldunnarog þá telur maður að þarna séu komnar saman óseldar myndir er hann lét eftir sig og myndir er hann hafði gefið fjölskyldu sinni. Þetta er að vissu leyti ágæt leið til aðkynna málara, en þó ekki sú besta. Málarar selja oft bestu myndir sinar, eða flestir gjöra það og það sem eftir verður er oft það eitt sem óselt var. Þó hafa fá- einir málarar þann sið að stinga undan góðum hlutum. Myndir er þeir töldu vissara að eiga sjálfir. En á þetta er minnst, vegna þess að auðvitað ber sýningin þess merki, að ekki eru fengnar myndir ofan af veggjum frá öðru fólki. Þvi vantar mikið á að þarna sé Höskuldur Björnsson sýndur með fullum styrkleika ef svo má orða það. Við skoðun á sýningunni þá kemur i ljós sem reyndar var vit- að fyrir að honum lét vatnslitur- inn einna best, enda þótt maður hafi séð margar góðar oliumyndir lika eftir Höskuld. Á sýningunni að Kjarvals- stöðum eru margar listilega vel gjörðar myndir og þær sem mesta athygli mina vöktu, voru þessar: no 4.Frá Hornafirði, 18. Tungulækur, 43. Búrfell, 52. Frá Grundarfirði, 54. Loftstaðir, 67. Æðarkolla með unga 8. Frá Hornafirði og 105. Útilega. En öðrum þræði eru þessar myndir nefndar, þvi þær fara svo nærri þeirri mynd er maður hafði fyrir sér af lifsverki Höskuldar Björnssonar. Aðeins tvær myndir eru þó frá Þorlákshöfn ef ég hefi tekið rétt eftir en þó er undirrituðum kunn- ugt um að Höskuldur málaði tals- vert þar — og seldi. Þá eru teikningar hans einnig frábærar, bæði kritarmyndir og pensilteikningar. Oliumálverkin standa öðrum verkum nokkuð að baki. Kristjánfrá Djúpalæk var sam- tiða Höskuldi og Hallfriði Páls- dótturkonuhans i Hveragerði um 11 ára skeið. Hann ritar i sýningarskrá meðal annars á þessa leið og undir það geta allir tekið: „Höskuldur átti bæði hagar og hlýðnar hendur er gerðu honum hvert verk létt og hann átti óvenju skarpa sjón á töfra umhverfis sins i náttúru og mannlifi. Hvort tveggja var forsenda þeirra lista- verka er eftir hann liggja. Við sjáum nokkur af þeim hér. Hann var vissulega háður þeim annmörkum i eðli flestra lista- manna að vera timunum saman afhuga vinnu við listsköpun eink- um ef hann fann sig knúinn til að sinna henni, t.d. ljúka verki sam- kvæmt pöntun. Starfshvötin varð að koma innanfrá og er hún vaknaði varð honum furðulega mikið úr verki. Þó var aldrei slakað á fullkominni trúmennsku við listina. Og á stund náðarinnar skóp hann mikil listaverk. Það er hin mikla umbun og hamingja hvers listamanns og þeirra er næstir standa. Arið 1957 fórum við hjón ásamt Höskuldi og konu hans, Hallfriði Pálsdóttur, norður um land á bif- reiðum okkar og siðan austur á hinar undur fögru æskustöðvar hans i Hornafirði. Við dvöldum þarna vikutima i sumarsól og á þessum dögum fannst mér ég öðl- ast nýjan skilning á manninum. Höskuldi og list hans. Mér þótti sem ólýsanleg fegurð þessa héraðs vekti að baki allra verka hans.mjúkar linur nesja og voga með fuglinn i fjörunni naktir tind- ar i nánd og hrikaleg snjófjöllin i fjarska ásamt sjálfu úthafinu handan sandrifjanna. Lista- maðurinn og verk hans tóku birtu sina og svip frá æskustöðvunum og þvi góða mannlifi er slikt um- hverfi skapar. Þessu öllu unni hann lika heilum huga”. Það ætti raunar að vera óþarfi að hvetja fólk til þess að láta ekki þessa sýningu fram hjá sér fara, ef kostur er. Þvi Höskuldur hefur það mikla sérstöðu sem mynd- listarmaður, að áhugavert er. ÖLD FIFLSINS Ljóð Gunnar Dai. Vikurútgáfan Guðjón Eliasson Reykjavik 1981 Ort um vanda heimsins Mörgum þykir hálf draugalegt i heiminum núna. Einhver óskil- greindógn vofir yfir og er þá ekki átt við þær staöreyndir einar, aö menn geta nú eytt jörðinni allri, ef þeim sýnist svo. Til þess eiga þeir nægjanlegt magn af kjarn- orkuvopnum og af eitri. Fólk get- ur átt von á heimsendi svo aö segja hvaða dag sem er. Það er þvi ekkert undarlegt, þótt þau skáld okkar er fást við heimspeki, yrki nú um heiminn allan um það sem aflaga fer. Um allan þennan sársauka er þv'i fylgir aö vera maður á öld fífls- ins, eins og Gunnar Dal nefnir vora öld. Um skáldið og rithöfundinn Gunnar Dal er ekki nauðsynlegt að skrifa mikiö. Hann er frægðar- maður i bókmenntum og eftir hann liggja tugir verka, ljóð, skáldrit og heimspekirit. Og nú hefur hann sent frá sér ljóðabók- ina öld fiflsins og hann byrjar bók sina svona: Þú áratugur okkar týndu drauma, sem upplausn hverri gefur lausa tauma. Mun fiflsins öld ei frelsi sinu tapa og flestar Staðieysur aðlokum hrapa Öld fiflsins Ljóðabókin öld Rflsins er rúm- lega eitt hundrað blaösiöur að lengd, og þar er fjallað um heim- inn. Af nöfnum kvæöanna má nokkuö ráða um innihaldiö: öld fiflsins, Velferð, Brauö og stein- ar, Valdsins menn, Pol Pot, Eyði- merkurganga, Khadafy, Dauði prinsessu, Ljóö um vitiö, öryggið, auðlegðina, frelsið, ástina og Vor i maibikisvoeitthvaösé upp taliö. Gunnar Dal gengur þarna hreint til verks. Hann reynir ekki aö hengja kvæöi sin á einhverja lyri'ska snaga og hagræöa rimsins vegna. Þetta eru fáorð ljóð sem einkum eru borin uppi af staöreyndum, og einhvern veginn finnst mér ein visa i þessari bók, lýsa efnihennar, en hún er iSöng- ljóði um vinstrisinnaöan hug- sjónamann: En fánýt gleði finnst mér bylting sú Þvf fýrsta máltiö hennar yröir þú. Það erað visu ekki ný kenning, að byltingin étur oft börnin sin, en nú hefur þessi hugsun fengið nýtt samhengi. Menn ráða ekki lengur feröinni, hvorki austan hafs, né vestan. Heimurinn er byrjaður aö stjórna sér sjálfur, byssurnar farnar að skjóta sjálfar eins og Jónas frá Hriflu orðaði það. Ekki skal ég segja um það, hvort þessi litla bók Gunnars Dal breytir heiminum verulega, fremur en sú ályktun miöstjórnar Framsóknarflokksins á dögun- um, að hann, flokkurinn, ætti að hafa frumkvæði i aö koma i' veg fyrir kjarnorkustyrjöld. En hverjum manni er bók Gunnars Dal góð lesing, þvi menn vita meira um sjálfan sig,um heiminn og alla skelfinguna á eftir. Frá sjónarmiöi ljóðlistarinnar, eða bókmenntanna, þótti mér kvæðiö um Helga Péturss. áhuga- verðast. Manninn sem enginn hefur skiliö, en þaö er svona: Til undrunar ég ævinlega finn, er upp ég lit i næturhimininn. fcg veit að þú átt sjáifur sama draum, þvi saman fljótum við i timans straum. Þér fleiri stjörnur ekkert auga leit. Þær allar gefa þér sin fyrirheit. Vor fagra jörð þin vagga var og er. Hún von um nýja heima gefur þer. Og kornabörn þau vaxa vilja enn. Og vöggu sína yfirgefa, — menn. Og einhvers staðar auðnarstjarna skin sem einhvernti'mann kallar menn til sin. Og eilifð sú er okkur kveikir grun, hún okkur réttar leiðir vlsa mun. Bókinni lýkur Gunnar Dal siöan á miklu kvæði er ber heitið Trú min. Þar minnir hann meöal ann- ars á, að maðurinn er i' sköpun guðs afar smár, en er samt hluti af sköpunarverkinu, sem er mergur málsins og ef til vill hluti af þeirri ógæfu er mannkynið stöðugtratar i. Aö menn eru meö- vitandi um smæö sina en ekki skylduna og þá ábyrgö er þeim ber að axla. Tónleikar ársins? ■ Á tiundu tónleikum Tónlist- arfélagsins 17. april gat að heyra frábærasta ljóðasöng, sem hér hefur heyrzt um langa hrið, liklega síðan Ger- ard Souzay kom hér fyrst fyrir mörgum árum, og stóð þá á hátindi listar sinnar. Sá sem söng heitir William Parker baritonsöngvari, bandariskur maður um eöa innan við fer- tugt. Parker tilheyrir þeim hópi ljóðasöngvara, sem safn- azt hefúr kringum Souzay, og má vafalaust þakka þaö heim- sókn hans hingað. Hann sagði fráþvi á námskeiöi, sem hann hélt meö fslenzkum söngvur- um, að eftir 12 ára ljóösöngv- araferil væru endar loks núna farnir að mætast hjá sér. 1 Bandarikjunum væri ljóða- söngur tahnn „evrópsk list”, og fáir vildu heyra lókal krafta reyna sig, en Evrópu- menn teldu sig ekkert hafa að sækja vestur um haf i þessari listgrein. Þess vegna hefði honum lengstum verið lokaöur aUur hinn vestræni menning- arheimur vegna þjóðernis shis. Parker verður ekki betur lýst en gert er i tónleika- skránni (sem ber þess raunar sorgleg merki, aö Þorsteinn Gylfason heimspekingur er erlendis að rökræöa, en hann hefur lyft ljóða-tónleikaskrám Tónlistarfélagsins á hátt plan), i skránni segir: Bari- tónsöngvarinn William Park- er vann til fyrstu verðlauna i alþjóöakeppni i flutningi á ameriskri tónUst á vegum Kennedy-Center og Rockefell- erstofnunarinnar 1979. I keppninni tóku þátt yfir 300 tóniistarmenn og var úrskurö- ur dómnefndar að Parker hlyti verölaun vegna „glæsi- legra raddeiginleika, öruggr- ar sviðsframkomu og mikils hugarflugs i túlkun”. Parker hefur semsagt dálitið sér- kennilega en griðarfallega baritónrödd, fullkomna tækni, óvenjulega góðan textafram- burð (svo i rauninni hefði ver- iö óþarfi að prenta textana þess vegna), og áhrifamikla „túlkun” svo af ber. Flutning- ur hans á „War scenes” (myndum úr korgarastyrjöld- inni eftir bandariska skáldið Walt Whitman), sem tón- skáldiö Ned Rorem lagsetti fyrirGerard Souzay áriö 1969, var svo skelfilega áhrifamik- ill, aö fingerðir menn voru lengi að jafna sig. Efnisskráin var annars þessi: Adelaide óp. 46 eftir Beet- hoven, Banalites eftir Poul- enc, „War scenes” eftir Ror- em, og loks ljóöaflokkurinn Dichterliebe óp. 48 eftir Schu- mann. Þau af þessum verk- um, sem ég þekkti ekki áöur, þóttu mér stórkostleg i flutn- ingi Parkers, en hin, sem ég áður þekkti, flutti hann betur en ég haföi áður heyrt þau. — svona vel eða a.m.k. áhrifa- mikiö, getur enginn grammó- fónn sungið. Undirleikari Parkers var William Huckaby, sömuleiðis Bandarikjamaður, sem mun vera kunnur i sinu heimalandi bæði fyrir pianóleik og hljóm- sveitarstjórn, enda spilaði hann mjög vel. Það er mikiö ævintýri, að listamenn eins og Ashkenazy og Parker skuli heyrast hér i Reykjavik meö viku millibili, og marga góða tónleika hafa menn heyrt hér i vetur, en þó tel ég óumdeilan- legt aö ljóöatónleikar Parkers og Huckabys teljist bera af þeim öllum. 22.4. Sigurður Steinþórsson || skrifar um tónlist

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.