Tíminn - 16.06.1982, Side 4
4
AFLRAUN ÁN ERFIÐIS
OPEL AKSTUR
@ VÉLADEILD
Ármúla3 S.38900
■ Frá aðalfundi Arnarflugs á Hótel Sögu. Haukur Bjömsson, stjómarformaðurfélagsinsflyturskýrslustjómar. Tinumynd:G.E.
Traust f járhagsstaða Arnarflugs:
HAGNAÐUR ARH) 1981
A SJÖUNDU MILUÚN
„Þetta er fyrst og fremst heppni að þakka en
einnig samstilltu starfsfólki og litilli yfirbygg
ingu félagsins’” segir Gunnar Þorvaldsson,
framkvæmdastjóri Arnarflugs
■ Siðastliðið ár er hið besta i sögu
Araarflugs. Verkefni vom meiri en
nokkm sinni fyrr, og flmmfaldaðist velta
þess frá árinu áður. Hagnaður var af
rekstri Amarflugs sem nam 6.1 milljón
króna, áður en skattar höfðu verið
reiknaðir.
Þessar upplýsingar komu fram á
aðalfundi Flugfélagsins Arnarflugs sem
haldinn var siðdegis í gær. í skýrslu
stjórnarformanns, Hauks Björnssonar,
kom fram að félagið var með átta
flugvélar í rekstri þegar mest var, á sl.
ári, þar af fjórar stórar þotur. Sagði
hann að hagur félagsins væri blómlegur,
lausafjárstaða þess góð og félagið þvi vel
i stakk búið til að takast á við nýtt
verkefni i rekstrinum, sem er áætlunar-
flug til Amsterdam, Dusseldorf' og
Zurich sem hefst í næsta mánuði.
Leiguflug erlendis var stærsti þáttur-
inn i starfsemi félagsins á árinu 1981 og
gekk það mjög vel. Hjá Arnarflugi
störfuðu að meðaltali um 62 starfsmenn,
og fjölgaði farþegum þess um rúm 10%.
Tap varð á innanlandsflugi félagsins ,
en þó batnaði afkoma þess verulega frá
árinu á undan. Á aðalfundi Arnarflugs
i gær var* stjórn fyrirtækisins öll
endurkjörin.
En hvernig tekst Arnarflugi að reka
flugfélag með hagnaði á sama tíma og
mörg önnur flugfélög lepja dauðann úr
skel? Gunnar Þorvaldsson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, svaraði
þeirri spurningu:
„Þetta er i fyrsta lagi heppni að þakka,
því sá rekstur sem við stundum er mjög
sveiflukenndur, og gengur þar af
leiðandi vel eitt árið en verr það næsta.
Þetta er áhættumikill rekstur og miklir
peningar í honum, og því oft skammt
stórra högga á milli. f annan stað, og
ekki síst, höfum við á að skipa mjög
hæfu og samstilltu starfsfólki, sem snýr
bökum saman, og hugsar mjög vel um
hag fyrirtækisins. Þá skiptir það ekki
minnstu máli að vel hefur tekist í að
halda yftrbyggingu félagsins í lágmarki.
Kostnaður vegna hennar nemur nú 3%
af veltu, sem er mjög lágt hlutfall. Ég
held að það séu þær þrjár ástæður sem
mestu máli skipta.“
- Hvemig hefur rekstur innanlands-
flugs Amarflugs gengið á sl. ári?
„Innanlandsflugið er enn rekið með
tapi, en þó er útkoman miklu betri en á
árinu þar á undan. Þetta er eins og við
sögðum í upphafi, að við treystum okkur
ekki til að byrja á innanlandsflugi og
reka það hallalaust frá upphafi, en þetta
hefur lagast. Takmarkið er auðvitað
hallalaus rekstur.
Auðvitað verður að búa innanlands-
fluginu þau skilyrði að hægt sé að reka
það hallalaust. Það sem háir okkur hins
vegar mest eru lélegir og ófullkomnir
flugvellir, sem leiða til þess að við getum
ekki beitt hagkvæmasta vélakosti. Menn
tala mikið um nauðsyn hækkun fargjalda
i þessu flugi, og vissulega þurfa þau að
hækka til jafns við verðhækkanir og
aukinn tilkostnað. Það er aftur á móti
ekki eina lausnin, þvi við sem í fluginu
stöndum erum i mikilli samkeppni við
bifreiðar. Menn hljóta að velta því fyrir
sér hvort hagkvæmara sé að aka til
Reykjavíkur og hafa sina bifreið þar
með þeim þægindum sem því fylgir, eða
fljúga. Lausnin á þessu er þvi ekki sú
ein að gefa þessa verðlagningu frjálsa og
hækka verðið upp úr öllu valdi.“
- Hver áttu von á, að verði framtið
Amarflugs á næstu árum með hliðsjón
af nýfengnum leyfum til áætlunarflugs
erlendis.
„Verkefni Amarflugs em mjög
þokkaleg á þessu ári, þannig að ég á von
á þvi að reksturinn verði jákvæður eins
og síðasta ár. Áætlunarflugið er að
sjálfsögðu ósvöruð spurning. Ég man
heldur aldrei eftir því, og ég býst við að
fyrirrennari minn Magnús Gunnarsson
geti tekið undir það, að við höfum
skrifað hér undir samning án þess að því
fylgi einhver áhætta um tap eða
ávinning. Ég held að hið sama gildi um
þetta áætlunarflug. Við trúum þvi, að
fyrir utan það að gefa fólki nýjan valkost
i ferðalögum, þá eigi að vera rúm fyrir
litið áætlunarflugfélag við hliðina á
Flugleiðum,“ sagði Gunnar Þorvalds-
son, að lokum. _
■ Þessi glæsilega bifreið er aðalvinningur í happdrætti SVFI í ár.
Happdrætti SVFÍ:
MIÐASÖLU SENN
AÐ LJÚKA
■ Nú er senn að ljúka sölu miða i
happdrætti Siysavamafélags íslands.
Vinningar i happdrættinu em þrír -
aðalvinningur MAZDA fólksbifreið,
árgerð 1982.
Miðar i happdræítinu em nú, eins og
fyrr, með nokkuð sérstöku sniði. Þeir
eru notaðir til að koma á framfæri
vamaðarorðum til almennings. Vakin er
athygli á vandamáli, sem veldur sivax-
andi áhyggjum - áfengisneyslu manna
við stjórn á bátum eða bifreiðum.
Vígorðið er: „EKKI í BÁTI - EKKI í
BIFREIÐ". Gerðir hafa verið sérstakir
limmiðar til að vekja athjgii á þessu
vandamáli og geta menn fest þá upp í
bátum, bifreiðum, á heimilum eða á
vinnustöðum.
{ fyrra voru birt í sambandi við
happdrættið vamaðarorð í tíu liðum í
sambandi við ferðir í ár og vötn. Ekkert
banaslys varð i sambandi við slíkar
ferðir, „og má tvímælalaust þakka það,
hve mjög SVFÍ hefur kappkostað að
vara fólk við margvíslegum hættum á
þvi sviði,“ segir í frétt frá SVFÍ.
Ágóði af happdrættinu rennur að
vanda til starfsemi i þágu slysavama.
- Sjó.