Tíminn - 16.06.1982, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1982
fréttir
Gunnar Björnsson, formaður Meistarasambands byggingamanna:
Samningar
bygginga-
manna:
„YFIRBORGANIR........... „M,
INN í ÞENNAN SAMNING” —
— „þannig að hann þýði alls ekki þær raunhækkanir,
sem hækkanirnar hljóða upp á”
umfram
■ „Á sambandsstjórnarfundi hjá okk-
ur i dag var ákveðið, að i framhaldi þessa
samnings muni Meistarasambandið
beita sér sérstaklega fyrir þvi, að þær
yfirborganir, sem mjög mikið er um i
þessum greinum nú renni inn i þennan
samning, þannig að hann þýði alls ekki
þær raunhækkanir í kaupi, sem hækkan-
irnar hljóða upp á“, sagði Gunnar
Björnsson, form. Meistarasambands
byggingamanna i samtali i gær. „Við
munum senda félagsmönnum okkar
sérstakar tilkynningar um þetta og
sérstakar leiðbeiningar um hvernig að
þessu skuli standa“.
Mat Meistarasambandsins á kjara-
samningnum í tölum er um 6,5%
hækkun við undirskrift og um 17,5% á
samningstimanum, eða ekki svo fjarri
því er byggingamenn meta hann.
Tölurnar fundust Gunnari þó helst til
háar enda hefði samningsstaða Meist-
arasambandsins siður en svo verið góð
eftir „leyniplaggssprengingu" VS{. Þótt
byggingamenn hafi ekki fengið að sjá
plaggið, hafi tölunum í því verið hvíslað
i hverju horni og þá talað um 9% +
ASÍ-samninga sem upphafstölu og allt
upp í 20+ ASÍ-samning á samningstím-
anum. „Það gefur auga leið að þetta
varð ekki til að auðvelda okkur leikinn
í samningunum, ekki síst - eftir því sem
manni heyrðist - að fleiri vildu leggja
trúnað á það sem VSÍ-menn sögðu en
hvað við sögðum", sagði Gunnar.
-HEI
Gengið um gólf i Karphúsinu í gær.
Byggingameistarar verða að vera ábyrgir fyrir sínum samningum”:
r,Geta ekki treyst
að þeim verði veitt
út í verðlagið”
— segir Tómas Árnason, viðskiptaráðherra
■ „Menn eru nokkum veginn sam-
mála um það, að byggingameistarar
verði að vera ábyrgir fyrir sínum
samningum, og þeir geta ekki treyst þvi
að geta veitt þeim sjálfvirkt út i
verðlagið," sagði Tómas Ámason,
viðskiptaráðherra, i samtali við Timann
i gær, en mönnum hefur verið tiðrætt
eftir samkomulagið milli Meistarasam-
bands byggingamanna og Sambands
„Einum má ekki
vera auðveldara
en öðrum að velta
af sér þvf sem
samið er um”
— segir félagsmálaráðherra
vinnuna þriðja aðila og skapar það
þeim nokkura sérstöðu miðað við aðra
vinnukaupendur og vinnuseljendur i
landinu.
Ég tel að það væri út af fyrir sig
hugsanlegt að reynt yrði að tryggja
með verðlagsmáiastefnunni, að þær
breytingar scm verða i kjarasamning-
unum fari með nokkuð jöfnum hætti
út í þjóðfélagið. Hvemig það hins
vegar verður gert er erfitt að segja til
um. Það er nauðsynlegt að kanna
leiðir til að finna úrræði til að einum
verði ekki gert auðveldara en öðrum
að velta af sér því sem samjð er um á
hvcrjum tíma“, sagði Svavar Gestsson.
-Kás
byggingamaima að auðvelt sé fyrir þá að
semja meðan þeir geti látið neytendur
borga það sem þeir semja um.
Sagði Tómas að í þessum efnum yrðu
byggingamenn að hafa hliðsjón af því
sem almennt gerist á vinnumarkaðnum.
„Ég álit að það sé ekki nægjanlega gott
ef einstakir hópar skera sig úr með meiri
hækkanir en aðrir, og sérstaklega er ég
þar að hugsa til launalægsta fólksins,
sem oft verður útundan", sagði Tómas.
Hins vegar gat Tómas þess að hann vissi
enn ekki nákvæmlega hvað miklar
kauphækkanir fælust i nýgerðum kjara-
samningi byggingamanna og meistara,
en Þjóðhagsstofnun hefði verið falið að
reikna það út og skila niðurstöðum hið
fyrsta.
Það er Verðlagsráð sem ákveður
hvort hækkanir verði teknar til greina á
útseldri vinnu, en ekki ríkisstjórnin.
„Verðlagsráð getur ákveðið verðlag á
útseldri vinnu með þeim hætti að ekki
verði hægt að veita hækkuninni sjálf-
krafa út í verðlagið alveg án tillits til þess
hvernig aðrir aðilar í þjóðfélaginu
semja“, sagði Tómas Árnason.
-Kás
■ „Við ætluðum okkur ekki að gera
grein fyrir þessum nýju samningum
fyrr eii á morgun - eftir fundi «
félögunum. Siðan gerðist það að
megincfni þeirra er komið, misjafn-
lega útfært í nær öllum fjölmíðþim, -
þótt þetta ætti að vera algert
trúnaðarmál - svo okkur þótti rétt að
bíða ekki lengur“, sagði Grétar
Þorsteinsson, form. Trésmiðafélags
Reykjavíkur á fundi með fréttamonn-
um í gær.
Á fundinum var 'fréttamönnum
gefið eintak af hinurh nýja samningi og
hann skýrður, svo ekki þarf því Iqngur
um að deila hvernig hann hljóðar. Það
þarf þó ekki að þýða að allir séu
sammála skýringum byggingamanna
á því hvað samningurinn feli i sér
miklar launahækkanir.
Að mati þeirra byggingamanna er
vegin hækkun við undirskrift 7,1% á
tímakaup (3,5% grunnkaupshtekkun
auk starfsaldurshækkana og flokkatil-
færslna) og 4,8% i ákvæðisvinnu, eða
vegin meðalhækkun i hvoru tveggja
um 6%. Á sama hátt telja þeir vegna
timakaupshækkun á öllum samnings-
tímanum 16,2% og 17,6% í ákvæðis-
vinnu eða 16,6% að meðaltali i báðum
kaupkerfunum.
Hin beinu ákvæði samningsins eru
m.a. að samið er til 3ja ára, sem mun
lengsti samningstimi sem hér hefur
+erið samið um. Grunnkaupshækkanir
eru: 3.5% við undirritun, 2% l.sept.
1983, önnur 2% 1. des. 1983, 1,5% 1.
júni 1984 og 1% 1. des 1984.Reiknitöl-
ur 'ákvæðisvinnu hækka hlutfallslega
eins.Starfsaldurshækkanir verða: eftir
1. árið 2,5%, e. 3. árið8,5%, e. 5. árið
10% ogfráog með 1. sept. 1983 baetist
við 15% eftir 7. árið, Þessar hækkanir
voru áður um 2,8% eftir 2. árið og um
8% eftir 3. árið.
Auk þess nema flokkahækkanir á
ákvæðisvinnu: 1,5% firtf 1. mars 1982
(að sögn byggingamanna eina hækkun-
in sem verður frá undirritun, þar til í
sept 1983), 2,4% 1. sept. 1983 og 2,4%
1. des. 1983. Þá var samið um að frá
. 1. maí 1983 skuli byggingamenn sem
starfaö hafa 5 ár eða lengur fá þrjá
orlofsdaga til viðbótar þvi sem þá
gildir um almennan orlofsrétt.
- HEI,
„VSÍ sýnt sáttasemjara
fullkomna fyrirlitningu”
■ „Ég tel ekki við hæfi að ég segi
neitt um samninga byggingamanna og
byggingameistara á þessu stigi máls-
ins. Aðalatriðið i minum huga er það,
að samið verði á næstunni, og gengið
verði þannig frá málum að þær
kjarabætur eða þau kjör sem um
verður samið verði sem jöfnust og að
sem mest komi til þeirra sem minnst
hafa fyrir“, sagði Svavar Gestsson,
félagsmálaráðherra, i samtali við
Timann i gær.
„Hins vegar er það þannig að þeir
sem eru með svokallaða útselda vinnu,
þ.e. annars vegar meistarar og hins
vegar starfsmenn á þeirra vegum, selja
segja byggingamenn
■ „Við teljum að i þessu máli hafi
Vinnuveitendasambandið sýnt rikis-
sáttasemjara fullkomna fyrirlitningu“,
sögðu samninganefndarmenn úr félög-
um byggingamanna m.a. á fundi með
fréttamönnum i gær er talið barst að
„leyniplagginu“ margumrædda, sem
sagt var að sprengt hafi allar samninga-
viðræður i siðustu viku. Um plaggið
sjálft vildu byggingamenn ekki tjá sig,
þar ef þeir hefðu aldrei fengið það i
hendur. „En þetta var að öllu leyti
kúnstugt mál“. Þrátt fyrir 5 bókaðar
beiðnir þar um, bæði hjá sáttasemjara,
sáttanefnd og VSÍ hefði þeim alltaf
verið neitað um að fá það i hendur.
Töldu þeir samninganefndarmenn það
algjört einsdæmi að sáttasemjara væri
neitað um að afhenda samninganefnd
samningsgögn.
Óbeint töldu þeir samningamenn
byggingamanna að þessi „leyniplaggs-
sprenging11 VSÍ hafi orðið til þess að
flýta verulega fyrir að samningar
þeirra náðust. Fram til þess tima er
„plaggið" kom fram hafi Meistarasam-
bandið engin svör gefið, heldur neitað
öllum kröfum. „Eftir að „sprengjan
•sprakk" tókst okkur loks að fá fram
efnislegar viðræður við Meistarasam-
bandið um kröfugerð okkar, sem
leiddi til þeirra samninga sem nú hafa
náðst“.
Það kom fram að þessir samningar
ná til um 80-85% af iðnaðarmönnum.
Stærsti hópurinn sem utan við þá
stendur eru húsgagnasmiðir, þar sem
VSÍ fer með samningsumboð viðsemj-
enda þeirra. Með þessum nýja samn-
ingi er algengasta timakaup iðnaðar-
manna sagt um 62,32 kr., en hæsta
kaup 70,41 kr.. Mánaðarlaun sam-
kvæmt þessum tölum eru þá á bilinu
10.700,- til 12.100,- kr.
Því má bæta við til gamans - eða
angurs - að fram kom að timakaup
trésmiða hefur hækkað um 5.315% á
árunum 1970 til 1981. En ekki treysti
formaður trésmiða sér til að fullyrða
að nokkur raunveruleg kjarabót væri
eftir af þessari 5.315% kauphækkun.
- HEI.