Tíminn - 29.04.1982, Síða 20

Tíminn - 29.04.1982, Síða 20
VARAHLUTIB Sendum um land allt. Kaupum nýlega bíla til niðurrus Sími (»1) 7 - 75 - 51, <91) 7 - 80 - 30. Skemmuvegi 20 Kópavoni HEDD HF. Mikíö úrval Opið virka daga 9 19 ■ Laugar- daga 10-16 HEDD HF. Gagnkvæmt tryggingaféJag HÖGGDEYFAR QJvarahlutir Ármiiia 24 36510 Fimmtudagur 29. april 1982 ■ islendingar eru næstir á eftir Bandarikjamönnum að f jölda til i gestabókum þeirra Minnu og Arthur Allin. Hér eru þau með gestabók, sem sérstaklega er ætluð islendingum. (Timamynd ELLA) jm TÍD HAFT STERK- AR TAUGAR TIL (SLANDS — rabbað við þau Arthur og Millu Allin, sem um áratuga skeið hafa hýst íslendinga í Kaupmannahöfn ■ Við Gamle Kongevej númer 47 i Kaupmannahöfn, búa hjónin Arthur og Minna Allin. Þau eru mörgum Islendingum aö góöu kunn, þvi þau reka gistiheimili I húsum sínum sem Islendingar nota gjarnan á feröum sinum til Kaupmannahafnar. Er tiöindamaöur Timans var þaráferöá dögunum dvaldi hann þar i góöu yfirlæti. Heimili þeirra Arthurs og Minnu er hiö hlýleg- asta. Þaö sem vekur mesta athygli er þegar inn er komiö er mikill fjöldi sófa og stóla sem komiö er fyrir i stofunni, sem jafnframt þjónar sem sjdnvarps- herbergi. Stofan, þakin blómum og stór fiskabúr ásamt búri sem i er gamall stórvaxinn Amason páfagaukur gefa þessu herbergi sannkallaöan hitabeltisblæ. En látum nú Arthur hafa oröiö: „Þetta byrjaöi allt fyrir 22 a'r- um nú I sumar. Af tilviljun heyröi ég, er ég eitt sinn var staddur niöri á Aöaljámbrautarstöö aö þaö vantaöi alltaf gistiherbergi hér i Kaupmannahöfn, þá sér- staklega yfir sumartímann. Ég fékk þá hugmyndina aö ef til vill væri þetta tilvaliö fyrir okkur, enda búum viö mjög miösvæöis i borginni. Ég hraöaöi mér heim og ræddi þetta viö Minnu og skömmu sföar var þetta komiö á fulla ferö. Fyrstu gestirnir voru Amerikanar, indælis fólk. Starfsemin jókst á skömmum tima þaö mikiö aö fljötlega kom aö þvi aö þetta varö okkar eina atvinna og lifibrauö. Viö byrjuö- um meö tvöherbergi en fljótlega bættum viö þvi þriöja viö. Amerikanar hafa veriö iönastir viö aö notfæra sér þjónustu okkar, en Islendingar koma þar næstir á eftir. Ég hef alla tiö haft mjög sterkar taugar til islands og þykir mjög gaman aö spjalla viö islendinga. Landiö ykkar er alveg stórkostlega fallegt af myndum aö dæma, og ég hef eignast margar bækur um Island, land og þjóö. Mig langar alltaf jafn mikið til aö koma þangaö, og vonandi læt ég veröa af því einhverntim- ann”. Arthurris úrsæti sfnu og segir: „Komdu nú, ég ætla aö sýna þér herbergin”. Hann opnar inn i það fyrsta: ,,Hér er Guöbrands- stofa”, segir hann og bendir á eftirprentun af islandskorti Guö- brands biskups. Næsta herbergi er Þingvallaherbergiö, prýtt stórri mynd af Þingvöllum og annarri af Gullfossi, þriöja her- bergið Skógarfoss, skreytt mynd af samnefndum fossi heima á Islandi. „Við eigum oröiö sex stórar gestabækur fullar af nöfnum, og margir lima inn i þær myndir og annað til aö minna á sig og land sitt. Ég fékk fljótlega áhuga á þvi aö læra tungumál, svo aö ég gæti betur sinnt þessu nýja starfi minu. Ég fór i kvöldskóla og get núna bjargaö mér á átta til tiu tungumálum. Þar á meðal hebresku! En frönskuna varö ég aö gefast upp viö!” Aö lokum spuröi ég Arthur hvaö kostaði aö gista hjá þeim hjónum. „öll herbergin hjá okkur eru tveggja manna, en þó hafa oft veriö fleiri i hverju her- bergi, og það kostar 90 krónur”. Eila. fréttir Gamall maður fyrir bifhjóli ■ Gamall maöur var fluttur á slysadeild BorgarsjUkrahUssins eftir aö hann varö fyr- ir léttu bifhjóli á Laugaveginum i Reykjavik á ellefta timanum f gærmorg- un. —Sjó. Fínt tfðarfar í apríl ■ „Þótt nokkur úr- koma hafi verið á Suðurlandi undan- farna daga, þá veröur þetta að teljast fint tiðarfar, þvi bæöi siö- ari hluti mars og april hafa verið heitari en meöaltal áranna 1931-60, sagöi KnUtur Knudsen, veöur- fræöingur, þegar við spurðum hann um veöurhorfur i gær- kvöldi. Knútur vildi ekki spá fyrir um þaö hvort við mættum fara aö afskrifa snjó og rigningarkafla, sem veriö hafa nær dag- vissir að undanförnu. Hann sagöi aö ný rign- ingarlægð gengi yfir Sunnlendinga i dag og ef til vill yrði úrkoma eitthvaö á næstunni. Norölendingar og Austfirðingar hafa hins vegar notiö betri veðurskilyröa og hafa þeim notast hlýindi veðurfársins betur af þeim sökum. Blaðburöarbörn óskast Blaðburðarfólk óskast i eftirtalin hverfi: Hverfisgata Laugavegur Hjallavegur Langholtsv. $twmro simi 86-300 dropar Raunasaga af sjúkum manni ■ Það skal strax tekið fram að þessi saga er sönn: Það gerðist fyrir skömmu i sveitarfélagi nökkru á Suðurlandi, að aldraöur maður sótti heim fulltrúa Tryggingarstofnunar rik- isins í plássinu. Sagði maöurinn farir sinar ekki sléttar, — kvaðst haldinn ýmsum kvillum og hann hlyti aö eiga rétt á ein- hverjum bótum frá Tryggingarstofnun. Full- trúi stofnunarinnar kvað slfkt hreint ekki útilokað — maðurinn skyldi bara vitja læknis og verða sér úti um vottorð upp á kvill- ana. Siðan skyldi hann, þ.e. fulltrúinn, sjá um alla skriffinnsku og koma erindinu til réttra aöila. Leið nú og beiö I nokk- urn tima, en ekki kom maðurinn með vottoröiö. Loks kom þó þar að sá sjúki rak inn nefiö hjá fuiltrúanum. „Jæja,... minn, ertu þá loksins kominn með vott- orðið”, spurði fuiltrúinn. „Nei”, svaraði maður- inn og var harla niður- dreginn. „Nú hvað er þetta”, spuröi fulltrúinn, „fórstu ekki til læknisins?” ,,Jú, jú, en hann bauðst bara til að iækna mig”, sagöi maöurinn dapur i bragði. Frímann forstjóri ■ Hjá einu opinberu fyrirtæki hér i borg starfar forstjóri, sem er ákafiega sjaldséður gestur á sinum vinnustað. Þó aðlitil „viövera” sé nú raunar ekkert einsdæmi meðai toppmanna hjá opinberum stofnunum og fyrirtækjum kunnum við nú samt ekki við að nafn- greina þennan ágæta mann. Þó getum við uppiýst hvað starfsmenn fyrir- tækisins kalla umræddan forstjóra, það er að segja sá hluti þeirra sem yfir höfuð veit einhver deili á yfirmanni sinum, jú, hann er auðvitað kallaður Frimann! þvi miðujr eKKi v/10 í Krummi ... ...heyröi það i Morgun- pósti útvarpsins, að Davið Oddsson er sann- færður um, að enginn vilji vinna með honum I borgarstjórn ef ihaldið fær ekki aftur meirihlut- ann. Bragð er að þá barn- ið finnnr...

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.